Þjóðviljinn - 07.03.1978, Blaðsíða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 7. mars 1978
LÚÐVÍK JÓSEPSSON:
Svar til Sigurðar
Lárussonar, Gilsá
Þú skrifar mér opiö bréf, sem
birt var í Þjóðviljanum 17. febr.
s.l.
Tvö atriði koma fram í bréfi
þinu, sem nauðsynlegt er að ég
svari. Bæði eru þessi atriði uih
stór og mikilvæg mál, og bæði
um mál, sem varða fleiri en
okkur tvo.
Fyrra atriðið er um frumvarp
mitt um viöskiptabanka rikisins
þar sem m.a. er gert ráð fyrir
sameiningu Búnaðarbankans og
Útvegsbankans i einn banka.
Það er ljóst af bréfi þinu, að
nokkurs misskilnings gætir
varðandi málið, en þó má vel
vera að þar sé um meira en mis-
skilning að ræöa, þvi skoðanir
okkarfariekki saman i málinu.
I bréfi þinu segir þú, að þér
hafi skilist aö m.a. væri að þvi
stefnt meö sameiningarfrum-
varpinu....” að fækka verulega
smáútibúum hingað og þangað
út um land.”
Þetta er misskilningur Sig-
urður.
Af minni hálfu hefir skýrt
komið fram að ekki er ætlunin
að svifta neinn stað, sem nú
hefir ' banka-útibú, eða af-
greiðslustað banka, slikri þjón-
ustustarfsemi, heldur þvert á
móti að opna afgreiðslur á ýms-
um stööum úti á landi, sem nú
hafa enga. Hinsvegar er aö þvi
stefntaðfrá þeirri eyðslu-stefnu
verði horfið að hafa margar
bankastofnanir, jafnvel 5-6, á
litlum stöðum, eins og nú eru
dæmi um.
Um bankamálið vil ég annars
segja þetta i örstuttu máli:
Ofvöxtur bankakerfisins er
gifurlegur. Arið 1972 voru alls 96
innlánsstofnanir á landinu og þá
voru 164 afgreiðslustaðir.
Árið 1975 er talið að alls séu
bundin 1600 mannár i banka-
kerfinu, þ.e.a.s. 1600 heilsárs-
menn.
Árið 1975 eru þessir heilsárs-
menn orðnir 2200 og á þessu ári
eru þeir eflaust orðnir 2800.
Sennilega vinna þvf við
bankastörf 3500—3800 karlar og
konur, þvi ýmsir vinna ekki
heilsársvinnu.
Þetta þýöir aö við bindum við
bankastörf álika mikið vinnuafl
og alla islenska bændur.
Rikis-viðskiptabankarnir eru
3. Þeir keþpast viða hver við
annan á sama staö, rétt eins og
oliufélögin sem reka bensin-
stöðvar sínar sinn hvoru megin
við sömu götu.
1 ljós hefir komið að kostnað-
ur við bankastörf hér er 38-56%
meiri en i Noregi, Finnlandi og
Sviþjóð.
Lúðvik Jósepsson
Égefast ekki um þaö, Sigurð-
ur, að við erum sammála um,
að hamla þarf gegn
eyöslu-rekstri af þessu tagi.
Þá kemur spurningin um
sameiningu Búnaðarbankans og
Útvegsbankans.
Ég skil mæta vel, að fyrstu
viðbrögð þin og margra annarra
bænda séu fremur neikvæð við
slikri sameiningu. Ykkur finnst
að þið — bændur — eigiö Bún-
aðarbankann og hann sé fyrir
bændastéttina, og síðan haldið
þiö að nú eigi að fara að taka
peninga bændanna og lána þá til
útgeröarinnar, sem auðvitað er
alltaf á hausnum og alltaf að
tapa. Þarna er á ferðinni mikill
misskilningur. Búnaðarbankinn
erekkibara fyrir bændur, hann
er fyrir löngu orðinn almennur
banki.
Útlán Búnaðarbankans eru
t.d. minni til landbúnaðar, en
hliðstæð lán Landsbankans. Lán
Búnaðarbankans til land-
búnaðar eru á milli 30 og 40% af
heUdar-útlánum bankans.
Það sem þó skiptir mestu
máli og sterkust áhrif hefir haft
á mig varðandi sameiningu
þessara tveggja rikisbanka er,
að á þann hátt væri hægt að
koma upp öðrum álika sterkum
banka og Landsbankanum,
banka sem gæti tekið að sér al-
hliða peningaþjónustu við at-
vinnulífið i landinu.
Skipulagið sem við búum nú
við, er t.d. þannig að enginn
banki er á svæðinu frá Stöðvar-
firði suður til Hornafjarðar og
varla er aö tala um bankaþjón-
ustu á svæðinu fra' Eskifirði til
Hornafjarðar.
