Þjóðviljinn - 26.08.1979, Qupperneq 9
Sunnudagur 26. ágúst 1979. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
Ágúst ’69-
ágúst 79:
i þessum mánuði eru tíu
ár liðin frá því breski her-
inn kom til N-írlands í því
skyni að ,/Stilla til friðar"
milli mótmælenda og ka-
þólikka eftir einhverjar
mestu óeirðir í landinu síð-
an á fjórða áratugnum.
Kaþólski minnihlutinn i Ulster
einsog þessi hluti trlands heitir i
munni breskra nýlenduherra tók
komu hersins ekki illa i fyrstu,
fólk vonaðist eftir vernd eftir svi-
virðilega framgöngu löggæslunn-
BARÁTTAN Á N-ÍRLANDI
Breskur her í tíu ár
ar á staðnum. Royal Ulster
Constabulary (RUC).
En þegar þessa atburðar var
minnst núna, þegar 810 ár eru liö-
in frá þvi breskur her gerði sina
fyrstu innrás i írland, fóru 4000
kaþólikkar um Belfast undir
merkjum lýðveldissinna til að
krefjast tafarlausrar brottfarar
hersins, og enn fleiri tóku þátt i
göngu vinstri manna i London
sem farin var til að hvetja til þess
að herinn yrði kalláður heim.'
>vi þó að mannréttindabarattu
kaþólskra virðist lítið hafa miðað
undanfarin ár er ljóst að breski
herinn er fádæma óvinsæll og
krafa lýðveldissinna um samein-
að trland, sjálfsforræði allrar
irsku þjóðarinnar, á enn mikinn
hljómgrunn. Ýmislegt bendir
meira að segja til að andheims-
valdasinnuð barátta sé heldur að
eflast á Norður-trlandi og að hún
njóti vaxandi samúðar i Bretlandi
sjálfu.
Landi skipt
Rösk hálf miljón kaþólikka býr
á N-trlandi, mótmælendur, sem
að verulegum hluta eru afkom-
endur ensku yfirstéttarinnar
meðan trland allt taldist bresk
nýlenda, eru tvisvar sinnum fleiri
á þessu svæði.
trskir lýðveldissinnar hafa allt-
af álitið það svik við sinn málstað
þegar Irlandi var skipt með þess-
um hætti, norðurhéruðin undan-
skilin þegar sjálfstæðið loksins
fékkst. Og það sjálfstæði hefur
raunar alla tið einkennst af þvi
að efnahagsleg itök breskra fyrir-
tækja i Irska lýðveldinu eru mjög
sterk.
Kaþólski minnihlutinn hefur
lengi verið fótum troðinn i N-tr-
landi, þó á ýmsu hafi gengið i bar-
áttu hans. En á siðasta áratug
efldist mannréttindabarátta
þeirra mjög og þvi harðskeyttari
urðu viöbrögð ráöandi stéttar.
Michael Fárrell rifjar i nýlegri
grein (I Socialist Challenge) upp
komu breska hersins til héraðs-
ins. Farrell var þá og er enn einn
helsti forystumaður samtakanna
Aipyoulýöræöi (Peoples Demo-
cracy) sem framarlega stóðu i
baráttu þessara ára.
Belfast í ágúst ’69
Arið 1968 og framan af árinu
1969 réðst norður-írska lögreglan
(RUC) hvað eftir annað að göng-
um mannréttindahreyfingarinn-
ar, en það var ekki fyrr en I ágúst
sem endanlega sauð upp úr. Lög-
reglan ákvað að fylgja göngu
mótmælendasamtaka sem voru
að fagna 300 ára gömlum sigri á
kaþólikkum i gegnum miðborg
Derry, þar sem fjöldi kaþólskra
býr. Þetta var þann 13. ágúst ’69.
Til andmæla kom og svo fór að
RUC menn gengu berserksgang
i hverfum kaþólskra (Battle of
Bogside). Daginn eftir urðu gifur-
leg mótmæli meðal kaþólikka um
allt N-Irland til að sýna sam-
stöðu með fólkinu i Derry. Lög-
reglan, en i henni voru á þessum
tima þrjú þúsund manns, réð ekki
við mótmælendur (nú eru 8000
manns i RUC).
