Þjóðviljinn - 16.01.1982, Síða 32

Þjóðviljinn - 16.01.1982, Síða 32
UÚÐVIUINN Helgin 16.— 17. janúar 1982. nafn vfkunnar Karl Þorsteins Nafn þessarar viku er skákmeistarinn Kari Þor- steinsson sem náö hefur frá- bærum árangri á alþjóðlegu skákmóti unglinga i Hio de Janeiro i Brasiliu undan- farið, en þegar siðast fréttist var hann efstur með 9 vinn- inga eftir 11 umferðir. Skákmótið i Rio er haldið af Skáksambandi Brasiliu i samvinnu við tvö einkafyrir- tæki, og tefla 16 sterkir skák- meistarar 17 ára og yngri frá Sovétrikjunum, Bretlandi, Hollandi.Júgóslaviu og fleiri löndum á mótinu. Það var Skáksamband Islands sem vakti athygli Brasiliumann- anna á Karli er þeir fréttu af mótinu, og varð þaö til þess að honum var boðið. Skák- sambandið styrkti hins vegar eidri bróður hans, sem einnig teflir.til þess að verða Karli til aðstoðar. Karl Þorsteinss. er læddur 13.október 1964 og hann lærði taflmennsku af föður sinum og bróður, sem er ári eldri. Hann fór ungur að tefla hjá Taflfélagi Reykjavikur og varð 2. á Unglingameistara- móti Islands fyrir 20 ára og yngri árið 1977, þegar hann var 13 ára. Fjórtán ára gam- all náði hann 50% vinnings- hlutfalli á Skákþingi islands i meistaraflokki og árið 1979 náði hann þeim frábæra ár- angri að sigra i eins konar heimsmeistarakeppni ung- linga innan 16 ára, sem haldið var i Puerto Rico. Á árinu 1980 komst hann i hóp bestu skákmanna Is- lands aðeins 16 ára gamall, er hann varð 2. i áskorenda- flokki Skákþings islands og vann sér rétt til aö keppa i landsliðsflokki árið eftir. A siðasta ári hafnaði hann i 4—5 sæti i landsliðsflokki á Skákþingi Islands og var þá m.a. fyrir ofan stórmeistar- ann Guðmund Sigurjónsson og alþjóðlegu meistarana Jón L. Árnason og Inga R. Jóhannsson. Á mótinu i Brasiliu verða tefldar 16umferðir. í siðustu tveim umferöum sigraði Karl þá Wells frá Englandi og Maxim d’Lugy frá Banda- rikjunum, sem þeir hjá Skáksambandinu segja að séu þekktir meistarar i skák- inni. Fyrstu verðlaun á mótinu verða 500 dollarar, 2. verð- laun 400 og þau 3. 300 doll- arar. Samkvæmt hinni alþjóð- legu ELO-stigatöflu hafði Karl 2305 stig áður en hann fór i mótið og er þar í 17.—18. sæti islenskra skákmanna. Hætt er við að sú röð eigi eftir að breytast ef heldur sem horfir. Þjóðviljinn óskar Karli góðs gengis i siðustu umferðum mótsins. Abalsfmi Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn hlaðsins I þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbroi Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663 8i285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl 9-12 er hægt að ná i af- greiðslu blaösins i slma 81663. Blaðaprent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 Valdimar Sigþórsson háseti á Snorra Sturlusyni. Valdimar Sigþórsson háseti á Snorra Sturlusyni: Pappírsleikur útgerðarmanna Valdimar Sigþórsson háseti á Snorra Sturlu- syni var að hengja upp auglýsingu i Kaffivagn- inum á Granda þegar við náðum í skottið á honum og leituðum fregna og álits á stöðunni einsog hún var i gærmorgun. Núna verðum við að byrja uppá nýtt, baráttan er hafin að nýju, sagði Valdimar sem átt hefur sæti í samninganefnd sjó- manna í deilunni að undanförnu. — Ég er ekkert sáttur við