Þjóðviljinn - 20.12.1978, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 20.12.1978, Blaðsíða 5
Miðvikudagur 20. desember 1978 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Út er komið fyrra bindi af Sögu Dalvíkur tit er komiö fyrra bindi af Sögu Dalvikur, eftir Kristmund Bjarnason, rithöfund á Sjávar- borg. Er þaö mikiö rit og merkt, 440 bls. auk skrár um skammstaf- anir og heimildir, prýtt miklum fjölda mynda. Útgefandi er Dal- vlkurbær. Hér gefst ekki rúm til þess aö geta þessa ritverks svo aö viö hæfi sé en efnisyfirlitiö gefur nokkra hugmynd um hiö yfir- gripsmikla innihald bókarinnar. Bókin skiptist f fjóra megin kafla. Nefnist sá fyrsti Staöhættir og landnám, og ber undirfyrir- sögnina „Mikill akur er Svarfaö- ardalur”. Er þar fjallaö um Staö- hætti, Landnám, Starfsminjar og Lýsingu Upsastrandar. Annar hlutinn heitir Sveitarhættir á 18. öld: AbúÖ og sóttarfar. Jarölýs- ing Upsasóknar. Búshagir. Sæ- vikingar. Sjómennska og báta- smiöar. Alþýöuskáld og Heims- lyst á hungurtimum. Þriöji hluti: í Svarfaöardal á 19. öld: Sjó- sókn á öndveröri 19. öld. „Viö skulum halda á Siglunes”. Fariö i legu. „Skip mitt er komiö aö landi”. Skreiöarferöir noröur á Sand. Þilskipaeign Svarfdæla. Skipstjórar og skip. „Á Böggvis- stööum er oftast ös”. (Frá Jóni Sigurössyni rika, Snorra Fló- ventssyni og Halldóri Bjarnasyni, Siguröi Jónssyni og Baldvin G. Þorvaldssyni). Þjóöhátiö Svarf- dæla 1874. Sparisjóöur Svarfdæla. Fjóröi hluti. A Upsaströnd og Sandi: Bjargarskortur og búseta. Upphaf byggöar á Dalvik 1881 — 1900. Höpp af sjó. Hinsta ferö Pól- stjörnunnar. Húsagerö og hý- býlakostur 1881 — 1910. Gáö til miöa. SjóSóknarmenn, (Bátatal og skipaskrár). Saltfiskverkun og fiskveiöisamþykktir, (Agrip af verölags- og verslunarskrám). Arabátaútvegurinn 1880 — 1905. A bókarkápu segir m.a.: — Enda þótt bindi þetta sé fyrst og fremst um þróun byggöar á Kristmundur Bjarnason Böggvisstaöasandi (Dalvik), er hér raunar um miklu meira aö ræöa þvi aö höfundurinn leitar langt og viöa til fanga I sögu sjó- sóknar og annarra atvinnugreina og alls manniifs viö Eyjafjörö og nokkru viöar. Þarna er getiö hundraö Svarfdælinga og fleiri Norölendinga og bókin þvi niik- ilsveröur þáttur Islenskrar ætt- fræöi og persónusögu. En saga Dalvikur er miklu meira en þetta. Höfundur hefur fágæta sýn yfir sögulegar heimildir og er bók þessi tvimælalaust mikiö og margþætt framlag til Islandssögunnar i heild sinni. Og bókin er ekki aö- eins sagnfræöi. Höfundur hefur til þess sérstæöa hæfileika aö glæöa þær staöreyndir sögunnar, sem fram eru dregnar, list og lifi. Sag- an er þvi I senn fróöleg og skemmtileg I besta lagi. Ég hygg, aö lesendur bókar- innar muni sannfærast um, aö hér er i engu of mælt. —mhg Ekki skattlagning en upptaka eigna segir Verslunarráð um álögur á atvinnurekstur Verslunarráö Islands hefur samþykkt hörö mótmæli gegn á- lögum á atvinnurekstur og segir I ályktun stjórnar og varastjórnar frá fundi á mánudag, aö ekki sé lengur um aö ræöa skattlagningu tekna, heldur hreina upptöku eigna. Alyktunin er um horfur I at- vinnumálum á árinu 1979 og segir þar m.a.: „Fundur stjórnar og vara- stjórnar Verslunarráös íslands mótmælir harölega nýjum álög- um stjórnvalda á atvinnulifiö I landinu, sem felast i stórhækkuö- um sköttum samfara minnkandi tekjum vegna hertra verölags- hafta. Veröi boöaöar skattaálög- ur staöfestar, telur Verslunarráö lslands, aö atvinnuöryggi lands- manna sé stefnt i bráöa hættu. Sú skattheimta, sem nú er i bi- gerö, er ógnvænleg. Reykjavik- urborg ráögerir aö hækka fast- eignaskatta og aöstööugjöld um 1400 miljónir króna. Viröast nú meö öllu horfnar áhyggjur af