Þjóðviljinn - 08.05.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. mai 1980
Einvígisborðið til Skákminjasafns
Einvigisborð það, sem þeir
Bobby Fischer og Boris
Spassky notuðu I heims-
meistaraeinviginu 1972, og
Skáksamband tslands gaf
Þjóðminjasafninu strax að
einvigi aldarinnar loknu,
hefur nú verið afhent Skák-
sambandinu á ný til
varöveislu i hinum nýju aðal-
stöðvum þess að Laugavegi
71, þar sem verið er að koma á
fót Skákminjasafni.
i ljósi breyttra aðstæðna hjá
Skáksambandinu og þrengsla
hjá Þjóðminjasafninu varð að
samkomulagi að S.í. tæki við
borðinu á ný. Jafnframt er
fyrirhugað að opna húsnæði
Skáksambandsins almenningi
vissan tima i viku, sem siöar
verður auglýstur.
Það eru vinsamleg tilmæli
þeirra, sem vildu leggja
eitthvað til Skákminjasafns-
ins, sem gjöf eöa til kaups, að
þeir hafi samband við
stjórnarmenn S.I.
Sænsk tunga í Finnlandi
Hér er nú staddur prófessor
Carl-Erik Thors frá Finnlandi
og flytur i kvöld kl. 20.30
fyrirlestur i Norræna húsinu.
„Svenskan I Finland. Dess
varianter och stallning I sam-
hailet.”.
Carl-Erik Thors hefur verið
prófessor i norrænu við
Helsinkiháskóla frá 1963.
Hann lauk embættisprófi 1944,
stundaði siðan framhaldsnám
i Norðurtöndum og I Bretlandi
oglaukdoktorsprófil949. Hann
hefur sent frá sór ijölda rit-
gerða og bóka ma. um nafna-
fræöi, bæði mannanöfn og
örnefni i sænsku og finnlands-
sænsku, og einnig hefur hann
ritað um sænskar bibliu-
þýðingar, og I þvi sambandi
má og nefna ritið „Den kristna
terminologien i forn-
svenskan” (1957). Carl-Erik
Thors hefur árum saman
skrifað dálk um sænska
(íinnlands-sænska) tungu i
stærsta sænska dagblað
Finnlands Huvfudstads-
biadet: Torsdag meö Thors,
og nýtur sá dálkur mikilla
vinsælda. Fyrirlesturinn i
kvöld er öllum opinn.
Att við sölu á eigin listaverkum
I fréttatilkynningu sem
birtist i dagblööunum 6. þ.m.,
segir m .a. að málverkasala sé
undanþegin söluskatti. Til
þess að koma I veg fyrir mis-
skilning tekur fjármálaráðu-
neytið fram i sértilkynningu,
að hér sé einungis átt við sölu
listamanna sjálfra á eigin
verkum en ekki um sölu ann-
arra aðila á verkum þeirra.
Aðferðir í sögurannsóknum
Lars Lönnroth, prófessor i
bókmenntum við háskólann i
Alaborg, flytur opinberan
fyrirlestur i boði heimspeki-
deildar Háskóla íslands i dag,
8. mai kl. 17.15 I stofu 422 i
Arnagarði.
Fyrirlesturinn nefnist
„Nyare tendenser i saga-
forskning” og verður fluttur á
sænsku. öllum er heimill
aðgangur.
Vorhappdrætti Krabbameinsfélags
Vorhappdrætti Krabba-
meinsfélagsins hófst fyrir
skömmu. Hafa happdrættis-
miöar nú verið sendir um allt
land. Vinningareru tiu talsins,
þar af fjórir fólksbilar,
Chevrolet Chevette Sedan
(sjdlfskiptur), Volkswagen
Golf L, Honda Accord Sedan
og Mitsubishi Colt 1200 GL.
Allt eru þetta fimm manna
bifreiðar af árgerð 1980. Hinir
vinningarnir sex eru hljóm-
flutningstæki að verðmæti 700
þúsund krónur hver vinn-
ingur. Heildarverömæti vinn-
inganna er nálægt 30 miljón-
um króna.
Lausasala happdrættismiöa
verður aö venju úr bil I Banka-
stræti og á skrifstofu
happdrættisins i Suöurgötu 24
en þar eru veittar nánari
upplýsingar. Verö miða er nú
llOOkrónur. Dregiðveröur 17.
júni.
Agóði af happdrættinu fer til
styrktar hinni margþættu
starfsemi krabbameins-
samtakanna, einkum krabba-
meinsleit, frumurannsóknum,
krabbameinsskráningu og
viðtækri fræðslustarfsemi.
