Þjóðviljinn - 29.08.1981, Síða 21
Helgin 29.-30. ágúst 1981 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 21
Þorleifur Einarsson
Afmœliskveðja
Timaskyni er valt að treysta —
ekki sist þegar árin færast yfir. I
minum huga er ekki ýkja langt
siöan ungur jaröfræðinemi frá
Kölnarháskóla slóst i för meö
mér, konu minni og syni i sólrika
ferö um Noröur-Þingeyjarsýslu,
þar sem ég var að kanna út-
breiöslu forsögulegra gjóskulaga
úr Heklu. Þessi ungi mað-
ur reyndist ekki aðeins hafa ó-
venju brennandi áhuga á jarð-
fræöilegum fyrirbærum og kunna
á þeim góö skil, áhugi hans
spannaði náttúru Islands al-
mennt, lifandi sem dauöa, og
sögu þjóöarinnar aö auki.
Og nú sé ég þennan mann fyrir
mér, þótt fjarri sé hann i dag á
hálfrar aldar afmæli sinu, þéttan
á velli og þéttan i lund, og geri
mér ljósa þá staöreynd, aö i mjög
náinni framtiö veröur hann, þó á
besta aldri sé aldursforseti'
þeirra ófáu er kenna jaröfræöi
við Háskóla tslands og einn hinn
elsti, ef ekki elstur, þeirra mörgu
er hér veröa i starfi viö jaröfræöi-
rannsóknir. Og þessum sessi
heldur hann væntanlega fram á
þriöja árþúsundið e.Kr.
Hér er ekki ætlunin aö rekja
starfsferil Þorleifs Einarssonar,
eöa gera almenna úttekt á mann-
inum. Þrennt vildi ég þó nefna, er
einna hæst ber i visindastarfi
hans hingaö til. Þetta þrennt er:
1: Sú saga gróðurs og loftslags á
tslandi, sem hann hefur rakiö
meö timafrekri frjógreiningu is-
lenskra mómýra, 2: Saga Tjör-
ness og hinna heimsfrægu Tjör-
neslaga, serh hann, ásamt erlend-
um samverkamönnum og eigin
nemendum, hefur stórlega endur-
bætt, og 3: Sú saga islensks bergs
og lands, sem hann hefur skráö i
sinni alkunnu kennslubók. Að visu
er sú bók alþýðleg i framsetn-
ingu, en ber visindamanninum
Þorleifi gott vitni og hefur ekki i
annan tima veriö skrifuð bók,
sem meö jafnmörgum Islending-
um hefur vakib áhuga á jaröfræði
lands þeirra. Þaö er ekki siöur
mikilsviröi, aö kennslubók i þess-
um fræöum skuli vera skrifuö á
jafn vandaöri og hreinni islensku
og bók Þorleifs, sem i þessu tilliti
má jafna viö grasafræðirit Stef-
áns Stefánssonar.
Óumdeildur maöur er Þorleifur
ekki meö öllu. Hann er mjög
sjálfstæður persónuleiki, ákveö-
inn i skoðunum og ekki ýkja
sveigjanlegur ef þvi er aö skipta.
Hann hefur öfundsvert gott lag á
að koma þvi i kring sem hann
hefur áhuga á og beitir þá bæöi
dugnaöi, útsjónarsemi, seiglu og
sjarma. Og þar eö aðaláhugamál
hans er jaröfræöin og hagur
hennar hefur þessi lagni vissu-
lega verið notadrjúg i þeirri upp-
byggingu kennslu og rannsókna i
jarðfræði við Háskóla tslands,
sem verið hefur i gangi nú á ann-
an áratug. Þeir eru lika orðnir
margir jaröfræöinemendurnir,
sem notið hafa handleiöslu Þor-
leifs og hjálpar hans á ýmsa lund.
Með árunum hefur fariö svo um
Þorleif sem fer um ýmsa dugnað-
armenn meö mörg áhugaefni, að
þeir láta æ fleiri af þessum efnum
til sin taka i verki. Þorleifur hefur
lengi verið mjög virkur i náttúru-
verndarmálum, þótt ékki kæri
hann sig um aö sitja þar i stjórn,
enda með nóg á sinni könnu i þvi
efni, þar sem hann er nú stjórnar-
formaður i tveimur stórum önd-
vegisfélögum, ööru meö verndun
gróöurs og dýralifs lands okkar á
sinni stefnuskrá, hitt verndun
máls okkar og menningar. Og
hann á nú einnig i vændum að
veröa, fyrstur jarövisindamanna,
deildarforseti Verkfræöi- og
raunvisindadeildar H.L.Sýnir
þetta allt, aö manninum er treyst
til margs.
Fyrir hönd Jaröfræöistofu
Raunvisindastofnunar og Jarö-
fræöiskorar H.I. árna ég kollega
minum og fjölskyldu hans allra
heilla. Vonandi á ég enn eftir,
einu sinni eöa tvisvar, að tölta á
eftir honum um Tjörnessfjörur,
aö sjálfsögðu i sólskini eins og
ávallt hingað til.
Siguröur Þórarinsson
bamahorn
Einu sinni var ég í bakaríi. Það var komið að mér, en þá
komu nokkrar konur inn og ruddust f ram fyrir mig. Svo
þegar konurnar voru farnar þá fór afgreiðslukonan inn
að fá sér kaffi.
— VEIST ÞÚ HVAÐ ÞAU STARFA? —
0 c. §M.
r
tb. | J
ÁSKRIFENDA- ÞRAUT ÞIÓÐVILIANS Nafn: Sími: Lausn sendist: Þjóðviljinn, — áskrifendaþraut — Síðumúla 6, R
Heimilisfang:
ttt TIlTTT'f september. Septemberverö- TlljU 11 launin, ferð til Edinborgar, verða dregin út 11. september n.k. 1. Scndiö lausnina til Þjóövilj- ans, — áskrifendaþraut — Siðu- Aukaverðlaun veröa dregin út múla 6, Reykjavík, ásamt nafni i hverri viku. og hcimilisfangi, fyrir 10. næsta 3. skrifið starfshciti cða vinnu- mánaðar. staö lolksins á myndunum i 2. Aðalverðlaunin, hljómflutn- auða reitinn undir hverri mynd. ingstæki, veröa dregin út 25. Gangi ykkur vel. Áðalverðlaun, dregin út 25. september. Kcnwood Sigma-Drive magn- ari. Kenwood KD-1600 plötuspilari og AR-18s hátalarar frá Fálk- anum. Septemberverðlaun 4 daga ferð fyrir 2 tii Edinborgar, dregin út 11. september. 11. september verður dregið um 4 daga ferð fyrir 2, til Edinborg- ar. Það er ferðaskrifstofan Or- val sem sér um þessa ferö. Farið verður af stað föstudag- inn 18. og komið til baka 21. september. Sérstök athygli er vakin á aö skila verður lausnum fyrir 10. sept.
EF EKKI, LESTU ÞJÓÐVILJANN