Þjóðviljinn - 08.05.1980, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 8. mai 1980 ÞJÖÐVILJINN — SIÐA 5
Iran - hvad þá verdur
veit nú enginn ...
Gíslatakan í sendiráði Irans í London minnir rækilega
á að ástandið í landi Khomeinis er ótryggt og andstæður
þar uppi fleiri en taldar verði. Þeir sem sendiráðið tóku
voru arabískir aðskilnaðarsinnar i Kúsjestan, en svo
nefnist einmitt sá suðurhluti landsins þar sem olían er
mest. Eins og að líkum lætur mun hver stjórn sem í Te-
heran situr neita að viðurkenna sjálfstjórnarhreyfingu i
slíkum landshluta — rétt eins og Iraksstjórn hef ur a Idrei
viljað viðurkenna rétt Kúrda, m.a. vegna þess að olíu-
auðugustu hlutar þess lands voru I Kúrdabyggðum.
Hin misheppnaöa tilraun
Carters til aö ná aftur gislunum i
bandariska sendiráöinu er nú um
stundir eitt af þvi fáa, sem hefur
komiö sér vel fyrir Khomeini
erkiklerk og hans menn. Stundum
er engu likara en aö gislarnir i
sendiráöinu séu látnir hafa þvi
hlutverki aö gegna, aö halda lif-
andi hatrinu á hinum ytra óvini,
en á timum uppgjörs og mikillar
ólgu veröur þörf valdhafa á ein-
hverjum utanaökomandi and-
skota enn meiri en nokkru sinni
fyrr; þaö er helst hann sem getur
sameinaö sundraöa þjóö. En sú
staöreynd sem gislarnir eru getur
samt ekki faliö þaö fyrir neinum,
aö iranska byltingin er i mikilli
kreppu.
Blöð og
tímarit
Bárddœlingur í
forsíðuviðtali
út er komiö april-hefti
timaritsins Heima er beztog
flyturma. forsiöuviötal viö
Sigurö Eiriksson bónda á
Sandhaugum I Báröardal
meö yfirskriftinni: „Vildi
heyra messu sungna I Jökul-
dal”. Siguröur hefur alla
sina ævi átt heima I Báröar-
dal og er sérstæöur á
margan hátt, svo sem
margir Bárödælingar.
Af ööru efni má nefna
grein eftir Bjarna Sigurös-
son I Hofsnesi, um búendur I
Skaftafelli frá þvi á 15. öld
fram á þennan dag. Einnig
eru i ritinu feröasögur, ljóö,
bókaumsagnir, heimilis-
þáttur, hestaþáttur og fleira.
Þá hefur nýr þáttur göngu
sina i blaöinu, heitir hann
„Beint I mark’.” og flytur
hann ýmiskonar pistla um
þaö sem til bóta er, eöa þaö
sem er viröingar- og þakkar
vert á einhvern hátt.
Singer, Sara
Lidman og Olafur
Jóhann í
Samvinnunni
1 nýjasta hefti Samvinn-
unnar er m.a. viötal viö Þór-
hall Björnsson, fyrrum
kaupfélagsstjóra og aöal-
gjaldkera Sambandsins, nýtt
ljóö eftir ölaf Jóhann Sig-
urösson, smásaga eftir
Nóbelsskáldiö Isaac
Bashevis Singer og grein
eftir Hjört Pálsson dag-
skrárstjóra um Söru Lid-
man, sem hlaut Bókmennta-
veröíaun Noröurlandaráös i
ár. Greinar um samvinnu-
mál skrifa Axel Gislason
framkvæmdastjóri Skipa-
deildar Sambandsins,
Haukur Ingibergsson skóla-
stjóri og Bruno Hjaltested
aöstoöarframkvæmdastjóri
Samvinnutrygginga. 1 þætt-
inum Mér finnst segja þær
Birna Bjarnadóttir, Dag-
björt Höskuldsdóttir og
Sigriöur Thorlacius álit sitt á
hlutdeild kvenna i sam-
vinnustarfinu. Margt fleira
efni er 1 heftinu. Ritstjóri
j Samvinnunnar er Gylfi
j^Gröndal.
Margar blikur á lofti
Byltingarvaröliöar Khomeins
hafa bariö á róttækum stúdentum
I Teheran og drepiö þá og er sú
grimmd ósköp svipuö þeirri sem
moröingjar keisarans sýndu fyrr
konar pólitiskur fangi klerka-
veldisins og megi sig hvergi
hræra.
Úrræðaleysi
Mestu skiptir þó þegar til
lengdar lætur, aö sú blanda af
trúarvakningu og þjóöernis-
hyggju sem lyfti Ajatolla Kho-
meini til æöstu valda i Iran hefur
átt næsta fá úrræöi I efnahags-
málum. Menn hafa oftsinnis
fengiö aö heyra þaö, aö islamska
byltingin væri andvlg vestrænum
kapitalisma og yfirráöum er-
lendra manna yfir auölindum og
þar fram eftir götum. Undir slika
afstööu geta margir hópar og ó-
likir skrifab I lran. En þar meö er
fátt eitt sagt um þaö þjóöfélag
sem menn vilja byggja upp.
verkamenn I einskonar starfs-
greinasambönd, þar sem allir
sitja viö eitt borö, fulltrúar rikis-
valdsins, atvinnurekendur og
launafólk. Var ekki Mussolini ein-
mitt á slikum buxum meöan hann
var og hét?
