Þjóðviljinn - 08.05.1980, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. mai 1980
Auglýsing
Starfslaun handa listamönnum árið 1980
Hérmeöeruauglýst til umsóknar starfslaun til handa ís-
lenskum listamönnum áriö 1980. Umsóknir sendist út-
hlutunarnefnd starfslauna, menntamálaráöuneytinu,
Hverfisgötu 6, fyrir 5. júní n.k.. Umsóknir skulu auö-
kenndar: Starfsiaun listamanna.
1 umsókn skulu eftirfarandi atriði tilgreind:
1. Nafn, heimilisfang, fæöingardagur og ár, ásamt nafn-
númeri.
2. Upplýsingar um náms- og starfsferil.
3. Greinargerö um verkefni, sem liggur umsókn til grund-
vallar.
4. Sótt skal um starfslaun til ákveöins tima. Veröa þau
veitt til þriggja mánaöa hiö skemmsta, en eins árs hiö
lengsta, og nema sem næst byrjunarlaunum mennta-
skólakennara.
5. Umsækjandi skal tilgreina tekjur sinar áriö 1979.
6. Skilyröi fyrir starfsiaunum er, að umsækjandi sé ekki i
föstu starfi, meöan hann nýtur starfslauna, enda til þess
ætlast, aö hann helgi sig óskiptur verkefni sinu.
7. Aö loknu verkefni skal gerö grein fyrir árangri starfs-
launanna.
Tekiö skal fram, aö umsóknir um starfslaun áriö 1979
gilda ekki 1 ár.
Reykjavik, 5. mai 1980.
Othiutun starfslauna.
Keflavíkurbær
óskar eftir að ráða starfskraft við tölvu-
umsjón nú þegar. Æskilegt að viðkomandi
hafi stúdentspróf eða hliðstæða menntun.
Laun skv. kjarasamningum STKB.
Umsóknir hafi borist fyrir 20. mai.
Nánari upplýsingar hjá bæjarritara i
Keflavik, simi 92-1555.
Prófessor Carl-Erík Thors
frá Helsingforsháskóla heldur fyrirlestur i
Norræna húsinu fimmtudaginn 8. mai ki.
20.30 og nefnir fyrirlestur sinn: „Svenskan
i Finland. Dess varianter och stállning i
samhállet.”
Verið velkomin NORRÆNA
HUSIÐ
Yfirkjörstjóm Reykjavíkur
mun koma saman til fundar að Austur-
stræti 16, 5. hæð, þriðjudaginn 20. mai
1980, kí. 16.00, og gefa út vottorð um fjölda
meðmælenda forsetaefna á kjörskrá i
Reykjavik.
Forsetaefnum, sem óska eftir yfirlýsingu
frá Yfirkjörstjórn Reykjavikur um fjölda
meðmælenda á kjörskrá, er bent á að af-
henda oddvita yfirkjörstjórnar, Jóni G.
Tómassyni, borgarlögmanni, Austur-
stræti 16, meðmælendaskrár sem fyrst.
6. mai 1980.
Yfirkjörstjórn Reykjavikur,
JónG. Tómasson.
Sigurður Baldursson. Jón A. ólafsson.
Hjörtur Torfason. Hrafn Bragason.
Húsráðendur athugið!
Höfum á skrá fjölda fólks sem
vantar þak yfir höfuðið.
Leigjendasamtökin Bókhlöðustig 7
Opið: Kl. 15-18 alla virka daga, simi: 27609
Siglaugur Brynleifsson skrifar um bœkur
Gráskinna
Syrpa úr handritum
Gisla Konráðssonar 1:
Þjóðsögur.
Torfi Jónsson
sá um útgáfuna.
Skuggsjá 1979.
Skúli Sivertsen i Hrappsey kall-
aði handritið, sem bók þessi er
unnin úr, Gráskinnu og notar
Olafur Daviðsson það nafn, þegar
hann getur heimilda að sögum,
sem hann skrifaði upp úr þessari
syrpu Gisla Konráðssonar og sið-
ar voru prentaðar i þjóðsagna-
söfnum hans.
