Þjóðviljinn - 29.01.1978, Page 6

Þjóðviljinn - 29.01.1978, Page 6
6 SMBA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 29. janúar 1978. MAGNÚS KJARTANSSON: HVAÐ ER VERÐBÓLGA? Meöan kenningar Lúters voru ennþá trúarbrögö á íslandi voru tvær meginandstæöur i hugum manna, húsbændurnir i efra og neöra. Húsbóndanum i neöra var veitt öllu meiri athygli, jafnt i tali manna sem ræöum þrumu- klerka, eins og Jóns Vidalins, og ég efast um aö nokkru fyrirbæri hafi áskotnast önnur eins ókjör af gælunöfnum og Kölska. Um af- stööuna til Kölska eins og hún birtist m.a. i gælunöfnunum verö- ur vafalaust skrifuö lærö doktors- ritgerö á sinum tima, en þó má taka hana sama i eina setningu: Þaö voru allir á móti honum (aö undanskildum örfáum sérvitring- um). Eftir aö lúterskenningar breyttust úr trúarbrögðum i venju i sérstökum tengslum viö nafngiftir, fermingar, giftingar og útfarir er sárasjaldan minnst á hann i neöra og trúlega aldrei úr prédikunarstólum i kirkjum. Seinustu áratugina hefur annaö fyrirbæri tekið sessinn, verðbólg- an, og við henni er brugðist á sama hátt: Það eru allir á móti verðbólgunni. Þetta kemur fram I ræöum og greinum manna úr öll- um stjórnmálaflokkum, öllum stéttum og ölium aldurshópum. Hins vegar er fjallað um hana af fjölmörgum sjónarhólum, enda eru áhrif veröbólgunnar flókiö þjóðfélagslegt fyrirbæri, þótt henni hafi ekki enn verið valdar jafn fjölskrúöugar og skemmti- legar nafngiftir og húsbóndinn i neöra átti að fagna. Að þvi kemur vafalaust. Aileiðing ai stéttaátökum Þótt áhrif jveröbólgunnar séu býsna flókið félagslegt fyrirbæri eru orsakir hennar einfaldar. Hún er hvarvetna afleiðing af stétta- átökum i þjóöfélögum. Veröbólg- an á Islandi er mjög ljóst dæmi um þetta. Hún er afleiöing af átökum launafólks og atvinnu- rekenda um kaup og kjör og inn- lent vandamái aö Iangmestu leyti (þótt alþjóðleg veröbólga geri vart viö sig i vaxandi mæli, eins og þegar oliuverðhækkunin dundi yfir 1973 og fjölmargar alþjóöleg- ar hækkanir á vörum sem tengust oliu). tslenska veröbólgan þróast ofur einfaldlega þannig: Samtök launamanna heyja baráttu fyrir hærra kaupi og bættum kjörum. Eftir tiltekin átök eru geröir samningar sem leggja byröar á atvinnuvegina. Siöan taka at- vinnurekendur til sinna ráöa, hækka verð á öllum framleiöslu- vörum sinum og velta þannig byrðunum af sér út I verölagiö. Þeir atvinnurekendur sem fram- leiöa fyrir erlendan markað geta ekki notaö svona einfalda aöferö, heldur er gengi krónunnar skráö i þeirra þágu með gengislækkun- um eöa þeirri nútimaaöferð sem nefnd er „fljótandi gengi”. Þessi hringrás var frekar hæggeng þegar hún hófst i siðustu heims- styrjöld, en siöan hefur hún aukiö hraða sinn meö minniháttar hlé- um þar til i tiö núverandi stjórn- ar, aö viö erum að ná Evrópumeti og veröum vafalaust fljótlega heimsmethafar ef áfram veröur haldiö á sömu braut. Veröbólgan er oröinn meginþáttur i viöhorf- um allra, fyrirtækja jafnt og fjöl- skyldna og einstaklinga. Gengi krónunnar er skýr mælikvaröi um verðbólguna. Alltfram til 1947 var alþjóðlegt verögildi íslenskr- ar og sænskrar krónu hiö sama: nú þurfa Islendingar aö greiöa um 45 krónur fyrir eina sænska krónu. Þetta merkir ekki að lifs- kjör tslendinga séu nú aðeins einn fertugasti og fimmti hluti af lifs- kjörum Svia I samanburöi viö ár- iö 1947, heldur fyrst og fremst aö veröbólguhjólið hefur snúist margfalt hraöar hér en þar. Hinn snauðasti varð hinn rikasti Veröbólgan er ekki aöeins til marks um stéttaátök, hún hefur orðið sjálf