Þjóðviljinn - 15.07.1981, Síða 12

Þjóðviljinn - 15.07.1981, Síða 12
12 StÐA — ÞJÓÐVlLJINN Miövikudagur 15: júll 1981 # Húsnæðisstofnun ríkisins LAUGAVEGl 77 • 101 REYKJAVlK Húsnæðisstofnun ríkisins verður lokuð kl. 10—12 fimmtudaginn 16. júli vegna útfarar Hauks Vigfússonar fyrrv. forstöðumanns veðdeildar Lands- banka Islands. Lausar stööur Umsóknarfrestur um stöðu fulltrúa og stööu ritara á skrif- stofu Tækniskóla Islands er hér með framlengdur til 24. júli n.k. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik. Menntamálaráðuneytiö, 10. júli 1981. fÚTBOЮ Innkaupastofnun Reykjavikurborgar óskar eftir tiiboöum i 80 stk. brunahana fyrir Vatrisveitu Reykjavikur. Otboös- gögn eru afhent á skrifstofu vorri aö Frikirkjuvegi 3. Til- boðin veröa opnuö á sama staö þriöjudaginn 1. sept. 1981 ki. 11 f.hád. innkaupastofnun reyktavíkurborgar Frikirkjuvegi 3 — Sími 2S800 Norrænir styrkir til þýðingar og útgáfu Noröurlandabók- merinta. Seinni úthlutun 1981 á styrkjum til útgáfu norrænna bók- mennta i þýðingu af einu Norðurlandamáli á annað fer fram á fundi úthlutunarnefndar i haust. Frestur til að skila umsóknum er til 1. september n.k.Tilskilin umsókn- areyðublöð og nánari upplýsingar fást i menntamálaráðu- neytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavik, en umsóknir ber að senda til Nabolandslitteraturgruppen, Sekretariatet for nordisk kuiturelt samarbejde, Snaregade 10, DK-1205 K/lbenhavn K. Menntamálaráöuneytiö, 9. júli 1981. PÓST- OG iSf MAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða SKRIFSTOFUMANN Krafist er góðrar vélritunarkunnáttu og nokkurrar frönskukunnáttu. FULLTRÚA Verslunarpróf eða hliðstæð menntun áskilin TÆKNIFRÆÐING til starfa i fjölsimadeild. Nánari upplýsingar verða veittar hjá starfsmannadeild. Útboð Hitaveita Akraness og Borgarfjarðar óskar eftir tilboðum i smiði tveggja stál- geyma 2500 rúmmetra og 100 rúmmetra. Útboðsgögn verða afhent á Verkfræði- skrifstofu Sigurðar Thoroddsen Ármúla 4, Reykjavik og Berugötu 12, Borgarnesi og Verkfræði- og teiknistofunni Heiðarbraut 40, Akranesi,gegn 1000 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á skrifstofu hitaveit- unnar, Heiðarbraut 40, Akranesi, þriðjudaginn 28. júli kl. 11.30. m VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN hf ÁRMÚLJ 4 REYKJAVIK SlMI 84499 Eirikur A. Guðjónsson skrifar um „Helgi gegn lesendum” Misstu lesendur af vinningi? J Ég er ekki sammála —eik— um það, að ekki hafi staðið á lesendum, að þiggja jafnteflisboð Helga. Að minnsta kosti hefði hann mátt bæta orðinu „öllum" þar við. Ég veit ekki hvað margir lesendur voru á móti því, en ég var það. Ég taldi ástæðulaust að gefast upp, heldur bæri að tefla til þrautar. Það er og alltof væglega til orða tekið hjá —eik— að segja að möguleikar hvits á að koma upp f-peðinu hafi verið mjög fjar- lægir. Þeir voru engir. Við fram leik hlaut það aö falla fyrir svarta peðinu á g4. Hinsvegar var engan veginn fullreynt, hvort svartur gæti ekki komið einhverju af sinum þremur peöum sinum upp. I versta falli gat þaö orðið jafn- tefli. Svartur hafði þvi, allt að vinna, en engu að tapa, að halda áfram. Við lesendur geröum ýmsar skyssur. Skal ég héf nefna nokkrar. 