Þjóðviljinn - 04.05.1980, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 04.05.1980, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 4. mai 1980 George Black: byltingin I Nicaragua er sósialisk, þótt sjálft oröiö „sósialismi” sé ekki notað. — Ljósm.: —eik. NICARAGUA George Black er formaður bresku samstöðuhreyfingarinnar með Nicaragua, Nicaragua Solidarity Committee. Hann er manna fróðastur um málefni Nicaragua, hefur dvalist þar tvívegis siðan Sand- inistar unnu sinn frækilega sigur yfir Somoza fyrir tæpu ári, og skrifað bækur um byltinguna þar og aðdraganda hennar. Við hittum George að máli og spurðum hann fyrst um samtökin sem hann stjórnar og starfsemi þeirra. LÍNURNAk r SKYRAST — Nicaragua Soldiarity Committee eru landssamtök, sem hafa höfuðstöðvar i London og deildir i 22 borgum i Bretlandi. Samtökin leggja höfuðáherslu á að afla nicaraguönsku bylting- unni stuöning meðal breskra verkalýðsfélaga, og eru nokkrir forystumenn verkalýðshreyfing- arinnar virkir i samtökunum. Breski Verkamannaflokkurinn styður samtökin opinberlega og Alþýöusambandið á fulltrúa i stjórn þeirra. Stuðningurinn sem við veitum 'Nicaragua er bæöi i orði og á borði, og á þvi eina og hálfa ári sem liðið er frá stofnun þeirra hafa þau haft milligöngu um að senda fé til Nicaragua að upphæð 200.000 pund. Þessu fé hefur verið safnaö af ýmsum samtökum og stofnunum i Bretlandi. Allt fé sem við sendum til Nicaragua fer beint til Sandinistahreyfingar- innar, og viö höfum samráð við Sandinista um það til hvers þessu fé er varið. Núna er lögð höfuð- áhersla á aö kostalest'rarherferð- ina miklu, sem hófst I mars. 1 Nicaragua er rúmur helmingur þjóðarinnar ólæs og óskrifandi, en stjórnin hefur sett sér það mark að útrýma ólæsinu á mjög skömmum tima. Eitt af verkefnum okkar er að koma á framfæri upplýsingum um framvindu mála I Nicaragua. Meðan borgarastriöið geisaði voru heimsblöðin uppfull af frétt- um þaðan, en um leið og Somoza féll og Sandinistar tóku völdin var einsog fjölmiölar á Vesturlöndum misstu áhugann. Þetta er svosem ekkert einsdæmi, það þykir fréttaefni þegar fólk er drepið, en fréttir af málefnum byltingar og friðsamlegri uppbyggingu eru ekki eins góð söluvara. Það er enginn vafi á þvf að þögnin sem nú rikir um Nicaragua er meðvit- uð, það þykir ekki tilhlýöilegt að skýra frá þvf hvernig byltingin festist f sessi. Samtök til stuðnings Nicaragua eru nú virk f 12 löndum Vest- ur-Evrópu, og hafa þau samband sfn á milli og framkvæma sam- ræmdar aögerðir. Pólitísk þróun — Hvernig hafa málin þróast i Nicaragua á þessu tæpa ári sem liðið er frá falli Somoza? — Ef við byrjum á pólitikinni, þá er það að segja aö stefna stjórnarinnar hefur veriö að skýrast mjög að undanförnu. Einsog menn muna var ástandið oröið þannig i landinu fyrir sigur Sandinista, að bókstaflega öll þjóðin var andvfg Somoza og þjóövarðliði hans. Það var þvi ekki einlitt lið Sandinista sem settist að völdum eftir sigurinn, heldur áttu fulltrúar allra pólitfskra og stéttarlegra afla i landinu sæti þar. í rfkisstjórninni sjálfri voru fimm fulltrúar frá jafnmörgum hreyfinguni. Þar á meðal var fulltrúi einkafram- taksins, Alfonso Robelo úr Lýð- ræðishreyfingu Nicaragua (MDN), sem er borgaralegur flokkur. Einnig átti sæti f stjórn- inni Violeta Chamorro, ekkja frjálslynds ritstjóra sem Somoza haföi látiö myrða. Seta hennar i stjórninni var fremur táknræn en pólitisk. Það var einmitt morðið á Joaqufn Chamorro sem átti stór- an þátt f að sameina alla and- stæðinga Somoza-stjórnarinnar til átaka. Þessi tvö, Robelo og Violeta Chamorro, hafa nú fyrir skömmu sagt sig úr stjórninni. Úrsögn OPIÐ: Mánudaga til föstudaga kl. 9-22 Laugardaga kl. 10-14 Sunnudaga k/. 14-22

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.