Þjóðviljinn - 16.04.1981, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 16.04.1981, Blaðsíða 17
Fimmtudagur 16. april 1981. þjöÐVILJINN — SÍÐA 17 Ferðaskrifstofa stúdenta 1 sumar býður Ferðaskrifstofa stúdenta uppá fjölbreytilegar feröir. Með tilkomu APEX far- gjalda og samvinnu við S.S.T.S., DlS-rejser i Kaupmannahöfn og Worldwide Student Travel i Lon- don hafa opnast nýir möguleikar á ódýrum fcrðum um Evrópu. Fyrsta ferö sumarsins verður síöast i mai,en siðan verður flogið vikuiega til Kaupmannahafnar og Luxeinborgar. Fvrir þá sem áhuga hafa á aQ ferðast á eigin vegum eru Inter- rail-kortin ágæt lausn. bar er um að ræða kort sem veitir öllum undir 26 ára aldri rétt til ótak- markaðra ferða innan 19 Evrópu- landa. Kort þessi kosta 1250 krónur. Einnig má fá þau innifal- in i ferðum eins og eftirfarandi tvö dæmi sýna. Flug: Reykjavik — Luxem- borg — Reykjavik og Interrail kort 3050 krónur. Flug: Reykjavik — Kaup- mannahöfn — Reykjavik og Interrail-kort 3536 krónur. Gildistimi kortanna er einn mánuður. Einnig er hægt að fá kort sem veita rétt til ótakmarkaðra ferða innan Skandinaviu. Þarna er um að ræða svo nefnd Nordturist kort. Þau gilda ýmist i 21 dag og kosta þá 1000 krónur eða 30 daga og kosta þá 1235 krónur. Þriðji möguleiki á kortum af þessu tagi eru Eurotrain kort. Þau veita öllum yndir 26 ára aldri afsláttaf lestargjöldum milli ein- stakra staða i 23 Evrópulöndum. Dæmi um verð má nefna: Kaupmannahöfn — Parfs — Kaupmannahöfn. Almennt far- gjald 1013 krónur, Eurotrain far- gjald 648 kronur. Fyrir þá sem vilja eyða sumar- leyfinu á rólegum stað hefur Ferðaskrifstofa stúdenta á boð- stólnum sumarhús i Danmörku, Noregi og Sviþjóð. Áætlað verð er 500 danskar krónur á viku fyrir manninn. 1 samvinnu við S.S.T.S. getur Ferðaskrifstofastúdenta nú boðið upp á athyglisverðar hópferðir um Sovétrikin. Ýmist er þarna um að ræða eins eða tveggja vikna ferðir sem kosta frá 5100 krónum. 1 verðinu er m.a. inni- falið allt uppihald innan Sovét- rikjanna, auk fjölda skoðunar- ferða meðan á dvölinni stendur. Rétt er að taka fram að ferðir þær sem farnar eru á vegum Ferðaskrifstofu stúdenta eru öllum opnar. Frekari upplýsingar veitir for- stöðumaður ferðaskrifstofunnar Sigriður Magnúsdóttir á milli kl. 9 og 5 alla virka daga. COtt^verö og greiöslukjör. Nú er rétti tíminn til aö athuga meö utanborös- mótor fyrir sumariö. Eigum til afgreiðslu nú þegar mótora frá 2—40 hestöfl. BÍLABORG HF SMIÐSHÖFÐA 23, SÍMI 81265. jnl ■JiillllsÉ FERÐIST ODYRT! Vikulegar ferðir til Kaupmannahafnar og Luxemborgar. Brottfarardagar: Kaupmannahöfn - laugardaga Luxembourg - miðvikudagar Dæmi um verð: Fargjald Reykjavik - Kaupmannahöfn - Reykjavik kr. 2.286,— Fargjald Reykjavík - Kaupmannahöfn - Reykjavik, ogfflnterrail kort kr. 3.536,— Flug Reykjavík - Luxembourg - Reykjavík og Interrail kort kr. 3.050,- APEX fargjöld iyrir þáf sem vilja hafa ákveöinn brottfarar- og heimkomudag og vilja dvelja lengur en 30 daga: Glasgow - kr. 1.892,— London - kr. 2.189,— Oslð - kr. 2.316,- Stokkhólmur - kr. 2.896,- Kaupmannahðfn - kr. 2.539,- HÖFUM UMBOÐ A ÍSLANDI FYRIR S.S.T.S. OG DIS-REJSER I KAUPMANNAHöFN OG WORLDWIDE STUDENT TRAVEL l LONDON, SEM OPNAR NÝ JA MÖGULEIKA A ÓDÝRUM FERDA- MÖGULEIKUM UM EVRÓPU, T.D. STUTTAR FERÐIR FRA LONDON TIL PARISAR OG AMSTERDAM OG STÚDENTAFERÐ- IR FRA KAUPMANNAHÖFN SUÐUR A BÓGINN OG TIL FJAR- LÆGRI STAÐA. ÓDÝRU LESTARFARGJÖLDIN eru lausnin fyrir þa, sem FERDAST VILJA A EIGIN VEGUM. INTERRAIL: Veitir öllum undir 26 ára rétt til ótakmarkaðra ferða innan 19 Evrópulanda. ~ - "v, Verð kr. 1.250.- ** STuDENTAR ATHUGIÐ: afgreiðum alla innanlandsfarseðla bæði fyrir HÓPAOG EINSTAKLINGA. PANTIÐ TIMANLEGA FERÐINA HEIM I PASKALEYFINU. OKKAR FERÐIRMIÐAST VIÐ YKKAR FJARHAG. NORDTURIST: Engin aldurstakmörk. Veitir rétt'tll ótakmarkaðra ferða innan Ska ndinavíu. Verð i 21 dag: kl. 1.000,- Verð i 30 daga: kr. 1.235,- EUROTRAIN: Veitiröllum undir26ára afsláttaf lestarfargjöldum milli einstakra staða í 23 Evrópulöndum. Dæmi um verð: Kaupmannahöfn — París — Kaupmannahöfn: Almennt fargjald: kr. 1.013,- Eurotrain fargjald: kr. 648, StúdentaheimHinu við Hringbraut - Sími 15656

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.