Þjóðviljinn - 20.04.1980, Side 2

Þjóðviljinn - 20.04.1980, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. aprll 1980 Siöan benti Livingstone á óhrjálegan kofa sem stóB yzt i þorp- inu. Dyr kofans sneru út aö skógarjaörinum og gluggaop voru engin. Engan reyk lagöi upp þaðan, enga hreyfingu var aö sjá. Livingstone hélt helzt aö þetta væri lagerbygging, en spuröi til öryggis höföingja ættbálksins. ,,Ziz”, svaraöi höföinginn á ensku, ,,ziz is zi hús djöfulsins” (hér þýöum við þetta, framburður höföingjans var lási). Livingstone blikkaöi ekki, heldur sagöi kurteisislega: „Nú já, býr hann hér i þorpinu?” „Hnnngg,” sagöi höföinginn og leit á Livingstone (hnnngg þýöir idiót, en þaö vissi doktorinn ekki þá), „þetta er hús bölvunar- innar „Já,þér eruö fjölgyöistrúar,” ályktaöi Livingstone. „Skmm,” sagöi höföinginn og þaö þýddi api, „þarna geymum viö óhreinar konur Og seint og siöar meir tókst aö berja þvi inn f hausinn á land- könnuöinum að hinir villtu þjóöflokkar geymdu konur sinar inni- lokaöar i myrkri, einangraöar frá samskiptum viö aöra, á þurrakosti i þungu lofti á meöan þær heföu blæöingar. En Livingstone gat ekki sagt neinum frá þessu 1 Evrópu.Því þessa ógeðfelldu hluti ræddu ekki siömenntaöir menn. Þaö eru til margs konar hringir. Gardinuhringir, vitahringir, giftingarhringir, lyklahringir, reykhringir, en enginn þeirra fer eins mikiö i taugarnar á mér og tlöahringurinn. Umræöur um þennan undarlega hring, sem er nýskriöinn út úr myrkviönum og húsi bölvunarinnar, hafa flotiö eins og kedd- sjúbb um siöur blaösins ööru hverju. Fyrst kom þýdd grein um hin sturlandi áhrif þessa hrings á ýmsar konur og þar næst tvær greinar um lygarnar i fyrstu greininni. Seinni greinarnar þóttu mér mjög merkilegur lestur, aöallega vegna þess aö þær virtust vera sammála þvi aö konur heföu blæöingar, en þar fyrir utan algjörlega fullkomlega á móti þvi aö þaö fyrirbrigöi væri viöurkennt og umrætt á nokkurn annan hátt en jákvætt. Eöa bara alls ekki. Ég er alveg rosalega fylgjandi jafnrétti, en ég reyni um leiö aö skilja aö enginn kosningaréttur eöa sömu laun fyrir sömu vinnu geta losað mig, dóttur mina, dótturdóttur, eöa nokkurn ættliö I framtiöinni viö þá staöreynd aö viö höfum og munum hafa blæö ingar. Og þó ég reyni aö segja þrisvar „ég er jafngóö og strák- arnir” þá kemur þaö ekki i veg fyrir aö ég verö aö setja undir lekann. Og auövitaö fer þaö I taugarnar á mér aö einhver skuli hagnast á þessari likamsstarfsemi, en af hverju æpir enginn yfir mann- inum sem hefur einkaleyfi á plástri? Hefur nokkur skrifaö grein um Band-aid verksmiöjurnar? Viö erum loks búin aö ná þessum hring fram i dagsljósið, þaö er jafnvel svo langt gengiö aö loksins er farið aö athuga af hverju sumar konur hafa tiöaverki og aörar ekki. Ekki þaö, aö ég hafi fregnir af aö niöurstööu hafi veriö náö. Auövitaö er ég, eins og flestar konur sem finna fyrir þessu mánaöarlega brölti llffær- anna, sannfærö um aö ef stór hluti karlmanna fengi verki I pung- inn á 28 daga fresti i 30 ár, þá væri máliö búiö aö vera