Þjóðviljinn - 16.04.1981, Blaðsíða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. april 1981.
GRANADA
spánskari en allt
sem spánskt er
„Quien no ha visto
Granada/ no ha
visto nada".
Þessi spánski málshátt-
ur, sem þýðir — sá sem
ekki hefur séð Granada,
hefur ekkert séð — segir
meira um álit Spánverja á
borginni en löng grein.
Granadaborg er nefnilega
helgidómur í augum þeirra
sem unna sameinuðum
Spáni og vissulega vill
meirihluti Spánverja að
land þeirra sé eitt og sam-
einað þótt aðskilnaðarsinn-
ar finnist víða í héröðum
Spánar. En hvað er það þá
sem gerir Granada svo
merka í augum þeirra sem
vilja sameinaðan Spán?
Jú, skýringin er afar ein-
föld, Spánn var samein-
aður f eitt ríki í fyrsta sinn
i sögunni þann 1. janúar
1492 og sá atburður fór
fram í Granada. Lokaor-
usta katólsku konungs-
hjónanna Ferdinants og
ísabellu geqn Márum,
Þar gefur
að líta
fegurstu
Mára-höll
heims
þegar þau voru_pð vinna
Spán úr höndunum þeirra
var um Granad^ og
Granadahérað. Síðasti
konungur Mára á Spáni
hét Boabdil og hann gafst
upp fyrir þeim Ferdinant
og ísabellu síðla árs 1491
og samdist svo um, að upp-
gjöf hans færi formlega
fram 1. janúar 1492. Þann
dag reið hann með hirð
sína útúr borginni, hitti þar
fyrir Ferdinant og Isa-
bellu og afhenti fsabellu
borgarlyklana með þess-
um orðum, „Hér með af-
hendi ég yður lyklana að
Paradís". Síðan hélt hann
með sitt fólk áleiðis að
Gíbraltarsundi og ætlaði
yfir um til Marokko, en
Spánverjar rufu á þeim
griðin, konungur var
handtekinn og fangelsaður
í Sevilla, þar sem hann
endaði Iff sitt. En meira
um það síðar.
Mexucarsalurinn og innaf bænahiisið,
Elsti hluti Granada-borgar,
skjannahvft hús með rauðum
leirsteinsþökum.
Púls Spánar
Margt hefur verið ritað um
Spán og spönsk málefni i gegnum
tiðina og af mismikilli þekkingu
og mannviti. Sá sem hefúr ritað
um spönsk málefni af einna
mestu viti og þö alveg sérstak-
lega um-spönsku borgarastyrj-
öldina er rithöfundui'inn ijugh
Thomas. Hann segir á einum"staö
i skrifú'm sinum að sá seVn ekki
hafi komið til Granada, hafi ekki
komið til Spánar. Má kannski
sggja að hér sé sterkt tekið til
orða , en nokkurt sannleikskorn er
þó i þessum- orðum að finna. ^
Sannleikurinn er sá, að i Granada
rikir andriímsloft sem menn
finAa tíauðla anaarsstaðar i land-
inu. Og þaö er alveg sérstök til-
finning sem menn fá við að koma
til Granada. Vissulega standa
borgirnar Sevilla og Cordoba þar
ekki langt að baki, en samt, þar
finnur maður ekki sama and-
_