Þjóðviljinn - 29.11.1979, Side 16
16 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 29. nóvember 1979
«shák
Umsjón: Helgi ólafsson
------:-------------------
Samræmdar
aðgerðir
Það er oft talað um samræmd-
ar aðgerðir nii á timum í stjórn-
málaumræðu. En samræmdar
aðgerðir fyrirfinnast á öðrum
sviðum s.s. i Iþróttum og svo nátt-
úrlega i skák. Þegar skák er
tefld ber skákmanninum aö var-
ast að einblina um of á einhliða
aðgeröir, skákboröiö saman-
stendur jú af 64 reitum. Eftirfar-
andi skák sem tefld var á jóla-
skákmótinu f Hastings '75-76
skýrir framansögð orð mjög vel.
Hvftt: David Bronstein
Svart: Raymond Keene
Frönsk vörn
1. e4-e6
2. d4-d5
3. Rd2-Rf6
(Vinsælli og sennilega öruggari
leikur er 3. — c5, Þannig hafa
teflst margar skákir Karpovs og
Kortsnojs.)
4. e5-Rfd7
5. C3-C5
6. Rgf3
(Framur sjaldséður leikur. Al-
gengaraer 6. Bd3, eða 6. f4. Leik-
urBronsteins er þó ákaflega eöli-
legur. Eftir allt saman þá er
mönnum nú kennt aö hraða liðs-
skipaninni sem mest.)
6. ..-Rc6 10. 0-0—Bd6
7. Be2-cxd4 11. b3-Dc7
8. cxd4-f6 12. Bb2
9. exf6-Rxf6
(Þessi biskup á eftir að spila
mikla rullu 1 komandi sóknaraö-
geröum.)
12. ..-Rg4
(Um þennan leik og næsta er i
sjálfu sér ekki mikið að segjai
Báðir reyna að koma mönnum
sinum í sem bestar stöður. T.a.m.
stefnir þessi riddari niður á f7 þar
sem hann hefur auga með e5-
reitnum. En timinn sem þetta fer
i er dýrmætur auk þess sem
svartreita biskupinn og riddarinn
á c6 gefa þessum hernaðarlega
mikilvæga reit gætur. 12. — 0-0
var þvi betra.)
13. h3-Rh6 17. a3-Hae8
14. Hcl-Rf7 18. Bd3-g6
15. Bb5-0—0 19. Dc2-Rh8
16. Hel-Bd7 20. b4
(Þaðfer ekki á milli mála að hvlt-
ur hefur vænlega kóngssóknar-
möguleika. Það er þvi mjög at-
hyglisvert hvernig hann kemur
sókninni I kring, með aögerðum á
drottningarvæng sem miðast aö
þvi að opna (sóknar-) skálinuna
al-h8.)
20. ,.-a5
21. Be2!
(Riddarinn á d2 á að fara til b3 án
þess aö hætta sér á skiptamuns-
fórninni — Hxf3.)
21. . .-Dd8 26. Rd3-Rd7
22. Rb3-Rb8 27. Rde5-Rfxe5
23. Rc5-Bc8 28. dxe5-Be7
24. Bdl-Rf7 29. Dd4-b5
25. Dd2-b6 30. Hc6-Rb8
stööum
fjÁTYARÐUR JÖKULL SKRIFAR
1
31. Hd6!
(Strategian hefur heppnast full-
komlega. Drepi svartur nii á d6
opnast skálinan banvæna.).
31. ..-Dc7 33. Dc5-Bd7
32. Bb3-Rc6 34. Bxd5!
(Afgerandi. 34,—exd5 35. Dxd5 +
er vitaskuld vonlaust).
34. ..-Hf5
35. Hxd7!
— Svartur gafst upp.
Landssmlðjan
SÖLVHÓL5GÖTU-101 REYKJAVIK-SÍMI 20680 TELEX 2207
Vantarþig
hillur-hirslur
á lagerinn, verkstæðió, í bíiskúrinn eða
geymsluna
0DEXION
Landssmiðjan hefur ávallt fyrirliggjandi ailar
gerðir af Dexion og Apton hillum. Uppistöðurnar
eru gataðar og hillurnar skrúfaöar á eða smellt í.
Það getur ekki verið auðveldara.
Óskum eftir 4 herbergja ibúð : „Hver er maðurinn?”
Óskum eftir 4 herbergja ibúö. Upplýsingar i sima 76145 og 66455. 1 Einn eg þekki mikinn mann I er minnir á bresku frúna. 1 Alvarlegum augum hann
P.Þ.
Framb oðskynning
í kortrí speglasjón
Játvarður Jökull hef-
ur sent okkur eftirfar-
andi pistil þar sem
hann segir okkur frá
þeim hugleiðingum,
sem framboðskynning-
in í sjónvarpinu vakti
með honum.
