Þjóðviljinn - 31.10.1981, Blaðsíða 12
12 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 31. okt. — 1. nóv. 1981
API
lærir
fingra-
mál
Sjimpansinn Nim hefur liklega
komist næst þvi að geta talað viö
mannfólkiö af öllum skepnum
sem ekki teljast til homo sapiens.
Hann var aiinn upp hjá venjulegri
fjölskyldu i New York og haföi um
60 kennara frá fjögurra mánaöa
aldri til fjögurra ára. Máliö, sem
honum var kennt, er fingramál og
var ekkert til sparaö svo aö þaö
mætti takast. Meöal annars fékk
hann til afnota 21 herbergis hús
meö stórum garði, eyddi sumar-
leyfum I sumarbústöðum og þar
fiam eftir götunum. Arangurinn
var sá aö hann kunni upp á sina 10
fingur 125 tákn i fingramáli og
gat tengt allt aö 3 tákn saman
þannig aö hann gat haldiö uppi
töluverðum samræöum.
Sá sem stóö fyrir rannsóknun-
um heitir Herbert Terrace og er
atferlisfræöingur aö mennt með
langan feril I könnun á atferli
dýra. Columbia háskóli veitti fé i
rannsóknirnar og er nýlega kom-
in út bók eftir Terrace þar sem
hann skýrir frá árangrinum.
Nim var fyrst komið fyrir hjá
LaFarge-fjölskyldunni i New
York og var þar látiö með hann
eins og hann væri litið barn. Hann
lærði snemma aö fara á klósettið
og tók fullan þátt f öllum heimilis-
störfum, t.d. matartilbúningi og
uppþvotti. Nim var ákaflega bliö-
lynd skepna og hændist fljótt að
krökkum og dýrum, sérstaklega
heimiliskettinum. Þegar hann
þurfti að fara i háttinn á kvöldin
gréthann eins og óþekkur krakki.
Aðferðin við kennsluna var sú
að t.d. áöur en hann fékk aö
drekka var haft fyrir honum
blindramálstáknið sem merkir
drekka og áður en hann var tek-
inn upp var haft fyrir honum
táknið sem merkir upp. Nim fékk
fljótt dálæti á myndabókum og
var ekki gamall að árum þegar
hann gat bent með visifingri á þaö
sem honum þótti mest varið i á
myndunum. Hann læröi lika fljótt
aö beita pensli og þekkja i sundur
liti. Aöur en lauk gat hann skrifað
nafnið sitt og einnig nafn ýmsra
kennara sinna.
Kennararnir sem kenndu Nim
voru flestir með fulla heyrn en
einna bestum árangri náði þó
stúlka, sem hafði misst heyrnina
13 ára gömul. Miklu fé og fyrir-
höfn var eytt i þessar rannsóknir
en þegar Nim varð fjögurra ára
þraut þó féð og hann varð aö fara
aftur til fæöingarstaðs sins f Okló-
homa og varö þaö honum töluvert
áfall eftir allt eftirlætiö. Meðan á
tilraununum stóð voru skráöar
hjá Nim um 20 þúsund mismun-
andi tjáningar. Þaö sem einkum
er ialið rannsóknunum til gildis
er innsýn sem þær veita um
mannkynið i árdaga þroska sins.
Nim notar bandariskt fingramál
til aö tjá sig. Hér bendir hann á
sjáifan sig sem merkir ÉG
Næsta tákn er I samhengi viö þaö
fyrra. Hann faömar sjálfan sig
sem merkir FAÐMA
Þriðja táknið, KISA, lýkur sam-
ræðunum. Nim hefur nú tengt
þrjú tákn saman: ÉG FAÐMA
KISU
Vel gert! Nim er verð-
launaður fyrir að brjóta
tjáningarmúrinn milli
manns og sjimpansa.
VIÐUREIGNAR
,,Blitzkrieg” gegn
heilbrigðri skynsemi
SAMEINAÐIR
STONDUM VÉR
-sundradirfóllumvér
Frjáls þjóð Hafa vil ég
í frjálsu landi háiftalit
Pytheu-leikir og
Pyrrhosarsigrar
BJAH.nI HANNfcSSON:
Hallarbylting? Vargar í véum
NYJU'FÖTÍNKEISARflHS
SAMEINAÐIR STÖNDUM VÉR
- SUNDRABIR FÖLLUM VÉR