Þjóðviljinn - 28.11.1979, Blaðsíða 13
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 28. nóvember 1979
Mibvikudagur 28. nóvember 1979 WÓÐVILJINN — SIÐA 13
ELSA KRISTJÁNSDÓTTIR, ODDVITI, f 3. SÆTI G-LISTANS f REYKJANESI:
SVAVA JAKOBSDÓTTIR:
Skiptir máli hvort Sjálfstæðisflokkurmn
eða verðbólgan stelur af láglaunafólki?
Staöan i islenskum stjórn-
málum þessa dagana minnir um
margt á það ástand sem rikti
fyrir einum áratug. Þá hefði hin
alræmda „viðreisnar” stjórn
Alþýöuflokks og Sjálfstæðisflokks
verið viö völd i nær 12 ár. Sú
stjórn haföi það að yfirlýstu-
markmiöi sinu að rétta við efna-
hag landsins og kveða niður
verðbólguna.
Þegar leið á valdatima þeirrar
stjórnar, var alþýðu þessa lands
ljóst, að ef hún ætti að eiga
nokkra von um mannsæmandi líf
I frjálsu Islandi, yrði að koma
„viöreisnar” stjórninni frá.
Samfelld styrjöld
við verkafólk
„Viðreisnar” timar
Sjálfstæðisflokks og Alþýðunokks
einkenndust af samfelldri
styrjöld við verkafólk og annaö
launafólk, sjálfsagður réttur
hvers vinnufærs manns til
atvinnu var fótum troðinn undir
yfirskini „efnahagsviðreisnar”
meö þeim afleiðingum að fjöldi
manns varð að leita sér lifs-
bjargar i öðrum löndum, aldraö
fólk og öryrkjar hafði tæplega til
hnifs og skeiöar, félagsleg
þjónusta var i lágmarki (t.d.
fengu hin örfáu dagheimili sem
þá voru til í landinu aðeins
smálúsarstyrk á fjárlögum ár
hvert i stað lögbundins rikisfram-
iags nú).
Orkan á gjafverði
til auðhringa —
Herinn „sverð og
skjöldur”
Viðreisnarstjórn Alþýöuflokks
og Sjálfstæðisflokks neitaði aö
taka ákvörðun um útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar en seldi
erlendum auðhring fallvatnsorku
fyrir spottpris um leið og hún
boðaöi þjóðinni þann fagnaöar-
boðskap alþjóðlegra auðhringa að
kjarnorkan væri framtiðin i orku-
máium. Þess vegna ætti þjóðin að
þakka fyrir aö fá álveriö i
Straumsvik. Alþýðuflokkurinn
hvatti á þessum árum mjög til
inngöngu i Efnahagsbandaiagiö á
þeim forsendum, að besta leiðin
til aö varöveita sjáifstæði
landsins væri aö farga þvi.
Innræting allra hernámsflokk-
anna varöandi ameriska hersetu
hneig i þá átt, aö hér I landi væri
ekki lengur „ili nauösyn” heldur
„sverð og skjöldur” landsmanna
og ötullega var gengiö fram i þvi
aö þagga niður alla lýöræðislega
umræðu landsmanna um erlenda
hersetu.
„Glöggt er það enn
sem þeir vilja”
En af hverju er ég að rifja þetta
allt upp nú? Er þetta ekki löngu
liðin saga, spyr ef til vill ungt fólk
sem nú er að kjósa i fyrsta sinn.
Ég er að rifja þetta upp nú, vegna
þess að einmitt þessa dagana er
sagan að endurtaka sig: Ariö 1959
bar kosningar að með þeim hætti
að minnihlutastjórn Alþýöu-
flokksins sat að völdum meö
stuðningi Sjálfstæðisflokksins og
siðan tók við áöurnefnd
„virðreisnarstjórn" þessara
tveggja flokka. Og nú boöa þessir
sömu flokkar nákvæmlega sömu
stefnuna og þá var rekin, en
miklu harðari. Nú dugir ekki
samfelld styrjöld, heldur skal
mala allt niður i einu vetfangi
meö leiftursókn i trausti þess aö
fólk hafi gleymt.