Einn í áraburði
„Ekki missir sá, er fyrstur
fær” og sannaöist á Steingrimi
Hermannssyni. Við hér fyrir
vestan hefðum nú ekki kunnaö
neitt lakar við hár hans laust og
lifandi, já og Vestfjarðajakk-
ann hans góða. En skrúömáll
var Steingrímur i sjónvarpinu.
Væri það ekki óþekkt á Islandi
að flokksforingjar létu semja
fyrir sig ræður eins og gert er i
Kanalandi, þá? Liklega er hon-
um rangt gert til með hugdett-
um af þessu tagi. Hver nema
Steingrimur þyrði að Utiloka
stjórnarsamstarf við þetta
leiftrandi,nýja Ihald, sem komið
er á skjáinn?
Grímunni kastað
Friöriki „skal á foraðiö etja”.
Ætli Geir Hallgrimsson, flokks-
eigandi, hafi þurft að skreppa
rétt einn ganginn til þeirra I
Bilderbergkúbbnum, eða var
hann eftir sig eftir Suðurlands-
reiðina? Hvort heldur sem var
þá var mikill fengur aö fá sjálf-
an vaxtarbroddinn, handbendi
útlendra auðhringa i Sjálf-
stæðisflokknum, fyrir augu og
eyru hlustenda. Þótt Geir karl-
inn hafi falliö I eitt skipti fyrir
öll sem hæf ur formaöur og þó aö
Birgir Isleifur Gunnarsson sé
fallinn og flúinn sem borgar-
stjóri alveg endanlega,þá heföi
hvor sem var verið hrein hátiö
samanborið við þaö fimbul-
fambshimpigimpi karlkyns,
sem nú er haft á oddinum hjá
ihaldinu. Þó er ánægja illilega
galli blandin. Það er refsing
fyrir grimmilega sök hermangs
viðurstyggðar og auðhringa-
þjónkunar aö annað eins og
þetta skuli vera vaxtarbroddur
stærsta stjórnmálaflokksins i
landinu. Sýndu mér vini þina og
þáskal ég segja þér hver þú ert.
Bágt áttu, Salóme, að þetta
skuli vera þinir „réttu vinir”.
„Og meira íhald”
Almælt er um þá, sem skilja
viö, aö þeir átti sig ekki á þvi
hvernig komið er og halda að
allt sé eins og var. Mikið sann-
aöist þetta vel á L-lista-liöinu.
Þeir segjast vera Sjálfstæðis-
menn þótt Geir flokkseigandi
hafi slegiö þá af oghuslað hræið
utangarðs og sagt þá vera vofú-
ljós. En viö sjónvarpsglápendur
höfum séð Ihald bæði þessa
heims og annars. Ætli „frjálst
útvarp” gerði betur en rétt
rikissjónvarpið?
„Og ennþá
meira íhald”
Allt er þá þrennt er. Það varð
aldeilis ör frumuskiptingin þeg-
ar lokskom að kynlausri æxlun i
Sjálfstæðisflokknum. Hitt er svo
annaö mál hvort Sólneslistinn
telst til góðkynja æxla eöa ekki.
En hugarfarið, herra minn trúr!
vissulega að geta fleytt Vil-
mundi betur en raun er á. Per-
sónan dugir bara hreint ekki til
og þvi fer nú sem fer.
Varla tekur aö minnast á
Arna nýkrata Gunnarsson.
Hann er orðinn pólitiskur kal-
kvistur, sem von er. og hefur
ekki einu sinni hitagildi i
eyðingareldi krata. „Hvert það
tré, sem ekki ber ávöxt, skal
upp höggvið.”
Að stöðva
leifturstríð
íhaldsins
Umsjón: Magnús H. Gislasor
Hver treystir sér til að kalla bað
góðkynja I garö flokkseigenda-,
sálarinnar?
Sjónvarpiö opinberaði stað-
reyndina um þriklofning-
inn, L-S-D-listana. Formaöur
flokkseigandafélagsins, öðru
nafni S.jiálfstæðisflokksins, seg-
ir að L- og S-listar séu villuljós
og varar viö þesslags pólitisk-
um ofsjónum, vofuljósum. Póli-
tiskt framhaldslif Jóns Sólness
sé pólitiskt guðlast, hjáguða-
dýrkun af allra verstu tegund.
En það má S-lista-liöiö eiga að
þaö hefur ekki skilið við i nein-
um vinarhug. Þar hefur Geir
vakið upp sendingu áður en sá,
sem sagður er látinn, var nokk-
uð farinn að kólna. Þar vakti
hannupp þann draug, sem gefur
ekki ef tir mat sinn heldur kref st
matarskammtsins án nokkurra
refja.
