Þjóðviljinn - 16.04.1981, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. april 1981.
I.........----------------
Framhald af bls. 13
meira en gó6u hófi gegnir. Þannig
eru sigaunar, uppáþrengjandi
varhugaverðir i viðskiptum, en
vinir vina sinna og hin athyglis-
verðasta þjóð. Þeir einir segjast
vita allan leyndardóm stjörnu-
fræðinnar og að sá leyndardóm-
ur muni aldrei útfyrir kynstofn-
inn fara.
ALHAMBRA— Rauða
höllin
Tvennt er það sem Granada-
menn eru stoltastir af fyrir utan
það að vera GranadabUar, en það
er hin undur fagra Alhambrahöll
og listigarðarnir Generalife.
Alhambrahöllin er sögð vera
fegursta höll sem Márarnir
byggðu á sinni tið og er þá miklu
til jafnað og Generalife garðarnir
einhverjir fegurstu skrúðgarðar
heims. Höllin var reist á 14. öld og
er talið að hún hafi verið 92 ár i
byggingu og undrar engan sem
sér hana þegar miðað er við
byggingartækni þess tima. Sá
Márakonungur sem hóf byggingu
hennar hét Yusuf 1. og hann valdi
henni stað uppá hæð, þar sem vel
sést yfir borgina inni miðju Alca-
zaba-virkinu sem er frá 13. öld.
Höllin er öll byggð Ur rauðbrún-
um múrsteini og ber þvi nafn með
rentu.
Venjulega byrja menn á þvi að
skoða höll sem Karl V. Spánar-
verið timamælir á sinni tið. Hafi
spyst vatn Utúr munni þess ljóns
er stendur fyrir tölurnar 1-2-3-4
o.sv.frv. og hafiþrælar gætt þess
að skrúfa frá vatninu á viðkom-
andi ljóni á klukkustundar fresti.
Þessar ljónastyttur vekja mönn-
um einnig nokkra undrun, vegna
þess að það er ekki siður
MUhameðstrúarmanna að
skreyta með styttum af mönnum
eða dýrum. SanntrUaðir MU-
hameðstrUarmenn segja að sál
manns sé stolið er tekin er ljós-
mynd eða gerð eftirmynd af hon-
um á einhvern hátt. Þvi er það
hald fróðra manna að ljónastytt-
ur þessar hafi verið gerðar af
kristnum listamönnum i Sevilla
en klukkuhugmyndin heillaði
Márakonung og þvi hafi stytturn-
ar verið settar upp.
Valdastríð og blóðbað
Umhverfis Ljónagarðinn eru
nokkur afskaplega fögur her-
bergi, sem konungsf jölskyldan
bjó i. A hægri hönd er herbergi
eða salur sem kenndur er við
Abencerrajas-ættina i Granada.
Nafnið á þennan sal er þannig til-
komið að þegar séð var að Boab-
dil, siðasti Márakonungurinn
hafði tapað striðinu við Ferdinant
og Isabellu vildu áhrifamenn i
Granada styðja hálf bróður hans
GRANADA
konungur, dóttursonur
Ferdinants og ísabellu lét reisa
við hliðina á Alhambra. Hann
öfundaði Márana af að hafa byggt
þessa fallegu höll og ákvað að
láta byggja fegurri höll við hlið-
ina tilaðsýna fram á að Márarn-
ir, sem voru mjög hataðir af
katólskum á Spáni á 16. öld, væru
ekki þeir einu er gætu byggt fagr-
ar hallir. Höll sú er Karl V. lét
byggja er vægt sagt hörmuleg
bygging og samanburðurinn
verður aðeins til þess að gera Al-
hambra enn fegurri i augum
skoðandans.
Allah einn er voldugur
Þegar haldið er inni Alhambra-
höllina erfyrstkomiðinnisal sem
heitirMexucar, sagður hafa verið
þingsalur og þar er sagt að Mára-
konungar hafi tekið á móti al-
menningi neðan Ur borginni, er
gat fengið áheyrn hjá konungi
tvisvar f viku hverri. Innaf þing-
salnum er bænahús Muhameðs-
trúarmanna. Milli Mexucar-
salarins og sjálfrar hallarinnar er
þröngur garður, sem einnig nefn-
ist Mexucar. Hér er um að ræða
svo nefnt „patio” en Márar inn-
leiddu þá byggingalist til Spánar,
sem siðan hefur verið kölluð
spönsk byggingarlist. Er þar um
að ræða fremur þrönga garða
með háum veggjum svo alltaf má
finna skugga i hitanum.
Næst gengur maður svo inni
höllina sjálfa og þá er fyrst komið
i stóran garð, sem nefnist Myrtu-
garðurinn, nefndur eftir runna-
gróðri sem þar er umhverfis
fagra tjörn. Við annan endann er
miðstöð hins forna stjórnseturs
Máranna, Bátssalurinn og Há-
sætissalurinn, sem er ef til vill-
fegursti salur hallarinnar og sá er
best hefur varðveist. Þessi salur,
eins og raunar flestir salir Al-
hamra er skreyttur UtflUri og
arabiskum áletrunum úr alabasti
frá gólfi til lofts. Þessar arabisku.