Svava Jakobsdóttir: Niðurstaða
þessara kosninga verður
öriagarik og ábyrgð kjósenda er
mikil.
Sjálfstæðisflokkurinn boðar
stórfeilda kjaraskeröingu til
handa verkafólki og launafólki og
réttlætir þessa aðför sina með þvi
aö veröbólgan steli af láglauna-
fólki. En ég spyr: er nokkur
munur á þvi hvort það er verö-
bólgan eöa Sjálfstæðisflokkurinn
sem stelur af láglaunafólki?
Og ekki er Alþýðuflokkurinn
siöur ákveöinn i aö ná árangri I
kjaraskerðingar- og samdráttar-
áformum sinum. Um þaö sagöi
Eiöur Guönason i stjórnmála-
umræöu i útvarpi s.l. mánudag:
„Viö munum aftur sprengja
stjórn ef viö náum ekki árangri”.
Ómæld framtíð í veði
Sama vantrú á islenska
atvinnuvegi og einkenndi
„viðreisnarstjórnina” rikir enn
og er haldið fram blygöunarlaust.
Boöut er aukin stóriðja i höndum
erlendra auðhringa. Nái slik
áform fram að ganga bindur það
þjóðina um ófyrirsjáanlega
framtiö. Nú er þvi ekki aöeins
veriö aö kjósa til fjögurra ára —
nú er kosiö um efnahagslegt og
menningarlegt sjálfstæöi um
ómælda framtiö. Sjaldan hafa
þvi mörkin veriö skýrari. en nú.
Kjósendur hafa stefnu Alþýöu-
flokks og Sjálfstæðisflokks
ódulbúna á borðinu. Niöurstaöa
þessara kosninga veröur þvi
örlagarik og ábyrgö kjósenda
mikil.
Vinstri menn
sameinist
Þaö tókst að koma „viöreisnar-
stjórninni” frá af þvi aö vinstri
öflin I landinu náöu saman. Þaö
er ekki siöur brýnt nú en árið 1971
að vinstri menn og launamenn
taki höndum saman gegn óþjóö-
hollum afturhalds- og kjara-
skerðingaröflum. Vinstri menn
eru dreiföir — margir einlægir
vinstri menn og verkalýössinnar
hafa kosið Alþýöuflokkinn og
margir einlægir vinstri menn
hafa kosið Framsóknarflokkinn,
en það verður aldrei of oft sagt,
að einmitt sú staöreynd, að
vinstri menn eru dreifðir, er veik-
leiki vinstri manna og stór þáttur
i styrkleika ihaldsins.
Undir forustu
Alþýðubandalagsins
Auövitað er baráttan fyrir
samhyggju og samneyslu ströng
og stundum veröur ekki betur
gert en halda i horfinu i
einstökum málum. En þegar við
metum störf þeirra vinstri
stjórna sem hér hafa veriö viö
völd, skulum viö lfta yfir lands-
lagiö allt en ekki einblina á
einstakar misfellur. Mörgu
jákvæöu hafa þessar stjórnir
komið til leiöar, en margt er enn
ógert. Leiðin til aukinnar sóknar
og hertrar baráttu fyrir
hugsjónum okkar, er sú ein aö
efla Alþýðubandalagiö og tryggja
forustu þess i raunverulegri
vinstri stjórn. Engin önnur leiö er
fær.
NÝ OG HERT VIÐREISN BINDUR ÞJÓÐINA UM ÓFYRIRSJÁANLEGA FRAMTÍÐ
„Hlutirnir taka oft lengri tlma en nauðsynlegt er.”
