Þjóðviljinn - 20.12.1978, Qupperneq 7

Þjóðviljinn - 20.12.1978, Qupperneq 7
Mlðvlkudagur 20. desember 1978 ÞJÓÐVXLJINN — SIÐA 7 Borgaralegir ruglukollar, heilög guöslömb, grátkonur heildsala og menn meö klám á heilanum hafa ruðst hér fram á ritvöllinn hver á fætur öörum. Einar Örn Stefánsson, blaöamaður: Sálfræði og fáfræöi 1 blööunum undanfarna daga hafa nokkrir spakvitringar hent á lofti oröiö „rottusálfræöi”, sem undirritaöur notaöi um daginn til aö lýsa auglýsinga- tækni, og smjattaö á þvi og snú- iö út úr, bersýnilega án þess aö gera sér nokkra grein fyrir hvaö viö var átt. Alltaf rennur mér svartnætti fáfræöinnar til rifja, og úr þvi aö ( guöfræöi?-) nem- ar jafnt sem rithöfundar viröast svo fáfrööir um helstu sálfræöi- kenningar okkar tima, skal ég nú reyna aö útskýra 1 fáum orö- um kenningu þessa. Hun er nefnd örvun — svörun (Stimulus — response ) i upp- runalegri mynd sinni og á helst fylgi i Bandarikjunum. Sál- fræðiskóli þessi hefur fengiö auknefniö rottusálfræöi, einkum af þeim sem litt eru hrifnir af svo vélrænum kenningum i sál- fræöi, vegna þess aö ályktanir forvigismanna hans byggjast mjög á tilraunum sem geröar hafa veriö á dýrum, einkum hundum, rottum og músum, og eru siöan yfirfæröar á mann- lega hegöun. Rússneski sálfræöingurinn Ivan Pavlov var einn af frum- kvöðlum þessarar stefnu snemma á öldinni, en siöan ööl- aöist hún marga áhrifamikla fylgismenn á bandariskum sál- fræöiakri, svo sem John B. Wat- son og Edward L. Thorndike., Watson hélt þvi fram, aö sál- fræöin ætti aö beinbeita sér aö rannsóknum á hegöun manna og nota til þess sömu hlutlægu aöferöir og gert er I náttúruvis- indum. Þetta sjónarmið varð brátt einkennandi fyrir banda- riska sálfræöi. Ýmsar kenning- ar þróuöust svo af þessum meiði, og á siöustu áratugum hefur bandariski sálfræöingur- inn B.F. Skinner haft mikil áhrif á umbunar-kenningu sinni (Operant Reinforcement The- ory). Skinner er sannfæröur „hegöunarsinni” og heldur þvi fram, aö maöurinn feti sitt skeiö eftir ákveönum lögmál- um. Pavlov er einkum þekktur fyrir aö uppgötva þaö sem kall- aö er sigild skilyrðing (classic- al conditioning) á máli sálfræö- innar. Hann sýndi fram á, aö meö þvi aö hringja bjöllu i lengri tima um leið og hundur- inn fékk kjötiö sitt, þá fékk skepnan aö lokum vatn I munn- inn eingöngu viö aö heyra bjölluhringinguna, þótt ekkert sæi hún kjötiö. Þetta hefur verið kallaö skilyrt svörun (conditional response). Sálfræöingar, meö ýmsar vé’l- rænar og „hlutlægar” kenning- ar aö leiöarljósi, eru orönir fyr- irferöarmiklir i auglýsingaiön- aöi stærstu auðvaldsrikjanna og sérfræöingageriö svifst oft einskis til aö auglýsingaher- feröir nái tilgangi sinum fljótt og vel. Þessvegna flaug mér „rottusálfræöin” ameriska si- sona I hug þegar útvarpsauglýs- ing visaöi á sjónvarpsauglýs- ingu, en siöan kemur þriöji fjöl- miöillinn til skjalanna, blööin, og rekur smiöshöggið á