Þjóðviljinn - 29.11.1979, Síða 13
Fimmtudagur 29. nóvember 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
Undirbúningur er nú I fullum gangi fyrir 1. desember hátíðarhöid stúdenta. A myndinni eru fjórir full-
trúar af sjö i 1. des.-nefnd þeirra. F.v. Óskar Sigurösson, Jóhanna Þórhallsdóttir, Eirikur Guöjónsson og
Elsa Þorkelsdóttir. (Ljósm.: eik)
Stúdentar fjalla um frelsið 1. des.:
Jakobína Sigurðardóttir
aðalræðumaðurinn
Hátiöardagskrá stúdenta 1.
desember n.k. veröur aö þessu
sinni i Félagsstofnun stúdenta og
veröur samtimis i þremur sölum.
Aöalræðumaður verður Jakobina
Siguröardóttir rithöfundur en
fjölmörg skáld og tónlistarmenn
munu koma þar fram. Dag-
skránni verður ekki útvarpaö en
þess I stað verða stúdentar meö
sérstaka kvöiddagskrá I útvarp-
inu á laugardag.
A blaöamannafundi i gær sagö-
ist 1. desember-nefnd vera þeirr-
ar skoðunar aö þaö form sem
veriö hefur undanfarin ár á hátíö-
inni væri oröiö úr sér gengiö og
þvi heföu stúdentar sjálfir ákveö-
ið aö breyta til á þennan hátt.
Þema dagsins veröur hugtakiö
fresli og munu stúdentar fjalla
um þaö á ýmsan hátt bæöi i
Félagsstofnun stúdenta og i út-
varpsdagskránni. Auk þess er
komiö út blaö sem er helgaö frels-
inu. Nánar veröur sagt frá
hátiöarhöldunum i Þjóöviljanum
siöar.
-GFr
Villtar heimildir:
Klukkutíma
stuðplata
„ViIItar heimildir” nefnist ný
safnplata meö 20 stuölögum, sem
Þorgeir Astvaldsson hefur valiö.
ÖII lögin utan eitt hafa áöur kom-
iö út á hljómplötum Steina hf. og
Ýmis hf..Platan er u.þ.b. klukku-
stundar löng, eöa helmingi lengri
en venjulegar breiösklfur.
Meöal flytjenda á „Villtum
heimildum''eru: Lummurnar,
Stuömenn, Lónli Blú Bojs, Halli
og Laddi, Helgi Pétursson, Gunn-
ar Þóröarson, Dúmbó og Steini,
Ljósin I bænum, Fjörefni, Brim-
kló, Jakob Magnússon, Randver,
Diddú og Egill og Hljómsveit
Ingimars Eydal.
Gunnar Þóröarson sá um aö
skeyta tónlistinni saman. Pétur
Halldórsson sá um hönnun um-
slagsins.
Veröi þessarar plötu er haldiö i
lágmarki. Hún kostaö aöeins 6900
krónur.
Séö yfir hluta áf fundarsalnum.
Aðalfundur
Landverndar
Aöalfundur Landverndar var
haldinn aö Hótel Loftleiöum
laugardaginn 24. nóv. sl.. Land-
verndarsamtökin hafa nú starfað
i 10 ár og var dagskrá fundarins
aö talsverðu leyti tengd þeim
timamótum.
Þorleifur Einarsson rakti
aödragandann að stofnun Land-
verndar og störf hennar I 10 ár.
Haukur Hafstaö flutti fundinum
greinargerö um einstök verkefni
Landverndar. Stefán Bergmann
Framhald á bls. 17.
MEU« 0 10 20 30 40 5 0 6 0 7 0 ðO 1CO 110 120 130 140
Vegfarandi no. 1 er klæddur dökkri úlpu, no. 2 grárri og no.3 ljósi. Sá er siðastur gengur er svartklædd-
ur, en ber glitmerki. Myndin sýnir okkur i hvaöa fjarlægö þeir sjást frá bil meö lágljósum
„Endurskin í skammdegi”
Slysavarnafélag tslands hefur
ákveöiö að nota kjördagana sem I
hönd fara til áróöurs fyrir notkun
endurskinsmerkja nú i svartasta
skammdeginu. Munu slysavarna-
deildir og björgunarsveitir dreifa
limmiöum meö áminningu á
flestum kjörstööum á landinu.