Elsa Kristjánsdóttir, oddviti i
Miðneshreppi skipar 3. sæti G-
listans i Reykjaneskjördæmi og
gómaði blaðamaður Þjóðviijans
hana kvöldstund I siðustu viku,
þegar hún átti erindi til Reykja-
víkur og var tilgangurinn sá að
fræðast ögn um hana sjálfa og
störf hennar þar syðra.
Elsa er Snæfeilingur, frá
Hólkoti i Staðarsveit en hefur
búið ásamt manni sinum og
tveimur börnum i Sandgerði frá
þvi i maímánuði 1974. Þar vinnur
hún sem gjaldkeri I Landsbank-
anum og I sveitarstjórnarkosn-
ingunum I fyrra skipaði hún efsta
sæti H-listans, lista Alþýðubanda-
iagsins og Framsóknarflokksins,
en listinn hlaut tvo menn kjörna.
Elsa hefur siðan gegnt oddvita-
störfum og hún var fyrst spurð aö
þvi hvernig það kom til að hún fór
að sinna sveitarstjórnarmáium.
„Já, — ef maður vissi það nú”,
sagöi Elsa. „Ég var beöin aö taka
sæti á listanum fyrir kosningarn-
ar siðustu; ég játti þvi eftir
nokkra umhugsun og þar með var
ég komin á kaf i þetta. Ann-
ars má segja að ég sé alin upp við
þetta, — pabbi var i hreppsnefnd
fyrir vestan svo lengi sem ég man
eftir og var einnig hreppstjóri.
Fundir voru oft haldnir heima i
,Suðurnesin
hafa verið
einskis
manns land1
Uppbygging atvinnulífsins
og iðnþróun eru brýnustu
verkefnin
stofu svo ég kynntist fljótt um-
ræðum um sveitarstjórnarmál.
Aður en ég tók sæti I hreppsnefnd-
inni i Sandgerði haföi ég verið
kjörin endurskoöandi hrepps-
reikninganna um nokkurt skeið
svo ég haföi nokkra innsýn í f jár-
málin og reksturinn.
Ahugi minn á þátttöku i
stjórnmálum vaknaði eiginiega i
Fjölbrautaskólanum i Keflavik”,
sagði Elsa, en þetta er þriöji
veturinn sem hún stundar þar
nám i öldungadeild. „Þar fékk ég
m.a. þaö verkefni að skrifa rit-
gerð um byggðaþróun á
Suöurnesjum, sem varö til þess
aö ég kynnti mér þau mál vand-
lega.”
— Stefnirðu á áframhaidandi
nám eftir stúdentsprófið?
„Ég fór i Fjölbrautaskólann til
þess aö auka þekkinguna og vikka
sjóndeildarhringinn. Mig langaði
til aö fara I nám og þar sem Fjöl-
brautaskólinn var við bæjarvegg-
inn og ég hafði aðstöðu til að
stunda þetta, skellti ég mér bara.
Ég sé ekki eftir þvi og kannski fer
ég i háskóla i ellinni”, sagöi hún
og hló.
„Annars hefur námiö auövitaö
gildi I sjálfu sér. Þó maöur afli
sér dcki ákveöinna réttinda eöa
prófa meö þvi, þá nýtur maöur
þess i starfi.”
Nóg að gera!
— Þú hlýtur að hafa nóg að
gera með heimili, i kvöldskóla,
hálfs dags vinnu og oddvita-
störfin. Attu nokkrar tómstundir?
„Já, —þetta fyllir alveg timann
og eiginlegar tómstundir eru
fáar. Hins vegar má segja aö ég
sinni þessu öllu sem tómstunda-
ogáhugamálum nema gjaldkera-
starfinu auðvitaö.”
— Hvað er svo helst að gerast i
s vei t ars t j ór na rm á Ium i
Sandgerði?
„Fyrir utan allra venjulegustu
mál eins og lagningu slitlags á
götur, og vatns- og skólplagnir,
þá hefur verið unniö geysilega
mikiö i hafnarframkvæmdum.