verkiö. Þar fá börnin sina umbun fyrir aö fylgjast vel meö sjónvarps- auglýsingunni: verölaunaget- raun og vinningsvon. Ég vona aö ég hafi nú skýrt þetta i eins fáum oröum og unnt er fyrir þeim sem gripa orö af götu sinni og tönnlast á þeim án þess aö hafa hugmynd um hvaö þau merkja. Ég vil svo aö lokum varpa fram þeirri spurningu til vel- unnara þessa blaðs, hvort dag- skrárgreinar eigi aö vera um~ ræöuvettvangur sósialista eöa ruslakista fyrir hvaöa blaöur--- skjóöu sem er, eins og þvi miöur hefur viljaö brenna viö aö und- anförnu. Eitthvaö má nú á milli - vera. Borgaralegir ruglukollar, ~ ^ hetlög guöslömb, grátkonur^ 1 heildsala og menn meö klám á— heilanum hafa ruöst hér fram á ritvöllinn hver á fætur öörum. Er málgagn sósialisma, verka-—- lýöshreyfingar og þjóðfrelsis - hér á réttri leið aö markinu? Eöa eiga dagskrárgreinar ein—— göngu aö vera ruslakista fyrir hin lengri lesendabréf? Hér er vandratað meöalhófiö, en hræddur er ég um að viö sé- um heldur aö villast af leiö. „Frjálslyndiö” getur leitt á villigötur, en á hinn bóginn geldir þröngur hópur „útval- inna” umræöuna, sem endar þá I blindgötu. Einar örn Stefánsson 10 flugvirkjar atvinnulausir á sama tíma og jJugvélar eru sendar úr landi til skoöunar Atvinnulausum flugvirkjum fjölgar mjög á nœsta ári Nú eru um 10 flugvirkjar atvinnulausir hér á landi/ f lestir eöa allir ungir menn sem eru aö koma beint frá námi erlendis. Á næsta ári eru allar llkur á aö at- vinnulausum flugvirkjum fjölgi verulega/ því 50-60 manns stunda nú flug- virkjanám erlendis og koma þeir heim frá námi á‘ næsta ári. Allt flugvirkja- námiö fer nú fram erlend- is/einkum á tveim stööum I Bandarikjunum. Síöustu flugvirkjar sem læröu hér heima útskrifuöust 1970. Flugvirkjar hafa undanfariö haldiö meö sér fundi vegna þess aö Flugleiöir hyggjast nú senda Boeing 727 vélar slnar tvær til Portúgals I svokallaöa C og D skoöun. Fyrri vélin fer út i janúar nk. Aætlaö er aö vélarnar veröi tvær vikur i Portúgal og siöan 1 viku hér heima, þar sem unniö veröur viö innréttingar. Hún veröur skoöuö f Portúgal þrátt fyrlr atvinnuleysi flugvirkja hér heima. Sverrir Guömundsson, varafor- maöur Flugvirkjafélags tslands, sagöi i viötali viö Þjv., aö islensk- ir flugvirkjar heföu alltaf séö um skoöanir á þessum vélum, nema þegar þær voru sendar til Sabena i Belgiu 1976. Meginástæöan fyrir þvi aö þessar flugvélar eru nú sendar úr landi til skoöunar, er skortur á flugskýlum á Keflavik- urflugvelli. „Viö höfum einn bás þar sem hægt er aö taka inn 727- vélar, en flugvélin teppir básinn I þrjár vikur meöan á skoöun stendur,” sagöi Sverrir. „Og ef gera þarf viö aörar flugvélar og eitthvaö er aö veðri, höfum viö ekki i annaö hús aö venda.” Sverrir sagöi aö þetta húsnæöi væri ekki gott og kaldsamt aö vinna þar i noröanátt og frostum. lslendingar eiga fjögur flugskýli á Keflavlkurflugvelli, en þetta eina skýli þar sem aöstaöa er til aö taka