Þjóðviljinn - 29.08.1981, Page 17
Helgin 29.-30. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 17
dægurtónlist
Sú hljömsveit sem vakti hvað
mesta athygli i Bretlandi á
seinasta ári er reggae hljóm-
sveitin UB-40. Velgengnihennar á
siðasta árier með ólikindum. Hún
var svo til dþekkt um áramótin
1979/80 en með útkomu breið-
skifunnar Singing off skipaði
hljómsveitin sér sess sem ein
merkasta og vinsælasta reggae-
hljómsveit liðandi stundar.
UB 40 er tvimælalaust eina
besta reggae hljómsveitin sem nú
er starfandi. Breiðskifa hennar
Singing Off kom út i byrjun
siðasta árs en kom ekkihingað til
lands fyrr en nýverið. Þessi töf
stafar af þvi að útgáfu fyrirtækið
sem hljtímsveitin er á samning
hjá erlftið og erfittreyndistaðná
plötunni i gegnum milliliði þvi að
verðið var óheyrilega hátt. Ný-
lega tókstsvo að fá hljómplötuna
keypta á sæmilegu verði þannig
að það er fyrst nú sem okkur gef st
tækifæritil að hlýða á þetta lista-
verk.
Einsog ég sagði hér að framan,
leikur hljómsveitin reggae af
bestu gerð. örlitilla „ska” áhrifa
gætir á köflum og ekki er það til
að spilla.
Hljóðfæraleikurinn er hinn á-
gætasti svo og hljómur, þegar
þess er gætt að platan er hljóð-
rituð i átta rása hljóðrita og taka
þurfti oft upp þrjú hljóðfæri sam-
Nick Mason, trommuleikari Pink Floyd.
Carla Bley
Nick Mason er fyrst og fremst
þekktur sem trommuleikari stór-
hljómsveitarinnar Pink Floyd en
ekki sem neinn „sólóisti”. Vafa-
samt er að gcfa honum það nafn
þótt hann sé skráður fyrir plöt-
unni Fictious Sports þvl ekki
semur hann eitt einasta lag á
þessai’i plötu.
Hin þekkta jasskona Carla
Bley, semur allt efni á þessa
breiðskifu. Því væri nær að segja
aö þetta væri sólóplata hennar en
ekki Nick Mason. Hvað um það
Góð
blanda
slikar vangaveltur eru algjört
aukaatriði og koma málinu varla
við. Það er tónlistin sem skiptir
máli. Fictious Sportser stórgóð
hljómplata og á henni er gerð til-
raun til aö leiða saman hesta
rokksins og hesta frjálsadjassins.
Ekki verður annað sagt en það
hafi tekist m jög vel hvernig sem á
málin er litið.
A plötunni leika úrvals hljóð-
færaleikarar. Auk þeirra Nick
Mason og Clöru Bley, koma við
sögu kappareins og Mike Manter,
Chris Spedding og Robert Wyatt.
Liðsskipanin stendur fyllilega
undir nafni þvi hvergi er veikan
blettað finna i'hljóðfæraflutningi.
Ekki spillir að textar Clöru
Bley eru hinir ágætustu og
skemmtilega ki'mni þar að finna.
Fictious Sports er fyrsta
flokks plata og ágætfyrir alla þá
sem vilja vikka sjóndeildarhring
og gefa nýjum straumum tæki-
færi. — JVS
Söngvarinn og lagasmiður-
inn Peter Sarstedt var
hér á landi fyrir skömmu
og hljóðritaði þá tvö lög
sin ásamt hljómsveitinni
Mezzoforte, i Hljóðrita. Þétta
eru lögin „Days Eternal Days”
sem er alveg nýtt og gamli góði
siagarinn „Take Of Your Cloth-
es” sem Peter gaf upprunalega
út á plötu fyrir áratugi siðan.