En hugsið þið ykkur bara
hvernig heföi farið fyrir flokks-
eigendaflokknum ef L- og S-
hefðu fundið hvorir aðra og
runnið I eitt I pólitiskum viö-
skilnaði sinum? Þá viöureign
hefði ég viljað sjá á skjánum.
Hrakfaramarsinn
Varla fer hjá þvi aö sumum'
komi I hug að Magnús ráöherra
Margnússon hafi lent á vitlaus-
um bási upp á siðkastið. Hvern-
ig var það, áttaðihannsigekki á
þvi þegar húsbóndaskiptin urðu'
Hversvegna skvetti hann ekki
upp rassinum, sleit hálsbandið,
sletti úr klaufunum og hljóp á
dyr meðan timi var til? Hann
vandræöast yfir þvi, aö lifeyris-
sjóðsmáliö varð afhluts hjá hon-
um. Hann veit þó allra manna
best aö útgöngubrotthlaupiö i
vor I neöri deild varð til þess aö
drepa máliö. Þ.e.: Kratar og
Sjálfstæðismenndrápu það. Það
var fyrsta innborgunin af kaupi
ráðherrastóla brúðustjórnar-
innar, sem situr nú meö þræði
ihaldsins í hverjum skanka.
Þvi oftar sem Vilmundur
Gylfason er haföur til sýnis, þvi
betra. Hugsjónir hans mót-
sagnakennt málskrúösblaður.
Orðaval hans oftar en ekki upp-
skrúfað og hrært saman tilgerö,
fjasj, ðfgum og staðleysum.
Afergjan við boðunina ætti
Hlutskipti Alþýðubandalags-
ins i' þessum kosningum er að
hnekkja leiftursókn auömagns-
ins I anda frjálsrar auðhyggju.
Þaövorunýir kraftar flokksins,
sem fram var teflt. Þau kunnu
vel'til verka. Vinnuþjarkurinn
og skipuleggjandinn Hjörleifur
Guttormsson kom eiginlega á
óvart með hraðmælsku. Það
sem þvi olli, reyndist auöskilið.
Maðurinn er svo þaulkunnugur
og handviss um eðli og stöðu
mála, að allt liggur opiö fyrir
honum til túlkunar.
Guðrún Helgadóttir var I ess-
inusínu i sjónvarpinu. Það dylst
engum sem um hugsar, hvilika
lærdóma og þjálfun það gefur
þeim, sem við fást, að rétta
Reykjavik við eftir sérgæsku-
misnotkun ihaldsins i áratugi.
Guðrún kemur með einstaklega
dýrmæta pólitiska reynslu inn i
þingsalina, og það er vel.
Benedikt Daviösson fór rólega
I sakirnar en athugaði hvert
skref vandlega. Hann mun van-
ari þófi i samningum. Þar eru
minúturnar varla eins dýrmæt-
ar og I sjónvarpsþáttum. En
Benedikti getur hitnað I
hamsi og þá er hann ekki mál-’
staöur eða hikandi. Þessir nýju
liðskraftar Alþýðubandalagsins
lofa góðu og létu ekki sinn hlut
eftir liggja.
Af lífi og sál
Þau stóðust frumraunina og
héldu vel á málstaö herstöðva-
andstæðinga, þau sem komu
fram i nafni Fylkingarinnar.
Það var gott og gilt erindi, sem
þau áttu að þjarma að her-
dýrkendum ihalds og krata.
Fylkingin er eina vinstra
flokksbrotið núna, sem metur
ofar að spila alveg á eigin spýt-
ur en að samstilla krafta
vinstri manna i Alþýðubanda-
laginu. Sjálfsagt hafa þau rætt
þetta vel og vandlega, en mikið
má vera ef sérframboð þeirra
kemur ihaldinu verr en sam-
stilling þeirra með Alþýðu-
bandalaginu hefði gert. Var
þetta atriði nú krufið til mergj-
ar?
Grinframboöin, „Hin” og
„Hitt”. Æi nei.
Lokið 20. nóv. 1979.
Játvarður Jökull Jtilfusson
Víetnamar
hjá SÍS
Fjórir af flóttamönnunum frá
Vfetnam, sem hingaö komu
fyrirskðmmu, erunúkomnir til
starfa hjá Sambandi fslenskra
samvinnufélaga aðþvi er segir f
Sambandsfréttum. Starfa þeir I
Holtagörðum, þar af þrfr hjá
kexverksmiðjunni Holt og hinn
fjórði á lager Innflutningsdeild-
ar.
Vietnamarnir þykja hinir
ágætustu starfskraftar og láta
jafnt samstarfsmenn þeirra
sem yfirmenn mjög vel af störf-
um þeirra. - mhg