Þjóðviljinn - 28.03.1981, Side 2

Þjóðviljinn - 28.03.1981, Side 2
' 2 ‘StÐA — ÞJóÐVirjlNN 'Helgin 28.W29.'marfc • 1981 Framkvæmdanefnd hóf þegar störf, og má segja að mikill einhugur hafi i upphafi rikt þar. Hringt var til Simsen og pumpumálið reifað fyrir talsmanni fyrirtækisins. Af hálfu Simsen var nefndinni tjáð, að engin ábyrgð væri á slikum hurðarpumpum, engin pumpuþjónusta væri á vegum fyrirtækisins, en ef gera ætti við pumpuna þyrfti að taka „spennuna” af fyrst, skrúfa siðan pumpuna niður, ná svo i sérstakan „trekklykil”, sem hefði fylgt pumpunni, trekkja pumpuna svo upp og bæta einu „palli” við. Af einstaklingsframtaki í þágu sósíalismans Siðumúlinn i Reykjavik er talsvert athyglis- verð gata. Á þessu svæði eru ekki aðeins menningarmiðstöðvar dagblaðanna og sam- eiginlegt prentverk þeirra merkustu, heldur og fangabúðir islensku lögreglunnar, svo nokkuð sé talið. Við þetta Fleet Street Reykjavikur eiga sem- sagt heima bæði hin virðulegri dagblöð þjóðar- innar sem og svartholið og siðdegisblöðin. Ein af veglegustu byggingunum við götuna er tvimælalaust Þjóðviljahöllin, en hún er byggð fyrir rússneska peninga, ef mark er á Morgunblaðinu takandi, og svo náttúrlega fyrir happdrættispeninga, frjáls framlög nyt- samra sakleysingja og i sjálfboðavinnu. Þegar Þjóðviljahöllin var að risa af grunni á sinum tima, þótti mörgum sannleikselskandi stærð hennar og allur iburður með ólikindum. Að stærð slagar húsið uppi meðal einbýlishús i Arnarnesi og til að auka á rikmannlega reisn er bróðurparturinn af neðri hæðinni leigður undir húsgagnaverslun með rókókómublum. Á Þjóðviljahöllinni, þessu merka stórhýsi, er útidyrahurð, og er það raunar mergur þess máls sem hér fer á eftir. Það var i byrjun haustmánaðar að starfsfólk Þjóðviljans þóttist verða þess vart að hitastigið i stigagangi hússins væri i lægra lagi, og kom þetta einkum niður á simadömunum, vegna þess hvernig þær eru staðsettar i byggingunni. Skotið var á fundi i blaðstjórninni til að reyna að fá botn i það, hverju þessi næðingur sætti, og varð niðurstaða þeirrar rannsóknar sú, að veðurhæð virtist meiri i stigaganginum þegar útidyrahurðin var opin heldur en þegar henni var lokað. Æskilegra væri sem sagt að hafa hurðina lokaða en opna, sérstaklega þegar svalir heimskautsvindar stæðu uppá húsið. Þessi niðurstaða var bókuð, og siðan gleymdist hurðin, sem hélt áfram að standa opin allan liðlangan daginn allt haustið, eins og áður. Um veturnætur fór svo að bera á heilsubresti hjá simadömum fyrirtækisins. Þetta virtist vera svona eins og aðkenning af bronkitis, blöðru- og heilahimnubólgum, svo fram- kvæmdastjórnin tók af skarið upp á sitt ein- dæmi, án samráðs við starfsfólkið, og keypti pumpu hjá Simsen; pumpu, sem er þeirrar náttúru að hún lokar hurðum, sem ekki er lokað á eftir sér. Pumpan var svo fest upp á þjóðhátíðardegi Tyrklands þ. 20. október og urðu með tilkomu hennar timamót varðandi starfsskilyrði á Þjóðviljanum. En Adam var ekki lengi i Paradis. Á miðri jólaföstunni brast pumpan. í fyrstu veittu menn þessu litla athygli, og það var ekki fyrr en verulegur heilsubrestur fór að nýju að gera vart við sig hjá simadömunum, að ástæða þótti til að taka málið fyrir á sameiginlegum starfs- mannafundi á blaðinu. Á þessum fundi var mjög heitt i kolunum, og má segja að þetta hafi verið með storma- samari fundum á blaðinu, en að lokum var borin upp tillaga frá auglýsingastjóranum, sem einmitt er staðsettur framarlega i húsa- kynnum Þjóðviljahallarinnar, um að lima miða á útidyrahurðina, með orðinu „LOKIД. Þessi tillaga var felld eftir að útbreiðslu- stjórinn hafði bent á að nýir sjóndaprir áskrif- endur, sem kæmu að dyrunum, gætu haldið að á miðanum stæði „LOKAД. Endanlega var svo samþykkt með naumum meirihluta, að á miðanum skyldi standa „LOKIÐ HURÐINNI”. Á fundinum var siðan skipuð framkvæmda- nefnd. sem skyldi freista þess að fá gert við pumpuna. Að þessum upplýsingum fengnum tókst samstaða um að reyna að útvega mann til framangreindra umsvifa, en fljótlega þriklofn- aði nefndin útaf þvi, hvernig staðið skyldi að þeirri ráðningu. Tveir nefndarmanna álitu að pumpumál heyrðu undir Hjörleif, eins og önnur orkumál; tveir álitu að hollustuhættir á vinnu- stað.sem og heilsufar simakvenna Þjóðviljans, heyrðu undir Svavar heilbrigðismálaráðherra; en ritstjóri blaðsins sem var oddamaður i nefndinni vék