Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 30
3Ó S1ÐA — WÓÐVILJÍNN Heigín 1 — 2. mai 1982
SUS óttast afstöðu námsmanna erlendis:
„Kærið ykkur ekki inn á kjörskrá”
segir í bréfi
Geirs Haarde
Tilraun til
að hafa af
mönnum
kosninga-
réttinn segir
Úlfar
Þormóðsson
Geir H. Haarde, formað-
ur Sambands ungra Sjálf-
stæðismanna hefur í nafni
samtaka sinna skrifað öll-
um íslenskum náms-
mönnum erlendis bréf/ þar
sem hann segir að ónauð-
synlegt sé að þeir kæri sig
inn á kjörskrá.
Olfur bormóðsson kosninga-
stjóri Alþýðubandalagsins hafði
samband við blaöið og sagöi að
hér væri greinilega um óskamm-
feilna tilraun að ræða til þess að
hafa af námsmönnum kosninga-
réttinn, þar sem vitað væri að
hundruð námsmanna væru ekki
komin inn á kjörskrá.
Ibréfi SUSstendur:
.„Islenskir námsmenn erlendis
eru nú i l. sinn allir sjálfkrafa á
kjörská i heimabyggð sinni á
Islandi og þurfa ekki að kæra sig
inn á kjörskrá nema serstaklega
standi á.”
— Ástæðan fyrir þvi að Geir H.
Haarde hefur sent þetta bréf út er
greinilega sú, sagöi Úlfar, að
hann hefur áttað sig á þeim and-
byr, sem Sjálfstæðisflokkurinn á
við aö striða meöal námsmanna
eftir að hann kom úr Norður-
landaferðinni með Davið Odds-
syni á dögunum. Hér er um
vitaverða fölsun á staðreyndum
að ræða, sem gerð er i þvi skyni
að villa um fyrir fólki þannig að
það tryggi sér ekki kosningarétt.
Staðreyndin er sú, aö nú er
óvenjumikið umrugling á kjör-
skránni, sérstaklega meðai
þeirra sem staðiö hafa i búferla-
flutningum, og á þaö jafnt við um
námsmenn erlendis og aðra.
Alþýðubandalagið vinnur nú
markvisst að þvi að kæra alla þá
inn á kjörskrá, sem af ein-
hverjum ástæðum hafa fallið út.
Þannig höfðu þau Guðrún Helga-
dóttir, og Sigurjón Pétursson út
með sér útskrift á námsmönnum
á kjörskrá þegar þau fóru i heim-
sókn til óslóar, Lundar, Gauta-
borgar, Stokkhólms, Uppsala og
Kaupmannahafnar á dögunum.
Námsmenn á þessum stöðum
geta leitað til þeirra sem gengust
fyrir fundum þeirra til þess að
kanna hvort þeir eru á kjörskrá.
Arðir geta snúið ser til kosninga-
skrifstofu Alþýöubandalagsins
eða til ættingja. Við kæru inn á
kjörskrá þarf að tilkynna siðasta
lögheimili á Islandi, nafnnúmer,
fæðingarár, og hjúskaparár ef
viökomandi eru gift.
Áriðandi er aö þetta sé gert sem
allra fyrst, þvi kærufrestur renn-
ur út i lok næstu viku.
Það er sérstök ástæða fyrir
alla, sem nýlega hafa flust búferl-
um, að kanna hvort þeir eru á
kjörskrá, sagði Úlfar aðlokum.
ólg.
