Þjóðviljinn - 31.10.1981, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 31.10.1981, Blaðsíða 5
Helgin 31. okt. — 1. nóv. 1981 ÞJÓÐVILJINN — StDA 5 kjör eða þjóðartekjur á mann, þá íiefur kaupmáttur verka- mannalauna og ráöstöfunartekna heimilanna verið mun meiri sið- ustu þrjú árin en flest árin á und- an. Við sjáum að kaupmáttur greidds timakaups verkamanna er á þessu ári talinn vera nær 12% betri en hann var 1976, en liðlega 2% lakari en hann hefur orðið hæstur, en það var árið 1974. (Sé hins vegar ekki spurt um greitt timakaup heldur taxtakaup verkamanna, þá er árið 1981 með kaupmátt sem er um 6% lakari en hann hefur áður orðið hæstur yfir heilt ár.) — Við sjáum hins vegar að viðskiptakjör okkar i ut- anrikisviðskiptum eru nú lakari en þau voru 1976 og hafa veriö það siðustu þrjú árin. Þessi siðustu þrjú ár 1979 - 1981 eru i heild með lakari viðskiptakjör en nokkurt annað þriggja ára timabil frá ár- inu 1970. Við sjáum fleira. Viö sjáum að á árunum 1979—1981 hefur tekist að haida kaupmætti timakaups verkamanna svo og ráðstöfunar- tekjum nær óbreyttum þrátt fyrir alvarlegt áfaii I viðskiptakjörum. Þessu var ólíkt farið á árabilinu 1975 til miðs árs 1977 er kjara- samningarnir komu til, enda þótt viðskiptakjaraáfallið sem við höfum búið við siðan 1979 sé sist minna en á árunum 1975 og 1976, vegna þess hversu iangvarandi lægðin i viðskiptakjörunum hefur reynst nú. Við skulum lita á árið 1977. Þar kemur fram veruleg hækkun á kaupmætti frá árinu á undan, en súlurnar sýna ekki að umskiptin urðu með kjarasamningunum um mitt það ár. A fyrri hluta ársins 1977 var kaupmátturinn enn I sömu lægð og á árunum 1975 og 1976. Þá var kaupiö skoriö og skammtað eftir kokkabókum Geirs Hallgrims- sonar og félaga. En það voru kjarasamningarnir um mitt ár 1977 sem brutu þetta skömmtun- arkerfi niður. Ahrif þeirra koma ekki fram að fullu á súluritinu fyrr en á árinu 1978. Kaupráns- lögunum frá þvi i febrúar 1978 var að mestu hrundið hvað dagvinnu- kaupið varðar strax fyrir kosn- ingar vorið 1978 og siðan hrundið að fullu með stjórnarmynduninni það haust. Þá fór kaupmáttur hæst, haustið 1978 og fyrstu mán- uði ársins 1979. — Siðan dundi við- skiptakjaraáfallið yfir eins og súluritið sýnir ljóslega. Siðan hef- ur við erfiðan leik verið barist við að halda óbreyttum kaupmætti þrátt fyrir hin lökustu viðskipta- kjör og tekist bærilega. Nú þarf að gera betur En nú þarf að gera betur. Tryggja láglaunafólki á næstu tveimur árum betri kaupmátt en nokkru sinni fyrr, en þoka þó verðbólgunni niður. Um þetta mikilvæga markmið ber mönnum að sameinast hér og nú. Mark- miðið er tviþætt^en verður ekki sundur greint. 1 umræðunni um kjaramálin er mikið talnaflóð borið á borð. Þjóðviljinn vill hvetja allan al- menning til að kynna sér, hvað eru bestu fáanlegar upplýsingar i þeim efnum og hvað hinsvegar beinar rangfærslur eða villandi staðhæfingar. Það geta allir gert. Tölulegar upplýsingar eru nauðsynlegar við umfjöllun um þessi efni, en fólk þarf að vera á verði gegn loddurum eins og t.d. þeim þingmanni Alþýöuflokksins, sem fullyrti með miklum þunga i útvarpsumræðunum frá Alþingi á dögunum, að ráðstöfunartekjur heimilanna á mann heföu rýrnað að kaupmætti um 6—11% frá ár- inu 1977, þegar þær hafa sannan- lega hækkað um 10% á þessum tima. Láglaunafólk á ekki að hætta að gera kröfur. Þvertá móti á það að standa fast á sínum réttlátu kröf- um, en þekking er jafnan besta vopnið. Annars verða menn lodd- u'rum að bráð. STORMARKAÐSVERÐ Drengjaskyrtur einlitar st. 27 - 33 ...... kr. 72.00 Telpnanáttkjólar........................... ...” 75.70 Telpnanærföt, hvit, st. 4 -12, settið............” 40.00 Dömunáttkjólar................................ ” 102.90 Kventöflur.......................................” 31.20 Handklæði í gjafakössum frá kr. 124.00 Handklæði gott úrval Kökubox frá kr. 50.50 Kökukefli kr. 54.10 Kökumyndamót frá kr. 9.15 Rjómasprautur kr. 16.75 Tertuform frá kr. 23.00 Tertuhjálmar frá kr. 35.25 Bökunarpappirsform 50 stk. i pakka kr. 3.85 MUNID 10% AFSLÁTTARKORTIN Opið til kl. 22 föstudaga og hádegis laugardaga STÓRMARKAÐURINN SKEMMUVESI4A KÓPAVOni Líkamsræktin h.t. Laugavegi 59 (kjallara Kjörgarðs). Sími 16400. Inng. Hverfisgötumegin. Loksins! Loksins! Við opnum í dag fullkomna líkams- og heilsuræktarstöð Glæsileg salarkynni Opnunartímar fyrir bæði kynin: Mánudaga tii föstudaga kl. 07-22.00. Laugardaga kl. 10.00 til 17.00. Lokaö sunnudaga. Leiöbeinendur ávallt til staöar. Aöalleiðbeinendur: Gustaf Agnarsson og Finnur Karlsson. Innifalið í mánaðargjaldi okkar er eftirfarandi: Líkamsrækt. Gufubaö. Ljósabekkir. Vatnsnudd. Megrunarkúrar fyrir karla og konur með sérunnum matseölum. Sérhannaöar æfingaskrár fyrir hvern og einn. Sérstakur bæklingur um megrun meö kolvetna-, prótein- og kaloríu-lista. Matarkúr ef viökomandi þarf aö þyngja sig. • Sérstaklega fyrir konur: Meöferö gegn staöbund- inni fitu (Cellulite) meö sérunnum matseðli og æf- ingum. Opiö í dag og|sunnu- dag frá kl. 10-00 til 17.00 báöa daga. Komið og skoöiö staöinn og látið skrá ykkur. Öll handlóö og stangir eru frá hinu heimsþekkta fyrir- tæki Weider. Umboðsaðili er Heimaval, sími 44440. Gættu heilsu þirmar og hún gætir þín p

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.