Þá er bygging nýs iþróttahúss
komin á lokastig og kemst þaö
væntanlega I gagnið i næsta mán-
uöi.
1 kosningabaráttunni I fyrra
lögðum við mikla áherslu á að
komiö yröi á fót æskulýösstarf-
semi Iplássinu og þaö fór af staö i
sumar. Ifyrstasinnvarskipulögð
sérstök unglingavinna, komið upp
starfsvelli fyrir yngri krakkana
og iþróttanámskeiöi og sett á fót
tómstundanámskeiö i samvinnu
„Konur hijóta að verða að takast á við öll pólitlsk vandamál sem upp
kunna að koma, hvort sem þau eru svokölluð „kvennamál” eða ekki.”
við þau félög sem eru á staönum,
— knattspyrnufélagið og kvenfé-
lagið. Þetta er enn á byrjunar-
stigi og á væntanlega eftir aö þró-
ast og m.a. veröur komiö upp
skólagöröum á næsta sumri. Þá
erum við að koma upp heimilis-
þjónustu fyrir sjúkiinga og aldr-
aða en ekkert slikt var fyrir
hendi.”
Dagheimilið
strandaði i kerfinu
— Finnst þér þd sjá árangur af
störfum þfnum i hreppsnefnd-
inni?
„Mér finnst það, já”, sagði
Elsa eftir nokkra umhugsun.
„Unglingastarfinu hefur verið
mjög vel tekið og áhugi mikill. Að
visu taka ýmsir hlutir mjög
langan tima og oft lengri en nauö-
synlegt er aö þvi er manni finnst.
Það var t.d. meiningin að byggja
dagheimili á þessu ári, enda er
þaö sem fyrir er allt of lítiö og
eins i svo slæmu ástandi að ekki
er við það unandi. Þessi nauðsyn-
lega bygging strandaði hins
vegar i kerfinu, eins og sagt er. A
fjárhagsáætlun var reiknaö með
að húsiö yröi fokhelt á þessu
hausti, en teikningarnar eru ekki
tilbúnar ennþá! Þaö hafa reynst
mörgljón á veginum,enda er þetta
ein af þeim framkvæmdum, sem
rikið kostar að hluta og þeir þurfa
sinn tima. Þá átti einnig á þessu
ári að byggja leigu- og söluibúöir
á vegum sveitarféiagsins, en
framkvæmdir hafa tafist svo að
af þvi verður ekki fyrr en á næsta
ári. Annað hefur gengið betur og
verkefnin eru næg. Umhverfis-
málum i hreppnum hefur t.d.
veriö allt of litið sinnt og það er
brýn nauðsyn að gera stórátak i
hirðingu og snyrtingu bæjarins.
Næsta sumar er ætlunin að koma
upp útivistarsvæöi og eins að að-
stoöa fólk við að koma upp
göröum viö hús sin með þvi að
útvega garöyrkjuráðunauta.”
— Nú höfum við eingöngu rætt
um sveitarstjórnarmáiin, en þú
er nú i framboði tii þings. Yrði
ekki mikil breyting að fara að
sinna svokölluðum landsmálum?
„Það er auðvitað tvennt ólikt að
starfa aö sveitarstjórnarmálum
og á þingi. A svona litlum stööum
verða málin mun persónulegri, —
þau eru nær þér og það hefur sina
kosti og sina galla. Þú þekkir
betur til en jafnframt verða málin
viðkvæmari. Hins vegar er þetta
mjög skemmtilegt starf einmitt
vegna þessarar nálægöar og ég
er viss um aö þekking á sveitar-
„Kannski fer ég I Háskólann I ellinni.”
stjórnarmálum nýtist vel i þing-
störfum.
Viöfangsefnin eru kannski ekki
svo ólik þó þau séu stærri i
sniöum. Stóra málið fyrir okkur
Suðurnesjabúa er byggðaþróunin
og atvinnumálin og þau mál
verða t.d. ekki leyst nema skiln-
ingur sé fyrir hendi meðal
þingmanna.