* Kappræðufundur um borgarmál úr sögunni:
[Ungu mennirnir í vinstri flokkunuin
treysta sér ekki til að verja meirihlutann
I- segir Árni Sigfússon formaður Heimdallar
„Okkur hafa boriut nvör frá ungu
\ mönnunum i vinstri flokkunum þrem-
, AlþýAuflokki, Alþýöubaadalagi og
[ Framxóknarflokki, en því miöur er
I niAarstaAa þeirra m, aA þelr trejsU
heföi gengið aö komaat að niður-
stðöu um hverju svara skyldi. Er
svörin bárust, hefðu ungir fram-
sóknarmenn sagt að þeir væru til-
búnir til að mæta ungum sjálfstæð-
Svipaðan tón kvað Árni hafa verið í
svari ungra jafnaðarmanna, þeir
vildu ekki koma fram með sam-
starfsflokkum Alþýðuflokksins,
meirihlutanum, gegn minnihluta
sjálfstæðismanna.
^ald.
okkurj
ungu mennirnir vilja ekki taka upp
hanskann fyrir eða verja það sem
þeir eru sjálfir óánægðir með.
Heiðarlegra hefði þó verið að segja \
það hreint út, eins og Æskulýðs-
nefnd Alþýðubandalagsins gerír aði
vísu 8vo gott sem: þeir vilja ekki T
Sölvi Ólafsson formaður Æskulýðsnefndar AB:
Erum tilbúnir í
kappræður
en Heimdallur ákveður
ekki leikreglur
„Þaö er af og frá aö við í
Æskulýösnefnd Alþýðu-
bandalagsins séum ekki til
búnir i kappræður viö
ihaldið/ enda tókum við
það greinilega fram í svari
okkar við áskorun Heim-
dallarum kappræðufund"/
sagði Sölvi ólafsson for-
maður ÆNAB, aðspurður
um viðtal sem haft var við
formann Heimdallar i
Morgunblaðinu í gær um
að ungir menn i vinstri
f lokkunum treystu sér ekki
til að verja meiri hlutann i
borgarstjórn.
,,Ég verð að segja, að þessi
uppsláttur hjá ihaldinu kemur
mér mjög á óvart, en það er
kannski svona, sem þeir ætla að
„Hið ljósa
man
Sunnudaginn 2. mai kl. 14.00
veröur fluttur i Utvarpinu 4. og
siðasti þátturinn i afmælisdag-
skrá um Halldór Laxness átt-
ræðan. Hann heitir „islands-
klukkan — Hið ijósa man”.
Fluttir eru valdir kaflar úr
þessu mikla verki skáldsins i leik-
gerð Lárusar Pálssonar og undir
leikstjórn hans. Þaö var eitt af
frumsýningarverkunum við
opnun Þjóðleikhússins sem
kunnugt er, og við heyrum
Laxness flytja inngangsorð sin á
vigsluhátiðinni. Einnig les hann
nokkra tengikafla með leiknu
þáttunum. Meðal flytjenda má
nefna Brynjólf Jóhannesson,
Herdis borvaldsdóttur, borsteinn
O. Stephensen, Reginu Þórðar-
dóttur, Harald Björnsson og
Lárus Pálsson. Umsjónarmenn
dagskrárinnar eru Baldvin
Halldórsson og Gunnar Eyjólfs-
son.
reka kosningabaráttu sina. Það
hljómar nefnilega eins og öfug-
mæli hjá formanni Heimdallar að
segja I viðtalinu við Morgunblaö-
iö, að ungt fólk sé heiðarlegt en
ljúga þvi svo, að æskulýðsnefnd
Alþýðubandalagsins sé ekki til-
búin til kappræðufundar.”
Sölvi sagði að það væri hins
vegar allt annað mál, sem menn
þyrftu að velta fyrir sér sjálfir,
hvort þeim fyndist það jafnrétti, -
að Heimdallur fengi þrjá fulltrúa
á umræddum kappræðufundi á
móti einum frá hverjum hinna
flokkanna, auk þess sem engum
fulltrúa væri boðið frá kvenna-
framboðinu.
