Þjóðviljinn - 11.10.1980, Side 2

Þjóðviljinn - 11.10.1980, Side 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 11.-12. október 1980 Af sænsku gleraugnamafíunni Það er mikil gæfa fyrir íslenska menningu, að fá að vera í samnorrænni kúltúrsambúð og því ber að faana hvað sem allir Svarthöfðar segja. Og þóaookkur hér uppi á fslandi f innist skandinavískir sérfræðingar stundum fara yf ir vitið til að höndla viskuna (sbr. vatnið og lækurinn), þá getum við þó alltaf huggað okkur við það að þeir eiga bakaleiðina eftir. Hvað sem öðru líður ber ég mikla virðingu fyrir skandinavískri félagsspeki. Það er nefnilega þannig með mannskepnuna, hún hef ur löngum fyllst dýpstri lotningu, fyrir því sem henni hefur þótt óskiljanlegast. Hvernig á til dæmis íslenskur sveitamaður að skilja, að umdeildasta menningarsögulegt fyrirbrigði samtíðarinnar í Skandinavíu, skuli vera Andrés Ond. Já, ég verð að játa það að til skamms tíma fannst mér eins og stundum slægi útí fyrir samnorrænum sérfræðingum í innrætingu þarna. Svo var það í sumar, að ég var að þvælast útá Granda og betla mér fisk, að gamall trillukall kom að máli við mig og spurði mig, hvortég væri ísænsku gleraugnamaf íunni. Ég vissi ekki einu sinni, hvað hann var að f ara en f lýtti mér heim til að f letta fyrirbrigðinu upp í lllustreret konversasjonsleksikon for fag og videnskabsmænd. „Brillemafie...Brillemafie... Brillemafie". Nei, ekki var hún þar. „Glasögonmafie ...Glasögonmaf ie" Jú, viti menn. Glasögonmafie! (Og nú lauslega snarað) Gleraugnamafía eru samnorræn samtök vit- manna (intelektuelle)sem nota gleraugu sem nautnalyf. Sænska Ijóðskáldið Kaj Rosenblum er upphafsmaður þessarar hreyfingar, en áhrifunum af sterkum gleraugum lýsir hann frábærlega f þessu litla Ijóðkorni: Nu sætter jeg briller PÁ næsen og alter i dettefine som havde jeg sætt I næsen unseav kokaine Eftir að Rosenblum hafði þannig uppgötvað áður óþekkt notagildi gleraugna fór að bera talsvert á því að gleraugna væri neytt í óhóf i, þótt margir gætu að vísu haft nokkurn hemil á gleraugnafýsninni. Menn brugðu upp léttum lesgleraugum í góðra vina hópi, eða kannski bara lonníettum eða linsum, líkt og þegar dreypt er á sjerríi eða púrtara í intelektúelum samræðum. Aðrir lögðust í sterkari gleraugu, urðu háðir þeim og gátu loks ekki án þeirra verið. Þeir voru orðnir þrælar gleraugnafýsnarinnar. Þessar upplýsingar úr leksikoninum fór ég svo með niður á Granda og fékk að launum spyrði af siginni ýsu. Ég hef alltaf verið hinn mesti nautnaseggur og þar aðauki haldinn mikilli forvitni um hina órannsakanlegu vegi menningarinnar og listarinnar, svo ég fór auðvitað beint til næsta gleraugnasala og fékk mér sterkustu nær- sýnisgleraugu sem völ er á — og viti menn: Ekki hafði ég fyrr sett þennan vímugjata á nefið, en mér var Ijós leyndardómur sænsku gleraugnamafíunnar. Ég steinlá af gler- augunum og sem ég lá afvelta í undursam- legum gleraugnarús, varð mér það svo undur Ijóst hvers vegna það er mál menningar- málanna í dag, að banna lungann af þeim barnabókmenntum sem nú eru á boðstólum. Þær eru, eins og við í gleraugnamafíunni segjum, allt of einhliða og einfölduð mynd af raunveruleikanum, en þó er höfuðglæpurinn í barnabókmenntum samtíðarinnar sá að í þeim er leitast við að viðhalda ríkjandi ástandi í þjóðfélaginu. André-sOnd getur að okkar dómi talist samnefnari fyrir allt það háskalegasta sem börnum er boðið uppá, þar sem Rip, Rap og Ruptilheyra