Þjóðviljinn - 07.03.1978, Blaðsíða 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 7. mars 1978
Hreppsnefndin á Bíldudal:
Vítir Skipaút-
gerðina og
póstþjónustuna
A fundi hreppsnefndar Suöur-
fjarðarhrepps á Bildudal, sem
haidinn var 28. febrúar, var gerö
bókun þar sem vakin er athygli á
bágum samgöngum við hreppinn
og Skipaútgerð rikisins vftt fyrir
nýgerðar breytingar á áætiun.
Ályktunin er svohljóðandi:
„Hreppsnefnd Suðurfjarða-
hrepps, Bildudal, ályktar að
algert vandræðaástand hafi skap-
ast i samgöngumálum byggða-
lagsins. Með breyttri áætlun
Skipaútgerðar rikisins, hefur
ástand vöruflutninga breytst
þannig að aðeins annað strand-
ferðaskipið kemur við á Bildudal,
á suðurleið á 14 daga fresti, en
þetta er eini möguleikinn fyrir
vöruflutninga til og frá byggða-
laginu, stærsta hluta ársins.
Hreppsnefndin vitir þessar
ábyrgðarlausu breytingar. Þá
eru algerlega óviðunandi ástand i
vegasamgöngum milli Bildudals
og Patreksfjarðar, en sú leið er
oft lokuð dögum saman, enda þótt
ibúar byggðalagsins þurfi að
sækja læknisþjónustu og að fá
mjólk frá Patreksfirði, auk ann-
arar þjónustu. Er þvi oft mjólkur-
skortur af þessum ástæðum. Þá
er óþolandi hvernig póstflutningi
er fyrir komið. Póstur milli
Bildudals og Eeykjavikur er ein-
göngu sendur með áætlunarflugi,
sem er milli Reykjavikur og
Patreksfjarðar, og kemur þvi oft
fyrir að póstur er viku til tiu daga
á leiðinni milli Bildudals og
Reykjavikur, sökum ófærðar,
þrátt fyrir það, að beint áætlunar-
flug sé til Bildudals frá Reykjavik
tvisvar i viku, auk annarra ferða.
Lýsir hreppsnefndin furðu sinni á
að þessar ferðir skulu ekki vera
notaðar til póstflutninga. Skorar
hreppanefnd Suðurfjarðahrepps
á stjórnvöld, að bæta úr þessu
óþolandi ástandi hið bráðasta”.
Rádinn aöstoöar-
framk væmdastj óri
Gunnar Gunnarsson hefur vcrið
ráðinn aðstoðarframkvæmda-
stjóri i Véladeild Sambandsins,
og tekur hann við starfinu hinn 1.
aprii. Hér er um nýtt starf að
ræða hjá Véladeild, og er hún hin
sjötta af aðal deildum Sambands-
ins, sem ræður aðstoðarfram-
kvæmdastjóra.
Gunnar er fæddur i Reykjavik
hinn 3. sept. 1939, sonur hjónanna
Olgu og Gunnars Arnasonar bú-
fræðikandidats. Hann stundaði
nám á búnaðarskóla i Noregi á
árunum 1956-58, en siðar i
Búnabarskólanum á Hvanneyri,
og laukk hann kandidatsprófi frá
framhaldsdeild þess skóla árið
1961. Það sama ár réðist hann til
Véladeildar Sambandsins, þar
sem hann hefur starfað siðan, frá
árinu 1966 sem deildarstjóri Bú-
véladeildar.
Gunnar Gunnarsson.
Kona hans er Elin Jóna Jóns-
dóttir, og eiga þau tvo syni.
Kjartan
kenndi
ekki
Kjartan Jóhannsson, varafor-
maður Alþýðuflokksins, hafði
samband við blaðið i gær vegna
skrifa i þættinum klippt og skorið
og i leiðara blaðsins sl. sunnudag
um kennslustörf þriggja forystu-
manna Alþýðuflokksins I verk-
fallinu 1. og 2. mars. Kjartan
sagðist vilja taka fram að i fyrsta
lagi hefði hann legið veikur um-
rædda viku og þvi ekki getað
kennt, i annan stað hefði hann
enga kennslu á miðvikudögum og
fimmtudögum og i þriðja lagi
hefði hann alls ekki kennt þessa
verkfailsdaga þó að stundatafla
Kjartan Jóhannsson
hefði gert ráð fyrir sliku og þó
heilsa hans hefði leyft það.
Þessum athugasemdum Kjart-
ans telur Þjóðviljinn sjálfsagt og
rétt að koma á framfæri, enda
skylt að hafa það sem sannast
reynist. Þjóðviljanum þykir fyrir
þvi að hafa nuddað Kjartani að
ósekju upp úr þvi að hafa verið
verkfallsbrjótur.
Loönan:
Rræla á miðunum
og lítil yeiöi
Bræla var á loðnumiðunum i
gær og nánast engin veiði, 4 bátar
höfðu tiikynnt um 430 lestir alls.
Enn er heildaraflinn nærri 100
þúsund lestum minni en á sama
tima i fyrra, en i gær var hann 313
þúsund lestir.
Sæmilegur afli var um siðustu
helgi, en veður tók að versna á
miðunum á sunnudagskvöld og
siðan hafa bátarnir litið sem ekk-
ert getað verið að. -Sdór.
Núverandi stjórn félagsins: Ólafur Óiafsson, formaður, Hans Þór Jensson, varformaður, Guðjón Jóns-
son, ritari, Steinþór Eyþórsson, gjaldkeri, og Kristján Steinar Kristjánsson, meðstjórnandi.
