Þjóðviljinn - 12.08.1979, Qupperneq 23
Sunnudagur 12. ágiist 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
Umsjón:
Vilborg
Dagbjartsdóttir
SAGANAF
Klumpa-Dumpa
Einu sinni var strákur
sem alltaf vildi fá að
heyra nýja sögu á hverju
kvöldi, annars neitaði
hann að fara að sofa.
Hann var búinn að heyra
allar sögur sem til voru.
Hann kunni söguna af
Búkollu utan að og sög-
una af Gípu og Þúfukerl-
ingunni og Gilitrutt og
Brúsaskegg og Þyrnirós
og Oskubusku og Rauð-
hettu og Hans og Grétu
og Dverginum í sykur-
húsinu og meira að segja
líka söguna af Glókolli.
Kannski eru til f leiri sög-
ur, en mamma hans
kunni þær ekki. Þú spyrð
líklega, hvers vegna
pabbi hans hafi ekki
stundum sagt honum sög-
ur. Hann hafði nú aldeilis
annaðað gera. Hann var
alltaf úti á sjó að veiða
fisk. Þegar hann var bú-
inn að veiða allasíldina,
þorskinn, ýsuna og loðn-
una, þá fór hann bara að
veiða kolmunna. Svo ekki
gat hann sagt stráknum
sögur.
Eitt kvöld þegar strák-
urinn vildi alls ekki fara
að sofa nema mamma
hans segði honum nýja
sögu, þá mundi hún eftir
því, að einhvern tíma
hafði hún heyrt um skrít-
inn karl sem hét Klumpa-
Dumpi og sat á vegg.
Hann var reyndar ekki
venjulegur karl, heldur
egg sem einhver krákan
haf ði verpt þarna á vegg-
inn. Karlinn var óttaleg-
ur auli og þegar hann sá
lífvörð kóngsins fara
framhjá hoppaði hann
upp og klappaði saman
lófunum; það hefði hann
ekki átt að gera, því hann
missti jafnvægið og valt
út af veggnum og möl-
brotnaði. Kóngsmennirn-
ir heldu leiðar sinnar, því
ekki gátu þeir límt karl-
inn saman.
Þetta fannst stráknum
góð saga. Hana hló svo
mikið að því hvað
Klumpa-Dumpi var vit-
laus, að hann valt sjálfur
útaf og sofnaði.
Næsta kvöld bjó
mamma hans til visu um
þetta. Hún er svona:
Klumpa-Dumpi kúrði á
vegg
karlinn sá var brot-
hætt egg.
Feikna fall þá mátti
þola
fór hann svo í þúsund
mola.
Enginn gat hann grætt
úr þessu
greyið varð að einni
klessu.
Kvöldið þar á eftir sátu
strákurinn og mamma
hans dálitla stund og
klipptu út myndir af
Klumpa-Dumpa, og það
var svo gaman að strák-
urinn fór glaður að sofa.
Og svo þarnæsta kvoid
vildi hann aftur heyra
söguna um þennan vit-
lausa karl. Þannig gekk
þetta lengi, en þá allt í
einu langaði strákinn til
að hlusta á gömlu sögurn-
ar sem hann var áður svo
leiður á. Eftir þetta voru
aldrei söguvandræði á því
heimili.
Þessa my
RETTLAUSN
Alls bárust sex réttar ráðningar. öll svörin voru f rá
stelpum. Sá sem á að fá bréfið heitir:
Hr. Öskar Rósmundsson
öldugötu 12
220 Hafnarfirði.
Þessar stelpur fá kort frá Kompunni í þessari viku:
Ásdís Ingimarsdóttir, 11 ára, Egiisstöðum 4, Egils-
stöðum.
Guðrún B. Jónsdóttir, lOára, Lagarfelli 22, Egilsstöð-
um.
Steinunn B. Þorgeirsdóttir, 11 ára, Þjónustumiðstöð-
inni, Skaftafelli, öræfum.
Guðrún Hreiðarsdottir, Ytri-Tungu, Tjörnesi
Kristrún Halla Helgadóttir, 10 ára, Brúarlandi 14,
108 Reykjavík.
PENNAVINIR
Ég er 10 ára. Ég óska eftir pennavini á aldrinum 10-11
ára. Mynd fylgi fyrsta bréfi.
Kristrún Halla Helgadóttir
Brúarlandi 14
108 Reykjavik.
Ég heiti
Guðrún Bjarney Jónsdóttir
Lagarfelli 22
700 Egilsstöðum
og óska að komast í bréfasamband við stelpur eða
stráka á mínum aldri. Helstu áhugamál mín eru
skriftir, dýr og popplög. Mynd fylgi helst fyrsta bréf-
inu.
Guðrún er 10 ára.
É-Ég? Hræddur? Hv-hvaöan fékkstu þá hugmynd?