Þjóðviljinn - 31.10.1981, Side 13
Helgin 31. okt. — 1. nóv. 1981 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
sKáh______________________________________________________
Jóhann Hjartarson
skákmeistari TR ’81
Síöastliðinn miðvikudag
lauk haustmóti Taflfélags
Reykjavíkur.— Þegar
þetta er ritað er að vísu
nokkrar skákir sem fóru í
bið, en þær breyta sáralitlu
um endanleg úrslit móts-
ins.
1 A-riðli mótsins, þar sem kepp-
endur voru 12 talsins og tefldu 11
umferðir fóru leikar þannig að
Jóhann Hjartarson sigraði, hlaut
8 1/2 vinning. Sævar Bjarnason
varð i 2. sæti með 7 vinninga.
Tveim efstu mönnum verður
ekki breytt en röðin er að öðru
leyti þessi:
3. Jóhann Ö. Sigurjónss. 6 1/2 c.
4. Benedikt Jónasson 6 v.
5. -6. Jón Þorsteinsson 5 1/2 v. + 1
biðsk.
5.-6. Dan Hansson 5 1/2 v. + 1
biðsk.
7. Július Friðjónsson 5 1/2 v.
8. -9. Sveinn Kristinsson 5 v.
Umsjón
Helgi
Ólafsson
Hvitt: Jóhann Hjartarson
Svart: Sævar Bjarnason
Nimzo-indversk vörn
1. d4-Rf6
2. c4-e6
3. Rc3-Bb4
4. C3-C5
5. Re2
(Kortsnoj gerði þessa leikað-
ferð vinsæla i einvigi sinu við
Karpov i Baguio 1978.)
5. .. cxd4
6. exd4-0-0
7. a3-Be7
8. d5-exd5
9. cxd5-He8
10. h3
(Jóhann fylgir uppástungu
enska stórmeistarans Keene.
Keene þessi er óspar á uppá-
stungurnar en er fremur ragur
við að nota þær i eigin skákum.)
10....Bc5
11. b4-Bb6
12. g4-a5
13. Hbl-axb4
14. axb4-d6
15. g5?
(Eftir þennan bráðláta leik
lenti hvitur i erfiðleikum. 15. Bg2
ásamt stuttri hrókun hlýtur að
koma á undan i stöðum sem
þessum.)
15. ..-Re4
16. Rxe4-Hxe4
17. Bg2-Bf5!
Jóhann Hjartarson
(Skemmtilega leikið. Hvitur á
nú þegar við erfið vandamál að
glima.)
18. Hb3
(Auðvitað ekki 18. Bxe4-Bxe4
og biskupinn hefur tvo hvita
hróka i skotfæri.)
18. .. Hc4!
19. Hb2-Haal
(Sævar teflir skákina af mikl-
um krafti.)
20. 0-0-DcS
21. Kh2-Rd7
(Riddarinn er á leiðinni i spikið.
Jóhann sér ekki fram á að geta
leyst liðskipunarvandamál sin á
viðunandi hátt og tekur á rás með
drottninguna)
22. Db3-Hxcl
23. Rxcl-Hxcl
24. Ha2-g6
25. Da4-llxf 1
26. Bxfl-Dcl
— Hvitur gafst upp. Algjört
hrun blasir við stöðu hans.
8.-9. Elvar Guðmundsson 5 v.
10.-11. Arnór Björnsson 4 v.
10.-11. Björn Jóhanness. 4 v.
12. Björn Sigurjónss. 2 1/2 v.
Jóhann var vel að sigrinum
kominn, tefldi af öryggi og tapaði
aðeins einni skák. Hann var
stigahæstur keppenda fyrir mótið
og þvi kom sigur hans ekki á
óvart. Frammistaða
Sævars Bjarnasonar er
einnig góð. Hann byrjaði rólega,
en sótti i sig veðrið er á leið og var
sá eini sem sigraði Jóhann. Þeir
Jóhann örn og Benedikt Jónasson
tefldu af öryggi og sýndu virki-
lega hvað i þeim býr. Afleit
frammistaða Elvars Guðmunds-
sonar kemur einna mest á óvart i
móti þessu. Kepnnisharka sú sem
einkenndi taflmennsku hans á
Skákþingi fslands og Skákþingi
Reykjavikur fyrr á þessu ári var
viðsfjarri. Þá er frammistaða
Sveins Kristinssonar eftirtektar-
verð. Hann hefur aftur hafið tafl-
mennsku og virtist bæta sig i
hverri umferð. Fyrir hann var
mótið helst til stutt.
1 B-riðli sigraði Guðmundur
Halldórsson, athyglisverður
skákmaður, sókndjarfur i betra
lagi. Hann hlaut 8 vinninga af 10
mögulegum. 1 2. sæti varð svo
Stefán Þórisson með 7 vinninga.
Staðan er að ööru leyti óljós i riðli
þessum vegna fjölda biðskáka.
I C-riðli deildu þeir efsta
sætinu, Óttar B'. Hauksson og Jón
H. Björnsson, hlutu báðir 7 1/2
vinninga úr 10 skákum. Agúst
Ingimundarson hlaut 7 vinn-
inga.
