Þjóðviljinn - 07.03.1978, Síða 5
Þriðjudagur 7. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 5
af erfendum vettvangi
Erlichman — sparar ekki skotin i
iykiiróman sinum.
Lagdi
Saga Watergate-hneykslanna er
siður en svo á enda i Bandarikj-
unumt nú heldur hún þar áfram
sem bókmenntagrein. Komið er á
markaðinn heilt fióð af bókum
eftir ýmsa, sem höfðu afskipti af
þeim málum, þar á meðai all-
nokkra af nánustu samstarfs-
mönnum Nixons, sem ásamt hon-
um fóru verst úr úr hneykslunum.
• Hin síðasta af slikum bókum til
þess að birtast er eftir H.R.
Haldcman, fyrrum starfsmanna-
stjóra Hvita hússins og einn
vaidamestu manna Nixon-stjórn-
arinnar. Svo hefur verið gert
heyrinkunnugt að von sé á bók frá
Nixon sjálfum, og er það ekki
vonum fyrr.
Bók Haldemans er að þvi leyti
lik öðrum ritum, sem út hafa
komiðum þetta efni, að hún renn-
ir stoðum undir ýmislegt, sem
menn höfðu haft grun um áður, og
bregður nýju ljósi á annað. Frá-
sögn Haldemans er athyglisverð
þó ekki væri nema vegna þess, að
fáir eða engir munu vita meira
um söguna að baki Watergate-
málanna en einmitt hann. Hins-
vegar er rétt að taka frásagnir
hans, félaga hans Johns Erlich-
mans, Nixons sjálfs og fleiri með
fyrirvara. Hæpið er að gera ráð
fyrir þvi að þeir segi allan sann-
leikann eða séu óhlutdrægir. ó-
hætt mun að ganga að þvi sem
visu að þeir reyni hver um sig að
gera eigin hlut sem bestan og
koma skömminni yfir á aðra — og
þá einna helst fyrri félaga sina.
Smámunasamur
og hefnigjarn
Haldeman heldur þvi fram, sem
marga hefur raunar lengi grunað,
að Nixon hafi sjálfur átt frum-
kvæðið að innbrotinu i skrifstofu
Demókrataflokksins i Watergate-
byggingunni og einnig að hann
hafi frá þvi fyrsta reynt að svæfa
málin og hindra framgang rann-
sókna. Aðalástæðan til innbrots-
ins var að sögn Haldemans sú að
Nixon lagði hatur á Lawrence
O’Brien, formann Demókrata-
flokksins, og vonaðist til þess að
komastyfir skjöl, sem nota mætti
til þess að koma O’Brien i vand-
ræði. Þetta hatur Nixons stóð i
einhverju sambandi við það, að
O’Brien haföi lengi staðið nálægt
þeim Kennedy-bræörum, en i lyk-
ilróman sinum ,,The Company”,
þar sem Nixon og fleiri Banda-
rikjaforsetar fá heldur slæma út-
reið, heldur John Erlichman þvi
einmitt fram að Nixon hafi hatað
J.F. Kennedy og allt, sem honum
var tengt, eins og pestina.
1 sinni bók, „The Ends of Pow-
er”, lýsir Haldeman Nixon sem
smámunasömum og hefnigjörn-
um manni, sem haldinn hafi verið
snerti af ofsóknarbrjálæði, sá
samsæri gegn sér i hverju horni
og sveik jafnvel nánustu aðstoð-
armenn sina til þess að reyna að
bjarga eigin skinni. Hann var að
sögn starfsmannastjóra sins
kaldrifjaður, sneyddur kimnigáfu
og átti erfitt með að kynnast fólki
náið. Þetta kemurheim og saman
við fleiri lýsingar á Nixon, til
dæmis þá sem John Erlichman
gefur i „The Company.” Erlich-
Kennedy — lét Nixon stjórnast af
hatri til hans?
man var einn af nánustu sam-
starfsmönnum Nixons um langt
skeið og gerkunnugur innan
innstu hringja bandariska valda-
kerfisins. Asamt Haldeman var
hann sá af samstarfsmönnum
Nixons, sem sviðsljósin beindust
hvað mest að i Watergate-mál-
um.
