Þjóðviljinn - 07.03.1978, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriftjudagur 7. mars 1978
Stjórninálaflokkum veröi óheimilt aö taka viö fjármagni erlendis frá:
Alþýduflokkurmn talinn
fá nú um 10 miljónir
Siftastliftinn miftvikudag mælti
Stefán Júnsson fyrir frumvarpi i
efri deild um bann viö fjárhags-
legum stuöningi erlendra aftila
vift islenska stjórnmálaflokka,
sem hann flytur ásamt Oddi
Ólafssyni, Jóni Árm. Héftinssyni
og Steingrimi Hermannssyni.
Samkvæmt frumvarpinu er is-
lenskum stjórnmálaflokkum
óheimilt að taka við gjafafé eða
öftrum fjárhagslegum stuðningi
til starfsemi sinnar hérlendis frá
erlendum aðila. Lögin skuli taka
til stjórnmálaflokka og félags-
samtaka þeirra, svo og til hvers
konar stofnana, sem starfa á
þeirra vegum, beint eða óbeint,
þ.á.m. blaða. Banniðnærtil hvers
konar stuðnings sem metinn
verður tilfjár, þ.á.m. til greiðslu
launa starfsmanna eða gjafa i
formi vörusendinga.
I greinargerð með frumvarpinu
segja flutningsmenn:
Játning Alþýðuflokks
,,Að dómi flutningsmanna er
æskilegt að sett verði sérstök lög-
Fundiir í báðum
deildum Alþingis
Fundir voru i báftum deildum
Alþingis i gær. 1 efri deiid var
eitt mál á dagskrá. Þar mælti
Ólafur Jóhannesson dómsmála-
ráftherra fyrir frumvarpi til
laga um lögréttulög.
I neðri deild var atkvæða-
greiðsla eftir 2. umræðu um
frumvarptil breytinga á grunn-
skólalögum, sem felur i sér að
sveitarfélögum með 10.000 ibúa
eða fleiri sé heimilt að stofna
sérstakt fræðsluumdæmi.
Frumvarpsgreinarnar voru
samþykktar að viðhöfðu nafna-
kalli og samþykkt að visa frum-
varpinu til 3. umræðu með 21 at-
kvæði gegn 9.
Þá var eftirtöldum frumvörp-
um visað til 2. umræðu: Frum-
varp um fiskveiðar i landhelgi,
Frumvarp um sölu eyðijarð-
anna Kroppsstaða og Efstabóls i
Mosvallahreppi og frumvarpi
um fuglaveiðar og fuglafriðun.
Vilhjálmur lljálmarsson
menntamálaráðherra mælti i
neðri deild fyrir frumvarpi til
laga um embættisgengi kennara
og skólastjóra og að lokinni
framsögu ráðherra var málinu
visaö til 2. umræðu og mennta-
málanefndar.
Sighvatur Björgvinsson mælti
fyrir frumvarpi til laga um
breytingu á lögum um fram-
leiðsluráð landbúnaðarins, sem
hann flytur ásamt Benedikt
Gröndal. Frumvarpið miðar að
þvi að minnka það fjármagn
sem rikissjóður greiðir nú i Ut-
flutningsbætur i landbúnaði.
Pálmi Jónsson og Páll Péturs-
son mæltu gegn samþykkt
frumvarpsins.
St j órnarf rum varp:
Embættísgengi
kennara og
skólastióra
Vilhjálmur Hjálmarsson,
menntamálaráðherra, mælti i
gær fyrir frumvarpi til iaga um
embættisgengi kennara og skóla-
stjóra. Megintilgangur frum-
varpsins er aft færa saman á einn
staft og i aögengilegu formi þau
ákvæöi, sem varfta embættis-
gengi kennara og skólastjóra vift
grunnskóla og framhaldsskóla.
1 frumvarpinu er svohljóðandi
bráðabirgðaákvæðum réttinda-
iausa kennara:
,,Þeir sem við gildistöku þess-
ara laga hafa starfað sem settir
kennarar við skyldunámsskóla 6
ár eða lengur, en fullnægja ekki
skilyrðum laganna til að hljóta
skipun i stöðu, skulu eiga kost á
að ljúka námi á vegum Kennara-
háskóla fslands til að öðlast slik
réttindi. Um tilhögun námsins og
mat á fyrri menntun og starfs-
reynslu skal setja ákvæði i reglu-
gerð”.
Frumvarpið skiptist i þrjá
kafla og i 1. kafla þess er m.a.
ákvæði þess efnis að til þess að
verða skipaður kennari við
grunnskóla eða framhaldsskóla
skal umsækjandi hafa lokið námi
i uppeldis- og kennslufræðum sem
jafngildir a.m.k. 30 námseining-
um, auk annarrar tilskilinnar
menntunar sem tilgreind er i 2. og
3. kafla frumvarpsins.