1.1 23 leik leppaði hvitur riddara og hrók fyrir svörtum, og gerði þá þar með óvirka. Þannig hélt hann þeim I eina 16 leiki. Ég lagði margsinnis til aö þeir yrðu losaðir úr prisundinni, með þvi að leika -Kf8. en þvi var ekki sinnt. 2. 34. leikur svarts, -g7-g5 var herfilegur. Leika hefði átt g7- g6. abcdefqh Staöan eftir 34. leik hvits. Þá hefði hann ekki aðeins getað haldið peðaforskoti sinu með þvi að valda á c7, heldur e.t.v. einnig náð d4 eöa a5 peðunum ókeypis, og átt þá 2 peð yfir. I stað þess valdi meirihlutinn ofangreindan leik, og batt þar með hrókinn á h5 einnig fastan, auk hinna tveggja mannanna, sem enn voru á e-linunni. Þar með hafði svörtum „tekist” að binda alla sina menn, og missti þá auðvitað peðið á c7 bótalaust. Tapaði hann þá ekki aðeins peðameirihluta sinum, heldur og kom sér i þá klemmu, sem hann losnaöi ekki úr eftir það. 3. 42. leikur svarts var van- hugsaður (42.-Hb5). Staöan cftir 42. leik hvíts. Leika heföi átt 42...-d5.Þá voru Hrókur og Biskup hvits inni- lokaðir og gátu sig litið hreyft. Siðan gat svartur I rólegheitunum leikið Hg5 og siöan fram peðunum á g og h linunni, og vinningstafl var I sjónmáli. Þetta eru þau helstu mistök, sem ég tel að lesendur hafi gert I tafli þessu. 1 svona fjöltefli viö lesendur blaðs, ætti að hafa taflfróðan mann hjá blaðinu, er veldi skásta innsenda leikinn sem mótleik gegn keppandanum. En að láta meirihluta lesenda ráða er vanhugsað. Þar getur fáránlegur leikur eins og getið er um i 2. liö hér á undan, eyðilagt góða taflstcöu. Leikur sem máske er sendur inn af stráksskap eða af kæruleysi. Að lokum vil ég svo þakka blað- inu fyrir þessa nýbreytni. Þetta var skemmtileg tilbreyting, þrátt fyrir al!t. Eiríkur A. Guöjónsson, isafiröi. Örlitil athuga- semd frá —eik— Ég vil þakka Eirlki fyrir hlý orð til okkar fyrir framtakið. Þar sem hann skýtur aöeins á mig, sem umsjónarmann með skák- inni við Helga ólafsson, vildi ég koma eftirfarandi á framfæri: Það má rétt vera að ekki sé rétt að láta meirihluta lesenda ráða i skákum sem þessari, en það var nú fyrirkomulagið sem valið var I upphafi. Mitt mat er það, að ef annar meistari er fenginn til að leiðrétta lesendur, þá sé eins gott að láta tvo meistara einfaldlega tefla saman, svipað og gert hefur verið I útvarpsskákunum. Það skal þó viðurkennt, að á stundum var litiö framhjá leikjum, sem höfðu fengið flestar tilnefningar, þar sem um afleiki varaðræöa. Þar réöu „taflfræði” min, ásamt góðum ráðum frá starfsfélögunum hér á Þjóð- viljanum, auk fjölda manna sem hringdu oft á tiðum I mig per- sónulega og ræddu stöðuna á hverjum tima. Og aðeins um athugasemdirnar hér aö ofan: 1. Þótt menn svarts hafi lent i leppun, eru menn hvits jafn bundnir við að halda leppuninni. -Kf8kom enda, þótt um slðir væri. 2. Ég tel að 34...-g5 hafi verið nauðsynlegur til að geta svarað 35. Bh3 með 35..-g4 o.s.frv. 3. Ekki fæ ég séð að svartur komi peðum sinum upp, þrátt fyrir 42...-d5, þar sem hvitur ieiicur 43. Kg2 - Hg5 44. Kg3 - h5. 