Einsog menn muna söng Hann-
es Jón þetta lag inná plötu I is-
lenskri þýðingu, Fækkaöu föt-
um ..o.s.frv.. Rikisútvarpiö
bannaði siðan flutning lagsins i
islensku útgáfunni vegna text-
ans og olli það nokkru fjaörafoki
á sinum tima. Peter sjáifum er
ekki kunnugt um aðrar útgáfur
af þessu lagi en þessar tvær og
vissi reyndar ekki af tilvist is-
^ Ljósmynd: —gel-
Peter Sarstedt í Oðali
lensku útgáfunnar fyrr en hann
kom hingað til lands.
Steinar hf. munu gefa út plötu
með Peter Sarstedt i vetrar
byrjun og mun sú plata spanna
feril hans frá upphafi til þessa
dags. Er áætlað að platan komi
jafnvel út viðar, þvi að Steinar
hf. eiga útgáfuréttinn i Englandi
og á hinum Norðurlöndunum.
Það er jafnvel hugsanlegt að
Peter komi hingað til lands aft-
ur til hljómleikahalds um það
leyti sem platan kemur út. Ef af
þvi verður kemur til greina að
Peter hljóðriti fleiri lög hér á
landi.
Enn sem komið er hefur ekki
verið ákveðið hvort Steinar hf.
gefi út fleiri plötur með Peter
Sarstedt en væntanlega verður
gengið frá þeim málum i
september næstkomandi.
Peter Sarstedt tróð upp i óðali
18. þessa mánaðar og flutti þá i
Hlöðuiini 4 lög ásamt Mezzo-
forte. Þeir byrjuðu á Mellowed
out og sfðan kom Days eternal
days sem bæði sýna að enn er
péturinn góður laga- og texta-
smiður. Siðan kom hans fræg-
asta lag (og besta) Where do
you go to, 10 ára gamalt og
Peter trúði okkur fyrir þvi að
það væri ort um Möggu
Thatcher....? Loks kom Take
off your clothes og Mezzoforte
yfirgaf sviðið.
Peter Sarstedt var mjög vel
tekið og var Hlaðan troðin út úr
dyrum. Eftir að hafa verið
klappaður upp flutti hann tvö
lög við eigin undirleik, Beiruth
og lag sem gæti heitið John
Lennon was there, endurminn-
ingar úr partýi i London
snemma á 7. áratugnum. Þessi
þáttur féll mér enn betur i geð,
en sá fyrri, en Mezzoforte var
þá heldur of hávaðasöm og
trommarinn átti það til að yfir-
gnæfa sönginn og þar með text-
ana, sem er afleitt þegar góöir
textasmiðir eiga i hlut. A
timis. Hvað um það, þeir sýna
virkilega góða spretti sem hreinn
unaður er á að hlýða.
UB 40 eru sprottnir upp úr fá-
tækrahverfum i Birmingham.
Þessi bakgrunnur endurspeglast
mjög greinilega i textagerð
þeirra sem oft á tiðum er mjög
bitur og pólitiskt. Venju sam-
kvæmt fær „Magga” sinn
skammt svo og breska heims-
veldið. En einn besti texti
plötunnar fjalla einmitt um af-
leiðingar heimsvaldastefnunnar.
There are murders that we
must account for
Bloody deeds have been done in
my name
criminal acts we must pay for
and our children will shoulder
the blame.
I’m a British subject not proud
of it
while I carry the burden of
shame.
Must we go on ignoring forever
The cries of an African sun
There’s a soldier’s hand on the
trigger
But it’s we who are pointing the
gun. „Burden of shame”
Signing off er afburða breið-
skifa fyrir alla sem unna tónlist.
Nú, þeir sem ekki hafa gefið
reggaeinu tækifæri ættu að gera
það hið bráðasta og hlýða á UB
40, SigningOff.hún svikur engan.
JVS
10%
afsláttarkort hafa verið send út
til félagsmanna.
Kortin eru 7 talsins og gilda frá
1. september til 16. desember.
Nýir félagsmenn fá afsláttarkort
og er hægt að ganga
í félagið í öllum verslunum
KRON og á
skrifstofu félagsins.
KAUPFELAG
REYKJAVÍKUR OG
NÁGRENNIS