Þjóðviljinn - 26.08.1979, Síða 23
Sunnudagur 26. ágiist 1979. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23
Umsjón:
Vilborg
Dagbjartsdóttir
Allt í einu
varö til ljóö
Systurnar Hildur og Urður Njarð-
víkur. Hildur er 9 ára en Urður 8 ára.
Myndin er tekin fyrir utan heimili
þeirra að Skerjabraut 3 á Seltjarnar-
nesi. í sumar voru systurnar á ferð
um írland með foreldrum sínum. Þau
voru að aka um fagra sveit í góðu
veðri, stelpurnar sátu í aftur sætinu.
Hildur sönglaði í hijóðfalli við hossið í
bílnum. Allt í einu varð til Ijóð. Ljóðið
sem er hérna á síðunni. Hildur raulaði
það af munni fram svo eiginlega varð
til lag líka, en það var ekki skrifað nið-
ur.
(Ljósm. Leifur)
Líflð gerir
svo margt
Lífið leikur við sáiina,
lífið gerir svo margt.
Lífið það hoppar
og lífið það skoppar,
lífið gerir svo margt.
Lífið það grætur
og lífið það hlær
líf ið brosir og grettir sig,
lífið gerir svo margt.
Lífið leikur við sálina,
lífið gerir svo margt.
Úr þjóðsögum
r
Jóns Arnasonar
Álfar
Soffia Halldórsdóttir
sendi
Rauða barnskiukkan
Kona á bæ einum
skammt frá sjó breiddi
einu sinni ull til þerris á
kletta við sjóinn og tók
hana um kvöldið og bar inn
í skemmu. Næstu nótt eftir
dreymir hana að kona
roskinleg, vel klædd og við-
mótsgóð kemur til hennar
og biður hana gæta að
hvort hún finni ekkert í
ullinni sem hún hafði breitt
til þurrks um daginn, við
hvað hún kannist ekki við.
Kona gerir þetta og finnur
rauða barnsklukku úr
besta klæði í ullinni, hún
ber klukkuna ofan á
klettana þar sem ullin
hafði verið, fer svo heim
og getur ei um það við
neinn mann í það sinn. Að
litilli stundu liðinni fer hún
ofan að klettunum og sér
þá að rauða klukkan er
horfin.
Stúlkumynd eftir Sigurð málara. Trúiega gerð árið 1856.
Hildur Njarðvík, 9 ára
Skerjabraut 3,
Seltjarnarnesi.
Ljósm.: Leifur
Barnsbrókin
Kona er nefnd Ingibjörg
Steinsdóttir, hún var
vinnukona á Yztafelli í
Kinn seint á átjándu öld.
En um eitt sumarkvöld bar
það til að klæði eður föt
sem breidd höfðu verið til
þurrks um daginn voru
tekin inn um kvöldið. En af
því þerrir hafði verið um
daginn og fólk í heyönnum
kom það ekki heim fyrr en
seint um kvöldið og var þá
orðið dimmt. Voru fötin
gripin öll í eina hrúgu og
borin í bæinn öll sem
fundust án þess að athuga
það framar. En þegar allt
fólkið var sest að, var kall-
að á baðstofugluggann og
sagt: ,,Hefur engin séð eða
tekið bláa barnsbrók á
steini úti, ég verð barin ef
ég finn hana ekki." Þá var
farið að skoða fötin sem
inn höfðu verið borin og
fannst þar þá blá barns-
brók sem enginn þekkti og
var hún svo borin út á stein
á hlaðinu og var horf in um
morguninn. Húsbóndi
fyrrnef ndrar Ingibjargar
var Jónas Einarsson,
merkur bóndi.
77/ garrnns
handa bömum
Þann 15. september
1854 skrifar Pétur Jóns-
son bóndi í Hofdölum
mági sínum, Sigurði
málara Guðmundssyni,
langt og mikið bréf til
Kaupmannahafnar þar
sem Sigurður er þá við
nám. Neðanundir bréfinu
er svohljóðandi eftir-
skrift:
„P.s. Móðir þín biður
þig að gefa sér myndir á
bréfum af Pilti og Stúlku
til gamans handa börn-
um."
Þegar þetta bréf er
skifað, eru f jögur ár frá
því að bókin Piltur og
stúlka eftir Jón Thorodd-
sen kom út. Hann samdi
hana i Kaupmannahöf n á
árunum 1848—49, en hún
var fyrst gefin út 1850.
Sagan Piltur og stúlka er
fyrsta skáldsagan á ís-
lensku í nútíma skilningi
og hefur notið feikna vin-
sælda og verið gefin oft
út. Þegar móðir Sigurðar
málara biður hann að
teikna á laus blöð myndir
af þessum eftirlætis per-
sónum barna og unglinga
er það kannski ósk um
fyrstu myndskreytingu
barnabókar í nútíma
skilningi.
Hún fær bréf frá Kompunni
Hildur Loftsdóttir,
Hamragerði 25, Akureyri,
sendi rétta lausn á get-
rauninni í síðasta blaði.
Hún gat lesið nöf n krakk-
anna úr myndunum í
hjartanu.
Enn er nógur tími til að
senda svör. Sendið eitt-
hvert efni með, t.d.
nokkrar línur um það
hvernig ykkur líkar
myndgáturnar, þó ekki
væri annað. Kompan er
handa ykkur til að skrifa
í, svo þið verðið fær um
að láta skoðanir ykkar í
Ijós og f innist sjálfsagt að
skrifa í blöðin, ef ykkur
liggur eitthvað á hjarta.