Þjóðviljinn - 08.05.1980, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. mai 1980
■ • ar+ "vr a a vaKiti Æk m ■ ■ .
Fjölmenni var við opnun sýningarinnar á málverkum Glsla Jönssonar. (Ljósm. — gel)
Sýning á verkum
Gísla Jónssonar
Fyrsta opinbera sýning-
in í nýju húsnæði Lista-
safns alþýðu að Grensás-
vegi 16 var opnuð 1. maí og
Iýkur25. maí. Þetta er sýn-
ing á málverkum Gísla
Jónssonar frá Búrfells-
koti, en síðast var haldin
sýning á verkum Gísla árið
1943, ári áður en hann lést.
A sýningunni eru 78 málverk og
hafa fjölmargir eigendur þeirra
lánað safninu þau til sýningar.
Gisli Jónsson var óskólaður al-
þýðumálari, naut aðeins nokk-
urrar tilsagnar á Akureyri hjá
Einari Jónssyni málara frá Fossi
i Mýrdal. Gisli bjó i Hafnarfirði,
en siðar á Skansinum á Bessa-
staðanesi og i Reykjavik með
seinni konu sinni Björgu Böðvars-
dóttur.
Björn Th. Björnsson listfræð-
ingur segir meðal annars um
Gísla i sýningarskrá: „Fáir Is-
lendingar það ég veit, hafa kjörið
sjálfum sér erfiðari braut
fátæktar og umkomuleysis, til
þess að geta þjónað ástriðu sinni
til listar. 1 þeirri sögu er hins-
vegar enginn frægöartindur, og
eina sólin sem þar skin er sú sem
hann bjó sjálfur til I myndum sin-
um. Hann er sigilt dæmi um
mann sem finnst lifið þvi aðeins
Gisli Jónsson frá Búrfellskoti
(1878-1944).
einhvers viröi, að það veiti honum
andlega fullnægju á því sviði sem
hugur hans stendur til, og að
engin fátækt geti verið verri en
afneitun þess”. — eös
60 ÁRA AFMÆLI GERMANÍU:
Klee og Kandinsky
Grafíkmyndir þýskra expressionista sýndar á Kjarvalsstöðum 10.-18. maí
Paul Klee. Myndin er tekin I
Berlln nokkrum árum fyrir dauða
hans.
60 ára afmælishátíð
Germaníu verður haldin á
Kjarvalsstöðum 10. maí og
jafnframt verður opnuð
þar sýning á grafík-mynd-
um þæyskra
expressíonísta, og stendur
hún til 18. maí.
Hátíðardagskráin hefst
kl. 14 á laugardag með
ávarpi formanns
Germaníu en síðan flytur
Þórir Einarsson prófessor
ræðu. Þá verður flutt
kveðja frá Þyskalandi og
Coletta Burling, sendi-
kennari kynnir grafík-sýn-
inguna. Sendiherra V-
Þjóðverja Raimund Hergt
opnar sýninguna. Reykja-
víkur Ensemble leikur
verk eftir Schumann og
Jón Ásgeirsson.
Að grafiksýningunni standa
Germanía og þýska bókasafniö og
er sýningin komin frá Institut ftlr
Auslandsbeziehungen I Stuttgart.
A sýningunni eru margar frægar
grafikmyndir meistara
expressionismans, m.a. myndir
eftir Klee, Kandinsky, Grosz,
Heckel og Nolde.
Trérista eftir Wassily Kandinsky frá 1922, Litlir heimar VIII (Kleine
Welten VIII).
Guömundur
Jónsson
óperusöngvari
sextugur
Guðmundur Jónsson,
óperusöngvari og fram-
kvæmdastjóri Ríkisút-
varpsins verður 60 ára
laugardaginn 10. maí n.k.
Af því tilefni efna nokkrir
vinir hans og velunnarar til
tónleika í Þjóðleikhúsinu á
afmælisdegi hans. Tón-
leikarnir hef jast kl. 14,30.
Dagskráin verður mjög ‘
fjölbreytt. Um 10 helstu
einsöngvarar landsins
koma þarna fram, auk
tveggja þekktra kóra og
undirleikara. Nær 100
söngvarar og undir-
leikarar taka þátt í tón-
leikunum og flytja nær 20
atriði, þará meðal aríur og
dúetta úr þekktum
óperum, íslensk lög og kór-
lög o.fl.
Afmæl
í Þjóðl
Meðal einsöngvaranna eru
Magnús Jónsson, Þurlður Páls-
dóttir, Kristinn Hallsson, Jón
Sigurbjörnsson, Sigurður Björns-
son, Sieglinde Kahman, Svala
Nielsen, Sigurveig Hjaltested og
Elin Sigurvinsdóttir, auk Guð-
mundar sjálfs.
Aögöngumiðar eru afgreiddir i
Þjóöleikhúsinu, hjá Astvaldi
Magnússyni, formanni Karlakórs
Reykjavikur og Söngskólanum i
Reykjavik.
Guðmundur Jónsson er fæddur
i Reykjavik 10. mal 1920. For-
eldrar hans voru Halldóra Guö-
mundsdóttir og Jón Þorvarðar-
son, kaupmaður. Guðmundur út-
skrifaðist úr Verslunarskóla ls-
lands árið 1937. A yngri árum
vann hann við verslunarstörf.
Guðmundur er Vesturbæingur i
húð og hár. Hann hefur frá barn-
æsku veriö mikill aödáandi KR og
fylgist enn af áhuga meö starf-
semi félagsins.
Guðmundur fór aö syngja
ungur aö árum. Hann stundaöi
söngnám hjá Pétri Jónssyni
óperusöngvara 1941-1943. Sigldi
til Ameriku á strfðsárunum og
var við söngnám I Los Angeles
árin 1943-1946. Aöalkennari hans
var Lazar Samoiloff. Þá stundaði
hann nám við Musikaliska Aka-
demien I Stokkhólmi 1947-1949 og i
Vlnarborg 1959-1960. Aöalkennari
hans I Vln var prófessor Stein-
bruck.
Guðmundur kom fyrst fram i
kórverkinu „Arstlðirnar” eftir
Haydn meö söngfélaginu
„Hörpu” 1943. Hann söng titil-
hlutverkiö i óperunni „Rigoletto”
eftir Verdi I Þjóðleikhúsinu, er
frumsýnt var 3. júni 1951. Var það
fyrsta óperan, sem leikhúsið
sýndi. Þar vann Guömundur
mikinn sigur, sem lengi verður I
minnum haföur. Siðan hefur hann
sungið I fjölmörgum óperum og
óperettum hjá Þjóöleikhúsinu. Þá
söng hann einnig „Rigoletto” á