gróðamyndunaraö- feröin i islensku þjóðfélagi. Faöir minn sagöi mér einu sinni fróö- lega sögu um þessa þróun. Þegar hann var um tvítugt austur i Árnessýslu kom til hans erindreki sem seldi liftryggingar og lagöi aö honum að vera fyrirhyggju- samur og hugsa til elliáranna. Þessar röksemdir voru áhrifarik- ar, þvi aö þjóöfélagiö var fullt af blásnauðum og réttlausum gamalmennum, sem mörg hver voru mun verr leikin en aröbær búpeningur. Faðir minn geröi samning viö erindrekann um þaö, aö hann fengi sextugur greidda upphæö sem virtist mjög álitleg þegar samningurinn var geröur. Tekjur fööur mins voru litlar um þær mundir, og hann sagöi mér aö hann hefði margsinnis oröiö aö neita sér um að kaupa föt þrátt fyrir brýna nauðsyn, til þess aö geta staöið i skilum viö liftrygg- ingarfélagið. Þegar hann fékk lif- trygginguna greidda sextugur nægöi hún nákvæmiega fyrir ein- um fötum. Flestir voru þoiendur þessarar þróunar, en smátt og smátt fóru gáfaöir fésýslumenn meö aöstööu aö átta sig á henni. 1 tiö vinstri- stjórnarinnar fyrri var fram- kvæmd eignakönnun, þar sem fasteignir, vélar og önnur verö- mæti voru metin á réttan hátt en ekki samkvæmt úreitu fasteigna- mati. Útgerðarmenn báru sig þá mjög illa eins og jafnan, fyrr og siöar, en enginn var talinn eins bágstaddur og Einar Sigurösson útgeröarmaöur i Vestmannaeyj- um, en hann var þá landskunnur fyrir athafnasemi, greind og skemmtilega lund. Einar var stórskuldugur i lánastofnunum og hann haföi þann hátt á aö skilja aldrei viö sig pening fyrr en I siö- ustu lög, hvorki i launagreiöslur, afborganir né vexti, hann greiddi venjulega af lánum sinum nokkr- um klukkutimum fyrir auglýst nauöungaruppboð. Eignakönnun- in leiddi hins vegar i ljós að þessi blásnauöi útgerðarmaöur var i raun auöugasti maður landsins. Hann hafði fengið lánsfé i bönk- um, sparisjóðum og öörum sjóö- um og fest upphæöirnar i stein- steypu, framleiöslutækjum og skipum. Fasteignirnar höföu hækkaö i samræmi viö veröbólg- una og raunar öllu meira, en krónurnar sem lánin voru reiknuö i uröu verðgildisminni meö hverj- um degi og þvi um að gera að borga sem siðast. Þannig varö Einar snauði aö Einari rika, og ætti að koma fyrir höggmynd af honum i þeim deildum háskólans sem fjalla um svokölluö hagvis- indi. V erðgildi krónuwnar Verðbólguþróunin hefur ekki bitnaö jafn greinilega á neinu og verðgildi krónunnar. Þegar ég var ungur var mönnum þaö keppikefli að reyna aö tryggja af- komu sina á elliárunum, meö lif- tryggingu eins og ég minntist á áöan, með þvi aö nurla saman vaxandi peningaupphæö i lána- stofnunum, og allir vildu a.m.k. „eiga fyrir útförinni sinni”. Oöa- veröbólgan hefur ekki leikið neina jafn grátt og þessa spari- fjáreigendur, fjármunum þeirra hefur hreiniega verið stolið. Vissulega hafa komiö til aðrar aögerðir á móti, og má þar fyrst og fremst nefna almannatrygg- ingakerfiö, þótt bætur þaðan séu enn smánarlega lágar. En þessi beini þjófnaöur úr lánastofnunum hefur oröiö til þess aö sparifé hefur aö undanförnu sifellt minnkaö sem hlutfall af þjóöar- tekjum, allir sem haft hafa aö- stööu til. hafa reynt aö varöveita fé sitt í eignum af steinsteyputagi til þess að tryggja verögildiö. Stjórnarvöld hafa gert sér þetta ljóst aö undanförnu og reynt aö draga til sin sparifé meö si- hækkandi vaxtagreiðslum, meö útgáfu á rikisskuldabréfum og sérstökum sparifjárbókum sem tryggja hámarksvexti meö til- teknum bindingarákvæöum um spariféö. Er nú svo komiö aö opinberir vextir á Islandi eru orðnir fimmfalt hærri en hlutfall þaö