Þjóðviljinn - 16.04.1981, Qupperneq 16
16 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Fimmtudagur 16. aprll 1981.
SÓLARLANDAFERÐIN
HEFST í
Glæsibæ
Alfheimum
74
83210
simi
mm
Strandfatnaöur
á dömur á öllum aldri
Sólkjólar, strandsloppar,
bikini og sundbolir
Barna-, unglinga- og
fullorðinsstærðir
Póstsendum um land allt
ÚTIVIST
er holl
göngur eru góö
íþrótt.
Gangið með Útivist.
Gangið í Útivist.
ÚTIVIST
Lækjargata 6 — Pósthólf 17
Reykjavík s. 14606
Sumarferðir:
Sumarið er í nánd á því
leikur ekki nokkúr vafi.
Launafólk hefur nú flest
ákveðið hvenær það fer í
frí, sumir fá að vel ja, aðrir
fá leyfi um leið og fyrir-
tækin loka. Ferðaskrif-
stofurnar hafa fyrir löngu
tekið viðsér og núgeta þeir
sem hyggja á ferðalög
lagst undir feld og hugsað
ufir páskana, eða flett
bæklingum og skoðað aug-
lýsingar. Hér fylgir á eftir
það helsta sem boðið er
upp á í sumarfriinu, nú er
að spara og herða sultar-
ólina ef langferð er í sigti.
Við sleppum því að nefna
verð og vísum til bækl inga
ferðaskrifstofanna sem
eru auðfengnir.
Ferðafélag íslands
Ferðafélagið hefur um margra
ára skeið boðið upp á stuttar
ferðir fyrir þá sem vilja hreyfa
sig, gönguferðir i nágrenni bæja,
helgarferðir Ut á land eða upp i
óbyggðir og sumarleyfisferðir
sem taka allt frá 4—11 daga. Af
stuttum ferðum má nefna kvöld-
göngur, ræktunarferðir, ferð á
söguslöðir i Borgarfirði o.fl.
Fastar helgarferðir eru i Þórs-
mörk, Landmannalaugar, Hvera-
velli og til Alftavatns. Gist er i
skálum Ferðafélagsins. Um
verslunarmannahelgina verða
farnarsérstakar ferðir, en nánari
upplýsingar er að finna i bæklingi
F.í.
Úrval
Ferðaskrifstofan úrval hefur á
sinum snærum ferðir til sól-
stranda i Portugal (Algarve),
Italiu, (Sorrento) Rúmeniu
(Mamaia) og Mallorca (Ibiza).
Af öðrum ferðum má nefna viku-
ferðir til London og New York og
Floridaferðir. Úrval hefur umboö
fyrir bila- og far
þegaferjuna Smyril, sem fer til
Færeyja, Skotlands, Danmerkur
og Noregs.
Það sem telst þó til helstu
nýunga 1 starfsemi (Jrvals er
samræmt flug og flutningur á
bilum til meginlandsins. Flogið er
til Skotlands, Luxemburgar og
Kaupmannahafnar sama daginn
og billinn kemur á land. Þá býöur
(Jrval upp á sérstök fargjöld fyrir
ungt fólk undir 26 ára aldri, flug-
miða og 30 daga lestarmiða, sem
hægt er að nýta að vild.
Ferðamiðstöðin______________
Ferðamiðstöðin stefnir
straumnum til Spánar á bað-
ströndina i Benidorm, en þangað
er beint flug. Auk þeirra ferða
bjóðast helgarferðir til New
York, en það sem Ferðamiðstöðin
hefur sérhæft sig i, er að skipu-
leggja ferðir á kaupstefnur Uti i
Evrópu. Af slikum sýningum má
nefna hUsgagnasýningu i
Kaupmannahöfn sem hefst 5.
mai, Scandinavian Furniture
faire. Hinn 14.—20. mai verður
sýning á pökkunar- og sælgætis-
vélum o.fl., svokölluð Interpack
sýning. Interzun nefnist sýning
sem verður i Köln 22.-26. mai,
þar verða sýndar innréttingar,
innanhússkreytingar, húsgögn og
annað sem þvi tengist. Interstoff
Hvaö er í boði,
hvert á að halda?
Útivist____________________
Útivist býður upp á stuttar
ferðir fyrir þá sem vilja fá sér
göngutUr um helgar og komast út
fyrirbæinn. Farið er á kræklinga-
fjöru, göngur á fjöll og um f jörur,
fuglaskoðun er á dagskrá og
einnig má nefna siglingu um
sundin blá og Viðeyjarferð. Af
lengri ferðum má nefna sumar-
leyfisferðir sem taka 6—13 daga
allskonar helgarferðir, hesta-
ferðir og veiði, en einnig er boðið
upp á sérstakar ferðir til útlanda
t.d. Grænlands. Sjá bækling frá
Otivist.
Úlfar Jacobsen______________
Hálendisferðir eru sérgrein
ferðaskriftofu (Jlfars og er um
tvenns konar langar ferðir að
ræða. Annars vegar er farið vest-
ur og norður á Strandir, gist á
KlUku, en síðan haldið til Akur-
eyrar, HUsavikur, i Mývatns-
sveitina og suður Sprengisand.