Jóhann Ragnarsson sigraði i
D-riðli hlaut 8 1/2 v. af 11 mögu-
legum. Stefán Sigurjónsson varð i
2. sæti með 8 vinninga og Tómas
Björnsson og Eggert Þorgrims-
son hlutu 6 1/2 v.
t E-riðli er útlit fyrir sigur
Þrastar Þórhallssonar. Hann er
með 8 vinninga og biðskák úr 11
umferðum en óskar Bjarnason er
með 7 vinninga og biðskák. Þröst-
ur er með lakari stöðu i sinni skák
og Óskar er með örlitið betra i
sinni biðskák og þarf nauðsynlega
að vipna eigi hann að ná Þresti.
I unglingaflokki sigruðu þeir
Georg Páll Skúlason og Davið
Ólafsson, hlutu 7 1/2 c. úr 9
skákum. Þeir munu heyja 2 skáka
einvigi um 1. verðlaun.
Að endingu flýtur hér eina tap-
skák sigurvegarans i mótinu,
Jóhanns Hjartarsonar:
Þetta umlerðarmerki
táknar
ll að
innakstur
er öllum
bannaður
— einnig þeim
sem hjólum aka.
Uíæ™"’
[jondon er...b
sem hýóur
þér næstum því allt fyrir sáralftið
orgin
laBtf
Allt sem þú hefur heyrt um London er satt.
Tveggja hæða, rauðir strætisvagnar luila
niður götur fullar af heimsíxægum verslun-
um. Verðir drottningarinnar skipta um vakt
á vélrænan hátt framan við Buckingham
höllina og á hverju homi virðist vera eitthvað
sem allir kannast við. Westminster Abbey er
rétt hjá Big Ben, sem er aðeins steinsnar frá
styttunni af Nelson og hinum megin við
homið er Piccadilly Circus.þú röltir bara
ámilli.
Og London er ennþá aðal verslunarmið-
stöð Evrópu, uppfull af alls konar tilboð-
um. Þú færð t.d. gallabuxur í skemmunni
hjá Dickie Dirts í Fulham fyrir 130 krónur
og hljómplötur á spottprís í plötubúð-
unum við King’s Road.
London er.... full af
ókeypls íjársjóðum
í London eru yfir 400 söfn og listasalir og
að þeim er yfirleitt ókeypis aðgangur. Ef
þú kaupir farmiða, sem heitir London
Transport Red Rover, geturþú ferðast um
borgina í heilan dag og skoðað London af
efri hæðinni á stórum rauðum strætó.
Miðinn kostar aðeins um 33 krónur.
London er... ódýr,
vinalegur pub
Þegar þú verður svangur skaltu gera eins
og Bretar gera, bregða þér inn á næsta
pub. Þótt þeir séu óiíkir, segja þeir hver
London
=1=
■iii
JbL
Ef þú ert hrifinn af knattspyrnu mætti
minna á að í London eru 3 fyrstudeildar
lið. Þú kemst á leik fyrir 30 krónur .
Það er fallegt að virða London fyrir sér frá
ánni. Þess vegna er upplagt að sigla frá
Westminster Pier til Greenwich, - en þar
er National Maritime safnið. Þeim 30
krónunum er vel varið - og svo er ókeypis
innásafnið.
London er .... hótel við
þitt hæfi
London er full af hótelum. Þar em lítil
hótel þar sem þú færð herbergi fyrir 180
krónur og enskan morgunverð fyrir 25
krónur, stærri hótel á meðalverði og luxus
hótel í hæsta gæðaflokki.
London er alltof stór í eina auglýsingu.
Það er því gott að geta gengið að bækling-
um og bókum BTA hjá bókaverslun Snæ-
bjamar. En það er ekki nóg. Þú verður að
sjá London sjálfa. Þú kemur aftur hlaðinn
ómetanlegum minningum og líklegast með
afgang af gjaldeyrinum.
um sig heilmikið um breskan lífsmáta. Glas af
b jór og k jötkaka með salati kostar ekki nema svo
sem 25 krónur og vingjamlegt andrúmsloftið
kostar hreint ekki neitt.
London er.... full af fjöri
Það er alveg sama á hverju þú hefur áhuga -
leiklist eða tónlist, þú finnur það í London. Þar
eru yfir 50 leikhús, 3 ópemhús, 5 sinfóníuhljóm-
sveitir, og engin poppstjama hefur „meikaða”
almennilega fyrr en hún hefur spilað í London.
Nú er líka hægt að kaupa leikhúsmiða á sýningar
samdægurs í miðasölunni á Leicester Square fyrir
hálfvirði.
FLUGLEIDIR
lækka ferðakostnaðinn
Þú getur notfært þér ódým sérfargjöldin
og hagstæða samninga Flugleiða við
Grand Metropolitan hótelkeðjuna og
keypt flugfar og gistingu á einu bretti!
Einnig hafa ferðaskrifstofumar á boðstól-
um stuttar helgarferðir með flugferð, gist-
ingu og morgunverði inniföldum í verðinu.
Athugaðu málið, - úrvalið er gott.
BRITISH TOURIST AUTHORITY
veitír ókeypis upplýsingar
Ef þú hefur samband við söluskrifstofur
Flugleiða, umboðsmenn þeirra eða ferða-
skrifstofurnar, getur þú fengið sendan
bækling frá British Tourist Authority með
nánari upplýsingum um London, ásamt
verðskrá og ferðaáætlun Flugleiða..
Komdu sem fyrst
í heimsókn!
nógað sjá,nógaðgera!