áletranir eru allar hól um Yu'suf
1. þann er byggði hana, nema
hvað á einum stað i hverjum sal
er ein áletrun „Allah einn er
voldugur”.
Hinn einstæði Ljónagarður
Eftir að hafa skoðað miðstöð
stjórnsetursins höldum við inni
Ljónagarðinn og salina um-
hverfis hann, en þarna var einka-
heimili konungs og fjölskyldu
hans. I Ljónagarðinum miðjum
er gosbrunnur og umhverfis hann
stytturaf ljónum, 12talsins. Þeim
er raðað epp eins og tölustöf unum
á klukku. Spýtir hvert ljón vatni
Utum munninn og er það hald
manna að gosbrunnurinn hafi
til valda, ef það gæti orðið til þess'
að semdist um vopnahlé og ekki
kæmi til beinnar orustu um
Granadaborg. Abencerrajas ætt-
in var voldugasta ættin i Granada
og 12 æðstu menn hennar fóru til
fundar við Boabdil um málið.
Hann bauð þeim inni þennan sal,
þar biðu þá hermenn sem hand-
tóku þá og hálshjuggu við stóran
gosbrunn sem er i salnum miðj-
um . Segir sagan að brúnir blettir
sem eru á botni hans sé blóð
Abencerrajas-ættarinnar sem
aldrei muni hverfa.
Úr þessum sal göngum við aft-
ur Ut i garðinn og fyrir enda hans
þar sem hibýli konungsins voru.
Þar eru nokkur mjög fögur her-
bergi og heitir þar Salur konung-
anna. I lofti afhýsa eru leðurmál-
verk af orustum kristinna manna
og arabískra. Þessi málverk voru
orðin æði illa farin og hafa verið I
viðgerð sl. 4 ár en voru komin á
sinn stað siðla sumars i fyrra.
Þegar við höfum skoðað Sali
konunganna förum við til salar
sem heitir Salur tveggja systra.
Nafn sitt færhann af tveimur risa
stórum marmaraplötum i gólfi,
þeim stærstu sem til eru i
Granada, fengnar Ur Sierra,
Nevada.
Sagt er að i þessum salar-
kynnum hafi móðir Boabdils
siðasta Márakonungsins búið. Úr
þessum sal höldum við áleiðis til
baðanna og förum þá i gegnum
. tvö herbergi sem stinga i stúf við
það sem áður hefur verið skoðað
i höllinni. I þessum herbergjum
er sagt að Ferdinant V. hafi dval-
ist um tfma. Hann þoldi ekki
skreytingar Máranna og lét
breyta herbergjunum á sinn
ósmekklega hátt. Þarna inni er
veggplatti með áletrun þar sem
sagt er frá þvi að bandariski rit-
höfundurinn Washington Irving
hafi bUið i herbergjunum árið
1829 þegar hann dvaldist meðal
sigauna og annara Utigangs-
manna i' höll og skrifaði sinar
frægu „Sögur frá Alhambra”, en
meira um það siðár. ,
Blinduðu hljóðfæraleikar-
arnir
A leið okkar til baðanna förum
við yfir brU, þaöan sem fegurst,er
Utsýni yfir elsta hluta Granada
borgar. En niðri eru svo jjin
margfrægu gufuböð en það voru
einmitt Márar sem kenndu
EvrópubUum að nota gufuböö og
heitar kerlaugar i lækningaskyni.
Þarna er auövitað um að ræða
frumstæðustu gerð gufubaða,
hitaða steina i gólfi sem köldu
vatni var skvett yfir. En innaf
gufubaðinu er hvildarherbergi af-
t
Böðin I Alhambra. A svölunum efst á myndinni lék hijómsveit, en til
þess að komast ihana urðu menn aðláta stinga úr sér augun.
Úr Generalife-garðinum
skaplega fagurlega skreytt. Þar
eru svalir og á þeim er sagt að
hljómsveit haff leikið fyrir þá er
„hvildust” i herberginu. En til
þess að koma^t i þessa hljómsveit
urðu menh að láta stinga Ur sér
augun, þeir urðu að vera blindir.
Þarna hefur sum sé eitthvað það
farið fram, sem almenningur
mátti ekki fá vitneskju uin.
Þegar UtUr böðunum kehiur er
skoðunarferð um sjálfa höllina i
raun lokið. Þegar Ut er komið
blasir við hin fegursti hallar-
garður með runnagrbðri, gos-
brunnum og blómabeðum. Og
enda þótt flestum þyki nóg um
fegurðina, þá er meira að sjá.
Genera I i fe-ga rða r ni r
Sjálfir skrautgarðarnir
Generalife eru eftir. Eftir svo
sem eins og 20 minútna göngutúr
(um virkið kenjur maður i þessa
undur fögru listi&arða. Orð og
svarthvitaf ljósmyndir segja ekki
neitt þegar talab er um Genera-
life. Skipulag gkr|ami9 er lista-
verk og þær byggingaV'sfem þeir
tilheyra einnig. Ferðamenn sem
víða hafa farið ljúka upp einum
munni um það að fegurri listi-
garða hafi þeir ekki augum litið,
ka,nnski stærri, en tæplega
fegurri.