Ferðin tekur 13 daga. Hins vegar
er svo hálendisferð sem hefst á
þvi að ekið er austur á bóginn i
Þórsmörk og siðan til Horna-
fjarðar, Egilsstaða og inn á
hálendið. SU ferð tekur lika 13
daga. Sex daga ferð er blanda af
byggða- og óbyggðaferö, farið er
upp i Borgarfjörð, til Þingvalla,
Gullfoss og Geysis, inn á hálendi,
i Landmannglaugar, Eldgjá og
siðan yfir til Skaftafells. úlfar
býður einnig upp á hringferð
umhverfis landið i 12 daga.
Islendingum er boðið upp á sér-
stök vildarkjör i þessar ferðir.
Ferðaskrifstofa ríkisins
Ferðaskrifstofa rikisins hefur á
boðstólum bæði styttri og lengri
ferðir, allt frá 2 1/2 tima ferð um
Reykjavik til 10 daga hring-
ferðar. Dagsferðir eru á vinsæla
ferðamannastaði eins og Gullfoss
og Geysi, i Þjórsárdalinn, og
viðar, og eru þessar ferðir fyrst
og fremst miðaðar við erlenda
feröamenn sem hingað koma. Af
lengri ferðum má auk hring-
ferðarinnar nefna fjarða og
fjallaferö sem tdíur 6 daga, fimm
daga ferð um Suðurland og 10
daga ferð um Suður- og Vestur-
land. Ferðaskrifstofa rikisins
hefur þá sérstöðu að hafa Eddu-
hótelin á sinum snærum og gist-
ing á þeim tilheyrir lengri ferð-
um.
í sól og sumaryl
Ef hugurinn stefnir Ut fyrir
landsteinana er um margt að
velja. Hér verður stiklað á þvi
helsta, einkum þvi sem nýstár-
legt má telja, en sólarferðir
ferðaskrifstofanna eru hefð-
bundnar að venju. Fastar feröir
eru til Spánar, þar með talin
Mallorka, ítaliu, JUgóslaviu,
BUlgariu og RUmeniu.
Útsýn________________________
Ferðaskrifstofan útsýn skipu-
leggur ferðir til Spánar (Costa del
Sol, Marbella, Torremolinos,
Palma Nova og Magaluf á Mall-
orca) Lignano á ttaliu, Portoroz i
JUgóslaviu og Flórida i Banda-
rikjunum. Farið er vikulega i
beinu leiguflugiá alla þessa staði,
i fyrsta sinn i ár til Mallorca.
Af öðrum ferðum útsýnar má
nefna Mexikóferð sem farin
verður i jUni. Flogið er til New
York, gist þar eina nótt, en siðan
haldið á baðströndina Maztlan i
Mpxikó. A fimmta degi er haldið
til Los Mochis, og siðan til
Cerocahui, farið er um indiána-
þorp og litið á Cerocahuifossinn
og Uriwue-gilið. A niunda degí er
flogið til Arezona i USA, farið þar
um eyðimerkur og „villta
vestrið” allt upp til Las Vegas
sem næst á 14. degi. Þaðan er
flogið til Chicago þar sem stigið
er um borð á islenska vél og
haldið heim á leið. Auk þessa má
nefna að Útsýn Utvegar sumarhús
á Sjálandi, selur ferðir með
Tjæreborg ferðaskrifstofunni og
einnig tekur starfsfólkið aö sér að
skipuleggja ferðir fyrir fólk sem
fer á eigin vegum.
nefnist vefnaðarvörusýning sem
verður i Frankfurt 5.-8. mái.
Ferðaskrifstofa
Kjartans Helgasonar
Ferðir til BUlgariu eru aðall
Kjartans. Þangað er farið viku-
lega, en einnig verða ferðir hálfs-
mánaðarlega til Ungverjalands.
Þá er boðið upp á skólavist i Eng-
landi fyrir þá sem vilja læra
ensku og einnig þá sem vilja
þjálfast i knattspyrnu. Kjartan
hefur einnig á boðstólum sumar-
hUs i Danmörku og hann Utvegar
bila fyrir þá sem vilja fara á eigin
vegum i ökuferð um England.
Samvinnuferðir______________
Italia, JUgóslavia, Irland,
Kanada, sumarhUs á Möltu og
utan við Kaupmannahöfn eru á
lista hjá Sam vinnuferðum.
Ferðaskrifstofan býður upp á sér-
fargjöld fyrir aldraða m.a. til
JUgóslaviu. Flogið er til Trieste á
ttali'u og þaðan er farið i bil um
klukkustundarferð til Portoroz.
Irlandsferðirnar eru mis-
munandi langar, frá 5 upp i 11
daga. Flogið er til Dublin og
þaöan bjóðast rútuferðir Ut i
sveitirnar og til annarra borga.
Ferðir til Kanada gefa færi á
heimsókn á slóðir Vestur-
tslendinga, en auðvitað er hægt
að halda hvert á land sem er frá
. Toronto sem er fyrsti ákvörð-
unarstaðurinn;
Það færist i vöxt að ferðaskrif-
stofur Utvegi fólk sumarhús
erlendis, Samvinnuferðireru með
hús á Möltu og utan við
Kaupmannahöfn. A Möltu eru
hUsin við baðströnd, flogið er með
leiguflugi til Kaupmannahafnar
og þaöan áfram til Möltu. HUsin i
grennd viö Kaupmannahöfn eru
við bæinn Karlslunde,
Karrebæksminde og Helsingör.
Þaðan er stutt inn i kóngsins
Kaupinhafn þar sem börn og full-
orðnir geta brugðið sér i Tivoli
eða á Dyrehavsbakken, og notið
annars sem borgin býður upp á.