Þjóðviljinn - 29.01.1978, Qupperneq 11
Sunnudagur 29. janúar 1978. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
75 ára á morgun 30. janúar
Skúlí Guðjónsson
Ljótunnarstöðum
Mér er ákaflega ljúft aö skrifa
um Skúla á Ljótunnarstööum i til-
efni af því aö á morgun veröur
hann 75 ára.
Tvennt kemur til. t fyrsta lagi
er Skúli i minum augum sérstæö-
ur maður, á fáa sina lika, og i
annan staö var náin samvinna
milli okkar um nokkurt árabil hér
áður fyrr og minnist ég ávalt
þeirrar samvinnu meö þakklæti.
Ég kynntist Skúla sumariö 1946,
en þá var kosiö til Alþingis. Ég
var i framboöi i Strandasýslu fyr-
ir Sósialistaflokkinn. Haföi meö
skömmum fyrirvara samþykkt
framboöiö en var satt aö segja
ekki nægilega undirbúinn, eink-
um var ég ekki vel að mér i mál-
efnum landbúnaðarins.
A einum af fjórtán fundum okk-
ar frambjóöendanna stóö upp vel
greindur og glöggur bændahöfö-
ingi, sem meö réttu var mikill aö-
dáandi Hermanns Jónassonar.
Þessi mjög mæti maöur haföi
fundið á sér aö ég var ekki sterk-
ur á svellinu þegar taliö barst aö
landbúnaöarmálum, gekk
skiljanlega á lagiö og stillti mér
upp við vegg, lagði fyrir mig
ákveönar spurningar og kraföist
svara.
Ég varö miöur min undir ræö-
unni og kveiö fyrir næstu ferö
minni i ræöustólinn.
En þá bað Skúli bóndi um oröiö
og það var ekki að þvi aö spyrja.
Hann svaraði starfsbróður slnum
með mikilli rökfestu, svaraöi vel
og skilmerkilega hverri einni ein-,
ustu spurningu og geröi hina
bestu grein fyrir stefnu Sósial-
istaflokksins i málum land-
búnaðarins. Mér fannst sem fargi
heföi veriö af mér létt.
Þetta atvik er einkennandi fyrir
Skúla. Allt frá þvi aö hann yfirgaf
Framsóknarflokkinn fyrir nokkr-
um áratugum hefur hann verið
einlægur sósialisti, staðiö
framarlega i baráttunni bæöi I
sókn og vörn og lóö hans á vogar-
skálinni hefur verið þungt á met-
unum, orö hans i ræöu og riti hafa
vakiö almenna athygli.
Ég sagði áöan aö Skúli væri
sérstæöur maður. Ég“vil skýra
þetta nánar.
A árinu 1936 varö Skúli blindur
á ööru auganu og fékk um leiö
fulla vitneskju um að hann innan
ekki langs tima myndi missa
sjónina á hinu auganu, veröa al-
blindur.
Skúli æðraðist ekki viö þessi
tiðindi sem flestum myndi þykja
svo váleg aö þeir myndu leggja
árar i bát.
Greindur, hugrakkur og heil-
brigöur i hugsun eins og Skúli er
þá geröi hann upp sin mál og
undirbjó sig fyrir tvibýliö viö
myrkriö. Hann fór i kapphlaup
viö timann, eins og hann hefur
sjálfur sagt i bók sinni, Bréf úr
myrkri. I bókinni lýsir Skúli
þessu kapphlaupi af mikilli
snilld.
Hann hafði reiknaö meö aö
halda sjóninni á hinu auganu i 15
ár. Hann lét hendur standa fram
úr ermum, byggöi ásamt sinum
nánustu ibúöarhús handa sér og
fjölskyldu sinni, kom upp kúabúi,
las feiknin öll af bókum.
Arið urðu ekki 15 talsins. Þau
urðu aðeins 10 þvi á árinu 1946
hvarf sjónin á hinu auganu og var
þá margt ógert af þvi sem Skúli
haföi ætlaö sér að koma i fram-
kvæmd. Bygging á fjósi og hlööu
var meðal þess sem ógert var.