14. ágúst tók breski herinn við
Ernie Roberts, Verkamanna-
flokksþingmaður, var helsti
hvatamaður að stofnun aiþjóð-
legu nefndarinnar til að kanna
framferöi Breta á N-írlandi.
stöðvum lögreglunnar i Derry.
tbúarnir vörpuðu öndinni léttar i
fyrstu, þvi stöðugum yfirgangi
lögreglunnar i bænum var þó lok-
ið i bili.
Stjórn Ulster undir forsæti Chi-
chester-Clark hefndi sin grimmi-
iega fyrir ósigurinn I Derry. Að
kvöldi þess dags bættist RUC i
Belfast mikill liðsauki úr röðum
mótmælendahópa lengst til
hægri. Þetta lið réðst inn i ka-
þólsk hverfi i Belfast, skaut úr
vélbyssum og brenndi hús ofan af
fjölmörgum kaþólskum fjölskyld-
um.
Kaþólska verkafólkið i þessum
hverfum ætlaði ekki að vera óvið-
búið næstu árás. í minningu irsku
lýðveldisbaráttunnar og átak-
anna á þriðja áratugnum reistu
menn götuvigi og afgirtu alit
hverfið sem þaðan i frá hét
„frjálsa Belfast”. 15. ágúst tók
breski herinn við stöðvum lög-
reglunnar i kaþólsku hverfunum I
Belfast. Þá sem fyrr veittu fáir
þvi athygli að byssum hermann-
anna var i raun beint gegn ka-
þólska minnihlutanum, en ekki
árásarmönnunum sjálfum.
Götuvígi og
sjálfstjórn
Kaþólska hverfið varð „sjáJf-
ststt” eitt andartak irskrar
sögu. Forysta þess var i höndum
lýðveldissinna og róttækustu
mannréttindabaráttumannanna,
Varnarnefnd hverfisins setti á fót
útvarpsstöð og gaf út dagblaðið
„Citizen Press”. Þess var krafist
að stjórnin segði af sér og að RUC
yrði leyst upp.
Hér er ekki rúm til að rekja
sögu frjálsrar Belfast. Forysta
varnarnefndarinnar féll smám
saman i skaut „hófsamari”
manna og fulltrúa kirkjunnar. I
lok september höfðu flest götu-
vigin verið tekin niður, jafnvel þó
ekki hafi annað verið gert en að
skipta um yfirmann RUC.
Farrell telur eftir á aó hyggja
— að mestu hafi valdið um þessa
þróun að ekki var um raunveru-
lega sjálfstjórn ibúanna i þessum
hverfum að ræða. Varnarnefndin
haföi I raun ekkert umboð frá
fólkinu og forystumenn hennar
voru tregir til að láta reyna á lýð-
ræðið. Farrell telur að þetta van-
traust hafi verið ástæðulaust,
sambandið við ibúana var gott
og samhugur mikill..
Farrell segir að lokum um
þennan ágústmánuð fyrir tiu ár
um: „Frjálst Belfast ætti að hafa
svipaða þýðingu fyrir trland eins-
og Parisarkommúnan og ráð-
stjórnin 1905 haföi fyrir bolsévika
i Rússlandi. Leiðin áfram var
vörðuð, sú tegund skipulagningar
sem árangursrik bylting þarfnast
kom i ljós. Frjáls Belfast sýndi
þann ótrúlega mátt sem býr i
fjöldanum sameinuðum, skipu-
leggjandi sjálfan sig.”
Hnignun og
sundrung
Sögu þeirra tfu ára sem siðan
eru liðin gefst ekki rúm til að
rekja hér. Það má láta sér nægja
að minna á að margt breyttist i
rás baráttunnar samhliða þvi að
hlutverk breska hersins kom æ
betur i ljós. Lengst munu kaþó-
likkar sjálfsagt muna þann blóð-
uga sunnudag 30. janúar 1972 þeg-
ar breski herinn skaut 14 óvopn-
aða þátttakendur i mótmælum til
bana.
