Þjóðviljinn - 26.08.1979, Side 3
Sunnudagur 26. ágúst 1979. ÞJ6ÐVILJ1NN — SÍÐA 3
erlendar
bækur
The Berlin Bunker.
James P. O’Donnell. J.M. Dent
1979.
Carl Gustav Jung sagöi höfundi
þessa rits skömmu fyrir andlát
sitt 1961, ,,aö neöanjaröarbyrgiö i
Berlin væri skuggaleg táknmynd
hinnar sameiginlegu undirvit-
undar um nútimann”. Byrgiö
hefur allt frá eyðingu þess haft
slikt aðdráttarafl ásamt at-
buröarásinni þar, að rit sem sett
hafa verið saman um þá sögu
fara viöa og eru þaullesin.
Trevor-Roper varð fyrstur til
þess aö skrifa um „Sföustu daga
Hitlers”, sú bók komfyrstút 1947
og hefur m.a. komið út i islenskri
þýðingu. Mörg rit hafa komið út
siöan sem f jalla um þessi efni ein-
göngu eða aö nokkru og hefur höf-
undurinn stuðst viö þau og eigin
rannsóknir, en hann var meðal
þeirra fyrstu sem komu i byrgiö
eftir aö Rússar náðu þvi á sitt
vald. Höfundurinn er Bandarikja-
maður, hefur starfað á vegum
bandariska utanrikismálaráöu-
neytisins sem hermaður og
blaðamaður við Washington Post,
New York Times ofl. blöð. Hann
býr nú i Berlin.
Höfundurinn hefur talað við
flesta þá sem lifðu af veruna i
neðanjarðarbyrginu og meðal
þeirra voru einstaklingar sem
höfðu lengi dvalist sem fangar i
Ráðstjórnarrikjunum og veittu
höf. upplýsingar sem hvergi
höfðu komið áður, varðandi þá
siðustu daga i byrginu. Fleira
kemur til, að þessi bók veitir
fyllri upplýsingar en aðrar um
þessi efni.
Svipmyndir höfundar af ýms-
um atburðum i neðanjarðarbyrg-
inu, viðbrögðum ibúanna við
þeim og andrúmsloftinu siðustu
dagana eru minnisstæöar, svo og
viðbrögð og ástand höfuðpaurs-
ins, sem var rúinn makt og veldi,
altekinn sjálfseyðingarhvöt
guðlausrar skepnu.
Drollige Thierbilder und
Reime aus der Fabelwelt.
NeudrOck der 1850 erschienenen
Ausgabe. Nachwort Heiner Vog-
el. Edition Leipzig 1978.
Bók þessi kom fyrst út i Stutt-
gart fyrir 129 árum og er endurút-
gefin i sama formi og þá, með vel
gerðum litmyndum. Bókin er gef-
in út i safni barnabóka, Histor-
ische Kinderbucher, Band 29.
Umsjónarmaöur útgáfunnar er
Horst Kunze. Heiner Vogel skrif-
ar eftirmála að þessari bók, þar
sem hann rekur nokkuð sögu
myndskreytinga i gömlum
barnabókum. Esóp hefur löngum
verið fyrirmyndin aö mórölskum
frásögnum, þar sem ýmis húsdýr
eru látin kynna og predika réttar
hátternisreglur. Fabúlur Esóps
komu fyrst út prentaðar með tré-
skurðarmyndum 1478. Mynd-
skreyting ævintýra La Fontaines
gerð af Oudry i útgáfunni frá 1755,
varð viðfræg. A 19. öld kom tals -
vert út af myndskreyttum dýra-
fabúlum, og er þessi þó ein
þeirra.
Bækur þessar tjáðu móralskar
forskriftir sinna tíma oe voru
einkum ætlaðar börnum. Dýrin
voru gædd ýmsum mennskum
eiginleikum, bæði góðum og
slæmum og dæmi rakin um hegð-
un þeirra við ýmsar aðstæður. 1
þessari bók er efninu raöað upp i
rimaðar smáklausur og fylgir
mynd einhvers dýrs hverri
klausu, yfirskriftirnar eru t.d.
hræsni, ótti, hroki, sjálfshælni,
þjónustusemi, meðaumkun o.s.fr.
Flestallar bækur þessarar teg-
undar eru nú mjög sjaidgæfar I
frumútgáfum og seljast á háu
verði þá sjaldan þær berast á
markaö. Þessvegna hefur skap-
ast markaöur fyrir endurútgáfur,
sem nálgast frumútgáfurnar að,
lita- og prentgæðum.
,The China Syndrome’
frumsýnd í Svíþjóð
„The China Syndrome” nefnist
kvikmynd sem var frumsýnd i
New York á þessu ári, skömmu
fyrir slysið i kjarnorkuverinu i
Harrisburg. Strax eftir frumsýn-
inguna fóru að streyma inn mót-
mæli vegna myndarinnar sem
talsmenn kjarnorkuvera töldu
gefa alranga og ýkta mynd af
hugsanlegum hættum af kjarn-
orkuverum. En eftir slysið I
Harrisburg þögnuðu þessar
raddir að mestu. Nú hefur mynd-
in nýlega verið frumsýndi Sviþjóð
og vakið miklar umræður. 1 ljós
hefur komið að fjöldamörg stór-
fyrirtæki i Bandarikjunum eiga fé
i kjarnorkuiðnaðinum, jafnframt
þvi sem þau eiga hlut i sjónvarps-
stöðvum og jafnvel kvikmynda-
fyrirtækjum. Þetta er talið hafa
haft áhrif á umræðurnar, m.a.
hafa sjónvarpstöðvar dregið til
baka viðtöl um myndina „The
Atomic Industrial Forum” sendi
kvikmyndagagnrýnendum upp-
lýsingabækling um kjarnorkuiðn-
að áður en myndin var frumsýnd.
Að þessum samtökum standa 600
fyrirtæki, sem á einn eða annan
hátt taka þátt i „friðsamlegri not-
kun kjarnorku” eins og það heitir.
I kvikmyndinni segir frá þvi
þegar hinn geislavirki kjarni i
kjarorkuveri „bræðir úr sér” og
fer i gegnum stál og stein, beint
niður i jörðina og i gegnum hana.
Eftir allar þessar umræður og
slysið i Harrisburg hafa aðstand-
endur sýningarinnar, m.a. Jane
Fonda, sem leikur eitt aðalhlut-
verkið, keppst um að sannfæra
Jane Fonda og Michael Douglas I
kvikmyndinni „The China Synd-
rorae”.
fólk umopinberlega að myndin sé
ekki fyrst og fremst um kjarn-
orku heldur sé hún „tryllir”
(thriller) um tækni meðal annars.
En þótt Jane Fonda hafi sagt
þetta i sjónvarpsviðtölum, hefur
Framhald á bls. 21.
JÖFUR HF.
AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI
- SÍMI 42600
árgerð Skoda Amigo
á gamla veröinu.
Aðeins 50 bílar til ráðstöfunar. Tilboð
sem aðeins stendur skamma stund og
verður ekki endurtekið. Grípið tækifœrið og
tryggið ykkur nýjan Skoda Amigo strax
Verð frá kr. 2.195.000.