Þeim byggingum hélt hann
áfram. Á meðan á þeim stóö vildi
svo til aö við Einar Olgeirsson
vorum á ferö þar nyröra og aö
sjálfsögöu heilsuðum viö upp á
Skúla og fjölskyldu hans.
Viö þrir gengum frá ibúöarhúsi
Skúla og skoöuöum útihúsin sem i
byggingu voru. Túniö var þá
nokkuö þýft og þurftum viö Einar
aö hafa augun með okkur á göng-
unni, en Skúli horföi beint fram
og gekk hiklaust i milli húsanna.
Hann vissi upp á hár hvar hver
þúfa var.
Viö stöldruöum drykklanga
stund viö útihúsin og röbbuöum
saman, en Skúli sem aldrei vill
láta sér verk úr hendi falla tók aö
smiöa, sagaöi timbur og rak
nagla i tilsagaö timbrið.
Eftir aö hafa séö Skúla aö verki
við útihúsin trúi ég þeirri sögu
sem mér var einu sinni sögö af
blindum manni sem meö ná-
kvæmni gat sagt um lit hesta, aö-
eins þurfti hann að strjúka hár
þeirra.
Þaö er áreiðanlega rétt og um
leið dásamlegt aö náttúran skuli
hafa gert manneskjuna þannig úr
garöi, aö þegar hún er svipt einu
skynfærinu þá skerpast önnur
skilningarvit hennar. Þetta hefur
sannast á Skúla.
Þaö voru orö aö sönnu sem ég
sagði áöan aö eftir málflutningi
Skúla hefur verið tekið og þaö er
engin furöa. Bækur hans, Bréf úr
myrkri (1961), Þaö sem ég héf
skrifaö (1969) og Heyrt en ekki
séö (1972) eru fyrir margra hluta
sakir mjög merkileg ritverk,
enda er Skúli bráðgreindur, hann
er einlægur og segir það sem hon-
um býr i brjósti, hann hefur
næma tilfinningu fyrir hina skop-
lega. 1 útvarpinu hefur margur
pistillinn eftir hann verið lesinn
og óhætt er aö segja að á þá hefur
verið hlustaö, enda margir þeirra
orö sem i tima voru töluö. Nokkr-
ir af þessum útvarpsþáttum birt-
ust I bókinni Vér vitum ei hvers
spyrja ber (1975). Þá má ekki
gleyma fjölmörgum greinum
hans i Þjóöviljanum sem alla tiö
hafa veriö meðal þess besta sem
birst hefur i blaöinu.
Skúli minnir migalltaf á gömlu
Stoikerana. Þeir dáöu dyggöina
og fyrirlitu þá skoðun aö hiö ytra
umhverfi heföi áhrif á mann-
gildiö, þeir virtu manneskj-
una, jafnt þrælinn sem
hinn frjálsa mann, litil-
magnann sem hið svokallaöa
mikilmenni, þeir töldu aö allir
menn væru bræður, þeir höföu
,enga trú á rikidæmi, þeir litu upp
til allrar vinnú, þeir tóku þvi sem
aö höndum bar meö ró — stóiskri
ró.
Raunar get ég sagt meir en að
Skúli minni mig á Stoikerana.
Hann er sjálfur Stoiker ef tekiö er
miö af fábrotinni lýsingu minni á
Stoisma.
Að hafa þá lifsskoðun og taka
örlögum sinum á þann veg sem
Skúli hefur gert er sérstætt.
Ég þakka honum fyrir allt
gamalt og gott og sendi honum og
fjölskyldu hans kærar kveðjur og
árnaöaróskir.
Haukur Helgason.
