Þjóðviljinn - 12.08.1979, Qupperneq 17

Þjóðviljinn - 12.08.1979, Qupperneq 17
Sunnudagur 12. ágúst 1979. ÞJ6ÐVILJINN — StÐA 17 Guðmundur Rúnar Guðmundsson: Við verðum að borga meira fyrir sömu hljómplötu eftir helgi A þessum siCustu og verstu timum, þegar allir barma sér vegna sifelldra verBhækkana og aösteöjandi kreppu, virðast fáir hafa eins gilda ástæðu fyrir kveini sinu og hljömplötukaup- endur. A einu ári hafa plötur hækkað um liðlega hundrað prósent,og þar af um þriðjung á undanförnum tveimur til þrem- ur mánuðum. Margar ástæður liggja til þessara hækkana, en mest munar þó um auknar á- lögur rikisins og hiö sifellda gengissig, sem aldrei viröist ætla aö enda. Eins og málin standa 1 dag, kosta plötur um og yfir niu þúsund krdnur, og koma eflaust til með aö hækka mikiö enn á næstu vikum og mánuð- um. Það sem vekur þó mesta furðu margra sem leggja leiö sina inn i plötuverslanir, er aö ekki skuli nema i sumum versl- unum vera hægt aö kaupa plötur á eldra verði, og þær plötur i mörgum tilvikum vera afgang- ur frá síöustu útsölu. Ntl er þaö vitað mál að ekki seljast allar plötur upp á nokkrum vikum, þannig að ástæðuna fyrir hinum sifellt nyju verðum verður að skilgreina á annan hátt. Auðvit- að er það ekki vinnandi vegur að verömerkja upp á nytt allan lager hverrar verslunar, og fundu innflytjendur og versl- unareigendur þvi upp það snjallræði aö nota verðflokka, sem hægt væri aö hækka eftir þörfum. Þó að reynt sé að réttlæta verðflokkakerfið meö hinum ó- llklegustu skýringum, er fram- kvæmd þess vægast sagt vafa- söm frá lagalegu sjónarmiði, að ekki sé talað um siðferðislegu hliðina, sem vefst auðvitað mis- jafnlega fyrir mönnum eins og verða vill. Verðflokkar Nú ber eldci svo að skilja aö plötur séu seldar eftir verð- flokkum eingöngu til þess að auðveldara sé aö hækka þær. 1 mörgum tilvikum er slikt til auöveldunar starfsfólki i búð- um, en þó sérstaklega þeim sem sjá um talningu og bókhald. Þegar verðlag er stöðugt reynist þetta verðflokkakerfi mjög vel bæöi kaupendum og seljendum, en þegar verðflokk- arnir hækka mánaðarlega eins og gerist núna hér á landi, og plata sem var fyrir hækkun i verðflokki 17 (t.d. 7.950 2. jUli) , verður áfram f sama verðflokki (t.d. 8.750 7. ágúst), þá er auð- séð að ekki er allt meö felldu. Auöveldasta lausnin er auð- vitað sU aö bæta sifellt við verð- flokkum. Ekki skiptir það kaup- andann neinu máli, hvort plata eriveröflokki 17 eða47,ogekki ætti það heldur aö koma við hið viðkvæma tölvubdkhald, sem verslunareigendur fela sig á bak við til réttlætingar hækkun- inni. Onnur lausn er sU, að verö- merkja plötur meökrónutölu þó aöfylgt sé föstum veröflokkum. Einn er þó sá galli við báðar þessar aðferöir, að vilji versl- unareigandi hækka lager sinn verður aö endurmerkja allt og þar erum við komin að kjarna málsins, stærsta kosti verð- flokkakerfisins. Til að gera ljósari hinn raun- verulega gróöa sem af þessu skapast, vil ég nefna hér nokkur dæmi, auk nánari Utskýringa. I vor og I sumar hefur gengi krónunnar sigið stanslaust gagnvart erlendum gjaldmiöl- um. Þaö fór þvi fljótlega aö bera á þvi að verölisti útgefinn 21. mars þyrfti endurskoðunar við. NU er auövitaö ekki hægt aö hækka verðflokkana of ört, þannig að fyrst hækka plöturnar um verðflokka, áöur en flokk- arnir eru hækkaðir. Um mánaðamótin jUni—jUlí voru velflestar plötur komnar I þá- gildandi verðflokka 18 (kr. 7.650), og 19. (kr. 8.200). Þetta þótti oröið of hátt, þ.e. númerin, og allt kerfið þvl endurskoðað og nýir verðflokkartókugildi2. jUli. Fyrst I stað komu þá nýjar plöturi hinum hefðbundnu verö- flokkum 15— 17, en þær plötur sem höfðu fyrir hækkun verið verðmerktar 18— 19ogþar yfir, héldu auövitaö sömu ftokkum, sem voru þá orðnir kr. 8.400 og kr. 8.950. A einni helgi höfðu sömu plöturnar þvi hækkað um 750 króur. Vegna hins stöðuga gengis- sigs þurfti enn að hækka verð- ftokkana um siðustu mánaöa- mót og gilda þauveröenn í dag. Hafi einhver verslun verið svo óheppin að geta dcki á þessum nlma mánuði selt allar þær plötur sem inn komu í lok jilni, hefur verömæti þeirra alls ekki rýrnað eins og eðlilegt væri I mikilli verðbólgu, það hefur stóraukist. I dag er verðflokkur 18, kr. 9.200tmismunur kr. 1.500, og 19, kr. 9.850, og mismunur miðað við 30. júni kr. 1.650. Af þessum mismun verður versl- unin auövitaö að greiöa sölu- skatt, en afgangurinn... Ekki algild regla Þeim hækkunum sem hér hefúr veriö lýst er sem betur fer ekki beitti öllum verslunum. 