Félag veggfóðrara
meistara 50 ára
Það var 4. marz 1928 sem
veggfóðrarameistarar i Rvik
komu saman i Baðstofu iðnaðar-
manna, til að ræða hagsmunamál
sin, og stofnuðu þeir Veggfóðr-
arafélag Reykjavikur. Var mikill
framfarahugur i þessum braut-
ryðjendum stéttarinnar og má
m.a. nefna, að þegar 24. sama
mánaðar gáfu þeir út sinn fyrsta
uppmælingataxta og munu vegg-
fóðrarar verða fyrstu iðnaðar-
menn landsins, sem tóku upp það
launagreiðslukerfi og hafa þeir
unnið eftir þvi siðan.
Stofnendur félagsins voru 11
talsins og fyrstu stjórn þess skip-
uðu: Viktor Kr. Helgason, for-
maður, Sigurður Ingimundar-
son, ritari,og Björn Björnsson fé-
hirðir.
I júli 1932 var nafni félagsins
breytt i „Meistarafélag veggfóðr-
ara” og ári siðar var „Sveinafé-
lag veggfóðrara” stofnað. I
febrúar 1945 voru svo þessi tvö fé-
lög sameinuð i „Félag veggfóðr-
ara i Reykjavik” og hélst það
samstarf fram til ársins 1957, er
„Félag veggfóðrarameistara i
Reykjavik” var stofnað. Frá
upphafi hafa veggfóðrarar tekið
virkan þátt i félagssamtökum
iðnaðarmanna, svo sem Lands-
sambandi iðnaðarmanna og
Meistarasambandi byggingar-
manna.
Árið 1964 réðst félagið i að
byggja hús yfir starfsemi sina á-
samt fjórum öðrum meistarafé-
lögum i byggingariðnaði, að Skip-
holti 70, og hefur félagið opnað
skrifstofu þar fyrir meðlimi sina
og aðra þá er til félagsins þurfa
að leita. Mikil þróun er i iðninni,
og stendur félagsstarfsemi i
miklum blóma.
KIRKJUSANDUR:
Sagt upp vegna
-óöruggs ástands’
Á föstudaginn i fyrri viku var
ölium þeim verkakonum i frysti-
húsi SÍS á Kirkjusandi, sem hafa
kauptryggingarsamning, sagt
upp vinnu með viku fyrirvara
vegna „óöruggs ástands á at-
vinnumarkaðinum”, eins og það
var orðað i uppsagnarbréfinu.
Brynja Óskarsd. trúnaðarmað-
ur verkakvenna á Kirkjusandi
sagði i samtali við Þjóðviljann i
gær, að verkalýðsfélögin túlkuðu
slikar uppsagnir sem verkbann.
Hún sagði að til hefði staðið að
senda togarana tvo, sem frysti-
húsið kaupir fisk af, til útlanda
með aflann vegna tveggja daga
allsherjarverkfallsins og
„óöryggisins á vinnumarkaðin-
um.” En svo virtist sem hætt hafi
verið við það, þvi nógur fiskur var
kominn i húsið. Næg vinna var þvi
á Kirkjusandi i gær og útlit fyrir
I að svo yrði áfram. Brynja taldi þó
hugsanlegt að uppsagnirnar yrðu
látnar taka gildi á mánudaginn.
Aðeins 14 konur i frystihúsinu
eru fastráðnar þ.e. hafa þennan
kauptryggingarsamning, en milli
60 til 80 konur vinna i húsinu.
Astæður þess að svo fáar konur
eru fastráðnar taldi Brynja eink-
um þær, að i fyrsta lagi hefði
verkakvennafélagið rekið lélega
upplýsingaþjónustu um kosti
kauptryggingarinnar, og i öðru
lagi væru aðstæður þeirra kvenna
sem vinna i fiski mjög mismun-
andi. Margar þeirra þyrftu að sjá
um stór heimili jafnframt vinnu
sinni.
Atvinnurekanda er skylt að
borga þeim sem eru á kauptrygg-
ingarsamningi dagvinnu 5 daga
vikunnar, þegar ekki er unnið
vegna hráefnisskorts. En yfirleitt
er fólk látið vinna þennan tima,
við að hreinsa og gera annað sem
til fellur. Atvinnurekandanum er
skylt að bjóða starfsmanni fast-
ráðningu eftir að hann hefur unn-
ið samfleytt i fjórar vikur. Brynja
sagði að það væri yfirleitt ekki
gert, heldur þyrfti fólk að rekast i
þessu sjálft.
—eös.
Alþýðubandalagið i Vestmannaeyjum:
Glœsilegur jundur
Almennur stjórnmálafundur
var haldinn á vegum Alþýðu-
bandalagsfélags Vestmannaeyja
sunnudaginn 26. febrúar s.l., i Al-
þýðuhúsinu i Eyjum.
Frummælendur fundarins voru
Garðar Sigurðsson, alþingismað-
ur, Ingólfur Ingólfsson, formaður
Farmanna- og fiskimannasam-
bands Islands, Baldur Öskarsson,
2. maður á framboðslista Alþýðu-
bandalagsins á Suðurlandi, og
Lúðvik Jósepsson, alþingismaður
og formaður Alþýðubandalags-
ins.
Nokkrar fyrirspurnir urðu eftir
fundinn og var stemmning mjög
góð. Var hvert sæti skipaö, og
voru um 160 manns á fúndinum.
Einkum var fjallað um kaupráns-
lög rikisstjórnarinnar og atvinnu-
mál i Eyjum.
Er nú mikill hugur i Alþýðu-
bandalagsmönnum i Vestmanna-
eyjum, eftir öllum sólarmerkjum
að dæma.
Framhald á 18. siðu
Baldur óskarsson i ræðustól, en næst honum er Garðar Sigurðsson og
þá Ingóifur Ingóifsson.