•
Ég hef verið að blaöa i bókum
Skúla undanfarna daga og þó sér-
staklega einni þeirri, — Þaö, sem
éghef skrifað. —SU bók er merki-
leg fyrir það, hversu flest það,
sem þar er sagt, er jafnrétt i dag
og þá er það birtist fyrst. Gott
dæmi þar um er greinin, Gef oss i
dag vort daglegt brauð, — sem
birtist i Þjóðviljanum 1960. Þar
segir svo:
— Og samkvæmt þvi sem sá
frómi maður Marteinn Lúther
skilgreinir hugtakið daglegt
brauð, er hreint ekki svo litið sem
i þvi felst. Meðal annars matur og
drykkur, klæði og skæði, hús og
heimili, akur, fénaöur og öll
gæði.... —
Og siðar:
— Með hjálp hinnar visinda-
legu hagfræði og fullkominna
reiknivéla er hægt að reikna
brauðið frá fólkinu. Niðurstöður
visindanna og vélanna eru ein-
faldlega samþykktar á Alþingi og
kölluð lög. Oghverskyldi svo sem
vilja efast um, að visindin og vél-
arnar hafi rétt fyrir wért. Ekki
geta mennirnir, sem stjórna vél-
unum gert aö því, þótt útkoman
yrði svona. NU þýöir ekki aö biöja
guö um daglegt brauö. Hann hef-
ur veriö settur I sjálfheldu. Og ef
guö vildi samt sem áöur af rik-
dómi sinnar náöar gefa fólkinu
daglegt brauö? Þá ykist kaupget-
an, fjárfestingin færifram úr öllu
valdi og óöaveröbólga tæki viö.
„Atvinnurekendurnir” gætu ekki
safnað sér nægilega digrum sjóð-
um og þaö yröi aö fella gengiö,
hækka vexti ogkoma á nýju efna-
hagskerfi. —
Kannist þiö nokkuö við þetta?
Og ætli þessi veröi ekki rökin,
sem mest verði höfö á lofti á
næstu útmánuöum?
Þaö er aöalsmerki Skúlá,
hversu rök hans eru hverjum
manni auðskilin og hversu liking-
ar hanshitta i mark. Það er sama
hvort hann fæst viö örstutt grein-
arkorn eöa stórritgerðir eins og
Menningarástand sveitanna,
hann sækir rök sin I hversdagsllf
alþýðumannsins og i þann menn-
ingararf, sem aldirnar hafa skil-
aö okkur.
Þegar maöur les bækur Skúla,
finnur maður hvilikur fulltrúi
hann er fyrir þaö menningar-
timabil, sem er eiginlega liðið
undir lok. Það timabil þegar al-
þýöumaöurinn taldi sig bera þó
nokkurt skyn á umhverfi sitt og
kunna til verka á sinu sviði og átti
sér bæöi sögn og sögu. Allt þetta
er lltils virði nú, á timum sér-
fræðinnar. Hinn almenni maður
hefur ekki vit á neinu, þaö eru
sérfræðingarnir sem bækurnar
hafa og allt vita, sem einir kunna
til verka og vita hvaö gera skal.
Þaö er lika svo komið, að
venjulegur maður þorir varla aö
láta til sin heyra né senda h'nu i
blað og siðan er kvartaö yfir
áhugaleysi almennings um þjóö-
félagsmál.
Skúli er nú búinn aö vera rúm
fimmtiu ár á ritvellinum og sann-
arlega hefur hann oft ýtt við okk-
ur, þegar við höfum ætlað aö
sofna á veröinum. Hann hefur
fyrst og fremst barist til sóknar
ogvarnarfyrir réttihins almenna
manns, fyrir rétti þeirra, sem
eiga undir högg að sækja I þjóöfé-
laginu. Hann hefurlika veriööör-
um skyggnari á ýms þau b'sku-
sjónarmið sem alltaf rfÖa húsum
annað veifiö og hefur þá oft beitt
sinu alkunna skopi með góöum
árangri fyrir okkur lesendurna.
Skúli sagöi eitt sinn viö Jón
Bjarnason i viötali, aö þegar
námsdraumum lauk, heföi hann
einsett sér aö veröa fyrst og
fremst maður, og þar næst bóridi.
Af lifsafstööu Skúla i verkum
hans, sésthvaö hann hefur átt við
meðþvi, aö segjast ætla aö veröa
— maöur. — Meginþátturinn i
skrifum hans ber einmitt vott um
þá sáru kviku þeirrar persónu,
sem finnur til I stormum sinnar
tiðar, tekur þátt i þeim og lætur
sér ekkert mannlegt óviökom-
andi. Viðfangsefni hans eru
margvfsleg og þótt baráttumál
samtimans eigi þarmestan hlut,
hefur hann einnig skilaö okkur
drjúgum skerfi af þekkingu á liö-
inni tiö, á þeim þjóöfélagsgrunni,
sem við erum vaxin upp úr, en
margir hverjir hafa nú gleymt.