Gráskinna er smábrot alls þess
sem Gisli Konráðsson skrifaði
upp eða setti saman, en þar er aö
finna talsvert af þeim þjóðsögum
sem aðrir hafa notað i þjóðsagna-
söfn auk þess sem fjölda annarra
þjóðsagna er að finna i öðrum rit-
um Gisla. Eins og kunnugt er
skrifaði Gisli margvislegan fróð-
leik eftir samtiðarmönnum og
þessar beinu uppskriftir þjóð-
sagna og þátta gefa þeim einstakt
gildi eins og Ólafur Daviðsson
segir: „Hefir aðferð hans orðið til
þess, að hann hefir bjargað frá-
sögnum um ótal marga viöburði
og fjölda manna, sem annars
hefðu liðið undir lok með körlum
þeim og kerlingum, sem kunnu
frá þeim að segja, að ég ekki
minnist á hina afarmiklu þýð-
ingu, sem rit Gisla hafa fyrir
islenska siðsögu og þjóðtrúar-
fræði, einmitt af þvi að hann fór
eftir munnmælum. Að öllu saman-
lögðu minna rit Gisla mjög mikið
á hið fræga sagnarit Heródóts.”
A fyrri hluta og um og uppúr
miðri siðastliðinni öld, var ekki
auðvelt að afla sér prentaðra
heimilda varðandi atburði og ætt-
fræöi, handrit voru viða, en mis-
jöfn og merkustu handritasöfnin
litt skipulögö. Það varð ekki fyrr
en með starfi og fyrir hvatningu
Jóns Sigurðssonar að blað var
brotið i heimildaútgáfu að
Islandssögu. Fram að þeim tima
höfðu einkasöfn hér heima,
Biskupsskjalasafnið og Arnasafn
i Kaupmannahöfn verið fræði-
mönnum litt unnar námur. Um
samtimasögu þurfti að seilast
viða eftir skriflegum heimildum.
Þvi hlaut Gisli að bregða á það
ráð, að nálgast þá einstaklinga
sem mundu atburði og fólk fyrri
tima og þá sem lifðu sjálfir at-
burði samtimans, eða höfðu um
þá góðar munnlegar heimildir frá
þátttakendum. Gisli studdist við
beinar munnlegar heimildir að
mestu leyti i samantektum sin-
um, þar sem eldri skrifaðar
heimildir iágu á lausu nýtti hann
þær og jók oft með munnlegum.
Meðal rita Gisla, sem gefin
hafa verið út, er Strandamanna-
saga, sem sr. Jón Guðnason sá
um útgáfu á, með miklum ágæt-
um. Framan við söguna skrifar
hann ritgerð um höfundinn, af
næmum skilningi sagnfræðilegu
næmi, þar segir hann m.a.:
„Aðalatriðið er það, að i ritum
Gisla á þjóð vor nú og komandi
kynslóðir nær ótæmandi upp-
sprettu fróðleiks og skemmtiefn-
is, auk þess sem kynning af ritum
hans mun jafnan efla þann þjóð-
lega anda, sem varðveitt hefur
samhengi i menningu þjóðar
vorrar frá öndverðu fram á vora
daga.”
Sú sagnaauðlegð sem liggur
'eftir Gisla er stórmikil að vöxt-
um, og er furðulegt „að einn mað-
ur fengi sliku afkastað”. Og það
þýðingarmesta er, að þarna er að
finna uppspretturnar að mörgum
sögnum, bæði þjóðsögum og
þáttum um menn og málefni.
Stærri rit hans, óútgefin, eru
stundum eina heimildin um at-
burði ög örlög manna og kvenna
sem fyrrum lifðu i landinu.