„Heimdeliingar verða að gera
sér grein fyrir þvi, að það eru 5
flokkar sem takast á hér i borg-
inni, og hver flokkur leggur sina
stefnu fyrir kjósendur. Ég skil
mæta vel, að ihaldinu veiti ekki af
þremur fulltrúum tii að tala fyrir
hin ýmsu flokksbrot flokksins.
baö er vel vitað, að margir ungir
Sjálfstæðismenn vilja alls ekki
Davið Oddsson sem borgarstjóra
og munu þvi ætla að skila auðu,
sitja heima, eða jafnvel kjósa
kvennaframboðið i mótmæla-
skyni við framboð Daviðs,” sagði
Sölvi að lokum.
Sölvi Ólafsson
Nýr sýslu-
maður á
Selfossi
Forseti Islands hefur að tillögu
dómsmálaráðherra skipað
Andrés Valdimarsson sýslumann
i Snæfellsness- og Hnappadals-
sýslu til að vera sýslumaður i
Arnessýslu og bæjarfógeti á Sel-
fossi frá 1. júll 1982 að telja.
Frost um allt land
Veðurguðirnir hafa gert lands-
mönnum slæman grikk undan-
farin dægur. 1 gær var frost um
allt land og stefndi i það að ykist
frekar en hitt. Á Akureyri og fyrir
norðan var allt upp i 9 stiga frost
en á höfuðborgarsvæðinu u.þ.b. 4
stiga frost. Gróður tekur þessum
veðrabrigðum tæpast fagnandí né
heldur mannfólkið sem fyllist af
kvefpest og öðrum kvillum.
— hól.
Alþýðubandalagið í Reykjavík:
1. maí-fundur
á Hótel Borg
Að venju boðar Alþýðubandalagið i Reykjavlk til fundar að Hótel
Borg er fundi verkalýðshreyfingarinnar lýkur á Lækjartorgi.
Hæðumenn: Guörún Agústsdóttir ritari og Þorbjörg Samúelsdóttir
verkamaður.
Fundarstjóri: Sigurður G. Tómasson borgarfulltrúi.
Guðrún
Sigurður
Þorbjörg
Bónussamningarnir
í fiskvinnunni:
/
Urslita var
vænst í
gærkvöldi
Þessi samningalota er búin að
standa út alla vikuna og við
eigum von á þvi að samkomulag
náist I kvöld, sagði Þórir Daniels-
son framkvæmdastjóri Verka-
mannasambandsins er við náðum
i hann i fundarhléi i gær, en um er
aðræða samninga um lagfæringu
á bónuskerfi I fiskvinnu.
Þórir sagði að þessir samn-
ingar fjölluðu um flókin atriði,
sem erfitt væri að útskýra i stuttu
máli, og væri það m.a. ástæða
þess hversu langan tima þetta
hefði tekið. Þá sagði hann að
fundir um aðalkjarasamning
hefðu einnig tafið eitthvað fyrir.
En við erum hér að lagfæra hluti,
sem betur mættu fara og væntum
þess að úrslitin ráðist i kvöld,
sagði Þórir að lokum.
ólg.
Dr. Kristinn
Guðmunds-
son er látinn
Kristinn Guðmundsson
t gærmorgun lést i Reykjavik
dr. Kristinn Guðmundsson, fyrr-
um utanrikisráðherra, áttatiu og
fjögurra ára að aldri.
Kristinn lauk doktorsprófi i
Þýskalandi 1926. Hann var siðan
kennari við Menntaskólann á
Akureyri og skattstjóri þar
nyrðra. Utanrikisráðherra var
hann 1953—56 og siðan sendi-
herra, fyrst I London en siðar i
Moskvu. Kona hans var Elsa
fædd Kalbow.
Dómnefnd
um bók-
menntaverð-
laun
Menntamálaráðuneytiö hefur
skipað Heimi Pálsson, skóla-
meistara, og Jóhann Hjálmars-
son, rithöfund, fulltrúa af Islands
hálfu i dómnefnd um bókmennta-
verðlaun Norðurlandaráðs til
þriggja ára frá 1. mars 1982 að
telja. Sveinn Skorri Höskuldsson,
prófessor, hefur verið skipaöur
varafulltrúi i dómnefndinni sama
timabil.