Minningargjöf um Hrönn
Pétursdóttur
Húsmæðrafélag Reykja-
vikur færði nýlega Krabba-
meinsfélagi Islands
höfðinglega gjöf, að fjárhæö
200.000 krónur, til minningar
um fyrrverandi formann sinn,
Hrönn Pétursdóttur.
Kaffi jyrir eldri Hánvetninga
Húnvetningafélagið I
Reykjavik býöur eldri
Húnvetningum til kaffi-
drykkju i Domus Medica
sunnudaginn 11. mai kl. 15.00.
Skemmtun þessi hefur alltaf
verið mjög fjölsótt og er það
von stjórnarinnar aö svo veröi
einnig nú, segir i frétt frá
henni.
Ráðstefna og sýningar á Akureyri
Menning á
vinnustöðum
VINNA-UMHVERFI-FRÍSTUNDIR
SÝNINGARÁ AKUREYRI 8 11 MAÍ 1980
Menningarhátið málmiðnaðar-
manna hefst á Akureyri I dag og
er fólgin annarsvegar f sýningum
undir nafninu „Vinna-umhverfi-
fristundir” og hinsvegar ráö-
stefnunni „Vinnustaðurinn og
heimiliö”.
Það eru Málm- og skipasmiöa-
sambandiö, Sveinafélag járn-
iðnaðarmanna á Akureyri og
Slippstöðin hf. sem gangast fyrir
þessari hátið I samvinnu við
Menningar- og fræðslusamband
alþýðu. Þetta verkefni er liöur i
norrænni samvinnu fræðslusam-
taka verkalýðshreyfingarinnar
og er efnt til svipaðrar starfsemi
á hinum Norðurlöndunum með
málmiðnaðarmönnum þar.
Samheiti verkefnisins er
„Menning á vinnustöðum” og
verður enda opnuð I kvöld kl.
20.30 sýning i stærsta vinnustað
málmiðnaðarmanna norðan-
lands, Slippstöðinni hf. Verða þar
munir og myndir i eigu starfs-
manna og eftir þá, ma. söfnunar-
gripir ýmiskonar, ljósmyndir,
málverk og graffk eftir núverandi
og fyrrverandi starfsmenn og
kvikmynd sem einn þeirra hefur
MFA-MSÍ
gert. Sýningin verður opin til
sunnudagskvölds kl.14-22 daglega.
Þá verður Slippstöðin sjálf til
sýnis almenningi undir leiðsögn
starfsmapna á morgun, föstudag,
kl. 13-15.30 og munu forstöðu-
menn svara fyrirspurnum um
rekstur og starfsemi á sama
tima.
1 Galleri Háhól verður opnuð á
morgun kl. 20,30 málverkasýning
með um 50 verkum úr Listasafni
alþýðu og verður hún opin til 15.
mai.
Ráðstefnan „Vinnustaðurinn og
heimilið” verður haldin i tengsl-
um við sýninguna fyrir málm-
iðnaðarmenn og annað starfsfólk
sem vinnur i málmiðnaði viða um
land. Hún hefst kl. 101 fyrramálið
og stendur tvo daga og verður
fjallað um vinnuumhverfi I
málmiðnaði, vinnutlma og fri-
tima og áhrif langs vinnutima og
vinnuumhverfis á heimilislif
verkafólks. Verður t.d. leitast við
að fá fram sjónarmið fjölskyldna
og þvi er einn framsögumanna á
ráðstefnunni eiginkona starfs-
manns I Slippstöðinni, Þórey
Aðalsteinsdóttir, en aðrir fram-
sögumenn eru Haukur Þorsteins-
son Slippstöðinni, Ingólfur Sigur-
jónsson Stálvik, Garðabæ.og Sig-
mundur Benediktsson, Þorgeir og
Ellert Akranesi.
Stefán ögmundsson formaður
MFA setur ráðstefnuna, sem
haldin verður i Iðnskólanum á
Akureyri, en ráðstefnustjóri er
Hákon Hákonarson form. Sveina-
félags járniðnaðarmanna Akur-
eyri. — vh
Sparar
arða
r r • f|
a an:
Þannig var umhorfs I Tollvörugeymslunni þegar Ijósmyndarinn var
þar á ferð. Og nú er rætt um aö taka upp tollkrlt til sparnaöar og hag-
ræöis fyrir „gesti og gangandi”.