45. Kf4og peðið á d5 fellur. Sýnir okkur hvað 42. Bb7var snjall leik- ur hjá Helga. Einar Karlsson. Landsliðið utan NU I vikunni hefst Evrópu- mótið i bridge. Að þessu sinni er það haldiö i' Birmingham i Eng- landi. Að venju tekur Island þátt I mótfnu, og veröur liðið þannig skipað: Asmundur Pálsson sem er fyrirliði dn spilamennsku, Björn Eysteinsson, Guðlaugur R. Jóhannsson, Guömundur Sv. Hermannsson, Sævar Þorbjörnsson, Þorgeir P. Eyjólfsson, örn Amþórsson. Liðið hefur æft stift að undan- förnu, og til að mynda þá eiga sæti I liðinu þeir Guðmundur og Sævar sem nýkomnir eru frá NM-landsliða i yngri flokk. Að þáttinn minnir eru þeir yngsta par sem spilað hefur fyrir tsland i opnum flokki. Sævar er 25 ára, en Guðmundur 24 ára. Hinsvegar er Jón Baldursson sá yngsti, en hann var aðeins 21 árs, erhann spilaði fyrir Island i opnum flokki 1975, þá á móti Jakobi R. Möller. Þá hafnaði liðið i' næst neðsta sæti, að þátt- inn minnir, en vonandi á þetta lið betra láni að fagna i Birm- ingham. (Mótiö 75 var i Brighton I Englandi?) Vonandi berast fréttir frá mótinu reglulega, þannig að fólk geti fylgst með þvi jafn- óðum, en fái þetta ekki i einum stórum skammti. (Asmundur verður að vaka á nóttunni við frét taf lutningi nn..) Sumarspilamennskan Aðeins 30 pör mættu til leiks sl. þriðjudag I sumarspila- mennsku B rid gedeilda r Reykjavfkur i Hótel Heklu. Vonandi sjá fleiri sér fært að mæta nk. fimmtudag, 7. spila- kvöld sumarsins verður. Spilað var i 2 riðlum og urðu úrslit þessi: A) Esther Jakobsdóttir Guömundur Pétursson 204 Vigdis Guðjónsdóttir Steinunn Snorradóttir 197 Sigriöur Ingibergsdóttir Jóhann Guðlaugsson. 176 Eggert Benónýsson Jón Amundason 164 Erla Eyjólf sdóttir Gunnar Þorkelsson 162 B) Gestur Jónsson G uðm undur Páll Arnars- son 251 Guðmundur Sveinsson JónasP.Erlingsson 251 Bragi Hauksson SigriöurSóley Kristjánsd. 246 Dröfn Guðmundsdóttir EinarSigurðsson 234 Þröstur Bergmann Friðjón Þórhallsson 233 Björn Halldórsson ÓmarJónsson 230 Meðalskor i A-riðli var 156 en 210 í B-riðli. Og staða efstu spilara eftir 6 kvöld er: Sigríður Sóley Kristjánsdóttir Bragi Hauksson 10 10 HannesR. Jónsson 9 Jónas P. Erlingsson 9 Lárus Hermannsson 8 Gestur Jónsson 7,5 ÞórirSigursteinsson 6,5 Ingólfur Böðvarsson 6 k Umsjón: Ólafur Lárusson Albert Þorsteinsson 6 SigurðurEmilsson 6 Alls hafa nú 78 spilarar hlotið stig f sumarbridge. Keppt verður nk. fimmtudag i Hótd Heklu og hefst spilamennskan liðlega sjö, en I slðasta lagi 19.30 Að sjálfsögðu eru allir vel- komnir, og menn hvattir til að taka með sér gesti, en sumar- keppnir eru tilvaldar einmitt fyrir byrjendur. Bikarkeppnin Þættinum er kunnugt um að einum leik er lokið i 2. umferð Bikarkeppni B.l. A Siglufirði áttust við sveitir Asgrlms Sigurbjörnssonar (bræðrasveitin kunna frá Siglu- firði væntanlega?) og Þorgeirs P. Eyjólfssonar Reykjavik. Þdr siðarnefndu fóru með sigur af hólmi og hafa þá fyrstir allra tryggt sér sæti I 8 liða úrslitum. Leikjum i 2. umferð ska) vera lokið fyrir 27. júli nk. Fyrir- liðarnir eru beönir um að hafa samband við þáttinn um leið og úrslit liggja fyrir.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.