Þjóðviljinn - 07.03.1978, Side 13
Þriðjudagur 7. mars 1978 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13
SÍMI53468
Sveinbjörg Alexanders I sólóatriOi.
Undir stjórn Yuri Chatal og Svein
bjargar Alexanders
A miðvikudags- og fimmtu-
dagskvöld verða sýningar i
Þjóðleikhúsinu á fimm nýjum
ballettum, sem isienski dans-
flokkurinn dansar ásamt nokkr-
urn nemendum listdansskólans
og Sveinbjörgu Alexanders.
Sjtórnendur sýningarinnar eru
þau Yuri Chatal, sem verið
hefur ballettmeistari og þjálfari
islenska dansflokksins I vetur
og Sveinbjörg Alexanders, sem
starfað hefur um árabil sem
Ustdansari i Þýskalandi. Eftir-
farandi ballettar verða dansað-
ir:
1) Sumarleikir viö tónlist
eftir Ravel. Danshöfundur og
stjórnandi YuriChatal. Dansar-
ar: Misti McKee, Birgitta
Heide, Nanna ólafsdóttir, Yuri
Chatal, Einar Sveinn Þóröar-
son.
2) Metelitza, rússneskur dans
eftir Yuri Chatal. Dansari:
Helga Bernhard.
3) Sinfóniskar etýður við tón-
list Roberts Schumann. Dans-
höfundur Jochen Ulrich.
Stjórnandi: Sveinbjörg Alex-
anders. Dansarar: Ásdis
Magnúsdóttir, Guörún Páls-
dóttir, Ingibjörg Pálsdóttir,
Helga Bernhard, Olafia Bjarn-
leifsdóttir, Nanna Olafsdóttir,
örn Guðmundsson.
4) Angistaróp nætur minnar.
Sólódans Sveinbjargar Alex-
ander viö tónlist Hindemiths.
Danshöfundur: Jochen Ulrich.
5) 1 gömlu góðu Vin. Tónttst:
Jóhann Strauss yngri. Dansa-
höfundur: Yuri Chatal. Dans-
arar: Guörún Pálsdóttir, Helga
Bernhard, Ingibjörg Pálsdóttir,
Orn Guðmundsson, Yuri Cliatal
og Helena Jóhannsdóttir, Lára
Stefánsdóttir, Katrín Þor-
björnsdóttir og Sigrún Waage.
Sýningarnar verða sem fyrr
segir á miðvikudags- og
fimmtudagskvöld á Stóra svið-
inu. Verð aðgöngumiða er hið
sama og á leiksýningar. Ein-
ungis eru ráðgerðar þessar
tvær sýningar.
Spurst fyrir um
ættingja
Vestur-Islendingana Helgu og
Helga Tómasson i Mikley fýsir að
komast i samband við ættingja
sina á Islandi, og eru þeir, sem
kynnu að gefa sig fram, beðnir aö
hafa samband við Jón Björnsson,
Hliðarhvammi 13 i Kópavogi,
simi 40913.
Móðurforeldrar Helga voru
Kristmundur Jónsson á Keis-
bakka á Skógarströnd, fæddur
1857, og Kristjana Þorsteinsdóttir
frá Giljalandi i Haukadal, fædd
1865.
Föðurforeldrar hans voru Sig-
urður Tómasson frá Hermundar-
felli i Þistilsfirði, fæddur 1847, og
Margrét Þórarinsdóttir frá Vest-
ara-Landi i Oxarfirði, fædd 1841,
ogvarmóöir hennar Rósa Vigfús-
dóttir frá Byrgi i Kelduhverfi.
Forfeður Helgu i móðurætt
voru Jónas Jóhannesson frá Sig-
riðarstöðum i Fljótum, fæddur
1833, kvæntur Ingibjörgu Jóhann-
esdóttur,og bjuggu þau um skeið
i Áshildarholti i Skagafirði, og
Sólmundur Simonarson frá
Mávahlið i Lundarreykjadal, átti
að konu Guðrúnu Aradóttur.
Föðurfaðir hennar var Eggert
Sigurðsson, kvæntur Þorbjörgu
Böðvarsdóttur, og voru þau bæöi
frá Álftanesi á Mýrum, en Eggert
alinn upp hjá Blöndalsfólki frá
ellefu ára aldri.
önnumst þakrcnnusniði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmfði.
Gerum föst verötilbeð
AUGLÝSING
um grásleppuveiðar
Með tilvisun til reglugerðar frá 23. febrúar
um grásleppuveiðar vill ráðuneytið minna
á, að allar grásleppuveiðar eru óheimilar
nema að fengnu leyfi sjávarútvegsráðu-
neytisins.