sem hét okurvextir 1 islensk- um lögum fyrir tiltölulega fáum árum. Samt fer þvi fjarri aö þessi ávöxtunaraöferö jafngildi stein- steypuaöferöinni. Þeir sem sifellt þurfa á lánum aö halda eins og til að mynda atvinnurekendur kvarta mjög undan þvi aö vext- irnir séu þungur baggi sem at- vinnurekendur fái ekki undir ris- ið, nema velta þeim út i verölagiö og magna þannig veröbólguna. Allt er þetta rétt, en þaö á ekki viö um vexti frekar en annaö. öll aö- föng atvinnufyrirtækja hækka jafntog þétt, stundum stórlega og ófyrirsjáanlega, og hækkununum er auövitað velt út I verölagiö. Laun hækka árlega um tugi pró- senta — aö krónutölu en ekki aö verögildi — og hækkununum er velt út i verðlagið. Þannig mætti lengi telja. Aö taka vextina eina út úr og ætlast til að sparifé sé verr tryggt en önnur aöföng i at- vinnurekstri stenst ekki. Af- leiðingar slikrar stefnu yröu þær einar að frjáls sparifjármyndum hverfi, enginn vildi eiga fé heldur allir skulda peninga. Engar bremsur Ein orsök þess að veröbólga er oröin óöari hér en i öllum nálæg- um löndum er sérkennilegt hag- kerfi sem ég hef stundum nefnt pilsfaldakapitalisma. Meirihluti framleiðslukerfisins og peninga- kerfisins er I höndum félagslegra aöila að. forminu til, rikis, sveitarfélaga og samvinnuhreyf- ingar. Einkaatvinnurekendur koma árlega volandi til rikis- stjórnar og alþingis og biöja um „rekstrargrundvöll”. I þróuöum auövaldsþjóöfélögum eru hópar voldugra manna sem leggja stund á peningaviöskipti, og þeim er aö sjálfsögðu brýn nauösyn aö peningar haldi sem best veröi gildi sinu. Slikir fjármagns- kapitalistar meö eigið fjármagn hafa ekki veriö til á Islandi. Menn hafa vissulega fengist viö lána- starfsemi i gróöaskyni en ævin- lega stundaö þá iöju i skjóli bank- anna. Þeir sem hafa veriö taldir efnahagslega sterkir hafa haft vissa lánakvóta i bönkum. Þeir hafa siöan keypt vixia af bág- stöddu fólki með ærnum afföllum en getað selt þá á fullu veröi i bönkum. Bankarnir hafa borið ábyrgöina, séö um innheimtuna og tekið á sig skellina, ef til þess kom. Fjárplógsmilliliðum af þessu tagi er auövitaö sama þótt verögildi peninganna rýrni jafnt og þétt, þvi aö þeir lána i raun ekki eigin f jármuni heldur sparifé almennings. I traustum auö- valdsþjóöfélögum er þaö viö- fangsefni peningamanna aö tryggja sem best verögildi pen- inganna, enda er Þýska sam- bandsrikiö og Sviss, þau Vestur- evrópuriki sem minnsta verö- bólgu hafa, en veröbólgu- kapitalisminn fslenski hefur eng- ar bremsur — og þess vegna er verðbólgan gróðamyndunaraö- feröin hériendis. „M«é einii peiMstrfti” Þegar óöaveröbólgan sem er megineinkenni islensks þjóöfé- lags hófst i siöustu heimsstyrjöld, komst ólafur Thors, þáverandi leiötogi Sjálfstæðisflokksins, svo aö oröi aö veröbólguna væri hægt aö stöðva „meö einu penna- striki”. Trúlega getur þessi kenn- ing staöist fræöilega, en i fram- kvæmd yröu afleiðingarnar ógn- arlegar i þjóöfélagi þar sem búiö er aö gera veröbólguviöhorfiö aö þætti i öllum ákvöröunum, jafnt hjá fyrirtækjum sem einstakling- um. Ef verðbólgan stöövaöist i einu vetfangi án annarra aögeröa myndu þúsundir fjölskyldna missa húsakynni sin og verulegan hluta þeirra gripa sem menn safna kringum sig, sama máli gegnir um hvers konar fyrirtæki. Eins og vikiö var aö i upphafi er veröbólgan afleiöing, ekki orsök. I sjálfu sér þarf veröbólga ekki aö vera gróðamyndunarkerfi fyr- ir auöstéttina, fræöilega væri hægt að búa til veröbótakerfi er tryggöi launafólki hagnaö af verðbólgu, ef þaö fengi hærri verölagsbætur