Þjóðviljinn - 06.08.1981, Qupperneq 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fintintudagur 6. ágúst 1981
f ÚTBOЮ
Tilboð óskast i uppsteypu og fullnaðarfrá-
gang á 3. áfanga bækistöðvar Hitaveitu
Reykjavikur við Grensásveg. Útboðs-
gagna má vitja til Innkaupastofnunar
Reykjavikur Frikirkjuvegi 3, gegn 2 þús-
und kr. skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð á sama stað þriðjudaginn 1. sept.
n.k. kl. 14.
INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Sími 25800
Eftirtalin ráðuney ti Stjórnarráðsins verða
lokuð éftir kl. 14.00 6. ágúst vegna jarðar-
íarar Magnúsar Kjartanssonar, fyrrv.
ráðherra.
Félagsmálaráðuneyti
Iðnaðarráðuneyti
Fjármálaráðuneyti
Fjárlaga- og hagsýslustofnun
Rikisendurskoðun
Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti.
Áburðarverksmiðja rikisins óskar að taka
á leigu 3 - 4 herbergja ibúð frá 1. septem-
ber n.k.
Tilboð ásamt viðeigandi upplýsingum
leggist inn á afgreiðslu blaðsins fyrir 11.
ágúst.
Áburðarverksmiðja rikisins
S júkrahús, Akraness
Staða yfirlæknis
Staða yfirlæknis við fæðinga- og kvensjúk-
dómadeild Sjúkrahúss Akraness er laus til
umsóknar. Umsóknarfrestur er til 1. sept.
n.k. Umsóknir ásamt upplýsingum um
nám og fyrri störf sendist Sjúkrahúsi
Akraness. Allar nánari upplýsingar veitir
framkvæmdastjóri sjúkrahússins i sima
93-2311.
Sjúkrahús Akraness
Auglýsing
Kennara vantar að grunnskóla Eskifjarð-
ar. Æskilegar kennslugreinar stærðfræði,
ungbarnakennsia, leikfimi stúlkna og um-
sjón með bókasafni skólans. Nánari upp-
lýsingar hjá skólastjóra i sima 97-6182 og
hjá íormanni skólanefndar i sima 97-6239.
Vegna jarðarfarar
verða skrifstofur okkar lokaðar i dag frá
kl. 14—17.
MOÐVIUINN
Norræna húsið:
Dr. Sigurður
Þórarinsson
í opnu húsi
Opið hús i Norræna húsinu
verðurnæst siðasta skiptiá þessu
sumri, i kvöld 6. ágúst kl. 20.30.
Þá mun dr. Sigurður Þórarinsson
prófessor flytja erindi með
litskyggnum um eldvirkni á
íslandi. Hann flyturþað á sænsku
og nefnir „íslands vulkaner”.
Eftir kaffihlé verður sýnd kvik-
myndOsvaldar Knutsens „Surtur
fer sunnan”, sem tekin var 1963 á
timabilinu þegar Surtsey var að
myndast.
Kaffistofa og bókasafn verða
opin. 1 anddyri er ennþá sýning á
islenskum steinum, sem Náttúru-
fræðistofnun íslands hefur sett
upp.
Sumarsýningin i sýningar-
sölum er opin daglega kl. 14—19
og fer senn að ljúka, en siðasta
sýningarhelgin er 15—16. ágúst.
Bókasafn Kópavogs
Tölvueftirlit
með bókum
Bókasafnið i Kópavogi hefur
tekið upp nýttkerfi við bókaútlán.
Mynd er tekin á örfiimu af skir-
teini og bókarvasa með tölvu-
miða. Bókavörður tekur tölvu-
miðann úr bókinni þegar henni er
skilað. Þess vegna leggur bóka-
safnið áherslu á að miðinn sé alls
ekki fjarlægður úr bókarvasan-
um. A tölvumiðann er stimplaður
siðasti skiladagur.
