Þjóðviljinn - 01.05.1982, Page 3

Þjóðviljinn - 01.05.1982, Page 3
Helgin 1,— 2. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3 Rætt við Stellu Steinþórsdóttur, trúnaðarmann í Síldarvinnslunni í Neskaupstað mér nú að þaðhaí'í nú ekki alldeil- is verið þannig. Ég var nokkrar vertiðir fyrir sunnan, og þegar mikill afli barst á land, var bara ; ekki um neitt annað að ræða en að i taka á honum stðra sinum og hamast jafnvel til ellefueða tólf á kvöldin.” — Hvernig list þér á þá vélvæö- ingu og tölvuvæðingu, sem á sér stað i fiskvinnslunni? „Mér list auðvitað ekkert á vél- væöingu, ef hún kostar það, að fólk missi atvinnu i stórum stil. Það hefur ekki gerst hér i Sildar- vinnslunni, enda hefur nægur afli borist á land, og okkur vantar frekar fólk en hitt.” — Þaðer alltaf nóg af fólki sem vill koma i fiskvinnslu, er það ekki? „Nei, það er tilfellið að unga fólkið kemur ekki i þessa vinnu núorðið. Og það fer minnkandi ár frá ári að skólafólkið komi hingað i sumarvinnu. Áður fyrr fylltist hér allt af skólafólki á sumrin. Ég held að þetta stafi af þvi, að það þykir ekki fínt að vera i fiski lengur. Það er auðvitað fisklyktin ogmaðurer ekki ifinum fötum og þetta er vissulega nokkuð erfið vinna. Maður er kannski búinn að lyfta tonni af fiski, þegar dagur- inn er á enda!” Þar með sneri Stella sér á ný ofan i bónusútreikningana en gat þess að lokum aö atvinna væri næg orðin, eftir að Norðfirðingar fengu skuttogarana — en að fleiri atvinnutækifæri þyrftu að koma til og fjölbreyttari, svo bærinn gæti stækkað. „Krakkarnir fara suður i langskólanám og koma ekki hingað aftur af þvi að það er ekkert fyrir þau að gera. Við höf- um til dæmis hvorki lögfræðing á staðnum né verkfræðing, ja, nema þá bæjarstjórann okkar. Hanner verkfræðingur, þótt hann vinni að visu ekki sem slikur”, sagði Stella kimin á svip um leið og hún sökkti sér oían i bónustöl- urnar. En þær eru ekkert grin. —jsj. Það vantar Þegar blm. Þjóðvilj- ans var á ferð i frysti- húsi Sildarvinnslunnar á dögunum hitti hann á kaffistofunni Stellu Steinþórsdóttur, trúnað- armann. Hún var önnum kafin við að yfirfara bónusútreikninga og ganga frá auglýsingu um tónleika i Egilsbúð sem átti að fara upp á vegg i kaffistofunni en tók vel i beiðni blaða- manns um spjall og hún var fyrst spurð um nýja rafeindainnviktunar- kerfið, sem tekið hefur verið i notkun i frysti- húsinu. „Já, það er alveg nýtt af nál- inni, og það er áreiðanlega mjög gott að geta alltaf séð, hvernig húsið nýtir hráefnið. Ég held að það muni koma til með að ganga ágætlega.” — Hvaða áhrif hefur þetta á laun starfsfólksins og bónusinn? „Við höfum verið um tima með reynslubónus á vélflökuninni, og það hefur að sumu leyti komið á- gætlega út, a.m.k. þegar hægt er að keyra vélarnar allan daginn. Bónusinn gerir auðvitað nauðsyn- legt að haft sé nákvæmt viktunar- kerfi, bæði inn á vélina og út úr henni, til þess að bónusinn verði réttur. Nú, þetta nýja kerfi gerir mögulegt að hafa bónus á hand- flökuninni, aí þvi nú er hægt að vigta margar tegundir af fiski til hinna ýmsu staða i húsinu.” — Hefur þú starfað lengi I fisk- vinnslu? ,,Ég fór nú fyrst i fisk i Reykja- vik á þvi herrans ári 1958, en ég hef unnið samfleytt i i'iski siðast- liðin tólf ár.” — Hefur fiskvinnslan ekki breyst töluvert á þessum tíma? „Jú, þetta er orðið allt annað núna. Þá var nú t.d. enginn bón- us, og þótt fólk virðist halda að hamagangur i fiskvinnu hafi byrjað með bónusnum, þá finnst fólk Stella Steinþórsdóttir trúnaðarmaður: unga fólkið sækir ekki lengur f sama mæli og áöur i fiskvinnu. I3CIMAR FLJOGOM VIÐ SOÐOR Við munum nú í vor heQa áætlunarflug til þriggja borga á meginlandinu, sem allar em miðsvæðis og tengdar íjöi- sóttum ferðamannastöðum. Til Amsterdam tvisvar í viku. Til Dússeldorf einu sinni í viku. Til Zúrich einu sinni í viku. ^tARNARFLUG LágmúlaT, sími 29511

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.