I rannsókn I 4000 ár. En ég ætlaöi ekki aö kasta skit i karlmannspungsvínin bér, svona aldrei þessu vant, heldur skila þessum áróöri kvenna, sem greinilega aldrei hafa fengiö sting i legiö, til baka á blóöugu blikkfati. Mér finnst nefnilega undarlegt aö konur sem berjast fyrir konur skuli taka af þeim þessi nýfengnu réttindi aö hafa blæöingar og finna fyrir þeim. Nýjustu rökin sem ég hef heyrt gegn þvi aö ræöa um blæöingar eru þau.aö viökomandi sé á móti þvi aö svona sé blásiö upp, þaö gefi bara læknum enn einn högg- staöinn á okkur, þeir geti bara skellt öllu á hormónana. Og nú syrtir i hormóninn. Ferrosan, sem græddi ekki nóg á vitamlntöflum, uppgötvaöi á vafasaman hátt aö konur væru fórnarlömb kyngerlanna og útbjó lyf handa þeim. Grundvöllun lyfsins er könnun gerö á drukknum vændiskonum á götum úti. Djöfull hlýtur að hafa veriö erfitt aö standa aö þeirri könnun. Ég hef aftur á móti lesið nokkrar kannanir, vonandi ekki i mogganum eöa Readers Digest, sem segja aö ákveöinn hormóni, östrogeniö, sé I lágmarki frá fimm dögum fyrir blæöingar. Og, minnkandi magn þessa hvata i blóöinu geti haft áhrif á mót- stööuafl likamans og geöræn áhrif. Svo ætla ég aö vitna I þýzkt verksmiöjulif. Risaverksmiöja sem gekk nærri eingöngu á vinnuafli kvenna i einni einingunni uppgötvaöi aö vinnuafköst voru i lágmarki, vinnuslys og fjar- vistir i hámarki hjá konunum siöustu fjóra dagana fyrir blæö- ingar. En þeir fundu ráö viö vandanum, þeir útbýttu ókeypis ró- andi töflum til kvennanna þessa fjóra daga, og júreka, þær unnu eins og tölvuúr. Ég er á móti þessu. Ég er innilega á móti þvi aö konum sé stiaö á geöheilsustig eöa pillum troöiö I kokiö á þeim til aö merja úr þeim meiri vinnu. En ég neita um leiö aö loka augunum fyrir þeirri staöreyhd aö til eru konur sem finna mikiö fyrir þessum fáu dögum og ég ris upp eins og piskuö skipshöfn gegn þvf aö þaö sé tekinn af þeim sá réttur aö finna til. Þvf þá eru konur á móti konum. Mér finnst miklu nær aö styöja viö bakiö á þeim eymingjum sem eiga bágt. Það litur enginn á fótbrotna konu og fussar „þaö er ekkert aö þér I löppinni annaö en móöursýki”, bara af þvi aö sá sem segir þaö er óbrotin(n). Fyrir langa löngu las ég ráö- leggingar dansks kvenlæknis sem aö auki var kvenkyns, svo þaö má nú kannski treysta henni. Hún haföi fundiö upp kerfi af mjaömaæfingum sem minnkuöu tiöaverkina, og sem aö auki jók kynnautn, geri aörir betur, tveir filar i einu höggi. Slöan tók hún andlega öngþveitiö fyrir. Skipuleggja þessa daga þannig aö álagiö minnkaöi og sofa tveim tlmum lengur en maöur (kona) er vanur. Og hún lofaöi minni streitu. Ég prófaöi þetta allt. Nú passa ég aö vlxlarnir falli ekki þessa daga og sef eins og framliöin þegar mér dettur I hug, sem er anzi oft og lengi. Og viti menn, ég er hætt aö berja börnin mln þessa daga. Steinhætt. Þessi mynd sýnir Gondzju Bojadziu (efst til hægri) á skemmtiferö meö systur sinni Agusu (stendur viö hliö hennar meösólhlff ).Myndin er tekin Iskemmtiferö til Nerezi klausturs áriö 1927. Æskumynd af móður Teresu