Um tima dró mjög úr afli bar-
áttunnar, örvæntingarfullar
skæruiiðaaðgerðir drógu kjark úr
mönnum fremur en hitt, — svo
virtist sem margir lýðveídissinn-
ar hefðu misst alla trú á fjölda-
baráttu. Herinn greip til æ harö-
ari aðgerða, grunaðir lýðveldis-
sinnar voru beittir pyndingum,
gátu setið endalaust i einangrun-
arfangelsi án dóms og voru ekki
viðurkenndir sem pólitiskir fang-
ar.
Þau samtök sem nú heyja bar-
áttuna eru lika önnur. Irski
lýðveldisherinn klofnaði, opinberi
armur hans varft aft ábyrgum en
fylgislitlum stjórnmálaflokki sem
kenndi sig við sósialisma, hinn
armurinn (Provisionals) naut að
visu meira fylgis en greip á
stundum til aðgerða sem vandséð
er að hafi stuðlað að eflingu bar-
áttunnar. Stuðningsmenn hans
hafa sætt miklum ofsóknum en
samt fer þvi fjarri að breska
hernum hafi tekist að kveða hann
i kútinn.
Alþýðulýðræðið hefur samein-
ast öðrum samtökum á hinum
annars svo klofna vinstri kanti og
tengst Fjórða Alþjóðasamband-
inu og i sömu átt hefur Berna-
detta Devlin, sem nú er McAlis-
key, færst.
t kosningum til Evrópuþingsins
snemma I sumar sýndi sig að
frambjóðandi Sósialdemókrat-
iska Verkamannaflokksins
(SDLP) á langmestu fylgi að
fagna meðal kaþólikka, hann
hlaut 170 þúsund atkvæði. t þvi
kjördæmi hlaut Bernadetta Mc-
Aliskey, sem bauð sig fram með
stuðningi Alþýðulýðræðisins, 34
þúsund atkvæði. Frambjóðendur
hins opinbera arms irskra lýð-
veldissinna (Sinn Fein) hlutu ekki
nema 4000atkvæði i tveimur kjör-
dæmum. Irski lýðveldisherinn
skoraði á menn að sitja heima:
Kosningaþátttakan var 57%, sem
mun samt litlu minna en i venju-
legum þingkosningum.
Belfast frjáls
á ný?
En gangan fyrir skömmu var
sú fjölmennasta um langt skeið
og margt bendir til þess að nú sé
að koma nýr skriður á baráttuna,
sem einkum snýst um brottför
breska hersins og að lýðveldis-
sinnar sem inni sitja séu viður-
kenndir sem pólitiskir fangar.
Þeim öflum i Englandi sjálfu
sem berjast fyrir þvi að herinn sé
kallaður heim vex lfka ásmegin.
Gangan sunnudaginn 12. ágúst i
London var sú fjölmennasta sem
farin hefur verið vegna Irlands-
mála siðan 1972. BBC segir þátt-
takendur hafa verið 4000, Guard-
ian og Daily Mirror segja 10.000.
Krafa göngunnar var að stefnt
væri að þvi að herinn yrði kallað-
ur heim sem fyrst, en lang-stærst-
ur hluti göngumanna gekk undir
borðunum „Tafarlaus brottför”
(Troops out now). Meira að segja
14 þingmenn Verkamannaflokks-
ins hvöttu fólk til að taka þátt i
göngunni.
Vinstri öfl i Verkamanna-
flokknum og viðar reyndu lika að
vekja athygli bresks verkafólks á
pyntingum breska hersins á þess-
um slóðum og stofnuðu alþjóðlega
nefnd i þvi skyni.
Vist er að „Irlandsmálið” er
langt þvi frá leyst og andstæðurn-
ar skerpast. Ofstækispresturinn
Ian Paisly vann mikinn kosninga-
sigur meðal mótmælenda i vor,
friðarhreyfing kvenna er hins
vegar oröin að engu. Kannski er
þess ekki langt að biða að götu-
vigin risi á ný i fátækrahverfum
Belfast.
(Heim. SocialChallenge,
Newsweek)
Tökum að okkur
viðgerðir og nýsmiði á fasteignum.
Smiðum eldhúsinnréttingar: einnig við-
gerðir á eldri innréttingum. Gerum við
leka vegna steypugalia.
Verslið við ábyrga aðila
TRÉSMIÐAVERKSTÆÐIÐ
Bergstaðastræti 33,
simar 41070 og 24613