Þjóðviljinn - 15.12.1981, Page 2

Þjóðviljinn - 15.12.1981, Page 2
2. Siöa — Jólablaö Þjóöviljans Utan Ur slyddubyl á öndverðri góu skauzt stUlkan inn um aðal- dyr spitalans. Viðamikii hurðin skelltist á eftir henni. Þetta var i ljósaskiptunum, og langt liðiö á heimsoknartimann; máski var hann búinn. En hvað um það, þarna var hUn komin, fremur lág- vaxin og mjóslegin stUlkukind, og snjóflygsurnar i dökku hári henn- ar bráðnuðu óðar er hún var stig- in inn i þefjandi yl sjúkrahússins. Annarri hendi vék hún blautu hárinu frá hvitgráu andlitinu og afturfyrir axlir. 1 hinni hendinni bar hún þunnan plastpoka, og gegnum plastið grillti i tvö orö: Missa solemnis. Stúlka þessi var með öllu ó- kunnug hér i húsi og mintist þess ekki að hafa stigið hingað fæti inn áður. Hún vék sér kurteislega að lúgu ofanvert við anddyriströpp- urnar og nefndi karlmannsnafn i spurnartón. Sú sem sat fyrir inn- an lUguna hikaði við og setti i brúnir áður en hún áttaði sig og nefndi stofunUmer; leit svo upp á klukku á veggnum og bætti viö: Þaö verður þá að vera stutt, — heimsóknartímanum er að ljúka. Stúlkan skálmaði langleiðina innareftir gangi til hægri og fann dyrnar. Hún danglaði á þær tvö högg til málamynda, áöur en hún þokaði þeim upp, varfærin, ogleit inn fyrir. Þetta var tveggja manna stofa, en rUmið nær glugganum stóð autt. í hinu rúminu lá roskinn maður og virtist sofa. Hendur hans hvildu samanfléttaöar ofan á sænginni, og höfuð hans sveigt aftur á koddann vissi i átt að glugganum. f rökkurskimu, þar sem ekki hafði verið kveikt ljós, þrátt fyrir heimsóknartima og áfallandi dimm slydduél sem börðust utan við gluggann, lá hann þarna, þessi framandi mað- ur, i einmana ró. Hann var með hár niður á herðar og dökkt al- skegg. Hvort tveggja syndist svart i rökkrinu. StUlkan hætti við að ganga inn fyrir. Hún kannaðist alls ekki við þennan gamla mann, hafðialdrei séð hann f yrr, þetta hlaut að vera einhver misskilningur. Hún þok- aði dyrunum aftur, ofur hljóð- lega, til að vekja ekki þann sjUka; hún varð að spyrjast nánar fyrir um þann sem hún var komin til að finna. Þetta var þó skrýtið. 1 einskonar býtibúri framar við ganginn stóö riðvaxin kona með þykk gleraugu og skrallaði i áhöldum. StUlkan vék sér að henni. JU, sá er þó maðurinn, anzaði konan.Ert þú náinn ættingi hans, eða hvað? Nei, alls ekkert skyld honum, sagði stúlkan, og þekki hann eig- inlega ekki neitt. En það komu boð frá þessum manni til frænda mins. Hann á að hafa sasgt, að hann vildi fá að tala við mig... hvað sem það getur verið... ég veit það ekki. Kœian stundi lágt: Það er ekki hægtað segja, að hann hafifengið marga í heimsókn til si'n þessar vikur sem hann er búinn að vera hér... og fær varla marga úr þessu. Svo leit hún á stUlkuna of- anundan gleraugunum: Hann er mjög mikið veikur, góða min, og þolir varla langt samtal. Enda er heimsóknartimanum eiginlega lokið. En þú getur svosem fengið að lita inn til hans... Eitt enn: Hann þolir alls ekki að hlæja. Það má undir engum kringumstæðum komahonum tilaðhlæja, þá get- ur hann fengið kast. Þú manst það. Hvað... Hvað gengur eiginlega að honum? spurði stúlkan lágt. Um það skaltu spyrja hann sjálfan, góöa min, svaraði konan og leit á armbandsúrið um leið og hún sneri sér frá. Þegar stúlkan opnaði herberg- isdyr sjúklingsins ööru sinni, var hann vaknaður og sat hálfvegis uppi i rUminu. Um leið og hún steig inn fyrir lauk hann sundur kræklulegum höndunum og strauk þeim hægt yfir sængina. Nú sá hUn, að það óx vænn og dökkur hárbrUskur á nefi hans. Og enn gat hún ekki áttað sig á þvi, að þetta væri í rauninni tré- smiðurinn sem leigt hafði kjall- araherbergi i'húsi frænda hennar fyrir mörgum árum, þegar hún var stelpa innan við fermingu. Hún mundi það eitt um þann mann, aö hann hafði stundum verið fullur, en alltaf farið litið fyrir honum; og hann hafði þótt barngóður. En þegar hún nú bauð gott kvöld og hann tók þýðlega undir kveðjuna með orðunum: Hve gott þU komst..., þá mundi hún strax eftir röddinni, nokkuð djúpri, en þó vinsamlegri. Og þessa stundina að minnsta kosti bar hún engan vottum neina van- liðan, þvi siður þjáningu. Þú