1 mörgum þeirra eru plötur strax verömerktar með krónu- tölu sem slöan helst óbreytt, en annars staðar er fleiri en einu flokkakerfi beitt eöa lager jafn- vel endurmerktur þó fram- kvæmd þess sé að vonum mis- jöfn. Af þessum sökum hlýtur sú spurning að vakna, hvers vegna kaupendur beini ekki viöskipt- um sinum eingöngu að þeim verslunum, sem á þennan hátt reyna aö halda veröinu niöri og koma heiðarlega fram viö kaup- andann. Staðreyndin er hins vegar sU, að þær verslanir sem alltaf halda verðinu I hámarki eiga auöveldara með aö bjóða gott úrval af plötum, sem auð- vitaö dregur til sfn kaupendur. Hjá þeim sem aldrei hækka birgðir sinar étur verðbólgan alltaf hluta af álagningu hverr- ar plötu, og þvi meir a, sem plat- an liggur lengur I bUpinni. Sam- keppnisaöstaða þeirra versnar þvi auðsjáanlega sifellt, enda er nú svo komiö aö flestar þær verrslanir sem bjóöa upp á gott Urval af plötum nota verö- fiokkakerfið. Misjafnt er þó hvort eöa hvernig lagerinn er hækkaður, og getur þvi vel borgaö s ig að athuga verð sönu plötu i nokkrum verslunum áður en kaup eru gerö. Hinn almenni kaupandi, sem kaupir kannski plötu mánaðar- lega eða þaðan af sjaldnar, á auðvitað ekki möguleika á þvi að fylgjast nákvæmlega með hvar hagstæðast er aö versla. Það er þó varla til of mikils mælst, að hann gangi á milli nokkurra verslana, eöa hringi, þegar verömunur á sömu plötu getur skipt þUsundum króna. A Laugaveginum einum eru fimm stórar hljómplötuverslanir auk margra annarra víðs vegar i borginni, og getur það veriö mjög fróðlegt að ganga á milli þeirra og kynna sér verölagn- inguna. Hvað segja verðlags- yfirvöld? Yfirþyrmdur af þeirri vitn- eskju sem hér hefur veriö rakin, hringdi undirritaöur á skrifstofu verðlagsstjóra, og spuröi fyrst hvort leyfilegt væri undir nokkrum kringumstæðum að hækka vörubirgðir verslunar. 1 svari starfsmanns verðlags- skrifstofunnar kom fram aö aldrei mætti hækka vörubirgðir, og að aldrei hefði þeim borist kvörtun um að hljómplötuversl- anir geröu slikt. Undirritaður var fljótur að bera fram slika kvörtun og fékk þá þau svör að auðvitaö yrði að athuga þetta mál, þvi fyrr þvi betra. Sá galli væri hins vegar á starfsemi þessarar stofnunar, aö vegna fárra starfsmanna, sem sumir hverjir væru auk þess I sum- arleyfi, væri ekki hægt að sinna öllum verkefnum strax, og mest áhersla væri alltaf lögð á að fylgjast sem best með verðlagn- ingu á matvælum. Hins vegar yröi að athuga þetta mál og þó það væri ekki hægt strax, kæmi til þess meö haustinu. Ekki taldi sá sem fyrir svör- um varð liklegt aö þessi rann- sókn endaöi meðþvl aö viðkom- andi verslanir fengju kæru vegna lögbrots, árangurinn gæti orðið sá aö verslanirnar hættu að hækka vörubirgöir sinar. Af þessumá veranokkuö ljóst að ekki er mikils aö vænta af verölagsyfirvöldum i þessu til- viki, þó auövitað sé of snemmt að spá um það á þessu stigi. Þeir sem ætla sér aö kaupa hljómplötur á næstunni, ættu þó að sjá sóma sinn i því að versla við þær verslanir, sem reyna að stunda viðskipti sln heiðarlega. Ekki hægt að fram- fylgja lögunum. A þeim tima sem undirritaöur hefur verið að kynna sér verð- lagningu á hljómplötum, hefur auövitað margt fróðlegt komiö i ljós. Ein er sU röksemd versl- unareigenda, sem hlýtur að vekja forvitni allra þeirra sem ekki þekkja til. HUn er sU, að vegna alvarlegra galla séekki hægt að framfylgja núgildandi verðlagslöggjöf. Þess i stað verði verslunareigendur, hver um sig eða i samráöi, aö reyna að bæta upp galla þessa, sem auðvitað er illmögulegt innan ramma laganna. Það mun vera rétt, að á lög- gjöfinni eru ýmsir mjög alvar- legir gallar, en ef verslunareig- endur geta bætt sér þá upp eða lagfært án þess að löggjafinn komi þar nærri, er auösjáanlega um grófa mismunun á þegnum landsins að ræða. Sumir þurfa aðhlýta öllum lögum, hversu ó- réttlát sem þau kunna að j viröast, á meðan aörir geta upp i á sitt eindæmi aðlagað þau þörf- um sinum. Eins og rakið hefur verið hér að framan, þá kemur þessi aðlögun,ef svo skyldi kalla, ekki alltaf neytandanum til góða, en hann er hvort sem er ýmsu van- ur og borgar bara meira eins og venjulega. # fingrarám Umsjón: Jónatan Garðarsson

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.