Notuðum tölvumiðum er siðan
safnað saman og þeir sendir til
úrvinnslu i Reiknisstofnun bank-
anna. Þaðan eru upplýsingar
sendar i vinnslu i tölvu Kópavogs-
bæjar. Úr henni kemur loks listi
yfir þá sem ekki hafa skilað bók-
um á réttum tima og þeir þvi
rukkaðir. Glatist tölvumiðinn
þarf að borga einnar krónu sekt,
en ef skirteinið glatast eða
skemmistþarf aðborga lOkrónur
fyrir nýtt.
Útlánsreglur i Bókasafni Kópa-
vogs eru óbreyttar þrátt fyrir inn-
reið nýju tækninnar.
—óg
Gigtarþing í París
Heilsa handa
öllum árið
tvöþúsund
Atta Islendingar sátu 15. al-
þjóðaþing gigtarfélaga, sem
haldið var i Paris i siðasta mán-
uði. Þingið sátu nær 4500 fulltrúar
frá flestum löndum heims, lækn-
ar og visindamenn voru fjöl-
mennastir.
Af tsiands hálfu sátu þingið sex
læknar, lyfjafræðingur og fulltrúi
Gigtarfélags Islands. Fjórir
þeirra þeir Ingvar Teitsson, A1
freð Arnason, Helgi Valdimars-
son og Jón Þorsteinsson — lögðu
fyrirþingið skýrslu um rannsókn-
irá 147 íslendingum, sömuættar,
með háa tiðni gigtar. Rannsókn-
imar fóru fram á Lyflækninga-
deildLandspitalans, Blóöbankan-
um og önæmisdeild St. Mary’s
sjúkrahússins i London. 1 máli
frummælandsns, Ingvars Teits-
sonar kom fram að rannsóknum
þessum erekki lokið vegna skorts
á rannsóknaraðstöðu á Islandi.
Mál hans fékk góöar undirtektir
og rannsóknir þeásar taldar
mai’ka áður ókunna stefnuá sviði
gigtrannsókna.
Alþjóðasamband gigtarfélaga
hefur nú stóraukið samband við
Alþjóða heilbrigðisstofnunina
undir kjöroröinu, „Heilsa handa
öllum árið 2000.”
(Frá Gigtarfélagi Isiands).
Keimlngar Piaget
Avegum Námsgangastofnunar
er nú komin dt bók um kenningar
svissarans Jean Piaget, eins
kunnasta uppeldis-og sálfræðings
þessarar aldar. Bókin er ætluð
öllum áhugamönnum um uppeldi
barna, en telst kærkomnust kenn-
urum, fóstrum og þroskaþjálfum.
Höfundur bókarinnar heitir C.M.
Charles, en Jóhann S. Hannesson
þýddi.
t bókinni segir m.a.:
„Börn hugsa ekki eins og full-
orðið fólk: hugsanaform þeirra
eru öðruvisi. Börn eru ekki
smækkuð mynd af fullorönu fólki
heldur lita þau sinum eigin
augum á tilveruna og gera sér
sinar eigin hugmyndir um heim-
inn I kringum sig.”
Piaget telur, að andlegum
þroskaferli barna megi skifta i
tiltekin þróunarstig, sem hvert
um sig einkennist af ákveðnum
hæfileikum og getu.
Vi'st er að foveldrar og aðrir
uppalendur muni fagna útkomu
þessarar bókar,en hún er 60 siður
með tveimur bókaraukum, vel
uppsett,og kostar40kr. útúr búð.
Askrifendaþraut Þjóðviljans
Aukaverðlaun
vikunnar
Dregin hafa verið út aukaverð-
launin i áskrifendaþraut Þjóð-
viljans. Þessi nöfn voru dregin Ut
og geta hinir heppnu vitjað vinn-
inganna til okkar i Siðumúlann og
orðið formlegir eigendur að
hljómplötum frá Steinari h/f.
Arni Björnsson Fálkagötu 8.
Lilja og Pálmi Blikahólum 2.
Erlendur S. Baidursson Háagerði
43.
Jóhann Þ. Löve Bræðratunga 16.
Við þökkum þátttökuna og
minnum á að enn er hægt að skila
inn lausnum til að geta verið með
þegar dreginn verður út aðal-