ekki venjulegri kjarnaf [ölskyldu, aðekki sé minnst á Onkel Joakim, sem aldrei vinnur ærlegt handtak, en veður þó í peningum. En mín gleraugu eru með þeim sterkustu á boðstólum á gleraugnamarkaðnum í dag og þess vegna vil ég ganga lengra. Ég vil banna Litlu gulu hænuna. Það er tæplega tilviljun að Litla gula hænan er gul. Hér er um greinilega kynþáttafordóma (rasisma) að ræða. Litla gula hænan er líka kvenkyns og það þarf ekki sterk gleraugu til að sjá í gegnum þá kvenfyrirlitningu sem endurspeglast í þeirri staðreynd að henni eru ætluð öll skítverkin á heimilinu. Þeir sem eru karlkyns og hvorug- kyns í sögunni (hundurinn, kötturinn og svínið) þurfa ekki að sá fræinu, slá hveitið, þreskja það, mala eða búa til brauðið. Hér er litla gula hænan ímynd óæðri kynstofns, semsagt gul húsmóðir. Og þó að reynt sé að klóra í þakkann með því að segja að hinir fái ekki að borða brauðið, tekur ekkert barn mark á því, eftir að hafa kynnt sér Andrés önd. Og þær eru sannarlega fleiri barna- bækurnar sem ætti að banna og setja á „ Index librorum prohibitorum". Tökum tilaðmynda Gagn og gaman. ( þeirri bók úir og grúir af stórhættulegri innrætingu. Hvað segja menn til dæmis um þetta: „Hani segir ga-ga-gó. Hæna segir ga-ga-ga." Er hér ekki verið að gera því skóna að hænan, sem er kvenkyns, hafi lágkúrulegra tungutak en kallinn — sé óæðri tegund? Eða „Mamma kemur með kókó, mjólk og kökur. Pabbi kemur í bíl og reykir pipu". Manni bókstaf lega sortnar fyrir gleraugum. En það eru fleiri bækur sem ríður á að banna börnum að lesa. í Njálu er til dæmis að- eins á einum stað minnst á það að maðUr haf i þurft að ganga til hversdagslegra starfa, en það er þegar Höskuldur Hvítanesgoði fer í heyskap út á tún. Auðvitað höggva Njálssynir umsvifalaust af honum hausinn fyrir vikið. Hér er tvímælalaust gefið í skyn að vinnandi stéttir eigi ekki að halda höfði. Jafnvel Biblían er stórvarasöm vegna predikunar um viðhalda á núverandi ástandi. „Heiðra skaltu föður þinn og móður. Þú skalt ekki stela. Þú skalt ekki girnast eiginkonu nágranna þíns ..." o.s.fr.v. Nei, það er ekki fyrr en maður er sjálfur kominn í gleraugnamafíuna, að maður hefur öðlast skilning á því hvaða lesefni er börnunum fyrir bestu (Vigga fæðist. Vigga fer að tala. Vigga fer á barnaheimili. Vigga verður flugfreyja. Vigga verður fegurðar- drottning. Og guð má vita hvar Vigga endar). Og að lokum finnst mér fara vel á því að rif ja uppgömlu góðu vlsuna, sem guðfaðirinn I gleraugnamafíunni fór með áður en hann steinlá af nærsýnisgleraugunum, sem hann var búinn að setja upp. Eitt skulu vita allir saman áður en missi ég rænuna banna ætla ég Gagn og gaman og Gulu litlu Hænuna. Flosi son 15. júli 1979 lét hann aö þvl liggja a6 eitthvaö væri gruggugt viö samskipti Siguröar Helga- sonar og Seabord World Airline I Bandarikjunum. Nú segir sagan aö Kristjana Milla hafi leigt sér einkaspæjara i New York til aö láta kanna feril og bakgrunn Sig- urðar Helgasonar i Bandarlkjun- um. Fyrir Kristinn Finnbogason er ekki af baki dott- inn frekar en fyrri daginn. Fréttir herma aö hann sé nú orðinn einn af aöalmönnunum i Samvinnu- feröum h.f. og eru vist ekki allir hrifnir af þeim itökum. Gigi alls fyrir löngu var haldinn fundur Framsóknarmanna I Heykjavik og uröu töluveröar æsingar þegar þetta bar á góma,en Kristinn er aö sjálfsögöu kominn inn i feröa- skrifstofuna i gegnum samvinnu- hreyfinguna. Kristjana Milla Thorsteinsson, eiginkona