Þjóðviljinn - 20.07.1978, Síða 6

Þjóðviljinn - 20.07.1978, Síða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 20. júli 1978 Snemma beygist krókurinn... Við Islendingar höfum stundum verið hressir með hann Kristmann, hvað hann er duglegur að gifta sig. En það er eins með þetta og annað, Amerikanar eiga það til að slá okkur við. Nú segir Herald Tribune frá þvi, að ungur piltur, Johriny Wolfe, sem er aöeins f jórtán ára, hafi sótt um sérstakt leyfi til yfir- valda i Kaliforniu til að fá aö gif ta sig. Hann ætlar semsagt að taka daginn snefnma. Enda kippir strák ikynið — hannersonur þess manns sem „mest er giftur i landinu”, sem heitir Glynn Demoss Wolfe. Sá karl hefur verið giftur 21 sinni. Johnny litii hefur komist að þvi að hann er yfir sig ástfanginn i hálfsystur nýjustu konu föður sins og vill endilega eiga hana. Og hann neitar því með öllu, að hann ætli að reyna að slá lit met hans. Glynn Demoss Wolfe hefur gengið að eiga nitján konur, en tveim þeirra hefur hann gifst tvisvar. Hann segir að þessar tiðu gift- ingar sinar stafi af góðu siðferöi. Éggiftimigsvonaoft,segir hann, vegna þess, að ég trúi ekki á þaö að fólk sé að hlaupa saman eins og hundar. Það verður einhver ábyrgð að fylgja, einhver agi og einhver gagnkvæm virðing! — Ég skal segja ykkur alveg eins og er, strákar. Ég fæ ekki séð aö þetta komi nýja borgarstjórnarmeirihlutanum nokkurn skapaðan hlut við. Mikil þörf er fyrir flokksmenn aö kunna skil á náttúru og um- hverfi. t dag 'birtum við umsókn frá H.L., sem er skriffinnur- Dagblaðsins. Umsóknin fjallar um ánamaðka og hljómar þann- ig: „Einkennileg hringabönd” Ein af unaðsstundum dagsins er strætisvagnaferðin i vinnuna á morgnana. Ég er nefnilega strætóman. Hleyp út á stoppustöð eins og vortryllt ungmenni, I stöö- ugum spenningi, hvort ég hafi rétt misst af vagninum, eða hvort ég þurfi að biða i svona háiftima I nepjunni eftir næsta strætisvagni. Gleðin, sem brýst upp I manni, þegar þessir breiðu, eiturgrænu freigátur strætanna koma sigl- andi i humáttina að stoppustöð- inni, er ólýsanleg. Eiginlega ger- ist þetta svona: Fyrst heyrir maður diselhljóöin i fjarskaýiikt og hvalkýr sem kallar á kálfana, tinast þá tiivonandi farþegar saman i hnapp á gangstéttar- brúninni. Svo birtist sjálfur vagn- inn, stór og stæðilegur, óneitan- iegur konungur gatnanna. Fyrst er hann eins og guigræn kúla við sjóndeildarhring, og áður maður hefur talið upp að þremur er hann kominn á staðinn. Þá rennur hið lotningarfulla andartak upp, þeg- ar sveigihurðirnar ryðjast til hliðar og heitur og nötrandi vagn- inn stendur manni til boöa. Þetta er eins og að vera veitt inntaka i heilaga reglu útvaldra. Þá er að ganga varfærnislega upp tröpp- urnar, sem liggja að sjálfu altar- inu, þar sem æðstipresturinn sit- ur með sólgleraugu, kaskeiti og þegjandalegan hrokasvip. Svo borgar maður I kollektuna, freudianskan staut með rifu, Ein af unads- stundum dagsins hálfur úr málmi og háifur úr meö miða, ef þeir eru heppnir gleri. eiga þeir hundraðkall, en séu þeir Séu menn forsjálir, borga þeir eins og fólk flest, borga þeir fimmhundruð kall eða kaupa kortalengju fyrir þúsund kall. Æðstipresturinn skiptir aldrei. Hvorki peningum né litum. Þá er að taka sér sæti. (Jr nógu er að velja, þvi vagnarnir eru yfirleitt tómir. Það er hægt að setjast i sæti fyrir einhleypa og stara út um gluggann, það er hægt að tylla sér niður á stól, sem er áfastur öðrumjOg horfa beint fram eða það er hægt að fara aftast og hossast eins og vitfirringur. Þeg- ar vagninn fer af stað hefst annar hluti uppljómunarinnar. Það er engu likara en maður sé kominn á vald annarlegra náttúrulögmála. Þegar beygt er út frá stoppustöö- inni fara maginn, nýrun, lungun, svo