Washington Irving
og Alhambra
Eftir að þau Ferdinant og Isa-
bella höföu hrakið Márana frá
Spáni og sett á stofn hinn ill-
ræmda spænska Rannsóknarrétt,
sem hreinsa átti þjooina at attri
villutrU, var hatrið meðal
katólskra á öllu sem Máriskt var
með ólíkindum. Það mun þó ekki
hafa verið fyrr en á miðri 16. öld
sem þetta hatur náði hámarki.
Fyrir bragðið var reynt að eyði-
leggjaeða gleyma öllu sem Már-
ar höfðu gott gert á Spáni. Þannig
fór lika með Alhambra og
Generalife garðana. Þau féllu I
gleymskunnar dá. En árið 1829
kom til Granada frægur banda-
rlskur rithöfundur, Washington
Irving.
Hann hafði heyrt talað um
Alhambra, leitaði höllina uppi og
settis þar að og tók að skrifa hinar
frægu sögur sinar sem hann
nefndi „Sögur frá Alhambra”. Þá
vaknaði umheimurinn af vondum
svefni, þarna var eitthvað sem
var þess virði að skoða það nánar.
Þegar að var komið var höllin full
af sigaunum og Utigangsfólki,
sem sest hafði að i höllinni og lifði
vel. Það var rekið burtu og gert
við það sem hægt var og hreinsað
til. Vissulega ber Alhambra höllin
þess menjar að hún komst i niður-
niðslu og fyrir þá synd verður
aldrei kvittað. En allt hefur verið
gert sem hægt er til að koma
henni I eiús gott stand og hægt er.
Aftur á móti voru Generalife
garðarnir orðnir óhrjálegur villi-
gróður. En þá vildi Spánverjum
það til happs, að frumteikningar
af garðinum frá 14. öld, fundust i
gömlum skjölum niður i borginni.
Þvi var hægt að rifa villi gróður-
inn niður og byggja garðinn upp
aftur eins og hann var i upphafi
og það var gert. Spánverjar
þakka Washington Irving það að
Alhambra bjargaðist frá algerri
eyðileggingu og er minningu hans
haldið á lofti I Granada, ýmislegt
þar er heitið eftir honum.
Kolumbus og aðrir frægir
menn
Sá atburður, sem haft hefur
meiri áhrif á söguna en flestir
aðrirer strand Kristofers Kolum-
busar i Ameriku. Þessi frækni
sjófari hafði leitað eftir fjárhags-
legum stuðningihjá ttaliukonungi
og PortUgalskonungi til að finna
sjóleiðina til Vestur India. Hann
fékk synjun hjá báðum. Arið 1492,
er þau Ferdinant og ísabella
sátu I sigurvimu uppi Granada,
eftir að hafa endanlega sameinað
Spán I eitt riki leitað hann til
þeirra með stuðning. Og enda þótt
Spánn væri þá fátækara land en
bæði ítalia og PortUgal veittu þau
honum stuðning, 5 Uthafsskip
fullbúin og mönnuð. Hann lagði af
stað og strandaði i Ameriku. Allir
þekkja framhaldið. Spánn varð á
örfáum árum rikasta og voldug-
asta riki heims og sú dýrð stóð i
eina öld, „Siglo de oro” gullöld-
ina, sem er 16. öldin. Eftir það
hófst hnignunin, sem stóð sam-
fleytt til ársins 1936 að hin
grimmtiðlega borgarastyrjöld
hófst og siðan valdataka fasistans
Francisco Franco, sem stjórnaði
landinu með harðri hendi frá 1939
til 1975. En það er önnur saga.
Þrir af frægustu listamönnum
Spánar á þessari öld eru
Granadamenn. Skal þar fyrstan
telja ritsnillinginn og skáldið
Federico Garcia Lorca. Hann
fæddist árið 1898 i Granada og þar
var hann myrtur á götu af
stuðningsmönnum Francos árið
1936, þegar hann kom heim til að
kveðjaviniog vandamenn ákveð-
inn i að flýja land, enda var hon-
um þá ekki orðið lengur vært i
landinu, þar sem fasistar sátuum
lif hans, enda var hann einn
harðasti andstæðingur þeirra
sem fyrir fannst, hvassari penni
en aðrir, maður sem margir
hlustuðu á.
Þá má nefna, þá Andre Segovia,
frægastur þeirra m'anna er leika,
klassiska tónlist á gitar og selló-'
snillingurinn Pablo Casals, sém
er dáirjn fyí-ir fáeinum árum, en
Segovia lifir enn háaldraður.
Þvi miður þefur hér aðeins
verið s’tiklað á stóru, því hægt er
að skfifa heilar bækur um
Granadp hefur það raunar
verið gert.' Ejjginn sem kemur til '
Spánar bg á þess ko^t að skoða ■
Granada og upplifa það andrUms-
loft sem rfkir i borginni, ætti að
sleppa þvl tækifæri.
—S.dör
i