Einskis manns land
Suðurnesin hafa i raun verið
einskis manns land. Þau teljast
vart til landsbyggðarinnar og
heldur ekki til höfuðborgar-
svæöisins og þau hafa á undan-
förnum árum orðið útundan I
þeirri uppbyggingu atvinnulifs
sem annars staðar hefur orðið.
Endurnýjun fiskiskipastólsins
hefur verið hægari þar en annars
staðar, fiskvinnslustöðvarnar
hafa dregist aftur úr i tækjabún-
aði og byggingum og ég held að
flestum finnist nú kominn timi til
að átak sé gert i atvinnumálum
og þá sérstaklega iðnaðarupp-
byggingu á Suðurnesjum.
Þetta ástand á sér sina sögu. A
viðreisnarárunum var litiö gert
fyrir landsbyggöina alla og fólk
flykktist til Reykjavikur I at-
vinnuleit. Þegar vinstri stjórnin
tók við var landsbyggðin ennþá
verr á vegi stödd en Suðurnesin,
þar sem atvinna var i þaö
minnsta næg. Vinstri stjórnin vatt
sér þvi I þau verkefni sem viö
blöstu á landsbyggðinni og það
bar mikinn árangur. Skipulögö
uppbygging atvinnulifs og
togarakaupin sneru þessari öfug-
þróun viö um allt land. Þetta var
brýnast i þá daga, en þýddi um
leið aö Suöurnesin drógust aftur
úr og á timum hægri stjórnarinn-
ar var lika litiö fyrir þau gert.
Það var t.d. ekki fyrr en nú i
haust að Byggöasjóöur var opn-
aöur fyrir lánveitingum til þessa
svæöis og þá fyrir forgöngu Geirs
Gunnarssonar.”
Yfir 15% vinna
á Vellinum
—Hvernig er atvinnuástandið i
Sandgerði?
„Þar er næga atvinnu að fá og
enginn á atvinnuleysisskrá
en fjöldi Sandgerðinga sækir
vinnu út fyrir plássiö og eitthvað
rúmlega 15% ibúanna hafa
framfæri sitt af Vellinum.
Atvinnan heima fyrir byggir upp
á útgerð, fiskvinnslunni og bygg-
ingariönaði, en undanfarin ár
hefur mikiö veriö byggt i Sand-
gerði. Þó ekki sé hægt að segja að
(Ljósm. ÁI).
atvinnuleysi sé I Sandgeröi,
þá er ég viss um aö ef völ væri á
fjölbreyttari störfum t.d. i iðnaði,
þá kæmu fleiri á vinnumarkaöinn
og færri myndu vinna á Vellinum.
Fyrir kvenfólk er t.d. úr mjög
fábreyttum störfum aö velja, —
ýmist I frystihúsinu eöa á Vellin-
um. Þjónustustarfsemi sækj-
um viö til Keflavikur, þar eru
verslanir, fógeti, lögregla,
sjúkrahús og skólar. I sumar var
unniö aö könnun á stööu iönaöar á
svæöinu en þaö er forsenda fyrir
þvi að hægt sé aö byggja upp
áætlun um iðnþróun. Maöur hefur
þvi von um að þetta sé i sjónmáli
núna, en ég tel reyndar aö þaö
sem hefur háö allri iðnaöarupp-
byggingu á Suöurnesjum sé Völl-
urinn.”
Sérstaða
Suðurnesja
— Nú er mikil samvinna milli
sveitarfélaganna á Suðurnesjum,
og raddir hafa heyrst um að
Suðurnesin ættu að vera sérstakt
kjördæmi.
„Suðurnesin hafa vissulega
ákveöna sérstööu i kjördæminu
og þessi mikla samvinna hefur ýtt
undir þessar raddir. Sveitarfélög-
Framhald á bls. 21.