oliugjaldið, það á engan rétt á sér. Kristján Ragnarsson og hans menn I samninganefndinni ljéðu ekki máls á þvi að það yrði tekið út. Eftir nokkuð þóf ákváð- um við lika að gefa frest á af- námi oliugjaldsins fram yfir næstu áramót. — Ég held að það sé ekkert annað að gera i stöðunni en setjast niður og byrja uppá nýtt þessa samninga við útgerðar- menn. Við þá er þetta strið. Við urðum að fallast á tillögu sátta- nefndar einsog hún var lögð upp. Boltanum var hent til rikis- stjórnarinnar og samkomulagið sprakk á fiskverðinu, þannig litur þetta út i minum augum. — Fjölmiðlarnir eru nú alvég sérstakur kapítuli i þessari deilu. Menn hafa verið þar með vitiausa útreikninga og rang- túlkanir. Meðalkaup venjulegra sjómanna er ekkert hátt einsog einhvern veginn hefur verið rangtúlkað i fjölmiðlunum. Og sjómenn á flotanum standa engan veginn jafnt að vigi. Allar sérkröfur til dæmis háseta á stóru togurunum voru ekki með i samningunum núna. Ef byrjað verður upp á nýtt munum við setja sérkröfurnar fram af fullum þunga. Útvarpið gerði okkur allt I óhag. Og blöðin höfðu undarlegustu aðferðir i fréttamennskunni. A samninga- fundinum i fyrrinótt var húsinu lokað og öllum óviðkomandi visað út. Það kom hins vegar ekki i veg fyrir það, að Morgun- blaðið var með fréttir á baksiðu blaðsins, sem við fengum þegar ihendur á fundinum um nóttina, með fréttum af þessum lokaða fundi. Þetta þykir mér skrýtið i meira lagi. — Útgerðarmennirnir eru að leika skollaleik. Þetta er allt saman einn pappirsleikur. Hverjir eiga flestar fiskvinnslu- stöövarnar aðrir en útgerðar- menn? Þrátt fyrir allt held ég að vig- staðan sé mjög góð fyrir sjó- menn núna. Við höfum aldrei haft jafn góða aðstöðu til átaka og núna, mest allur flotinn i landi og sjómenn orðnir lang- þreyttir og reiðir. -bg Sjómenn á verkfallsvaktinni Reiðubúnir í harðari átök Orðnir skítblankir í verkfalli á versta tíma Niður á Granda hittum við þá ívar Bjarnason á Hilmi SU, Guðmund Ólafsson á Ásbirni RE og Öla Má Eyjólfsson á Karlsef ni. Þeir voru hinir gunnreifustu þegar þeir voru spurðir um stöðuna í deilunni í gær: — Þetta er allt komið i hávaðaloft aftur og við erum alveg til I harðari átök. Auð- vitað erum við orðnir skitblank- ir og vildum gjarnan komast á sjóinn sem fyrst. En það er ekki gott viö aö gera einsog staðan er orðin. Við erum eiginlega að fylgjast með þvi hvort nokkur sé á þeim buxunum að fara á sjó, en enginn er aö gera klárt. Það er orðin mun meiri samstaða meðal sjómanna núna eftir allt þetta brölt. — — Við viðurkennum að það er Guðmundur ólafsson á Asbirni RE. stundum erfitt að átta sig á þessu máli og viö vitum ekki um allar staöreyndir málsins. En þaö erum við með á hreinu, við viljum losna við oliugjaldið sem allra fyrst. Núna er versti tim- inn til að standa I verkfalii en tvar Bjarnason á Hilmi SU. sjómenn verða að standa saman hvaðsem tautar og raular. Fjöl- miðlarnir, sérstaklega útvarpið hafa leikið málstað okkar illa en það kemur ekki i veg fyrir að við sýnum samstöðu. Svo erum við steinhissa á Vestmannaeying- Texti: óg Myndir: gel Óli Már Eyjólfsson á Karlsefni unum, kannski hafa þeir eitt- hvað misskilið fréttirnar.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.