Upphaf veiðitimabiis er sem hérsegir:
Norðurland eystri hluti 10. mars
Austurland 20. mars
Norðurland vestur hluti 1. april
Vesturland 18. april
Þar sem nokkra daga tekur að koma
veiðileyfum til viðtakenda, vill ráðuneytið
hvetja veiðimenn til að sækja timanlega
um veiðileyfi.
Sjávarútvegsráðuneytið
Sími
Þjóðviljans er
0181333
BlikkiHjan
Ásgaröi 7, Garöabæ
Frá Yerölagsráöi
sjávarútvegsias
Yfirnefnd Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins hefur ákveðið eftirfar-
andi lágmarksverð á fiskbeinum,
fiskslógi og heilum fiski til mjöl-
vinnslu frá 16. febr. til 31. mai,
1978:
a) Þegar selt er frá fiskvinnslu-
stöðvum til fiskimjölsverk-
smiðja:
Fiskbein og heill fiskur, sem
ekki er sérstaklega verðlagður,
hvert kg. kr. 8,60.
Karfabein og heill karfi, hvert
kg kr. 11.50.
Steinbitsbein og heill steinbitur,
hvert kg kr. 5,60.
Fiskislóg, hvert kg kr. 3.90.
b) Þegar heill fiskur er seldur
beint frá fiskiskipum til fiski-
mjölsverksmiðja:
Fiskur, sem ekki er sérstaklega
verðlagður, hvert kg 7,80.
Karfi, hvert kg kr. 10,50.
Steinbitur, hvert kg kr. 5,10.
Verðið er miðað við að seljend-
ur skili framangreindu hráefni i
verksmiðjuþró.
Karfabeinum skal haldið að-
skildum.
Verðið var ákveðið af odda-
manni og f ulltrúum seljenda gegn
atkvæðum fulltrúa kaupenda.
I yfirnefndinni áttu sæti:
Gamaliel Sveinsson, deildarstjóri
i Þjóðhagsstofnun, sem var odda-
maður nefndarinnar, Eyjólfur
Marteinsson og Tryggvi Helgason
af hálfu seljenda og Gunnar
Olafsson og Guðmundur Kr.
Jónsson af hálfu kaupenda.
— mhg
Leikendur I „Refunum”, sem frumsýndir veröa hjá L.R. á morgun, Þorsteinn Gunnarsson, Guðrún As-
mundsdóttir, Gisli Halldórsson, Sigriður Hagalin, Þóra Borg, Guðmundur Pálsson, Valgeröur Dan.
„REFIRNIR”
sýndir í Iðnó
A morgun, miðvikudaginn 8.
mars verður bandariski sjónleik-
urinn „Refirnir” eftir Lillian
Hcllman frumsýndur hjá Leikfé-
lagi Reykjavikur I þýðingu Sverr-
is Hólmarssonar.
Lillian Hellman er I hópi þekkt-
ustu leikskálda Bandarikjanna og
varð fyrst kunn á fjórða áratugn-
um. „Refina” skrifaði hún á ár-
unum 1936-39, en þá voru þeir
frumsýndir i New York og hafa
siðan verið settir á svið um allan
heim. Leikurinn gerist um alda-
mótin i Suðurrikjum Bandarikj-
anna og fjallar um græðgi og þrá
eftir auði og völdum; þrjú syst-
kini leggja á ráðin og svifast
einskis til að koma ár sinni fyrir
borð.
1 sýningu Leikfélagsins fara
þau Sigriður Hagalin, Gisli Hall-
dórsson og Þorsteinn Gunnarsson
með hlutverk systkinanna, en alls
eru 10 hlutverk i leiknum. Aðrir
leikendur eru: Jón Sigurbjörns-
son, Guðrún Asmundsdóttir,
Hjalti Rögnvaldsson, Valgerður
Dan, Guðmundur Pálsson, Jón
Hjartarson og Þóra Borg. — Leik-
stjóri er Steindór Hjörleifsson,
leikmynd og búningateikningar
frum-
hefur Jón Þórisson gert en Daniel
Williamsson annast lýsingu.
Skáldkonan Lillian Hellman er
mjög til umræðu um þessar
mundir i Bandarikjunum. Nýlok-
ið er við aö gera kvikmynd um
þáttúr ævisögu hennar, sem þyk-
ir hafa lánast svo vel að myndin
er nefnd til Oskars-verölauna á
ýmsum sviðum. Myndin heitir
„Júlia” og i henni fer Jane Fonda
með hlutverk Lillian Hellmans.
A frumsýningu verður minnst
50 ára leikafmælis Þóru Borg, en
hún er önnur af tveim tslending-
um, sem geta litið til baka til
hálfrar aldar leikferils.