Mér þykja tlmarnir þannig nú,
að svo sannarlega vildi ég aö
Skúli væri nú aftur orðinn þritug-
ur og gæti skrifað nýjan — Jósa-
fat og Jukka, og nýtt — Menning-
arástand sveitanna, en fyrst tim-
inn verður ekki færöur til.vil ég
þakka honum fyrir hans mikla og
einstæða baráttuþrek og hversu
hann Tiefur oft og tiöum hnippt i
mig, þegar ég hef ætlað aö villast
i moldviðri liöinna ára.
Og siðast en ekki sist, þakka ég
honum áratuga vináttu og sam-
vinnu.
Pétur Sumarliöason.
Námskeið
^ HEIMILISIÐNAÐAR-
FÉLAG ÍSLANDS
A. VEFNAÐUR FYRIR BÖRN —
DAGNÁMSKEŒ)
ð. febrúar — 13. marz.
Kennt mánudaga og fimmtudaga kl.
15-17 að Hafnarstræti 3.
B. 1. HNÝTINGAR —
DAGNÁMSKEBÐ
16. febrúar — 16. marz.
Kennt mánudaga og fimmtudaga kl.
15-18 að Laufásvegi 2.
2. HNÝTINGAR —
KVÖLDNÁMSKEIÐ
10. febrúar — 14. april
Kennt föstudaga kl. 20-23 að Laufás-
vegi 2.
3. HNÝTINGAR —
KVÖLDNÁMSKEIÐ
17. april — 18. mai
Kennt mánudaga og föstudaga kl. 20-
23 að Laufásvegi 2.
Innritun fer fram hjá Islenzkum
heimilisiðnaði, Hafnarstræti 3.
Kennslugjald greiðist við innritun.
Einnig eru fyrirhuguð i marz-maí
eftirfarandi námskeið:
1. Tóvinna.
2. Baldering.
3. Þjóðbúningasaumur (barna-
búningar).
Áhugasamir láti skrá sig og leiti
upplýsinga hjá íslenzkum heimilis-
iðnaði, Hafnarstræti 3. Simi 11785.
UTBOÐ
Hitaveita Suðumesja óskar eftir tilboðum
i að byggja þjónustuhús fyrir varmaorku-
ver við Svartsengi. Húsið er tvær hæðir,
666 ferm.að grunnfleti og að mestu leyti
reist úr forsteyptum einingum, verkinu
skal lokið á þessu ári. útboðsgagna má
vitja gegn 50 þúsund króna skilatryggingu
frá og með miðvikudeginum 1. febrúar
1978 á skrifstofu Hitaveitu Suðúrnesja
Vesturbraut lOa Keflavik eða verkfræði-
skrifstofunni Fjarhitun h.f. Álftamýri 9
Rvk. Tilboð verða opnuð á skrifstofu Hita-
veitu Suðurnesja þriðjudaginn 14. febrúar
1978 kl. 14.
áíi Felagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
W Vonarstræti 4 sími 25500
Námskeið
Efnt verður til námskeiðs fyrir konur,
sem taka börn til daggæslu á heimilum
sinum.
Kennt verður með fyrirlestrum og verk-
legum æfingum og fyrirtekin þessi efni:
Uppeldis- og sálarfræði. Börn með sér-
þarfir. Meðferð ungbarna. Leikir og störf
barna. Samfélagsfræði. Heimilisfræði.
Hjálp i viðlögum.
Kennt verður 2 kvöld i viku, þriðjudags- og
fimmtudagskvöld kl 20-22, alls 50 kennslu-
stundir.
Námskeiðið verður haldið að Norðurbrún
1 og hefst fimmtudaginn 2. febrúar n.k.
Þátttökugjald er kr. 1.500.00.
Þátttaka tilkynnist i sima 25500 fyrir 1.
febrúar.