geröir boð fyrir mig, sagði stúlkan... Er eitthvaö sem ég get gert fyrir þig! bætti hún við og hafði numið staðar rétt innan við dyrnar. Það hvarflaði ekki aö henni að heilsa þessum bláókunn- uga manni með handabandi. Þú gætir... gert mér þá ánægju að fá þér sæti andartak, sagði maðurinn.Og nú fannststúlkunni hún heyra það, að hann þarfnað- ist þess að tala með hvildum. Hann benti á stól sem stóð ná- lægt fótagaflinum. Og hún settist á hann fremst; lagði plastpokann frá sér á gólfið, til hliðar. Ég má vist ekki stanza lengi, sagði hún. Vitjunartiminn er bU- inn. NU brosti maðurinn dauft og leit niður á hendur sér. Tennur hans voru annarlega hvitar i röikrinu, rétt eins og augun. Hátiðlega mælt, sagði hann. Vitjunartimi. Ég héltekki að ungt fólk ætti það til... að tala svona hátiðlega. En hver vitjar hvers? Ég skil ekki...,sagðí stúlkan. Ég á við, að það ert ekki endi- lega þú, sem ert að vitja min... Það er alveg eins ég sem er að vitja þin, sagði maðurinn. Ég... skil þig ekki, sagði stúlk- an. Skiptir engu. Ég vitja þin ekki oftar, vertu viss...ogengra. Þetta verður min hinzta vitjun. Og nU er það ég sjálfur sem er orðinn há- tiðlegur. - Ef það er ekkert sérstakt, þá ætti ég Mtlega að fara, sagði hún. Nei, farðu ekki alveg strax, væna mi'n, sagði hann auðmjúk- ur. Það síóst eitthvað utan i gluggarúðurnar. Ekki gat það hafa verið trjágrein, þvi það stóðu engin tré nálægt gluggan- um. StUlkunni varð litið út þangað sem óveðrið hamaðist, siðan á auða rúmið. Þú liggur hér einn f stofu, sagði hún. Svo er nU komið já, gegndi maðurinn og vottaði ekki lengur fyrir auðmýkt i rómnum. Þeir fóru með hann áðan... upp úr há- deginu var það vist.. þann sem iá þarna. Hann drapst. Drapst hann? át stúlkan eftir. Drap éghann? Nei,hann drapst bara, tautaði sjúklingurinn. Ég meina... það er nú yfirleitt talað um að fólk deyi, en ekki að það drepist, sagði stúlkan. Þá það, góða, sagði maðurinn; bætti svo við eftir andartaks hvild : Það er ekki nema gott eitt um það að segja, þótt einhver drepist, væna min... Dauðinn er absolút... Liklega kemst maður ekki hærra i lifinu en þegar mað- ur lætur loksins verða af þvi að drepast. Stúlkunni hnykkti við. Ofsalega hlýturðu að vera á sterkum lyfjum, sagði hún. ÞU talar svo undarlega. Ojæja, svoþú heldur það, sagði maðurinn. Fjárakornið þetta eru nokkur lyf sem ég fæ. Þau koma aldrei til með að lækna mig. Og verra er þó, að þau virðast ekki geta drepið mig heldur. Mér heyrist samt að það liggi bara vel á þér, eftir atvikum, sagði hún og flýtti sér að bæta við: ÞU gerðir boð fyrir mig... hvers vegna endilega mig? Maðurinn svaraði þessu ekki, en hafði nU lokað augunum að nýju og tautaði lágt, þó greini- lega: Það var nú annars meiri óþurftarmaðurinn þessi Hippó- krates ... sannkallaður glæpa- maður og mannkyns kvalari. Hippó-hvað? hváði stúlkan. Hver er það? Hann ber ábyrgðina á þvi, að læknum er fyrirmunað að mega stytta sjúklingum aldur, þó svo að baráttan sé vonlaus og tilgangs- laus og kvalirnar óbærilegar... Þeir eru ófáir sem óska sér þess að mega deyja, en fá ekki að deyja. Við þessu gat stúlkan ekkert sagt, en litlu siðar heyrði hún manninn halda áfram: Mikið afskaplega var hann bú- inn að þjást þessi piltur hér við hliöina. En þeir máttu ekki gera fyrir hann þetta eina sem rétt hefði verið og hann þráði sjálf- ur... Ur því sem komið var. Var þetta þá ungur piltur? spurði stúlkan. NU leit sjúklingurinn á þá að- komnu, og beint i augu henni um leið og hann svaraöi: Tæpt þri- tugur. Og hann hélt áfram að horfa þannig i' augu henni, og nógu lengi til þess, að hún hætti við að spyrja hvað gengið hefði að honum, en sagði þess f stað aðeins það eina sem hægt var: Jæja. Eftir enn eina hvild hélt hann áfram: Þetta var gullfallegur maður... og prýðis vel gefinn... En hann var einmana hér... að- komumaður utan af landi og þekkti vist engan i þessum bæ... eða: enginn þekkti hann, að minnsta kosti ekki eftir að hann var kominn hingað... Við ræddum margt saman, þessar vikur sem hann lá hér... þvi hann var viða heima. Og hann taldi sig ekki upp

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.