Þjóðviljinn - 16.04.1981, Síða 7
Fimmtudagur 16. april 1981. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 7
Ýmsar hindranir verha á vegi. Þessi brú er ekki beinlinis árennileg, en stenst þó þegar á reynir.
Rætt
við
Þuríði Jóhanns-
dóttur
einkum þar sem hiti er I jörð. Út-
lendingar sem ekki hafa kynnst
öðru en borgum verða alveg frá
sér numdir þegar þeir koma út i
viðáttuna; auðnin, sandarnir og
bullandi jarðhiti; það verður
stundum að passa þá.
— Hvað vekur mesta hrifn-
ingu?
Heitu laugarnar.Við reynum að
fara i heitt bað á hverjum degi og
það kann fólk vel að meta. Auð-
vitað vekur náttúran lika mikla
hrifningu, það hefur komið fyrir
að fólk hefur verið hálf-lamað eft-
irallt sem það hefur séð. Það hef-
ur hreinlega verið of mikið að
upplifa þetta allt á hálfum mán-
uði. Það er einkum næmtfólk sem
þannig fer fyrir. Yfirleitt eru allir
mjög ánægðir sem fara um
óbyggðirnar, fæstir hafa séð
nokkuð þessu likt og þó að veðrið
sé þungbúið, jafnvel súid og rign-
ing þá er náttúran svo storbrotin
að menn eru harðánægðir. Það er
töluvert um það að útlendingar
komi aftur og aftur.
Endalaus sandur.
— ÞU minntist á veðrið, er ekki
mikill munur á þvi að ferðast I
veðri eins og þií ivstir hér i upp-
hafi eða rigningarsudda? Verður
fararstjórinn ekki að leggja
miklu meira á sig i vondu veðri?
Veðrið getur auðvitað skipt
sköpum t.d. er mikill munur á þvi
að fara suður Sprengisand i fögru
veðri þegar fjöllin sjást á allar
hendur eða þegar ekkert sést og
sandurinn virðist endalaus. Þá er
sko að standa sig og syngja nógu
mikið.
— Er ekki töluverð vinna að
undirbtia ferð um öræfin, þarftu
ekki að lesa þér mikið tii?
Ekki svo mjog . Þaö er jarð-
fræðin sem skiptir mestu, flestir
hafa áhuga á henni, að öðru leyti
sér náttúran og landið um að
segja svo margt án orða. Það að
vera Islendingur er nóg til að
svara þeim spurningum sem
fram koma. Útlendingar spyrja
um fólkið i landinu, hvað það ger-
ir, hvernig lifi er lifað og annað
það sem við öll vitum sem búum
hér. Það eru sárafáirsem hafa á-
huga á fornbókmenntunum. Það
er annað sem skiptir meira máli
fyrirfararstjóra og það er að geta
miðlað virðingu fyrir landinu og
kenna ferðamönnum rétta um-
gengni. Það þarf að brýna það
fyrir útlendingum hvað islensk
náttúra, sérstaklega gróðurinn, er
viðkvæmur, benda þeim á að slita
ekki upp blómin og ganga ekki á
viðkvæmum blettum. Ég hef oft
sýnt hjólför sem hverfa ekki fyrr
en mörgum árum eftir að einhver
hugsunarlaus bilstjóri spænir upp
jarðveginn.
— Hefurðu orðið vör við að
ferðamenn taki með sér náttúru-
minjar?
Nei, í okkar ferðum höfum við
ekki farið um staði þar sem slikt
er að finna. Það er helst að fólk
taki með sér hraungrýti.
— Heldur þú að ferðamanna-
straumurinn um hálendið sé far-
inn að valda tjóni?
Nei það held ég ekki. Það er
viða gifurleg umferð, eins og i
Herðubreiðarlindum, en ég held
að ef vel er gengiö um, þá þoli
landið umferðina.
Langar alltaf
aftur.
— Hvað finnst þér sjálfrí vera
skcmmtil egustu staðirnir á
hálendinu?
Ég verð aldrei þreytt á þvi að
koma inn á öræfin og mig langar
alltaf þangað aftur. öræfa-
bakterian er ein þeirra sem aldrei
læknast. Herðubreiðarlindir og
Askja eru alltaf heillandi, en
einnig að fara yfir Sprengisand i
góðu skyggni. Þvi miður brenna
margir sig á þvi að þeysa yfir
sandinn (eða réttara sagt hoss-
ast) og gefa sér ekki tima til að
stoppa og skoða útsýnið og nátt-
úruna. Það er t.d. mjög fallegur
foss efst i Bárðardalnum sem
heitir Aldeyjarfoss. Hann er sér-
kennilegur fyrir stuðlabergsum-
gerðina kringum hann. Mjög fáir
vita af honum og hann er ekki
merktur inn á heildarkort af
landinu. Sá sem fer yfir sandinn
án þess að skoða fossinn, hann
missir af miklu.
— ká
Nú komast
ÚTSÝNARFARÞEGAR
í beinu flugi til
MALLORKA
á vinsælustu baðstrendurnar þar sem glaðværðin
ríkir og andrúmsloftið er alþjóðlegt og óþvingað
Gott úrval verslana og veit-
ingahúsa
— næturlifið fjörugt og fjöl-
breytt og skemmtilegar
kynnisferðir.
Bestu gististaðirnir: PORTO-
NOVA, HOTEL VALPARV-
ISO og HOTELGUDA-
LUPE.
PORTONOVA ★ ★★★
Glæsilpgt, vel bflið ibúðarhótel I Pajma
Nova, með ölliim þægindum. Bjartar,
rúmgóðar ibúðir með 1—2 svefnherbergj-
um, setustofu, eldhúsi, baðherbergi og
svölum. Fyrsta flokks kaffiteria, mat-
vöruversiun og eitt besta (fimm stjörnu)
veitingahús á Mallorka er i Portonova.
Inni- og útisundlaug, góð sólbaðsaðstaða
og steinsnar á ströndina. Tvimælalaust
einn sá besti fyrir barnafjöiskyldur, sem
Ctsýn býður upp á.
Beint
ngar millilendingar
Hótel VALPÁRAISO ★ ★ ★ ★ ★
Þetta frábæra lúxushótel stendur f 22.500 fermetra garði i
ibúðárjtverfinu „La Bonanova” fjarri öllum skarkala, en'
aðeins fárra minútu fjarlægð frá miðborg Paima. Búm-
góð, fagurlega búin svefnherbergi, með elnkabaði, sima,
sjónvarpi, mini-bar og svölum. Matsalir, barir og nætur-
klúbbar. Sundiaugar — úU og inni — góð sólbaðsaðstaða, f
þróttasalur, gufubað, nuddstofa o.m.fl.
Eitt glæsilegasta hótel Evrópu, sem uppfyllir kröfur
þeirra allra vandlátustu.
Verð frá kr. 5.170,00 i 3 vikur
Hótel ÖUDALUPE ★ ★ ★
. . t
Vistlegt þriggja stjörnu hótel ulH 300 m frá ströndinni I Magaluf. öll
herbergi með einkabaði og svölum. Rúmbóðar setustofur, barir og
matsalur. Inni- og útisundlaug ásamt barnalaug. Viö sundlaugina eru
framreiddir smáréttir I hádeginu. Hálft eða fullt fæði.
Brottfarardagar: '
- 6. mai — 27. mai — 17. júni -
29. júli — 19. ágúst — 9. sept.
8. júlí
Sérstakur fjölskylduafsláttur
í ferðina 6. mal
Austurstræti 17
Símar 26611 og 20Í00