Efnahagshrun
En hver sem áform klerka-
veldisins eru, þá er þaö vist, aö
efnahagslifiö er i molum. Oliu-
framleiöslan, sem allt hvilir á,
nemur nú ekki miklu meira en
miljón fötum á dag, og er þaö
mikib hrun frá þvi aö lran sendi á
markaöinn sex miljónir oliufata á
dag. Giskaö er á, aö helmingur
framleiöslugetu iönaöarins i
landinu sé nýttur. Ýmis fyrirtæki
hafa veriö þjóönýtt, en i þeim
hefur varla mikiö annaö gerst en
aö rikiö hefur skipaö nýja yfir-
menn, sem ekki hafa sér-
þekkingu fyrirrennara sinna.
Fjöldaganga til bandariska sendiráösins I Tehran; klerkarnir reyna aö einoka byltinguna og gislarnir
eru þýöingarmikil peö I þvi tafli.
á tiö. Hver herferöin á fætur ann-
arri hefur veriö farin til þess aö
brjóta niöur réttindabaráttu
Kúrda og aörir öflugir minni-
hlutahópar hafa og vaknaö til
hliöstæörar baráttu eins og eöli-
legt er þegar bylting hefur rutt
úr vegi gamalli kúgun og menn
inna handhafa hins nýja yfirvalds
um þau réttindi sem slik umskipti
lofa.
Hugmyndir um aö Banisadr
forseti gæti mótaö einhverja þá
stefnu sem viki frá vilja Kho-
meinis og hans samhristings á
Islam og stjórnmálum hafa ekki
reynst á traustum rökum reistar.
Banisadr vann aö sönnu mikinn
persónulegan sigur i forseta1
kosningunum, en sá sigur sýnist
ekki mikils viröi — veröur ekki
betur séö en forsetinn sé eins-
Kóraninn er ekki sérlega hentug
handbók I efnahagsmálum, þótt
þar megi finna viövaranir viö
spillingu auösins sem og i öörum
trúarritum og andúö á vöxt-
um — eins og kaþólska kirkjan
haföi reyndar hér á öldum fyrr.
En þar ku vist ekki þýöa aö leita
aö svörum viö spurningum um
kapitalisma og eignarhald, sem
brenna á irönskum vinstri-
sinnum.
Klerkafasismi?
Þeir menn sem áhrifamiklir
eru I næsta umhverfi Khomeinis
tala gjarna um rikisstýrt efna-
hagslif „á milli kapitalisma og
sósialisma”. Menn þykjast I sliku
tali þekkja aftur vangaveltur frá
dögum fasismans i Evrópu. Kho-
meini hefur reynt aö skipuleggja
Innflutningur ýmissa nauösynja
gengur meö rykkjum og skrykkj-
um, einatt eru Iranir kraföir um
sérstaklega hátt verö vegna
óvissu i gjaldeyrismálum og
greiösluskilum. Þá hafa innlendir
kaupmenn, „basarinn”, sem voru
alldrjúgir til áhrifa meöal þeirra
sem studdu Khomeini til valda,
makaö vel krókinn á vöruskortin-
um.
Tudeh
Vinstriöflin hafa veriö tvistruö
og ekki getaö smiöaö sér neinn
þann valkost sem um munar.
Liösmenn Khomeinis hafa og of-
sótt ýmsa hópa á þeim væng og
neytt þá til skuggatilveru. Undar-
leg hefur oröiö staöa
kommúnistaflokks landsins,
Tudeh, sem er einkar hollur
Kir:. ■
uimv
k 1*1
u
.. te»i wmMmmé
FRÉTTA-
SKÝRING
Kremlverjum og litur m.a. á Ev-
rópukommúnisma sem meiri-
háttar villu. Tudeh hefur reynt aö
koma sér fyrir I skugganum af
Khomeini, tekur undir allt sem
erkiklerkur segir um bandariska
heimsvaldastefnu, en lætur tal
hans um guölausan kommúnisma
sem vind um eyrun þjóta. 1 viötali
sem franska blaöiö Le Mondeátti
nýlega viö formann Tudeh,
Nureddin Kianuri, kemur þaö vel
fram, aö Tudehflokkurinn vonar
aö gislamáliö 1 sendiráöinu standi
sem lengst — þvl þar meö sé úti-
lokaö aö „eölilegt samband”
komist á milli Bandarikjanna og
lrans. Kianuri vonast til aö sama
mál veröi til aö auka samskipti
Irans viö Sovétrikin. Sovétmenn
hafa reyndar reynt hvaö þeir gátu
til aö byggja upp einskonar vin-
samlega sambúö viö Iran, sovésk
blöö eru löngu hætt aö tala um
miöaldaofstæki og afturhalds-
stefnu og Khomeini i sömu and-
ránni, en leggja heldur hina
mestu áherslu á aö þessi öldungur
iranskra Sjiita standi sig I glim-
unni viö Carter. Khomeini og
Banisadr hafa aö sönnu verib
ófúsir á aö brosa noröur til Sovét-
rikjanna og gert mikib af þvi aö
formæla risaveldunum báöum
sem erindrekum hins illa I
heiminum. En hitt er svo ljóst, aö
ef Vesturveldin munu gera alvöru
úr viöskiptabanni á Iran, þá
munu Irönsk stjórnvöld, hvort
sem þeim er þaö ljúft eöa leitt,
snúa sér til Sovétrikjanna um viö-
skipti. Ekki mun á Sovétmönnum
standa, eins og þegar hefur veriö
gefib til kynna.
