Þjóðviljinn - 31.10.1981, Page 3
Helgin 31. bkt.'—'l/h<Jv.'198Í WÖÐVlLJINN — StÐA 3
LR frumsýnir á þriðjudagskvöld:
,Undir álminum’
eftir Eugene
O’Neill
Á þriðjudagskvöldið
frumsýnir Leikfélag
Reykjavíkur eitt þekktasta
og mest leikna verk banda-
ríska leikritaskáldsins
Eugene O'Neill, ,,Undir
álminum". Það var frum-
sýnt í Bandaríkjunum 1924
við mikla athygli og ætfð
síðan verið eitt mest leikna
verk höfundarins. Hér
hefur leikritið ekki verið
sýnt áður. Árni Guðnason
þýddi verkið fyrir aldar-
fjórðungi og þá fyrir LR,
en vegna umfangsmikils
sviðsbúnaðar þótti ekki
fært að sýna verkið, en
Sigurður Steinþórsson,
sem sér um leikmynd og
búninga, hefur nú leyst það
vandamál.
Leikstjóri er Hallmar Sig-
urðsson en með stærstu hlut-
verk fara: Gisli Halldórsson,
Ragnheiður Steindórsdóttir og
Karl Ágúst úlfsson. Hann
útskrifaðist frá Leiklistar-
skóla Islands sl. vor og_ fer nú
með sitt fyrsta hlutverk hjá LR.
Sigurður Karlsson og Jón
Hjartarson koma og allmjög við
sögu en auk þeirra Jón Sigur-
björnsson, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Emil Gunnar
Guðmundsson, Lilja Þórisdóttir
o.fl. Sigurður Rúnar Jónsson,
kemur fram i hlutverki fiðlara og
flytur megnið af tónlistinni.
Daniel Williamsson annast lýs-
ingu.
Leikritiö gerist i Bandarikj-
unum um miðja . siðustu öld.
Efraim Cabot býr búi sinu ásamt
þremur uppkomnum sonum.
Efraim karlinn kemur heim með
nýja unga og fagra eiginkonu,
hina þriöju. Hefst þá öldugangur i
heimilislifinu. Astir takast með
ungu konunni og yngsta syninum
með afdrifarikum afleiðingum.
Undir álminum er verk mikilla
tilfinninga og ástriðna þar sem
frumhvatir mannsins leika
lausum hala með uggvænlegum
afleiðingum.
Eugene O’Neill (1888—1953) er
af mörgum talinn mesta leikrita-
skáld Bandarikjanna fram á
þennan dag. Hann fæddist við
leikhúsgötuna Broadway. Faöir
hans var frægur leikari, vansæll
en vinsæll. Móðirin illa farin af
eiturlyfjaneyslu. Umbrotasömu
fjölskyldulifi sinu lýsir skáldið á
áhrifamikinn hátt i verki sinu:
Húmar hægt að kveldi, sem Þjóð-
leikhúsið sýndi árið ’59. O’Neill
feröaðist um landiö meö for-
eldrum sinum en stundaöi annars
ýmis störf á yngri árum, þar á
meðal sjómennsku, enda fjalla
flest fyrstu verk hans um sjóinn
og líf sjómanna. Fyrstu verk hans
voru sýnd af leikflokknum
Provincetown Prayers, sem þá
var vettvangur nýrra höfunda og
varð O’Neill þeirra aðalhöfundur
um langt skeið. Hann samdi á
fjórða tug leikrita, allt frá
stuttum einþáttungum upp i 7-8
klst. verk. Aðeins þrjú verka hans
hafa verið sýnd á islensku sviði:
Ég man þá tiö, sem Leikfélag
Reykjavikur sýndi 1946 og Anna
Christie og Húmar hægt að kvöldi
i Þjóðleikhúsinu 1952 og 1959.
Meöal annarra þekktustu verka
hans má nefna Mennirnir minir
þrir og Eigi má sköpum renna,
sem bæði hafa verið flutt hér i
útvarp i þýðingu Árna Guöna-
sonar og Emperor Jónes (1920),
The Iceman Cometh (1939) og A
Moon for the Misbegotten (1943).
önnur sýning á Undir álminum
veröur á miðvikudagskvöld, og
þriðja sýning á sunnudagskvöld.
—mhg
Frá v.: Jón Hjartarson (Pétur), Sigurður Karlsson, (Simon) og Karl
Agúst (Jlfsson, (Eben). Myndin er tekin á æfingu.
Meinatæknar
Rannsóknastofa Háskóla íslands i liffæra-
fræði óskar eftir meinatækni i hálft starf
við rafeindasmásjárrannsóknir. Reynsla
af slikum störfum æskíleg, en ekki
nauðsynleg.
Laun samkvæmt launakerfi rikisstarfs-
manna.
Umsóknir sendist til Rannsóknastofu
Háskólans i liffærafræði við Suðurgötu
fyrir 15. nóvember 1981.
Laus staða
Staða ritara hjá Vita- og hafnarmála-
stofnun er laus til umsóknar. Laun skv.
launakerfi starfsmanna rikisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menrit-
un og fyrri störf sendist fyrir 10. nóv.
Vita- og hafnarmálastofnunin
Seljavegi32, simi2 77 33
Vissirþú
aó Arnarflug hefur
flutt 131 þúsund
farþega fyrstu
9mánuði þessa árs?
Amarflug er þróttmikið
flugfélag, sem hefur náð
víðtækri reynslu í flugþjón-
ustu á innlendum og erlend-
um vettvangi.
Innanlandsflug
Amarflug heldur uppi
reglubundinni þjónustu við
fjölmarga staði víða um
land sem ekki eru í alfara-
leið og er áætlunarflug
okkar því mikilvæg sam-
göngubót fyrir íbúa þeirra.
Fjöldi farþega á áætlunar-
leiðum fyrstu 9 mán.
þessa árs er yfir 16.000.
Auk þess hefur Amarflug
flutt yfir 9000 manns í leigu-
flugi og fjölmarga einstakl-
inga í sjúkraflugi innan-
lands.
Leiguílug
Amarflug flýgur enn aðeins
leiguflug milli landa. Auk
sólarlandaferða, Evrópu-
og Kanadaflugs fyrir ísl
enska aðila hefur Arnar-
flug getið sér gott orð með
flugrekstri í 16 löndum.
Samtals eru farþegar í milli-
landaflugi orðnir 106 þús-
undáþessuári.
Starfsfólk
Allir starfsmenn Arnar-
flugs eru hluthafar, sem
hafa það að markmiði að
fyrirtækið sé vel rekið og öll
þjónusta eins góð og hún
getur best verið.
131 þúsund farþegar á 9
mánuðum er staðreynd.
,,Við getum gert betur”
segja starfsmenn Arnar-
flugs.
Gott orð og samhentur
starfshópur gefur Arnar-
flugi byr undir báða vængi
í komandiframtíð.
ARNARFLUG
Lágmúla 7,sími29511