Afmælishátíð
í Eyjum
hefst í dag
1 dag hefst vegleg afmælishátíð
i Vestmannaeyjum og stendur
hún fram á sunnudag. Þjóðviljinn
hafði samband við Val Valsson
formann framkvæmdanefndar
hátiðarinnar og spurði hann
nánar um tildrög hennar.
— Hver er aðdragandinn,
Valur?
— Hann er sá að i þessum
mánuði eru 50 ár liðin siðan
Alþýöuhúsið var formlega vigt og
auk þess er á þessu ári 45 ár siöan
Sjómannafélagið Jötunn var
stofnað og 40 ár frá þvi að Verka-
lýðsfélag Vestmannaeyja var
stofnað. Þessi tvö félög ásamt
Verkakvennafélaginu Snót eiga
Alþýðuhúsið og munu þau öll
standa aö afmælishátiöinni i nafni
Alþýðuhúsiins.
— Hefur Alþýðuhúsið gegnt
mikilvægu hlutverki I Eyjum?
— Það er vel við hæfi að
minnast 50 ára afmælis Alþýðu-
hússins með mikilli virðingu. Þaö
hefur veriö stökkpallur verka-
lýöshreyfingarinnar hér til aö
öölast reisn og hleypa nýju lifi i
baráttu verkafólks við sjávarsið-
una.
— Hvernig stendur á þvi að
hátiðin er haldin svona rétt fyrir
kosningar?
— Viö tókum ákvöröun um aö
halda hana i júli s.l. og i ágúst var
beinagrind aö dagskrá komin.
Timinn hafði verið valinn með
hliðsjón af þvi að sildar- og loönu-
veiöum átti þá aö vera lokiö og
verkafólki til sjós og lands heföi
þar af leiðandi tima til að njóta
þess sem félögin hafa upp á aö
bjóða. Húsnæði undir sýningar
hafði verið pantað og fastsett
löngu fyrir fram og þó aö nokkurt
bakslag hafi k'omiö hjá okkur
þegar kosningar voru ákveönar i
byrjun desember, þá var
ómögulegt að fresta þessari
hátiö. Við hefðum þá þurft að
fresta henni i hálft eöa heilt ár.
— Hvað verður um að vera á
hátíðinni?
— Miöpunktur hennar verbur
ráðstefnan „Verkafólk i sjávarút-
vegi”. Þar verður þrennt einkum
tekiö til umræöu þ.e.a.s.: 1.
Gildandi launakerfi s.s. tima-
vinnu, ákvæðisvinnu, hlutskipti,
bónus og hugsanlegar
breytingar, 2. Hinn lángi vinnu-
timi og hiö siaukna vinnuálag og
3. Tengsl farandverkafólks og
verkalýöshreyfingar. Auk þess
verða hér margs konar sýningar
og skemmtanir. Einnig munum
við gefa út afmælisrit þar sem
rakin veröur saga verkalýös-
hreyfingarinnar i Eyjum, einkum
á fyrri tiö, og saga Alþýöu-
hússins. Þetta rit kemur út I dag,
sama dag og hátiðin hefst.
— Búist þið við mikilli þátt-
töku?
— Það fer ekkert á milli mála
aö pólitikin setur dálitiö strik i
Valur
Valsson
formaður fram-
kvæmda-
nefndar
reikninginn. Fólk aö sunnan sem
ætlaði að sækja hátiðina getur
ekki komiö vegna anna. Viö von-
umst hins vegar eftir góðri þátt-
töku og höfum lagt mikið kapp á
að auglýsa hátiðina hér heima og
sýna fram á að vib getum alveg
haldið svona hátiö án stuönings
utanaðkomandi manna.
— GFr
Alþýðuhúsið
50 áraf
Jötunn 45 ára
og
Verkalýðsfélag
Vestmanna-
eyja 40 ára —
Ráðstefnan
„ Verkafólk í
sjávarútvegi”
miðpunktur
hátiðarinnar