Þingeyri:
Stjómarkjör í Brynju
Nýlega fór fram stjórnarkjör I
Verkalýftsfélaginu Brynju á
Þingeyri. Formaftur var endur-
kjörinn Guftmundur Friftgeir
Magnússon varaformaftur var
kjörinn Soffia Einarsdóttír og er
hún ný i stjórninni. Aftrir i stjórn
eru Sigurftur Þ. Guðnason ritari,
Höskuldur Kagnarsson gjaidkeri
og Þorkell Þórftarson fjármála-
ritari.
Heldur fjölgar nú i félaginu og
ernú skráður 151 félagi og 2 auka-
félagar.
Að sögn Guðmundar Friðgeirs
Magnússonar var vinna heldur
stopul frá áramótum fram i miðj-
an febrúaren jókst þá. Skuttogar-
inn Framnes fékk um 500 tonn
fyrstu 2 mánuði ársins þar af 300
tonn i febrúar. Nú er verið að
vinna aö dýpkun i höfninni til að
skapa viðlegupláss fyrir togar-
ann. Rekið hefur verið niður stál-
þil meðfram gömlu hafskipa-
bryggjunni.
Nýlega var keyptur nýr bátur
til Þingeyrar frá Vestmannaeyj-
um. Heitir hann Hrauney VE 80.
-GFr
gjöf um starfsemi stjórnmála-
flokka á landi hér, þar sem m.a.
verði kveðið á um skuldur þeirra
til opinberra reikningsskila, og
þingsjá
verði þar að sjálfsögðu reistar
skorður við þvi, að erlendir aðilar
geti náð á þeim fjárhagslegum
tökum. Sérstök þingnefnd, skipuð
fulltrúum allra flokka, vinnur nú
að undirbúningi þess máls, sem
er allmikið og vandasamt verk-..
Orsök þess, að flutningsmenn
flytja nú þetta sérstaka frum-
varp, sem varðar einn þátt máls-
ins, er hins vegar sú( að upp
komst nú i vetur og liggur fyrir
játning eins stjórnmálaflokks.
Alþýðuflokksins, að hann hafi
leitað fjárframlaga erlendis frá
og fái nú þaðan peninga til þess að
kosta útgáfu blaðs sins og standa
straum af annarri stjórnmála-
starfsemi á landi hér. Skiptir hér
ekki máli að dómi flutnings-
manna þótt gjafafé þetta sé sótt
til Norðurlanda. Þarf ekki að
rökstyðja það álit i greinargerð
þvi alls ekki verður við það unað,
að neinir erlendir aðilar fái að
gera út stjórnmálaflokka á ís-
landi.”
Norrænir kratar
launa starfsmann
Alþýöuflokksins
Stefán Jónsson sagði að ekki
lægju fyrir upplýsingar um um-
fang hinna erlendu gjafa til
Alþýðuflokksins. Þó hafi aðilar
sem til þekkja nefnt 7-10 milljón
króna framlag til Alþýðublaðsins
i mynd pappirsgjafa og a.m.k. 1
milljón til þess aö kosta aö hluta
til einn af starfsmönnum Alþýðu-
flokksins. Benti Stefán á að er-
lendum stjórnmálamönnum
kynni að sjá sér hag i þvi að beita
fjármagni i þvi skyni að hafa
áhrif á stjórn islensku þjóðarinn-
ar i hugsanlegri eftirsókn hinna
erlendu aðila eftir gögnum henn-
ar og gæðum.
Þá minnti Stefán á þann atburð
er Jafnaðarmannaflokkur Svi-
þjóðar smyglaði peningum til
Stefán Jónsson
finnskra jafnaðarmanna. Varð þá
ljóst að hluti af þessu fé var kom-
ið frá sósialdemókrötum i Þýska-
landi og uppi hafi verið rökstudd-
ar tilgátur i Sviþjóð að banda-
riska leyniþjónustan hafi notað
sambönd sin við krataflokkana á
Norðurlöndum til að koma hags-
munafé sinu á framfæri.
Auk Stefáns tók Steingrimur
Hermannsson til máls um frum-
varpið, en hann er einn flutnings-
manna þess. 1 efri deild eiga sæti
tveir Alþýðuflokksmenn, þeir
Eggert G. Þorsteinsson og Jón
Arm. Héðinsson, en hvorugur
þeirra tók til máls.
Stj órnarfrumvarp:
Adgangur að upplýsingum
hjá almannastofnunum
Nýlega mælti Ólafur Jóhannes-
son fyrir frumvarpi til laga um
aðgang aft upplýsingum hjá al-
mannastofnunum. Frumvarp
þetta var samið af Baldri Möller
ráðuneytisstjóra, Einari Karli
Haraldssyni, fréttastjóra og Sig-
urfti Lindal, prófessor.
Með hugtakinu almannastofnun
er átt við stjórnsýsluheild eða
stjórnsýslueiningu, sem annað
hvort fer með stjórnvald, þ.e.
opinbert vald, eða annast þjón-
ustu við borgara i einhverri
mynd. Sem dæmi um hið Eiðara
má nefna Háskóla Islands. Rikis-
útvarpið, Þjóðleikhúsiö og
Borgarbókasafnið. Þetta hefur
þvi sömu merkingu og orðið opin-
ber stofnun. t greinargerð með
frumvarpinu segir m.a.:
Lögin skiptast i þrjá kafla.
