Þjóðviljinn - 22.03.1979, Síða 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 22. mars 1979.
//Landsins forni
fjandi" vitjar Islendinga
enn á ný og norðanáttin
leggur honum lið. Við
fórum með TF-SYN/
flugvél Landhelgisgæsl-
unnar, í könnunarleið-
angur umhverfis landið i
gær að gá til hafíss.
Flogið var í 500 — 700 feta
hæð nær allan tímann
(150-200 metra) og lét
vélin nokkuð ófriðlega i
þessu lágflugi/ enda 8-9
vindstig fyrir norðan og
austan land.
Flogiö var með Suöurlandinu
austur fyrir land og syösti
jakinn kom i ljós viö Seley út af
Reyöarfiröi. Ot af Noröfiröi var •
jakahrafl og isröst utar. Flogiö •
var yfir venjulega siglingarleið
aö Langanesi, fyrir Melrakka-
sléttu, yfir Grímseyjarsund,
fyrir Skaga og Horn og aö
Straumnesi.
tsinn haföi heldur færst i
auknana fyrir Austurlandi og
var kominn sunnar en i fyrra-
dag. A miöjum Héraösflóa var
ishrafl og rastir, en heldur
hreinni sjór viö Digranes. Sjö
milur út af Langanesi var stór
isspöng.
tsinn hleöst ört á fjörur viö
Noröausturland og Skoruvikin
er full af is frá Langanesi aö
Svinalækjartanga. Á Þistilfiröi
er mikill Is og allar fjörur fullar,
en þó var enn fært til Þórs-
hafnar I gær. Fært var einnig til
Raufarhafnar, en mikil Isbreiöa
er þar fyrir utan og aö Hraun-
hafnartanga.
Fremur litill is er á Axarfiröi,
en þó nokkur viö Mánáreyjar.
Greiöfært er til Húsavikur, en á
Skjálfanda er talsveröur is. A
Grimseyjarsundi eru mjög
stórar ishellur, en autt á milli.
Norðan viö Grimsey var mjög
mikill is i um tveggja sjómflna
fjarlægö frá eynni. Giskaöi
Guömundur Kjærnested skip-
herra á aö Isspöng þessi væri 20-
30 milna löng og þriggja milna
breiö.
Viö Gjögur og Siglunes eru is-
spangir, en Eyjafjöröur er
greiöfær inn álinn. Fært var til
Hriseyjar, þótt talsveröur is
væri þar i kring, en ófært til
Dalvikur. A Skagafirði sást
dálitill is, en greiðfært er um
fjöröinn og fyrir Skaga. Á Húna-
flóa var dreiföur Is aö mestu og
þar er greiöfært skipum. Litinn
is var aö sjá á siglingaleiöinni
fyrir Horn og Straumnes.
Helsta breytingin, sem orðiö
hefur á Isnum síöan I fyrradag,
er aö lsinn hefur rekiö saman i
stórar Israstir, en meira er um
hreinan sjó á milli þeirra.
Nokkuð greiðfær sigling er á
öllu þessu svæöi i björtu, en
varasöm I myrkri. Helst má
búast viö aö siglingar teppist viö
Langanes og Hraunhafnar-
tanga.
Ahöfn TF-SYN I þessari ferö
var: Guömundur Kjærnested
skipherra, Guöjón Jónsson flug-
stjóri, Þórhallur Karlsson
aöstoöarflugmaöur og Reynir
Björnsson loftskeytamaður.
Þeim sé þökk fyrir samfylgdina
og þolinmæöina þær 6 klukku-
stundir og 22 minútur, sem
flogiö var til aö huga að haf-
isnum.
Landfastur is viö Font. (Mynd: eik)
Dalvik er aðþrengd af isnum. (Mynd: eik)
Jakahröngi viö Þórshöfn, en ekki þó inni i höfninni sem betur fer. (Mynd: eik)
—eos