Þjóðviljinn - 15.12.1981, Síða 23

Þjóðviljinn - 15.12.1981, Síða 23
Jólablaö Þjó&viljans — SiDA 23 Á slóðum... Framhald af bls. 12 frá Lima og fór þá til Bogóta — var þar i eina nótt — en fór svo beint til Panama og var þar i 2 nætur. Sföan tók ég áætlunarflug til Guatemala borg og lenti þá i eldgamalli flugvél sem brakaði og brast i. Hún var svo óþétt að þaö var rok inni. Ég beið bara eftirað hún hrapaði. Þar að auki þræddi hún M-Amerikurikin áður en ég komst á leiðarenda. Milli- lent var i Nicaragua, E1 Salvador og Honduras. A flugvellinum i' E1 Salvador var farþegum ráðlagt að fara ekki út úr flugvélinni vegna borgarastyrjaldarinnar sem þar geisar. — Hvernig kom þér Guatemala fyrir sjónir: — Höfuöborgin kom mér á óv- art þvi að hún er ákaflega falleg og þar fannst mér i fyrsta skipti verulega vingjarnlegt viðmótein- kenna borgarbúa. Ég fékk fyrst vont hótel þar sem rottur léku lausum hala milli þilja og héldu fyrir manni vöku. Siðan fékk ég gott hótel, sem áður hafði verið fint einkaheimili. Þar var ákaf- lega persónuleg þjónusta og það var ekki sá hlutur til sem eigandinn vildi ekki gera fyrir mig. Frumskóga- borgin Tíkal — Og i Guatemala var Tical fyrirheitni staðurinn? — Já, það er borg sem ekki var týnd eins og Macchu Piccu heldur algjörlega horfinn inn i frum- skóginn. Þetta hefur verið stór borg og er talið að þar hafi búið um 200 þúsund manns á sinum tima... Það er mjög einkennilegt að þessi borg skuli hafa verið reist þama inn i miðjum frum- skóginum þviaðhann er svo þétt- ur og frjósamur að erfitt er að koma ræktun við og þvi hlýtur að hafa veriö erfitt að afla matar. Þetta var miðborg majarikisins. Fornleifafræðingar vinna nú af kappi að þvi að grafa borgina upp en mjög erfitter að rjúfa gróður- inn. Samt er borgin afskekkt og fáir túristar sem leggja á sig að skoða þessar rústir, ekki sist vegna þess að skógurinn er fullur af bandittum og má alltaf búast við árásum. Ég flaug á staðinn en þvi miður sat ég vitlausu megin i flugvélinni og sá þvi ekki yfir borgina þegar flogið var yfir. Hvarvetna á stóru svæði eru hæðir og hólar. Það eru pira- midar sem ekki er búið að rifa gróðurinn af. Þarna hefur verið heil borg með fullkominni mainingu. Ég varsvo heppinn að hitta á franskan fomleifafræðing sem gekk með mig um svæðið. Hann sagði mér að mayarnir virtust hafa byggt ný hof á 10 ára fresti. Búið er að ráða dagatal þeirra en leturmynstrið er enn ó- ráðið. Meðan ég var þarna i Tical stóð ég einn dag fyrir framan strákof- ann minn og þá kemur rúta með ferðamenn. Þarna inni i miðjum frumskóginum stigur út grönn dama i pilsi, með hvita sólhlif og i flatbotna skóm. Mér þótti þetta kynlegur búnaður þarna inni i miðjum frumskógi og var eitt- hvað að grinast með þetta. Þá kom i ljós að þeta var kanadisk kona sem hafði ferðast á alla „exótiska” staði sem hugsast getur og vissi allt um menningu þeirra, alltþað sem mig dreymir sjálfan um. Hún haföi verið i Luxor i Egyptalandi, Orog Baby- lon, Tyrklandi (Tróju), Indlandi, Kasmi'r og Nepal. Svo sagði hún við mig: „Ungi maður, þú ert heppinn að vera hér núna. Eftir nokkur árverður allt logandi i ó- eirðum hér og þá verður ekki hægt að sjá neitt. Ég hef verið i E1 Salvador, Tyrklandi, Afghan- istan, Pakistan, tran og trak. Þetta eru nú meira eöa minna lokuð lönd.” — Og þá fer að liða að lokum ferðasögunnar? — Já, ég fór siðan til Mexikó og fékk þar skæða matareitrun, missti af 23. mars og slöngudans sólarinnar upp piramidann i Chichenitza. Ég frétti reyndar eftir á að skýjað heföi verið þennan dag og var mér þaö léttir. Siöasti áfangi var svo Chicaco þar sem ég heimsótti systur mi'na og var hún fegin að sjá mig. —GFr. landsmönnum öllum jóla árs og friðar. viðskiptin á liönum land allt. r ^ komist að kjarnanum ÞJÓÐ VILJANN UOWIUINN Síðumúla 6 — Askriftarsimi 81333.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.