Það er mikið þarfaverk að gefa
út ritverk Gisla Konráðssonar og
er vonandi að framhald verði á
útgáfu þessarar Syrpú úr hand-
ritum Gisla Konráðssonar. Þetta
bindi er merkt I. Þjóðsögur. Ot-
gefandinn fylgir að mestu leyti
niðurröðun efnisins eins og það
liggur fyrir i handriti, færir þó
saman sagnir um einstaka menn
og atburði. Þetta eru þjóðsögur
og þvi er ekki þörf á nánari at-
hugagreinum varðandi þær
persónur sem snerta atburðarás
hinna ýmsu sagna, þjóðsögur
eiga að lesast sem þjóðsögur, en
ekki sem einhvers konar hálf-
gildings sagnfræði. Ýmsar sög-
urnar eru um atburði, sem gerð-
ust á timum höfundar, en þær frá-
sagnir hafa á sér farand- eða
Siglaugur Brynleifsson
þjóðsögublæ og ber að lesa sem
slikar.
Útgáfa Torfa Jónssonar er for-
dildarlaus, vel unnin og trú frum-
ritinu, formálinn ber með sér
ræktarsemi og mat útgefanda á
þvi verki sem hann hefur tekið að
sér.
Kvenfélaga-
sambandið
50 ára
A þessu ári eru iiðin 50 ár frá
stofnun Kvenfélagasambands Is-
lands. Afmælish&tlð var haldin
19. apríl sl. að Hótel Loftleiðum.
Formaður K.I., Maria Pét-
ursdóttir, setti hátiðina með
ræðu. Sigriður Thorlacius fyrrv.
formaður minntist frumherjanna
og Þorbjörn Broddason flutti er-
indi um atvinnu- og fjölskyldulif-
ið. Liney Jóhannesdóttir ias kafla
úr óprentaðri sögu eftir sig og
Selma Kaldalóns lék á pianó und-
ir fjöldasöng.
Fyrrverandi formenn, Rann-
veig Þorsteinsdóttir, Helga
Magnúsdóttir á Blikastöðum og
Sigriður Thorlacius, voru gerðir
að heiðursfélögum. Ennfremur
fengu Eisa E. Guðjónsson, Ólöf
Benediktsdóttir, Kristjana
Steingrimsdóttir og Sigriður
Briem Thorsteinsson viðurkenn-
ingu fyrir margra ára starf fyrir
K.I..
.-i..
Síðustu forvöð aö sjá Sumargesti
Tvær sýningar eftir
Nú er slðasta tækifæri að sjá
rómaða sýningu Þjóðleikhússins
á Sumargestum eftir Maxim
Gorki i leikstjórn Stefáns
Baldurssonar og leikmynd Þór-
unnar Sigríðar Þorgrlmsdóttur.
Aðeins eru tvær sýningar eftir,
föstudaginn 9. mal og á uppstign-
ingardag fimmtudaginn 15. mai.
Leikritið, sem frumsýnt var i
febrúarmánuði, hlaut frábæra
dóma gagnrýnenda, sem sögðu
m.a. að sýningin væri i heild
„listrænt afrek”, „andleg upp-
lyfting” og „fagurfræðileg full-
næging”. Sumargestir fjallar um
firrt menntafólk, sem gleymt hef-
ur uppruna sinum og glatað hæfi-
leikanum til að finna til meö öðr-
um. Þó svo verkiö sé frá fyrstu
árum þessarar aldar þá könn-
umst við mætavel við mann-
geröirnar og samskipti þau og til-
finningar sem leikritiö lýsir.
Með hlutverk i Sumargestum
fara Erlingur Gislason, Guörún
Gisladóttir, Þórunn Sigurðar-
dóttir, Siguröur Sigurjónsson,
Helgi Skúlason, Anna Kristin
Arngrimsdóttir, Gunnar Eyjólfs-
son, Kristbjörg Kjeld, Þorsteinn
Gunnarsson, Arnar Jónsson,
Briet Héöinsdóttir, Róbert Arn-
finnsson, Sigurður Skúlason,
Baldvin Halldórsson, Jón S.
Gunnarsson og Guðrún Þ.
Stephensen.