ekki frá þeirri skoðun að Lúðvik væri það handgenginn pumpu- og véla- mönnum, já, og hollustuháttum á vinnu- stöðum, að hann ætti að skipa mann til að gera við pumpuna. Þessi óeining innan nefndarinnar varð svo til þess, að hvorki gekk né rak i pumpumálum blaðsins allan janúar og febrúar. Heilsufari starfsfólksins stórhrakaði vegna gegnumtrekks, og engin lausri á málinu virtist i augsýn. Þá var það núna á miðvikudaginn var, nánar tiltekið á þjóðhátiðardegi Grikklands og boðunardegi Mariu, að Gvendur blaðakóngur — strákur, sem á að fermast i vor, en ber Þjóð- viljann út, svona með skólanum — spurði ein- hvern að þvi af hverju ekki væri gert við huraðarpumpuna. Honum var sagt að það væri ekki hægt. Þá sagði hinn þrettán ára gamli út- burðarsveinn: „Lánið þið mér skrúfjárn”. Svo skrúfaði hann pumpuna niður, trekkti hana upp, bætti einu palli við, skrúfaði hana svo upp aftur. Og sjá: Hurðin féll að stöfum og hefur gert það siðan. En um leið og Gvendur blaðakóngur snaraðistút með blaðabunkann undir hendinni, til að bera boðskap vom til áskrifenda Þjóð- viljans, kvað hann þessa visu: Eitt er það sem á að vera öllum ljóst við þetta blað: Þegar eitthvað þarf að gera þá er bara að gera það. Gunnar sagöi aö aldrei yröi samþykkt að fjölga þingmönnum Reykjavikur og Reykjaness og um leið að fækka þingmönnum i öðrum kjördæmum til að halda þingmannatölunni óbreyttri. Væntanleg breyting á kjördæma- skipan myndi þvi þýða einhverja fjölgun þingmanna. Þess skal getið að Gunnar er formaður stjörnarskrárnefndar og er þá a.m.k. einn nefndarmaður búinn aðlýsa skoðun sinni á þessu máli opinberlega. Frestun Gunnar Thoroddsen lýsti þeirri skoðun sinni á almennum stjórnmála- fundi i Breiðholti s.l. fimmtu- dagskvöld aö til þess að leysa vandamálið varðandi misvægi at- kvæða þá þyrfti aö fjölga þing- mönnum Reykjavikur og Reykja- ness. Gunnar sagði að aldrei hefði tekist að leiðrétta kjördæma- skipunina nema með fjölgun þingmanna. landsfundar Sjálfstæðisflokksins til hausts var mikiö rædd á fundi með Gunnari Thoroddsen for- sætisráðherra s.l. fimmtudags- kvöld i Breiðholti. Gunnar sagði m.a. aö i leiðara Visis um ástæður frestunar heföi verið látið að þvi liggja að rikisst jórnin stæöi of vel að vigi til þess að þorandi væri að boöa til landsfundar nú. 1 leiöaranum hefði verið bent á að rikisstjórninni hefði tekist að draga úr verðbólgu, tryggja jafn- vægi i rikisfjármálum sem og að tryggja næga atvinnu. Varpaði Gunnar fram þeirri spurningu hvort að meðan rikisstjórninni tækist að framfylgja þessum þremur höfuðatriðum i stefnu Gunnar: Leiftursóknin var dapurlegt og snöggsoðið plagg Sjálfstæðisflokksins þá mætti ekki halda landsfund! Leiftursóknin var dapurlegt og snöggsoðið plagg, sagði Gunnar á fyrrnefnd- um fundi og tóku flestir ræðu- manna i sama streng. Guöjón Geir: 1 nýframkomnu frumvarpi stjórnarandstöðuarms Sjálf- stæðisflokksins um orkumál er ekki minnst á þá virkjun sem átti að vera nr. 1 skv. leiftursókninni. Hansen sagði t.d. að tilurð leiftur- sóknarinnar sýndiverst það of- beldi sem flokksmenn væru beitt- ir þar sem aöeins 2-3 menn hefðu verið látnir undirbúa plaggið og Grétar Norðfjörð sagði að sér hefði brugðið mjög þegar hann sá það. Dr. Gunnar sagði aö ekkert samráð hefði verið haft við sig um samningu plaggsins og sem dæmi um þaö hversu illa það var unniö nefndi hann að i kaflanum um orkumál hefði verið sagt að stækkun Búrfellsvirkjunar ætti að vera forgangsverkefni. Gunnar sagðist aldrei hafa heyrt minnst á það i iðnaðarráðherratið sinni að stækkun Búrfellsvirkjunar ætti að vera næsta skref, frekar hefði verið rætt um Sultartanga i þvi sambandi. Þá sagði Gunnar að höfundar plaggsins væru reyndar búnir að gera sér grein fyrir þvi hversu vitlaust þetta atriði væri þvi að i frumvarpi sem stjórnar- andstöðuþingmenn i Sjálfstæðis- flokknum hefðu lagt fram á Al- þingi um ný orkuver væri ekki minnst á þá virkjun sem átti að vera nr. 1 samkvæmt leiftursókn- inni. Borið hefur á eggjaskorti i verslunur undanfarnar vikur og i sumur búðum hafa þau alls ekki fengis’ Astæðan fyrir þessu mun vera s að hænurnar eru ekki enn búna ' aö jafna sig eftir rafmagnsleysi um daginn en það þoldu þær afa illa svo að varpið datt niðui Segja má þvi að þær séu álika sigkomnar og Sjálfstæðisflokkui inn eftir leiftursóknina frægu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.