Fyrir þitt byggðarlag, Sigurð-
ur, þarf einn góðan banka, sem
sinnir bankastörfum fyrir land-
búnað, sjávarútveg, samgöngur
og siðar iðnað.
Landsbankinn á Höfn þjónar
landbúnaði Austur-Skaftafells-
sýslu betur, þö hann þjóni einnig
sjávarútvegi og verslun, heldur
en 3 útibú, eitt frá Búnaöar-
banka, annað frá Útvegsbanka
og það þriðja frá Samvinnu-
banka. Slik bankaþjónusta
reynist dýr og óhagkvæm.
Búnaðarbankinn hefir aðeins
eitt banka-útibú á öllu Austur-
landi. Viða annarsstaðar rfkir
vandræða-ástand i bankaþjón-
ustu m.a. af þvi að bankarnir
hafa litið samstarf sin á milli og
greinast alltof mikið i atvinnu-
greinabanka.
Landsbyggðin þarf á alhliða
banka að halda, banka sem
þjónar atvinnulifinu þar sem
heild.
Þá vik ég að hinu atriðinu i
bréfiþinu, Sigurður. Það snertir
tillögu um að veita skuli rekstr-
arlán landbúnaöarins beint til
bænda.
Ég er mjög fylgjandi þvi að
slikt form verði tekið upp, en ég
tek þó fram að um leið verður að
gjörbreyta lána-fyrirgreiösl-
unni og grundvallarsjónarmið-
um þessarar lánastarfsemi.
Sjónarmið mitt er þetta:
Það á að veita bændum
rekstrarlán t.d. til sauðfjár-
Fyrsta alþjóðlega bilasýningin i Reykjavík
Sérstakir og óvenjulegir
sýningarbílar fluttír inn
Stœrsta vörusýning sem haldin
hefur verið innanhúss hér á landi
Búist er við því, aö mörg
bílaumboð muni fá hingað
til lands sérstaka sýning-
arbíla, vegna fyrstu al-
þjóðlegu bílasýningarinnar
sem haldin verður hér á
landi í apríl-mánuði næst-
komandi. Verða þeir bílar
þá væntanlega á margan
hátt óvenjulegir og ekki af
þeirri gerðinni sem við eig-
um að venjast hér á götum
borgarinnar.
Fyrir bifreiðainnflytjendur er
það mikill áfangi aö sýningin
skuli hafa fengist viðurkennd sem
alþjóðleg bilasýng. Ýtir það um
leið á framleiðendur að senda
hingaö óvenjulega bila, jafnvel á
eigin kostnað og auðveldar um-
boðunum að vanda meira til sýn-
ingarinnar en gert hefur verið áð-
ur. Sýningin er auglýst undir
nafninu AUTO 78 og stendur hún
yfir dagana 14.—23. april. Sýnt
verður á tæplega 9000 fermetra
sýningarfleti i húsi Sýningarhall-
arinnar við Bildshöfða 20 og einn-
ig að Tangarhöfða 8—12. Þetta er
stærsta vörusýning sem haldin
hefur verið innan húss hérlendis,
en allir sýningarbilar verða inn-
anhúss og ekkert notast við úti-
sýningarsvæði.
Yfir 150 bilar veröa sýndir og af
öllum stærðum og gerðum. Oll is-
lensk bifreiðaumboö taka þátt i
sýningunni nema eitt. Auk bif-
reiða verða þarna sýningardeild-
ir með varahluti og verkfæri sem
tengjast bifreiðinni á einhvern
hátt. 1 anddyri sýningarhallar-
innar verður yfirlit yfir sögu bif-
reiðarinnar. Þar verða einnig til
sýnis gamlir bilar og ýmislegt
gert sýningargestum til skemmt-
unar og fróðleiks.
í tilefni sýningarinnar verður
gefið út veglegt sýningarrit, sem
jafnframt verður uppsláttarrit
yfir allar bifreiðategundir sem
fiuttar eru til landsins, ásamt
fjölmörgu fróölegu efni um blla
og bilgreinina. Rit þetta sem er
framleiðslu, þannig að
þeir fái á timabilinu
frá upphafi framleiðslu-
árs til loka þess (eða fram
að sláturtið), nægilegt rekst-
arfé til þess að greiða nauð-
synlegan kostnað og eðlileg
laun við framleiðsluna. Þessi
lán má veita i 3-4áföngum. Lán-
in eiga að miðast við áætlað
framleiöslu-verð (við væntan-
legt innlegg).
Þegar bóndinn siðan afhendir
sláturleyfishafa afurðir sfnar á
hann að fá innlegg sitt greitt.