— Við eigum aö taka upp toll-
krlt af þvi að af henni er mikið
hagræði fyrir alla þá aðila, sem
málið snertir: neytendur, inn-
flytjendur, farmflytjendur og
starfsmenn hins opinbera.
Þannig fórust orð Einari Birni,
formanni Félags Isl. stórkaup-
manna er hann kynnti hugmyndir
um tollkrit á fundi, sem hann og
fleiri héldu með fréttamönnum sl.
þriðjudag.
En nú er ekki óliklegt aö ein-
hver spyrji: Hvaö er tollkrít? Þvi
er svaraö á þann veg, að hún sé
greiðslufrestur á aðflutnings-
gjöldum um einhvern tiltekinn
tima, t.d. I tvo mánuði, og getur
miöast viö þann tlma, þegar
varan kemur til landsins eða er
leyst úr tolli. Tollurinn er þá
lánaöur, hugsanlega gegn trygg-
ingum, sem viðkomandi fyrirtæki
setur fyrir greiðslunni.
Hagræði þaö, sem tollkritin er
talin skapa, er fyrst og fremst
greiðari flutningur á vörunni frá
flutningsaöila til kaupanda,
þannig aö geymslutimi hjá fram-
flytjanda styttist, en hann er mun
lengri hér en hjá nágrannaþjóð-
um okkar. Skil á tolli yrði hraðari
og reglubundnari. Varan kemst
fyrr i umsetningu, vaxta-
kostnaöur lækkar. Við athugun,
sem gerð hefur verið á hugsan-
legu hagræöi og sparnaði af toll-
krlt, var lagt tölulegt mat á
sparnað af styttingu geymslu-
tima, einfaldari og hagkvæmari
meðferð á vöru, minni vaxta-
kostnaði, minni tjónahættu og
varð niðurstaðan sú, aö unnt
mundi aö spara 3 miljaröa kr. á
ári með tollkritinni. Er sú tala
þannig fengin:
Sparnaður vegna meðhöndl-
unar og geymslu 1100 milj. Vegna
lækkunar erlendra vaxta 600 milj.
kr. Vegna lagfæringa á skjala-
meðferö 900 milj. kr. eða alls 2,6
miljaröar Auk þess er tollkritin
talin fela I sér möguleika á al-
mennri hagræöingu, sem skili sér
smátt og smátt og þvi llklegt, aö
heildarsparnaðurinn veröi ekki
undir 3 miljöröum kr. á ári.
Verulegur hluti þessarar upp-
hæðar kæmi neytendum beint til
góöa, þar sem niöur falla kostn-
aöarliöir, sem reiknast inn I vöru-
veröið, þjónusta eykst, vöruflutn-
ingur verður jafnari og birgðir
flytjast úr geymslum skipafélaga
yfir til innflytjenda.
Spyrja má: Raska svona aö-
geröir engu hjá rikissjóði? .For-
mælendur tollkritar telja að þau
áhrif muni reynast óveruleg þar
sem framkvæmdin tæki alllangan
tima.
Helstu rök fyrir því að taka upp
tollkrit telja formælendur hennar
vera þessi:
1. Hún rnundi flýta fyrir tollaf-
greiðslu bæði hjá innflytjendum
og tollheimtumönnum, sem þýðir
minni bið og minna vinnutap.
Framhald á bls. 13
Sinfónían í kvöld:
Haffiði
Hallgríms-
son einleikari
Hafliði Hallgrlmsson er
einleikari kvöldsins á tónleik-
um Sinfóniuhljómsveitarinnar
I Háskólabiói I kvöld og leikur
sellókonsert Haydns I C-dúr.
önnur verk á efnisskrá
tónleikanna eru Sorgartónlist
eftir Hindemith og Petroushka
eftir Stravinský. Stjórnandi er
Guido Ajmone-Marsan
hljómsveitarstjóri frá Italiu.
Tónlistarferill Hafliða
Hallgrimssonar sellóleikara
er orðinn fjölbreyttur, hann
hefur leikið sem einleikari, I
kammersveitum, með
sinfóniusveitum, kennt og gert
upptökur fyrir hljómplötur,
t Háskólabiói I kvöld: Hafliði
Hallgrimsson sellóleikari.
útvarps- og sjónvarpsstöövar.
Ennfremur hefur hann I seinni
tið lagt stund á tónsmiðar og
m.a. skrifað verk sérstaklega
fyrir Robert Aitken flautu-
leikara og söngkonuna Jane
Manning. Arið 1976 vann hann
fyrstu verðlaun i alþjóðlegri
keppni tónskálda sem kennd
er við Viotti og haldin á ítaliu,
— vh