Móðir Teresa í Kalkútta, sem i fyrra hlaut friðar- verðlaun Nóbels, er, eins og kunnugt er, fædd í Júgó- slavíu. Hún ólst upp í borg- inni Skopje og hét í þann tíma Gondza Bojadziu. Foreldar hennar voru Albanir að þjóðerni. Gondza var mjög trúað barn, segir I frásögn af bernsku Móður Teresu, sem nýlega birtist I júgó- slavneska tlmaritinu Review. Hún var tólf ára þegar hún fór að hugsa til þess að ferðast til Ind- lands að hjálpa fátækum. Átján ára var hún þegar hún ákvað að gerast nunna, hélt til írlands og hlaut nunnuheitið systir Maria Teresa. Þaðan lá svo leiðin til Indlands. Móðir og systir Gondzju Boja- dziu fluttu 1928 til Albaniu og lét- ust þar 1974. mmmmmammmmmmmmmm Albert Guðmundsson er nú aö koma sér á skrið sem forsetaefni. Hann gerir viðreist og hefur fengið sér góðan meðreiðar- svein, Svarth..., afsakið Indriða G. Þorsteinsson rithöfund. Nýlega gerðust þeir félagar félagslyndir fyrir norðan og örkuðu inn á fund hjá Alþýðu- bandalaginu á Sauðárkróki. Ragnar Arnalds var i ræöustól er þeir kumpánar stigu inn i sal- inn og þótt mál Ragnars væri merkilegt, beindist athygli allra engu aö síöur aö þeim fóst- bræörum. Albert er maður sem lætur ekkert tækifæri sér úr greipum ganga, og hóf þegar langa lof- gerðarræðu um Ragnar Arnalds. „Ragnar”, sagði Albert, ,,er maður sem þorir. Hann hefur staðið sig sem hetja i hlutverki fjármálaráðherra, og miklir menn eru alltaf gagn- rýndir. En Ragnar er snjall og maður að minu skapi.” Fundarmenn tóku máli Alberts vel, en sagt er að meö- reiðarsveinninn Indriöi hafi verið hvitur sem nár... Guðlaugur er einnig kominniforsetaslaginn af kappi. Hann hefur opnaö for- setaskrifstofu eins og menn vita. Þar eru nú haldin mikil herþing og ráðin lögð. Sérstök bakvarðarsveit kemur þar reglulega saman og ræðir hvaö gera skuli næst. Ekki höfum við nöfn allra bakvarðanna, en nefna má Valdimar örnólfsson Guölaugur: öflugt bakvaröarliö leikfimiskennara, Eystein Jóns- son fyrrv. ráðherra, Sigurlaugu frá Vigur og Pál Gislason lækni og skátahöfðingja... Geir: Næsti sáttasemjari? Albert: Ragnar Aralds er maöur sem þorir og aö minu skapi. Meira um Guðlaug Þorvaldsson. Skyldi svo fara að hann næöi kjöri sem forseti losnar að sjálf- sögðu staða sáttasemjara. Bæði ASI og VSl hafa gert sér þetta ljóst og nú þegar eru komnir listar I gang hjá báðum aöilum um hugsanlega menn I starfið. Efst á lista hjá ASl,og reyndar VSl,er Geir Gunnarsson alþing- ismaður, en einnig hafa önnur nöfn verið nefnd, eins og Jón Þorsteinsson og Guðmundur Vignir Jósepsson sem nú hefur tekið við sáttasemjarastarfinu i tvo mánuði meðan Guðlaugur siglir i slaginn... Sagt er að nú sé ekki langt I frumsýningu á „ööali feör- anna sem Hrafn Gunnlaugsson leikstýrir. Mikið hefur gengið á allt frá þvi að upptökur hófust, en nú mun kvikmyndin vera á lokastigi I klippiborði. Þá hefur þvi verið fleygt að Hrafn hafi flutt inn tvo klippisérfræðinga frá Svlþjóð til að vera sér til halds og trausts við klippingu myndarinnar...

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.