Alfreös Eliassonar fyrrv. Flug- leiöaforstjdra, sem hefur veriö ýtt frá öllum áhrifum i félaginu, berst nú hatrammlega gegn Sig- uröi Helgasyni forstjóra. t frægu Þjóöviljaviötali viö Alfreö Elias- skömmu var Helga Ölafssyni skákmanni boðiö á hiö árlega skákmót i' Tiblis I Sovétrikjunum en þar tefla jafnan fjölmargir sterkir stórmeistarar. A þessu móti heföi Helgi átt möguleika á þvi aö krækja sér I stórmeistara- titil en hann varö aö hafna þátt- töku vegna fjárskorts og auk þess heföi hann þurft aö hætta viö þátt- töku I tveimur helgarskákmótum á tslandi en þau eru nú ein helsta tekjulind islenskra skákmanna. Erslæmt til þess aö vita aö okkar allra bestu skákmenn þurfi aö slá hendinni á móti gullnum tækifær- um, en sjóöir Skáksambandsins eru hvorki svo digrir né stórir aö þeir geti hlaupiö undir bagga svo aö nokkru nemi. Menn Kristinn Kristjana Milla Margir vildu meina aö meö þvi væri Island aö lýsa yfir óbeinum stuðningiviö innrás Sovétmanna i Afghanistan og illa meöferö þeirra á andófsmönnum heima fyrirfm.a. sendu Islenska andófs- nefndin og Hvatarkonur frá sér haröoröar yfirlýsingar vegna málsins. 1 næstu viku heldur fslenska landsliöiö i knattspyrnu til Moskvu og mun þar keppa gegn Sovétmönnum... Hvellur Mikil blaöaskrif uröu I vor og frameftir sumri vegna þeirrar ákvöröunar aö Isiensir iþróttamenn skyldu keppa á olympfuleikunum. varö á ritstjórnarskrifstofum Frjáls framtaks h.f. þegar Hildur Einarsdóttir ritstjóri Lifs og Birna Siguröardðttir auglýsinga- stjóri blaösins sögöu upp störfum I fyrravetur. Uppsagnirnar komu i kjölfar á erfiöri sambúö viö Jd- hann Briem framkvæmdastjóra. Nú ætla þær stöllur aö hefna Höröur harma sinna og hefja útgáfu á nýju blaði i samkeppni viö blöö samsteypunnar Frjáls framtaks. Hafa þær fengiö Asmund Einars- son, gamalreyndan blaöamann, bróöur Hildar, til liös viö sig. Nýja blaöiö á aö heita Betra lif og telst þaö til nýlundu aö þaö veröur prentaö á dagblaöapappir en ekki gljápappir eins og Lif. Prófessorsembætti i rekstrarhagfræöi i viöskipta- deild Háskóla Islands hefur nú veriö auglýst laust til umsóknar. Þetta er embætti sem Guölaugur Þorvaldsson gegndi, þó aö hann hafi ekki I raun setiö I embættinu siöanhann var kjörinn rektor há- skólans áriö 1973. Sá sem likleg- astur er talinn til aö sækja um og hreppa embættiö er Þórir Einars- son. biöa nú meö töluveröri eftirvænt- ingu eftir þvi hvern menntamála- ráöherra skipar lektorisagnfræöi viö heimspekideild Háskóla Is- lands en umsóknarfrestur um stóöuna rann út i ágúst. Þetta er staðan sem losnaði er Gunnar Karlsson var skipaöur prófessor. Umsækjendur eru fimm, þeir I nar Laxness, GIsli Gunnarsson, HelgiÞorláksson, Ingi Sigurösson og Jón Margeirsson. Vísir reynir nú ákaflega aö rétta sig úr þeim öldudal sem blaöiö hefur komist I eftir aö þaö tapaði smá- auglýsingamarkaönum fyrir Dagblaöinu. Stækkun og upp- stokkun blaösins er liöur í aö snúa vörn I sókn þó aö aögeröirnar séu meö næsta örvæntingarfullum blæ. Miklar sviptingar eru á blaö- stjórninni og eru uppsagnarbréf frá þeim Daviö Guömundssyni framkvæmdastjóra og Heröi Einarssyni fjármálastjóra lengi búin aö liggja á borðinu. Eig- endur blaösins, m.a. bilakóng- arnir i Heklu og Ford, munu hafa veriö farnir aö örvænta um fjár- magn sitt i blaðinu og jafnvel veriö farnir aö hugsa um aö setja þaö i eitthvaö arövænlegra, en tapiö á Vísi er nú oröiö geysi- mikiö.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.