Lykilróman
Erlichmans
„The Company” er skáldsaga
að formi til og sem slik stór-
skemmtileg og spennandi aflestr-
ar. Ekki fer milli mála að margir
helstu ráðamenn Bandarikjanna
á siðustu áratugum koma þar
fram, þótt nöfnum og ýmsum at-
burðum sé breytt. J.F. Kennedy
heitir þar til dæmis William Art-
hur Curry og ferst i flugslysi i
stað þess að vera skotinn i Dallas,
L.B. Johnson heitir Esker Scott
Anderson og er frá Oregon en
ekki Texas, Nixon nefnist Ric-
hard Monckton, Kissinger Tessl-
er. „Curry” (Kennedy) er lýst
sem hástéttarglæsimenni og
fjöldasjarmör, en heldur litlum
skörungi. „Anderson” (Johnson)
er grófgerður hrotti, klámkjaftur
og með frillur á hverjum fingri,
oft ekki færri en þrjár i einu. Rit-
ara sina velur hann sérstaklega
með tilliti til þess, en gerir vel við
þær þegar hann lætur þær frá sér
fara, útvegar þeim vel borguö
störf eða giftir þær háttsettum
aöstoðarmönnum sinum. „Tessl-
er” (Kissinger) er hégómagjarn,
hefur geysilega háar hugmyndir
um snilli sina i utanrikismálum,
imyndar sér að hann sé mikið
samkvæmisljón og á það til að
setja á svið griðarleg reiöiköst.
Hinsvegar er hann i raun taugaó-
styrkur og nagar á sér neglurnar
uppikviku. „Monckton” (Nixon)
er einmani að eðlisfari, góðum
gáfum gæddur, gifurl. metnaðar-
gjarn, þolgóður og hefnigjarn.
Sérstaklega er ’hann langræk-
inn gagnvart „Curry” og öll-
um hans stuðningsmönnum.
Það er sett i samband við það
aö „Curry hafi litið mjög niö-
ur á „Monckton,” sem er af
fátækum kominn, og að „Monck-
ton” hafi veriö haldinn óslökkv-
andi hatri og tortryggni gagn-
vart hinni gömlu og grónu yf-
irstétt austurrikjanna. „Monck-
ton” hefur orð á sér fyrir að gera
vel við trygga stuðningsmenn
sina, en andstæðingum sinum,
meintum eða raunverulegum,
fyrirgefur hann aldrei neinar
mótgerðir og hefnir sin á þeim ef
tækifæri bjóðast. Hann á átakan-
lega erfitt með aö umgangast fólk
frjálslega, kviðir sérlega fyrir að
taka á móti nýjum starfsmönnum
og veislur og móttökur i Hvita
Johnson — kvenhrókur meö frill-
ur á hverjum fingri?
húsinu er honum kvalræði. Hann
litur á sig sem einskonar kross-
fara gamals og hefðbundins sið-
ferðis gegn léttúðarlifnaði, sem
hann einkum kennir við hina
gömlu og grónu yfirstétt og börn
hennar.
Brá Kennedy fæti
fyrir CIA?
Meðal þess, sem Erlicham gef-
ur i skyn, er að Kennedy forseti
hafi á sinum tima gert ráðstafan-
ir til þess að hindra að Svinaflóa-
innrásin á Kúbu tækist og farið
þar á bak við CIA. Er svo að
heyra að Kennedy hafi látið und-
an þrýstingi frá Sovétmönnum i
þessu efni. Aðalpersóna bókar-
innar er látin vera forstjóri CIA,
og kemur þar fram að CIA stund-
ar njósnir um likleg forsetaefni,
með þaö fyrir augum að styðja
við bakið á þeim forsetaefnum,
sem likleg eru til þess að skera
ekki fjárveitingar til leyniþjón-
ustunnar við nögl sér.
Um margt ber þeim Erlichman
og Haldeman saman, og ekki lýs-
ir sá siðarnefndi þeim Nixon og
Kissinger fagurlegar en Erlick-
man. Haldeman segir að Nixon
hafi verið hræsnari og nefnir sem
dæmi að þegar hann sagði Halde-
man upp störfum vegna Water-
gatemála, hafi hann verið ákaf-
lega harmþrunginn aö sjá og
sagt: „Veistu það að þegar ég fór
að hátta i gær kvöldi...vonaði ég
3g allt að þvi bað þess að ég
myndi aldrei vakna af svefni
aessarar næstur.” Erlichman
íefur siðar sagt Haldeman, að
ýixon hafi sagt nákvæmlega
Nixon — góðum gáfum gæddur,
en smámunasamur og hefni-
gjarn.
sömu orðin við hann þegar hann
sagði honum upp.
Kissinger tvöfaldur
i roðinu
Haldeman segir að Kissinger
hafi verið forvitinn og hneigður til
baktjaldamakks og samsæra. Ein
helsta ástæðan til þess að Nixon
fór að láta taka allar viðræður
sinar við aðstoðarmenn sina upp
á segulbönd hafi verið sú, að
Kissinger var gjarn á að segja
allt annað opinberlega en það,
sem hann hefði látið i ljós i einka-
viðræðum við Nixon. Haldeman
segir Kissinger hafa verið ákaf-
lega hégómagjarnan og að hann
hafi lagt mikið upp úr þvi aö vera
stöðugt i sviðsljósi fjölmiðlanna.