inn Boeing 727 vélarnar er leigt af bandariska hernum. „Eina varanlega iausnin á þessu er aö byggja flugskýli,” sagöi Sverrir. „Þaö hlýtur aö vera hagkvæm framkvæmd. Þaö sparar mikinn gjaldeyri aö gera sem-mesthér heima. Flugskýli er tiltölulega ódýrt f rekstri, en skapar mörg atvinnutækifæri og er þvi fljótt aö borga sig.” — eös Þrír Islendingar starfa 1 Tanzaníu Þrir tslendingar hófu störf I Tanzaniu 1. nóvember slðastliö- inn og er ráöningartimi þeirra allra tvö ár.t april si. auglýsti aöstoö tslands viö þróunarlöndin 22 stööur ráöunauta i Tanzaniu á vegum norræna samvinnuverk- efnis þar i landi. t lok júli dlkynnti Danida, danska þróunarlandastofnunin, sem er framkvæmdaaöilinn i þessu verkefni aö 4 Islendingum haföi veriö boöiö starf i Tanzaniu. Einn þessara Islendinga ákvaö aö taka ekki tilboöinu en hinir þrir, Einar Gústafsson, banka- maöur, Ingðlfur Friögeirsson, skrifstofumaður og Jóhann Scheving skrifstofúmaöur, hafa þegar hafiö störf eins og-áöur sagöi. Þessar upplýsingar koma fram i 5.tbl. fréttabréfs Aöstoöar tslands viö þróunarlöndin. —ekh Eina lausnin aö byggja flugskýli BÆNDAFUNDUR Á BREIÐUMÝRI Þingeyingar á móti búvörufrumvarpi Fulltrúar bænda I Suöur- Þingeyjarsýslu hafa lagst gegn frumvarpi landbúnaöarráöherra um breytingu á lögum um framleiösiuráö, sem miöar aö samdrætti i búvöruframleiöslu og byggt er á tillögum 7 manna nefndarinnar. Var haldinn auka- kjörfundur aö Breiöumýri I Reykjadal i sföustu viku og einróma samþykkt ályktun gegn frumvarpinu. Kjörmannafundurinn sem skip- aöur er bændum sem kosnir eru til aö velja fulltrúa á þing Stéttar- sambandsins lagöist eindregiö gegn þeim timabundnu ráöstöf- unum sem gert er ráö fyrir I frv. Var I lok umræöna samþykkt svohljóöandi ályktun: „Kjörmannafundur S.-Þing., haldinn aö Breiöumýri 10. des. 1978, telur tillögur 7 manna nefndarinnar sem eru grundvöll- ur frumvarps, sem nú liggur fyrir alþingi ekki vænlegar til þess aö nægileg tök náist á framleiöslu- magni Islensks landbúnaöar. Fundurinn vekur athygli á þvi, aö tillögurnar gera ráö fyrir þvi, aö veröjöfnunargjald og fóöur- bætisskattur gefi af sér 3 miljaröa króna, sem mun vera 25—30% af nettótekjum bænda. Þetta er þeim ætlaö aö bera óbætt þar sem skattur þessi hefur ekki áhrif á verðlagningu landbúnaöarvara. Ekki er ljóst, að tillögur 7 manna nefndarinnar muni draga úr ' landbúnaöarframleiöslu, heldur er hugsanlegt aö bændur svari þessum aögeröum meö aukinni framleiöslu. Fundurinn telur áhrifarikast aö leggja áherslu á margnkvóta- kerfi, þar sem bændum veröi tryggt fullt verö fyrir ákveöinn hundraöshluta sinnar fram- leiöslu, þó þannig, aö stærstu búin njóti hlutfallslega lægri verö- tryggingar. Ennfremur vekur fundurinn athygli á, aö þessir framleiösluskattar skeröa veru- lega útsvarsstofn sveitarfélaga meö ófyrirsjáanlegum afleiöing- um.” iiáuÉiiiiÍUii i. m

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.