Út í óvissuna
En hvernig sem alþjóöleg sam-
skipti lrana þróast þá er hitt jafn-
ljóst, aö þetta þverstæöurika
samfélag getur ekki endalaust
skotiö þvi á frest, aö leysa innri
vandamál, pólitisk og efnahags-
leg, sem nú hafa hrannast upp i
þeim mæli aö ekki sér út yfir. Þaö
sem er mest áberandi I hinni póli-
tisku þróun er aö klerkdómurinn
og veraldlegir handlangarar
þeirra eru aö reyna aö einoka
byltinguna — I þvi efni beita þeir
fyrir sig gislamálinu meö þeim
hætti aö enginn fær rönd viö reist
viö aöstæöur þar i landi ef hann
vill ekki fá á sig þann stimpil aö
hann sé „útsendari hins mikla
Satans” (þ.e. Bandarikjanna).
En um leiö veröur ekki séö, aö
þetta liö hafi nein þau svör sem
dugi viö þeim vanda sem hinn
valdalitli forseti, Banisadr, lýsti
svo fyrir skemmstu: „Efnahags-
lega erum viö liöib lik”—
AB.
Mál franska herskylduneitarans:
Hver hefur lýst Patrick
Gervasoni „óæskilegan”?
í danska blaðinu
Politiken birtist á
sunnudaginn var grein
um mál Frakkans
Patricks Gervasoni,
sem fer huldu höfði i
Danmörku og hefur
farið fram á að fá hæli
sem pólitiskur flótta-
maður á islandi.
Gervasoni á yfir höfði
sér þriggja ára refsi-
vist i Frakklandi fyrir
að neita að gegna her-
þjónustu.
I grein Politiken er þaö haft
eftir Gervasoni aö hann tengi
von sina viö Island. „Ég vil
aöeins friö, starf og eölilegt lif.
Ég hefi greitt þaö háu veröi aö
vilja ekki gegna herþjónustu:
tiu ár hefi ég lifaö i felum og á
flótta”.
Danskir vinir Gervasonis
segja I viötali viö Politiken, aö
hann sé nú mjög illa farinn and-
lega og sé aö brotna niöur. Einn
af þingmönnum Róttæka
flokksins, Bernhard Bauns-
gaard, hefur skrifaö islenska
sendiráöinu I Höfn og lýst stuön-
ingi sinum viö Patrick hinn
franska.
— Þaö hljóta aö vera mann-
réttindi aö neita aö gegna her-
þjónustu, sagði Baunsgaard, og
svo litum viö á hér. En sfban
1870 hefur á slikt veriö litiö sem
landráö I Frakklandi og er þaö
ómennskt viöhorf.
Islendingar I Höfn hafa veitt
Gervasoni liö. I bréfi til Þjóö-
viljans segir á þá leiö, aö Einar
Agústsson sendiherra hafi I
fyrstu tekiö málaleitun vegna
Frakkans vel. Slöan lét hann
þau skilaboö berast til Islend-
inganna, aö sendiráöinu væri al-
gjörlega huliö af hverju dóms-
málaráöuneytið Islenska heföi
hafnaö beiöni Patricks um land-
vist,enginn rökstuöningur heföi
fylgt. Þetta kemur mönnum
mjög á óvart, segir i bréfinu, þvi
Ólafur W. Stefánsson I dóms-
málaráðuneytinu hefur sagt I
viötali viö Þjóöviljann aö ein af
ástæöunni fyrir þvi aö umsókn
Gervasonis sé hafnaö sé sú, aö
sendiráöið I Höfn hafi lýst þvi
yfir aö hann væri óæskilegur.
„Hvaöan sendiráöinu kemur
vitneskja um aö styöja slika
yfirlýsingu er okkur algjörlega
huliö. En viötaliö viö Ólaf hefur
oröib til þess aö Patrick undir-
býr núýtarlegaumsókn um póli-
tiskt hæli, sem hann mun þá aö
sjálfsögöu senda beint til yfir-
valda heima”, segir I bréfi til
Þjóöviljans um þetta mál.