ég tali ekki um heiladingul- inn, allharkalega af stað, og þengjast I mótvægi við stefnu vagnsins. Þegar æðstiprestur hefur rétt af vagninn, kemst nokkurn veginn jafnvægi á Ilffær- in aftur. Þetta er finnst mér ákjósanleg morgunleikfimi. Einnig reynir mikið á fætur og hendur, þar sem spyrna verður við gólf, sæti og veggi til að halda sér i sætinu, auk þess sem maður þarf að gripa I stólbök, rúður og þverslár til aö þeytast ekki niður á gólf I verstu beygjunum. Þetta gerir menn eins og Valdimar örnólfsson algjörlega óþarfa. Ef maður vill fá útrás fyrir glæfra- fýsnir sinar er hægt að hætta sér út á gólfið og taka þátt i dansi hinna hugrökku. Aðrar skemmtanir eru lika fyr- ir hendi. Það er hægt að sitja og horfa út um gluggann og fylgjast með hvernig keyrt er fram úr bil- um, vélhjólum og gangandi fólki. Þá er gaman að sjá, hvernig smá- krilin á fjórum hjólum þyrlast undan stolti strætanna, almenn- ingsvagninum. Sorgarstundin rennur hins vegar upp þegar vagninn nemur staðar við áfangastað undirritaðs, smelli- hurðirnar fljúga upp og vesölum vegfaranda er úthýst úr Paradis. En þá er bara að setja undir sig hausinn og harka af sér daginn, þangað til kemur að kvöldferðinni heim... Dagbjartur. þJÓÐVILIINN fyrir 40 árum Fjöldi manns fer daglega suð-, ur I Skerjafjörð, buslar i sjónum ' og bakar sig I fjörunni i sólskin- inu. barna er gott að vera fyrir þá sem hafa einhverja fria stund á meðan sól er á lofti. Fátt er eins hressandi og sólböð og sjóböð. Þeir sem temja sér slikt losna við kvef og kv'illasemi, verða hæfari til starfa og hraustari en aðrir. En vissara er að sleppa ekki þessum góðum sólskinsdögum ónotuðum. Reynsla undanfar- inna sumra hefur kennt okkur að vera svartsýn á reykviskt sumarveður. En viö gleöjumst yfir sólskin- inu meðan það endist. Þjóðviljinn 9.júli 1938 „Anamaðkurinn er tvikynja. Þegar þeir halda brúðkaup festa þeir sig sarnan með einkennileg- um hringböndum. Siðan fara þeir sitt i hvora áttina ’.og eiga börn, eða öllu heldur egg, hvor heimingur i sinu lagi. Fáir vita, að ánamaðkar eru þaktir hárum, sem snúa aftur. Með þvi að strjúka fingri fram og aftur eftir ánamaðkinum má finna hvað snýr fram, og hvað snýr aftur á honum. Þetta notfær- ir moldvarpan sér en hún er ein höfuðóvinur ánamaðkanna. Hún þreifar fyrir sér með snoppunni. Þá er engin hætta á að hann standi i henni. Mörgum finnst ánamaðkurinn fallegur, þegar búið er að skola af honum moldina, langur og vöðva- stæltur. Hann hefur tvö lög af vöðvum alla leiö út á hala, hring- vöðvar þversum og lengdarvöðv- ar langsum. Höfuðið er að visu ekki jafn áberandi og hjá mönnun en þverrifan — munnurinn — er I lagi. Hins vegar er sjónin ekki sem bezt. Ekki er hann til- finningalaus og sennilega finnur hann lykt. Snerting við salt eða áburðarefni fær hann til að sprikla — mótmæla. Undir húðinni eru frumur, sem eru viðkvæmar gagnvart birtu. Sennilega fleiri á fram- endanum. Ef lýst er á hann með vasaljósi að nóttu til er hann fljótur að stinga sér. Ánamaðkar anda i gegnum húðina. Þess begna þurfa þeir alltaf að vera rakir. Ef þeir þorna kemst loftiö ekki i gegn og þeir deyja úr súrefnisskorti. Hins vegar þola ánamaðkar ekki að vera i vatni, þá drukkna þeir.” (Dagblaðið, 17/7) Alyktun: Persónulega finnst mér ánamaðkurinn ein fallegasta skepna, sem til er á Islandi. (Þeg- ar búið er að skola af honum moldina). Hins vegar finnst mér moldvarpan ljót, en hún er llka höfuðóvinur ánamaðkanna. (Aö veiðimönnunum undanskildum.!) Umsóknin er dæmi um góðar náttúrulýsingar á vanalegum húsdýrum og telst fullnægjandi. Velkominn i klúbbinn H.L. Með kveðjum, Hannibal ö. Fannberg formaður

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.