Raunar er svo að heyra að
Kissinger hafi farið mjög i
taugarnar á mörgum gömlum
aðstoðarmönnum Nixons og má
þvi vera að ástæða sé til að taka
lýsingar þeirra á honum með sér-
stökum fyrirvara.
Haldeman heldur þvi fram að
Nixon sjálfur hafi þurrkað út 18
1/2 minútu bilið fræga á einni
segulbandsspólunni, en sem
kunnugt er hafði Rose Mary
Woods, einkaritari Nixons, fullyrt
að hún hefði þurrkaö þennan
kafla út af slysni. Sú frásögn hef-
ur ekki verið tekin ýkja alvar-
lega. Að sögn Haldemans var
Nixon einstakur klaufi og fáráður
i öllu, er laut að tæknilegum efn-
um, og hafi hann þessvegna látið
sér detta i hug að þurrka út allt
það af segulbandsspólunum, sem
gæti orðið honum óþægilegt. En
fyrst þegar hann var byrjaður á
Watergate-bókmenntir
Kissinger — imyndaði sér að
hann væri samkvæmisijón.
þvi, hafi hann átt að sig á að það
tæki allt saman ein tiu ár og þá
gefist upp við það.
Eitt af þvi, sem Haldeman
heldur fram, er að sovéska
stjórnin hafi viljað gera hern-
aðarárás á Kina, til þess að koma
i veg fyrir að Kinverjar væddust
kjarnorkuvopnum, og leitað
stuðnings Bandarikjanna við þá
hugmynd, en Nixon hafi hafnað
henni. Sovéska stjórnin og banda-
riskir ráðherrar frá þessum tima
hafa þegar neitað þvi að nokkuð
sé hæft i þessu.
Haföi Nixon obáknið"
á móti sér?
Eitt af þvi athyglisverðasta,
sem fram kemur hjá Haldeman,
er sú fullyrðing hans að Nixon
hafi haft á móti sér marga helstu
valdaaðila bandariska
þjóðfélagsins, skrifstofubákn
sambandsrikisins, helstu blöðin,
þingið og siðast en ekki sist
njósnaþjónustuna. í þessu ber
þeim Haldeman og Erlichman i
mörgu samán. Bandariska skrif-
ræðisbáknið, einkum sá hluti þess
er hefur á sinni könnu utanrikis-
her- og njósnamál, er geysivoldug
og gróin stofnun, sem mótaðist i
siðari heimsstyrjöld og næstu ár-
in þar á eftir, þegar Bandarikin
urðu langvoldugasta riki heims.
Völdin i þessu bákni eru einkum i
höndum langskólagenginna
manna af grónum auðmannaætt-
um austurrikjanna, manna sem
„fæddir eru með silfurskeið i
munninum.” 1 róman Erlich-
mans kemur fram að
„Monckton,” fátækur drengur
„utan af landi” sem varð að
vinna fyrir sér hörðum höndum
jafnframt skólanámi, hatar og
.fyrirlitur þetta „fina” fólk alveg
sérstaklega og er staðráðinn i
áö’ íækka i þvi rostann.
Haldeman segir Nixon hafa
ætlað að endur-skipuleggja þetta
bákn i upphafi annars kjör-
timabils sins 1973 með það fyrir
augum að ná tökum á þvi, en
mætt þá harðri andstöðu, svo sem
vænta mátti. Segir Haldeman að
CIA hafi haft njósnara innan
Hvita hússins (sem leyniþjón-
ustan hefur lika i sögu Erlich-
mans) og gefur jafnframt i skyn,
að CIA, demókratar og blaða-
maðurinn Jack Anderson hafi vit-
að að til stóð að brjótast inn i
Watergate, en ekkert gert til að
koma i veg fyrir það — væntan-
lega þá til þess að geta fengið
höggstað á Nixon. 1 „The
Company” fylgist CIA með hliö-
stæðu innbroti, sem „Monckton”
forseti fyrirskipar, og notar þá
vitneskju siðan gegn honum.
Flugumaður CIA?
Haldeman telur að „Deep
Throat”, hin dularfulla persóna
er gaf blaðamanninum Bob
Woodward mikilvægastar
upplýsingar meðan Watergate-
málin stóðu sem hæst, hafi veriö
Fred Fielding, þá starfsmaður i
Hvita húsinu. Fielding segir þetta
tilhæfulaust, en i ljósi þess, sem
fram kemur bæði hjá Haldeman
og Erlichman, hlýtur sú spurn-
ing að vakna hvort Fielding hafi
ekki einmitt verið flugumaður
CIA i hirð Nixons. Sé þetta rétt
hjá þeim Haldeman og Erlich-
man, er ekki nema skiljanlegt að
Nixon, með svo volduga aðila á
móti sér, yrði fyrsti forsetinn i
sögu Bandarikjanna sem
neyddist til að segja af sér. dþ.