Þjóðviljinn - 15.12.1981, Blaðsíða 21
Jólablað Þjóftviljans — StÐA 21
Ljóð og teikningar: Bragi Magnússon
■ ■ V .
•>sr-.
•>.* >-
■ -v
Grasið
dansar
Vindurinn kemur suðandi,
suðandi,
niður brekkuna
yfir veginn
og bregður á leik
um loðinn völlinn,
setur sveipi í grasið,
sveiflar því,
— í gáskanum hneigjast
gullinkollar
að rauðkollum.
Grasið dansar,
og þér finnst þú sitja
undir syngjandi tónum
fiðlu og horns,
meðan fínlegar dansmeyjar
svífa um sviðið
við hvísl um meistaraverk,
en ekkert,
ekkert mannlegt meistaraverk,
ekkert svanavatn,
engin sýning,
hvaða nafni sem
nef nist,
jafnast á við vindsveip
i grasi
vallarins
meðan þú situr í hásæti hólsins
og horfir á
gáskann og gleðina
í grasinu,
sem dansar um völlinn.
Vökult er auga
Vökult er auga vatnsins
vökunótt,
mýkt þess eins og mildur koss
við meyjarbrjóst
er vekur þig hægt og
veröldin breytist
í vökunótt.
í djúpi augna þinna,
i djúpi vatnsins,
dulinn seiður
vermdi kalið vetrarhjarta
vökunótt.
Ég gekk inn í seiðinn með
söng í hjartanu
um sigur lífsins,
— ég veit ekki hvort ég vakti
eða svaf
þá vökunótt,
mildi vatnsins,
munaður lífsins,
mýkt þín — .
Vökult er auga vatnsins
um vökunótt.
Morgunn
I skímunni þegar skuggarnir, langirog dökkir,
skima eftir stað til að gista
lengur,
lengur,
og fyrstu geislar sólarinnar eins og
gullstaf ir stökkir,
stinnir og beinir, án kvista,
snerta vanga vatnsins,
vaknar allt af næturdvalanum,
þá gellur við gleðihróp,
siguróp,
í gljáfrandi morgunsvalanum —,
álftirnar risa upp úr reyrnum og störinni
og renna um vatnið með nýjan ungan dag
förinni.
Heill þér birta,
heill þér Ijós,
heill þér líf.