Hefur fyrsti kafli að geyma al-
menn ákvæði um rétt manna til
að kynna sér skjöl. Annar kafli
kveður á um heimild málsaöila til
að kynna sér skjöl þess, en sú
heimildernokkru rýmrienfelst i
hinum almennu reglum. 1 þriðja
kafla eru almenn ákvæði um
málsmeðferð og i fjórða kafla
gildistöluákvæði.
I frumvarpinu er gert ráö fyrir,
að mönnum sé almennt veitt
heimild til að kynna sér skjöl i
málumsem eru eða hafa veriðtil
meðferðar hjá almannastofnun-
um eða fyrirtækjum. í 3. gr. er
undantekning frá meginreglunni
og ennfremur i 4. gr., þar sem
stjórnsýsluhöfum er heimilað að
undanþiggja tiltekin málefni al-
mennum aðgangi, þegar mikil-
vægir almannahagsmunir krefj-
ast.
Ekki hefur verið farin sú leið,
eins og i dönskum upplýsingalög-
unum að taka upp almennt und-
antekningarákvæði með visan til
eölis máls, heldur tekinn sá kost-
ur að telja upp sem itarlegast all-
ar þær undantekningar, sem
nauðsynlegt hefur verið talið að
lögfesta. Með þessu móti er girt
fyrir það, að forstöðumenn al-
mannastofnana og -fyrirtækja
reyni að skjóta sér undan þvi að
veita tilteknar upplýsingar með
þvi að bera fyrir sig eðli máls, án
nánari skilgreiningar.
I 6 gr. er kveðið á um, til hvaða
skjala hin almenna heimild nái,
en i 8. gr. er heimilað að undan-
þiggja tiltekin skjöl ákvæðum 6.
gr. Hér gildir sama regla um
skjöl eins og um málefni, að
stjórnsýsluhöfum er heimilt að
undanþiggja tiltekin skjöl al-
mennum aðgangi. Hvorugt
ákvæðið bannar þó, að stjórn-
sýsluhafar veiti rýmri aðgang að
skjölum en lögin gera ráð fyrir,
en það verður að visu einungis
gert innan þeirra marka, sem
sérákvæði setja um þagnarskyldu
á ýmsum sviðum.
Rannsókn á opinberum
stuðningi víd iðnað
— í EFTA-ríkjunum — Tillaga
Davíds Sch. Thorsteinssonar
samþykkt í ráðgjafanefnd EFTA
Við samanburft á aftstöftu iftn-
aðar á islandi og i helstu sam-
keppnislöndum okkar kemur i
Ijós aft opinberar aftgerftir til
stuðnings iönafti f flestum efta öll-
um bandalagslöndum okkar, þ.e.
Friverslunarbandalagi Evrópu
(EFTA) og Efnahagsbandalagi
Evrópu (EBE) eru margháttaftar
og skipta miklum fjárhæftum.
Forsvarsmenn Islenskra iön-
rekenda telja þvl, aft frjálsri sam-
keppni hafi i raun verift ýtt til
hliöar.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi, sem Davið Scheving
Thorsteinsson formaður Félags
islenskra iðnrekenda boðaði til i
gær. Iðnrekendur telja, að Islend-
ingar muni i framtiðinni ekki eiga
neina möguleika á að veita sinum
iðnaði sambærilegan stuðning.
Þessi þróun leiöi þvi óhjákvæmi-
lega af sér, að samkeppnisað-
stöðu islensks iðnaðar, bæði á
heimamarkaði og erlendis, verði i
næstu framtið stefnt i tvisýnu.
Á fundi ráðgjafanefndar EFTA
18. nóvember 1977 flutti Davið
Scheving Thorsteinsson tillögu
um að rannsókn fari fram á þess-
um stuðningsaðgerðum og að hve
miklu leyti þær hindri frjálsa
samkeppni milli EFTA landa.
Var þetta gert m.a. til að freista
þess að fá samræmda stefnu i öll-
um þessum rikjum i aðbúnaðar-
málum iðnaðar. Tillögu Dviðs var
visað til undirnefndar um efna-
hags- og félagsmál. Fundur var
haldinn i nefndinni s.l. föstudag,
3. mars., og mætti Dvið á fundi
þessum. Var þar að umræðu lok-
inni samþykkt samhljóða tillaga
um máliö, þar sem nefndin leggur
til við ráðgjafanefnd EFTA, að
hún mæli með þvi við EFTA-ráðið
að safnað verði saman upplýsing-1
um um rikisaðstoð og annan opin-
beran stuðning innan EFTA, og
skuli starfsmenn EFTA fram-
kvæma rannsóknina.
Málið verður næst tekið upp á
fundi ráðgjafanefndarinnar 10.
april nk., þar sem afstaða veröur
tekin til, hvort málið veröur lagt
fyrir ráðherranefnd EFTA.