Þjóðviljinn - 15.11.1980, Síða 3
Helgin 15. — 16. nóvember 1980 ÞJóÐVILJINN — SIÐA 3
Benedikt DavIOsson formaður Sambands byggingamanna (lengst til
hægri) á tali viö tvo fulltrúa á þingi sambándsins (Ljósm. — gei—)
9. þing Sambands byggingamanna:
Vinnuvemd og
endurmenntun
9. þing Sambands
byggingamanna var
sett á Hótel Loftleiðum i
gær. Að sögn Benedikts
Davíðssonar, formanns
sambandsins eru helstu
viðfangsefni þingsins
kjara- og atvinnumál,
vinnuumhverfismál, —
sem hafa verið megin-
viðfangsefni. S.B.M. á
þessu ári og verða
einnig ofarlega á baugi
á næsta ári, — og
fræðslumál, einkum
endurmenntunarmál.
Um 70 fulltrúar sitja
þingið, sem stendur i
þrjá daga.
I gær hófst þingið með ávarpi
Benedikts Daviðssonar formanns
S.B.M. og lagðr voru fram
skýrslur og fjárhagsáætlun. Að
lokum var fyrri umræða um þau
mál, sem fyrir þinginu liggja. I
dag flytur Gunnar Guttormsson
formaður endurmenntunar-
nefndar Iðnaðarráðuneytisins
ræðu, en siðan verða nefndastörf
fram eftir degi. A sunnudag
verður siðari umræða og af-
greiðsla mála og stjórnarkjör.
Benedikt Daviðsson var
spurður að þvi i gær, hvort hann
teldi hættu á klofningi innan sam-
bandsins i kjölfar þess að
málarar drógu sig út úr samflot-
inu i siðustu kjarasamningum.
Hann sagðist ekki hræddur um
klofning, þótt eitt aöildarfélag .
hefði ekki gengið frá sinum
samningum. „Ég býst alls ekki
við þvi að það verði til neinna
vinslita, þótt málarar telji að
hugsanlegt sé að ná betri árangri
i kjarasamningum i þvi samfloti
sem þeir eru nú i heldur en i
heildarsamstarfinu innan Sam-
bands byggingamanna,” sagði
Benedikt. —-eös
Seltirningar:
Stjörnu-
hátíð
Safnaðarnefnd Seltjarnarness
heldur skemmtun i Háskólabiói i
dag, laugardag, kl. 14, til fjár-
öflunar fyrir kirkjubyggingu á
’ Seltjarnarnesi.
Margir skemmtikraftar koma
fram, og eru þeir flestir Sel-
tirningar. Söngur og tónlist verða
mest áberandi. Elísabet F.
Eiríksdóttir, Ragnheiður
Guðmundsdóttir, Elin Sigurvins-
dóttir og Magnús Jónsson syngja,
Gunnar Kvaran leikur á selló við
undirleik Gisla Magnússonar,
Trad-kompaniið flytur Dixieland
tónlist og tveir kórar syngja:
Barnakór Mýrarhúsaskóla og
Selkórinn. Guðrún og Ingibjörg
Pálsdætur dansa ballett, og Rúrik
Haraldsson flytur gamanmál.
Kynnir verður Guðmundur Jóns-
son óperusöngvari.
Aðgöngumiðar gilda sem happ-
drættismiðar og verða seldir i
Háskólabiói frá kl. 10 i dag.
Skemmtun þessi verður ekki
endurtekin.
—ih
Fjármál
sveitarfélaga
Samband islenskra sveitarfé-
laga efnir til ráðstefnu um fjár-
mál sveitarfélaga að Hótel Sögu I
Reykjavik þriðjudaginn n.k.
A ráðstefnunni verður gerð
grein fyrir forsendum fjárhags-
áætlana sveitarfélaga fyrir næsta
ár og fjallað um reynslu sveitar-
félaga af gerð framkvæmdaá-
ætlana til nokkurra ára i senn.
Einnig verður sérstaklega kynnt
framkvæmd nýrra laga um Hús-
næðisstofnun rikisins og reglu-
gerðir. Þá verður rædd hlutdeild
sveitarfélaga i fjármögnun
sjúkrahúsa og heilsugæslustöðva.
steinstYttur
Hollenskar.steinstyttur úr muldu
grjóti veita varanlega ánægju.
Yfir 100 geróir og margar ólíkar
stíltegundir.
KIRKJUFELL
KLAPPARSTÍG 27 SÍMI: 21090.
Stærðlr: S.M.L.XL
Litir: svart, drapp
Stæröir: 10,12,14,16
Litir: svart, drapp
Stæröir: S.M.L.XL,
Litir: svart, drapp
Stæröir: S.M.L.XL
Litir: grænt, blátt
VATT — yESTI Stæröir: 8-20.S.M.L.XL
Litir: blátt, drapp
Stæröir: 38, 40,42,44
Litir: grænt, briint
Stæröir: S.M.L.XL
Litur: blátt
Stæröir: S.M.L.XL
Litir: drapp, blátt
Stæröir: S.M.L.XL
Litur: grænt
Stæröir: XS.S.M.L.XL
Litir: grænt, blátt, drapp
Póstsendum
Stæröir: S.M.L.XL
Litir: blátt, drapp
Póstsendum
Hverfisgötu 26
Simi 28550
Laugavegi 76
5ími 15425
JAKKAR
VINIMUFATABUÐIIM