Aftur á móti á siðan slátur-
leyfishafinn að fá afurðalán út á
sinar vörubirgðir svo hann geti
grcitt bændum. Þannig myndu
rekstrarlán bænda greiðast upp
við innlegg, en þá kæmi til
afurðaián sláturleyfishafa. Þau
lán greiðast siðan upp jafnóðum
og varan selst.
Þetta skipulag er i rauninni
það sama og gilt hefir i
sjávarútvegi og öðrum fram-
leiðslugreinum árum saman.
Með þessu formi gætu bændur
hætt þvi löngu úrelta og hrak-
smánarlega innskriftakerfi,
sem þeir búa við einir allra i
þessu landi.
Bændur fengju peninga og
versluðu fyrir peninga og þyrftu
ekki að skrifta um útgjöld sin
fyrir einum eða neinum.
1 þeim tilfellum aö slátur-
leyfishafar séu algjörlega
aðgreind samtök, sem ekki hafi
neinn ar.nan rekstur með hönd-
um, væri að sjálfsögðu hægt aö
láta þau veðsetja sameiginlega
fyrir bændur, en þá yrðu þau
lika að greiða bændum út féð
um leið og lánin eru veitt.
Nú hafa flestir sláturleyfis-
hafar annan rekstur meö hönd-
um, ýmist verslun, útgerö, iðn-
að, samgöngur o.fl. o.fl. Fjár-
magn þarf til alls þessa reksturs
og svo vill fara, eins og dæmin
sanna.að greiðslurnar til bænda
eru misháar og koma misjafn-
lega til skila.
Það er misskilningur, að nú-
verandi innskrifta- og skulda-
reikningskerfi hjálpi smábænd-
um.
i þeim tiifellum sem það er
gert, gerist það með öðrum
hætti. A slikum málum á lika að
taka á annan veg.
Það sem máli skiptir, er að
bændur fái laun sin greidd eins
og aðrir, um leið og vinnan fer
fram og geti verið jafn peninga-
iega sjáifstæðir og annað vinn-
andi fólk.
Skulda-reiknings-fyrirkomu-
lagið er til skammar.
Það er ekki islenskum kaup-
félögum til skammar — þau fá
ekki nægilegt fé. En rétt er að
átta sig á þvi, að nægilegt fé
fæst aldrei inn i þá sameigin-
legu fjármagnsdreifingarstöð,
sem nú er byggt á.
Það sem fyrir mér vakir i
þessum efnum, Sigurður, er
fyrst og fremst að rétta hag
bændanna og koma samvinnu-
félögum þeirra úr þeirri úlfa-
kreppú sem þau eru i, í sam-
bandi við þessi mál.
Það hefir fariö eins og við var
að búast, Sigurður, að bréf mitt
hefir orðið nokkuð langt.
Ég veit vel um hug þinn til
bænda og þá ekki sist þeirra,
sem hjálpar eru þurfi, — ég met
athugasemdir þinar i samræmi
við það.
Ég er þér þakklátur fyrir
bréfið, þvf það hefir gefið mér
tækifæri til að skýra nokkru
nánar, þessi tvö mikilsverðu
atriði.
Skýringar minar á þessum
tveimuratriöum eru þó iknapp-
asta lagi. Ég hefi nefnilega
miklu meira um þau bæði að
segja og gæti tint til miklu fleiri
rök máli mínu til stuðnings. En
það verður aö biða betri tima.
Með kveðju og ósk um
velgengni.
Lúðvik Jósepsson.
i
■
I
■
I
■
I
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
;
i
i
■
i
■
;
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
;
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
■
i
Ekké viljum við fullyrða neitt um það hvort svona furðuleg farartæki
veröa sýnd á bilasýningunni, en hitt er vist að bifreiöaumboðin munu
kappkosta að sýna ýmislegt þaö sem er óvenjulegt og hefur jafnvel
aldrei sést á íslandi fyrr.
litprentað verður 164 blaðsiður að
stærð.
1 húsi Sýningarhallarinnar að
Bildshöfða 20 (sem er sýningar-
hús I) verða á tveimur hæðum
sýndar flestar gerðir fólksbila.
Þar verða einnig verkfæri, vara-
hlutir fylgibúnaður bifreiða i 50
sýningardeildum. Að Tangar-
höfða 8—12 verða sýndir vörubil-
ar, sendibilar, jeppar, hjólhýsi og
stærri verkstæðisbúnaður, einnig
tengivagnar.
t sambandi við sýninguna gefa
Flugleiðir h/f gestum AUTO 78
25% afslátt af flugi og gistingu. A
sýningunni verður efnt til bil-
happdrættis og gildir hver að-
göngumiði aö sýningunni sem
happdrættismiði.
Verndari sýningarinnar er
Halldór'E. Sigurðsson samgöngu-
málaráðherra.