meö hverju hækk- uöu visitölustigi en kostnaöar- aukningunni nemur. Slikt kerfi mundi stööva veröbólguþróunina á svipstundu, en i glundroða þjó- félagi eins og þvi islenska er hætt viö að afleiðingarnar yröu veru- legt og vaxandi atvinnuleysi, og það er ennþá verri kostur. Þótt orsakir veröbólgunnar séu aug- ljósar, eru afleiðingar hennar flóknar. Þvi koma engar penna- strikslausnir til greina, hverjir svo sem ráða efnahagsstefnunni. Eina baráttutækið Verðbólgan er til marks um stéttaandstæður i þjóöfélaginu og þvi veröur ekki unninn bugur á veröbólgu nema með þvi aö brúa andstæðurnar og vinna aö þvl aö uppræta þær á markvissan hátt. Sá aöili sem samtök launafólks þarf fyrst og fremst aö takast á viö er rikisvaldiö, vegna þess hvernig islenska efnahagskerfinu er háttað. Lykillinn aö rikisvald- inu er alþingi, og þaö er helsta meinsemdin hjá samtökum launafólks, að þau eru veik á þingi þótt þau séu mjög öflug i samningum um kaup og kjör — þau hafa til skamms tima verið þverklofin á stjórnmálasviöinu. Sighvatur Björgvinsson, þing- maður Alþýöuflokksins, skrifaöi nýlega grein i Alþýðublaöiö og hélt þvi fram aö I pólitiskum deil- um innan samtaka launafólks hefðu hægrikratar alltaf haft rétt fyrir sér siðan Alþýöuflokkurinn klofnaði 1930. Ekki ætla ég aö deila viö Sighvat um þetta, allra sist á þeim umræöugrundvelli sem hann velur sér, enda gerist þess ekki þörf: kjósendur hafa kveðið upp dóm sinn eftir áratuga hjaöningavig. I siöustu kosning- um styrkti Alþýöubandalagið stööu sina meöal kjósenda og á þingi, en þaö valt aöeins á hundruðum atkvæöa aö Alþýöu- flokkurinn héldi nokkrum manni innan veggja þinghússins. Siöan hefur Alþýöuflokkurinn veriö i al- gerri upplausn. Ofl innan flokks- ins haföi hrakið Gylfa Þ. Gisla- son, aöalleiötoga flokksins og hugsjónafræöing, frá framboöi i næstu kosningum. A sama hátt er búiö aö flæma frá framboöi Egg- ert G. Þorsteinsson, eina þing- mann Alþýðuflokksins meö rætur i verklýöshreyfingunni, og Jón Armann Héöinsson. Hinir væntanlegu arftakar stunda mál- flutning sem ekki er I neinum tengslum viö sósialdemó- kratisma eöa hagsmuna- og rétt- inda-baráttu launafólks, þeir ástunda kenningar af svipuöu tagi og Glistrup hinn danski. Þaö gildir einu hvort Alþýöuflokkur- inn veltur út af þingi eða hangir þar inni, hann hefur skoriö á öll tengsl sin viö samtök launafólks. Alþýöubandalagiö er eini flokk- urinn sem heldur uppi merki launafólks og félagslegra viö- horfa. Þvi fer fjarri aö ég hafi hug á aö bera nokkurt lof á Al- þýöubandlagiö, mér eru mjög ljósir annmarkar þess, jafnt i skipulagi sem störfum. En Al- þýöubandalagiö getur oröiööfl- ugt baráttutæki til jafns viö aöra verklýðsflokka I V-Evrópu, sem ýmist kalla sig sósialdemó- krata eöa kommúnista ef lands- menn gera sér ljósa nauðsyn sliks baráttutækis. I slikum flokki þarf aö vera hátt til lofts og vltt til veggja, þar þarf að ræöa öll viö- fangsefni fræöilega og láta mis- jöfn viðhorf þróast, en taka jafn- an kreddulausar ákvaröanir. Þegar slikur flokkur hefur náö þeim styrk sem samtök launa- fólks þurfa á aö halda, er hægt ab takast i alvöru á viö óöaverð- bólgu, rangláta tekjuskiptingu og önnur þau mein sem herfilegust eru I islensku þjóöfélagi. Þetta gerist ekki I hendingskasti frekar en aörar félagslegar breytingar heldur meö þrautseigju, en þetta verður aö gerast ef landsmenn vilja tryggja sér öryggi og vax- andi réttlæti i þjóöfélagi sinu. 500 i gær, 5000 i dag, 50000 á morgun.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.