framtiö atvinnulifsins i borginni, sem allir stjórnmálaflokkar höföu fyrir kosningar. Rikisvald- iö boöar einnig 6000 miljónir króna I aukna skatta á atvinnu- vegina, bæöi meö hækkun tekju- og eignarskatts og álagningu nýrra skatta. Þó er ekki langt um liöiö, siöan stjórnvöld álitu, aö at- vinnuvegirnir væru ófærir um aö greiöa umsamiö kaup. lslensk fyrirtæki hafa á undan- förnum árum búiö viö afar slæm starfsskilyröi vegna ástandsins I efnahagsmálum. Margvisleg höft eru enn viö lýöi. Veröbólga hefur meö vaxandi hraöa veriö aö kné- setja islenskt atvinnulif og mögu- leika þess á útvegun fjármagns. Kaupgjaldsákvaröanir hafa tiö- um veriö óraunhæfar. Tekju- stofnar fyrirtækja hafa fyrir- varalaust veriö skertir og verö- myndunarhöftum er nú beitt af vaxandi hörku. Hagur atvinnu- veganna hefur þvi fariö versn- andi og standa mörg fyrirtæki og jafnvel heilar atvinnugreinar ‘Framhald á 18. siöu Fjall í þúfu — ný ljóða- bók eftir Ingimar Erlend Bókaútgáfan Letur hefur gefiö °S sjötta ljóöabókin, en auk ljóöa- út nýja ljóöabók eftir Ingimar bókanna hafa komiö út eftir Ingi- Erlend Sigurösson, sem ber mar þrjár skáldsögur og tvö söfn heitiö Fjali I þúfu. Samtlmis kem- stuttra sagna, siöast I fyrra ur út önnur útgáfa af Ort á öxi, en sagnasafniö Göngustafur vinds- sú ljóöabók kom fyrst út áriö 1973 >ns. og hefur veriö ófáanleg aliargötur Fjall i þúfu er 119 blaösiöur, síöan skiptist i sex kafla og inniheldur Hin nýja ljóöabók, Fjall i þúfu, 94 ljóö. Kápumynd bókarinnar er ellefta bók Ingimars Erlends geröi Sigrid Valtingojer. Hinn landskunni skipstjóri og sævíkingur# Jón Eiríksson rekur hér minningar sínar í rabbformi við skip sitt Lagarfoss. Þeir rabba um siglingar hans og líf á sjónum i meira en hálfa öld, öryggis- mál sjómanna siglingar i ís og björgun manna úr sjávar- háska, um sprenginguna ógurlegu í Halifax og slysið mikla við Vestmannaeyjar. Skipalestir striðsáranna og sprengjukast þýskra flugvéla koma við sögu og að sjálf- sögðu rabba þeir um menn og málefni líðandi stundar: sæ- fara, framámenn í íslensku þjóðlífi háttsetta foringja í her Breta og Bandaríkja- manna en þó öðru fremur félagana um borð skipshöfnina sem með honum vann og hann ber ábyrgð á. Það er seltubragð af frásögnum Jóns Eiríkssonar enda ekki heiglum hent að sigla með ströndum fram fyrr á tíð eða ferðast í skipalestum stríðsáranna. Þetta er bók fagurkerans á sviði ská Idskapar og telst til bókmenntalegra tíðinda. Hér má lesa um Ingvar Ingvars- son og dætur hans, Bjögga f Folaldinu og brúarmennina í Arvogum, frúna í Miklagerði og leiðina í Munaðarnes, kon- una sem beið eftir bréfi frá Boston, litlu stúlkuna sem fékk púpu í sálina, postulíns- koppinn á Flatey og slysatil- burðinn í Kaupmannahöfn og loks Sigvalda garðmeistara, dásemdina rauðhærðu og austanstrákinn. Rautt í sárið eru listilega sagðarsögurá fögru kjarnmiklu máli, enda er Jón Helgason landskunnur frásagnar- snillingur. Síðasta bók Magnúsar Storms Voru þingmenn meiri skörungar og reisn Alþingis meiri fyrr en nú? Upprisa al- þingismanna svarar þessu að nokkru, en þar er að finna mannlýsingar 55 alþingis- manna og ráðherra, eftir háðfuglinn Magnús Storm. Þessar mannlýsingar hans einkennast af fjörlegum stfl og fullkomnu valdi á kjarn- góðu, hnökralausu máli og margar eru þær stórsnjallar, einkum hvað varðar hið bros- lega i fari viðkomandi. Bregður þá fyrir á stundum dálítið meinlegri hæðni. Magnús Stormur bjó Upprisu alþingismanna undir prentun stuttu fyrir andlát sitt og sjálfur mun hann hafa talið marga þessara palladóma meðal þess besta sem hann lætur eftir sig á prenti.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.