Minnt er á i fréttatilkynningu
frá SVFÍ hve miklu fyrr gangandi
vegfarandi sést i myrkri eöa
slæmu skyggni ef hann ber endur-
skinsmerki. Þaö er þó ekki nóg ef
merkiö sést ekki úr bil sem
nálgast. Sé endurskinsmerki
aðeins boriö á bakinu sést þaö
ekki þegar gengiö er á móti
umferö eins og ber aö gera þar
sem ekki eru gangstettir.
Merkin þarf þvi aö hafa þannig
aö þau sjáist vel. Einnig er hægt
aö fá merki sem eru limd eöa
saumuö á fikina. Þá eru tvö stór
merki sett á flikina aö aftan
og framan svo neöarlega, sem
auöið er og tvö litil sett fremst á
ermarnar.
Limmiöarnir, sem bera
áletrunina, „Endurskin i skamm-
degi”eru ekki sjálfir endurskins-
rnerki, heldur einungis áminning
um aö bera slik merki. Munum
reglurnar: Sjáum og sjáumst,
segir aö lokum i frétt SVFÍ.
Húnvetningafélagiö stofnar
kvennadeild
Stofnuö hefur verið kvenna-
deild innan Húnvetninga-
félagsins i Reykjavík. Ýmis-
legt er á stefnuskrá. Fyrir
nokkru var haldinn fyrsti
fundurinn og ræddu konur
málið af miklum áhuga.
Kosinn var formaður: Þórey
Sveinbergsdóttir. Öskað er
eftir þvi aö sem flestar konur
mæti til starfa.
Fyrsta verkefni hinnar nýju
kvennadeildar er að haldinn
veröur köku-og munabasar ;
húsi félagsins aö Laufásvegi
25 laugardaginn 8. desember
kl. 14.
Gengiö frá basarmununum hjá Sjálfsbjörgu.
Basar Sjálfsbjargar
Basar Sjálfsbjargar félags
fatlaöra i Reykjavik, veröur i
Lindarbæ laugardaginn 1.
desember n.k. kl. 2 e.h. Fjöl-
breytt úrval handunnina
muna, svo sem jóladúkar,
svuntur, vettlingar, jóla-
skreytingar, kökur, lukku-
pakkar og hiö vinsæla happ-
drætti. Allur ágóöi rennur til
styrktar félagsstarfinu.
Kabarett á Egilsstöðum
Laugardaginn 1. des. munu
Tónkórinn og leikfélagið á
Egilsstöðum standa fyrir
skemmtikabarett I Valaskjálf.
Veröur hann meö svipuðu
sniöi og kabarett sá sem áöur-
nefnd félög héldu fyrir 2 árum,
þ.e.a.s. söngur og gamanmál
ýmiskonar, frumsamiö, stælt
og stoliö.
Ein frægasta fatafella
Austurlands mun mæta á
staðinn og einnig má búast viö
aö draugar riöi húsum.
Aðstandendur kabarettsins
sjá þvi ekki fram á annað en
aö almennt kvöldbann veröi
að gilda, þannig aö unglingar
innan 14 ára aldurs fái ekki
aögang nema i fylgd meö full-
orðnum.
Gleöin hefst kl. 9 og svo
verður „dansur aftaná” og
mun Slagbrandur stjórna
honum. Vonandi geta
Héraðsbúar slitiö sig frá ein-
glyrninu eina kvöldstund til aö
létta skapiö i skammdeginu og
kosningaslagnum.
Clayton á
Kjarvalsstöðum
í kvöld
Akveöiö hefur verið að
myndlistarsýning þeirra Kees
Vissers, Ólafs Lárussonar,
Kristins Haröarsonar,
Magnúsar Pálssonar og Þórs
Vigfúss. á Kjarvalsstööum
veröi framlengd til sunnu-
dags. I kvöld, fimmtudag kl.
20.00| verða hljómleikar á
Kjarvalsstööum i tengslum
við sýninguna. Þar leikur
Harold Clayton impróviseraða
nútimatónlist en hann hefur
undanfariö veriö i hljómleika-
för um Island. A laugardag kl.
20.00 verður svo performance
Ólafs Lárussonar og á sunnu-
dag, siöasta sýningardag,
veröa allir myndlistar-
Jólakort
Styrktar-
félagsins
Komin eru á markaöinn ný
jólakort Styrktarfélags van-
gefinna meö myndum af mál-
verkum eftir listakonuna Sól-
veigu Eggerz Pétursdóttur.
Kortin veröa til sölu á skrif-
stofu félagsins Laugavegi 11
og i versluninni Kúnst Lauga-
vegi 40.
Impróviserar á Kjarvals-
stööum i kvöld: Harold
Clayton.
mennirnir á Kjarvalsstööum
til að heilsa upp á gesti.
—GFr