Þjóðviljinn - 16.01.1982, Síða 15

Þjóðviljinn - 16.01.1982, Síða 15
Helgin 16.— 17. janúar 1982. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 Verslanir við Bankastrœti og neðanverðan Laugaveg: Um heita erlendum nöfnum Nokkrar umræður hafa spunnist um erlend heiti á islenskum skemmtistöðum að undanförnu, sérstaklega eftir að tveir nýir, Manhattan og Broadway, komu til sögu. Þykir mörgum það hin mesta ósvinna að skira islensk fyrirtæki slikum nöfnum og getur undirritaður tekið undir það. Hitt er annað mál, að þetta er ekki ný bóla á íslandi og m.a.s. gömul hefð fyrir þvi, t.d. að skira verslanir i höfuðið á erlendum stórborgum. Svo virðist samt að erlend heiti hafi færst i vöxt siðustu ár og til marks um það má nefna að i Bankastræti og við neðan- verðan Laugaveg (frá Snorrabraut) eru nær 40 verslanir með erlendum nöfnum eða litlu færri en þær sem heita góðum og gildum islenskum nöfnum. Verður þetta gert að umtalsefni i grein þessari. Meðan verslun á íslandi var að miklum hluta i höndum útlendinga var eðlilegt að þær hétu erlendum nöfnum, svo sem Duus, Thomsens Magasin, Fischersverslun, Bryde, L.H. MQller, O. Ellingsen o.s.frv. Mikil viðskiptasambönd tökust við Bretlandseyjar á siðustu öld og þá komu upp verslunarnöfn svo sem Glasgow, Edinborg, Liverpool og Aberdeen. I seinni heimsstyrjöld jukust ensk áhrif að mun á Islandi og siðan þá hafa fjölmörg islensk fyrirtæki verið skirð enskum heitum, svo hvim- leiður sem sá siður er. Þar má nefna t.d. Electric h.f. (stofnað 1940) og Everest Trading Company (stofnað 1952). Flestar verslananna við Lauga- veginn sem bera erlend nöfn eru nýj- ar af nálinni og margar tiskuvöru- búðir. Hins ber að geta að fjölmargar verslanir við þessa götu heita góðum islenskum nöfnum og fer engum sögum af þvi að þeim vegni verr en þeim sem bera erlendu heitin. Þar má sjá nöfn eins og Rima, Helgafell, Penninn, Vinnufatabúðin, Skæði, Brá, Glitbrá, Gullhöllin, 1001 nðtt, Vöggur, Sjón, Osk, Silfurbúðin, Glugginn, Framtiðin, Elfur, Tisku- skemman, Dagný, Iða, Brynja, Mömmusál og Vaggan. Hér verða talin upp erlendu heitin i Bankastræti og upp að Laugavegi 100. Þó er sleppt öllum videóleigun- um, en þær eru nokkrar þarna og hafa allar videó sem forlið. Bristol (Bankastræti 6), Clara (nr. 8),Kosta Boda (nr. 10), Bon Bon (nr. 11), Pophúsið (nr. 14), Biering (Laugavegur 6), Bixið (nr. 11), Nesco (nr. 10), Sport (nr. 13), Tékk- kristall (nr. 15), Liverpool (nr. 18), Bonanza (nr. 24), Milano (nr. 24), Olympia (nr. 26), Amazon (nr. 30), Partner (nr. 30), Bistro (nr. 32), Bonny (nr. 35), Faco (nr. 37), Franch Michelsen (nr. 39), Marella (nr. 41), Kúnst (nr. 40), Nora (nr. 45), Figaró (nr. 51), Top Class (nr. 51), Plaza (nr. 52), Blondie (nr. 54), Dltima (nr. 59), Fiber (nr. 61), Magnor-kristall (nr. 62), Loilipop (nr. 62), Karnabær (nr. 66), Amatör (nr. 82), Fanny (nr. 87), Barón (nr. 86), Domus (nr. 91) og Marilyn (nr. 92). Fleiri fy'rirtæki á þessum slóðum eru reyndar með útlendum heitum, svo sem hársnyrtistofurnar Papilla og Désirée. Af þessu sést greinilega að Broadway, Hollywood og Manhattan eru ekki einangruð fyr- irbæri heldur býsna útbreidd. — GFr

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.