Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 23

Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 23
Helgin 1 — 2. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN _ SIÐA 23 Margt á döfinni Fyrir nokkru auglýsti Bridge- sambandiB eftir 4ra manna sveit- um til keppni um landsliö á Norðurlandamót i Finnlandi i sumar. Aðeins 3 sveitir sýndu áhuga á þessari keppni. Ein þeirra var sveit Sævars Þor- björnssonar og vegna hins góða árangurs sveitarinnar i vetur hefur stjórn BSI ákveöið að velja sveitina til farar á Norðurlanda- mótiö, sem hefst 19. júni n.k. Sveitina skipa auk Sævars: Jón Baldursson, Valur Sigurösson og Þorlákur Jónsson. Þátttökutilkynningafrestur i Bikarkeppni sveita er til 12. mai n.k. Keppnisfyrirkomulag verður einsog undanfarin ár útsláttar- keppni, og skal 1. umferð lokiö fyrir 21. júni, annarri umferð fyrir 26., 3. umferö fyrir 23. ágúst og 4. umferð fyrir 20. september. Dagsetning úrslitaleiksins verður ákveðin síðar. Keppnisgjald veröur kr. 600 á sveit og renna 80% af þátttökugjöldunum i ferðasjóð til að jafna niöur ferða- kostnaði sveitanna. Tekið er við skráningu á skrifstofu sambands- ins i sima 18350, og eins erhægt að hafa samband við einstaka stjórnarmenn. Heimsmeistaramótið i tvi- menning og keppni um Rosen- blumbikarinn verður háð 1,—16. október n.k. i Biarritz i Frakk- landi. tsland hefur rétt á að senda 9 pör i tvímenninginn, op- inn flokk; 4 pör i kvennaflokk; 24 pör i blandaðan flokk og 5 sveitir til keppninnar. 1 haust ákvað stjórn Bridge- sambands Islands aö úthluta sætum til spilara eftir þessum reglum: 4efetu pör á tslandsmóti i tvimenning hafa rétt til að taka þátt i mótinu ef þau eru óbreytt, öðrum sætum verður úthlutað eftir umsóknum til þeirra para sem samaniagt hafa hæsta sölu meistarastiga aö loknu lslands- móti 1982. I kvennaflokk hafa þau pör rétt til þátttöku sem urðu i 10 efstu sætum i tslandsmóti i tvimenning 1982, öörum sætum veröur út- hlutað eftir umsóknum til þeirra para sem hafa spilað i landsliði á timabilinu 1978-1982 og siðan þeirra sem hafa hæsta saman- lagða tölu meistarastiga að loknu tslandsmóti 1982. Bridgesambandið Uthlutar sætum iblandaðan flokk eftir um- sóknum. Islandsmeistarar I sveitakeppni hafa rétt á þátttöku um Rósenblumbikarinn en Bridgesambandið mun aö ööru leyti gangast fyrir myndum sveita meðal þeirra para sem taka þátt i' opnum flokki i tvi- menningi til að skipa önnur sæti. Samkvæmt ofangreindu, og eins með þeim fyrirvara að Bridgesamband tslands skuld- bindur sig ekki til neinnar fjár- hagsaöstoðar við spilara sem fara á mótiö, vili BSÍ biðja þá spilarasem hafa áhuga á að fara á þetta mót að hafa samband við skirfstofuna eða stjórnarmenn fyrir 22. mai. Bridgesambandið mun i samvinnu við Samvinnu- feröir/Landsýn, reyna að ná góðum ferðakjörum fyrir fulltrúa tslands i Biarritz. Umsjón Ólafur Lárusson Eftirmál í miðvikudagsþættinum fjallaði undirritaöur itarlega um fram- mistööu einstakra para i Islands- mótinu i tvfmenning, sem lauk um siðustu helgi. Þar var sögö saga af viöskiptum austanmanna og ótiltekins pars af Suöurlandi. Þátturinn vill leiörétta þessa „sögu” sem ekki reynist hárrétt i meðförum (?). Enda er það oft þegar „létt” er tekið á málunum vilja þau gjarna misfarast af ýmsum ástæðum. Þó veröur þátturinn aö játa, að einsog hún hljómaði, var hún nokkuö góö, eða hvað? Sem sagt þetta hefði getað gerst, en gerðist ekki. Frá Bridgefélagi Selfoss Nýlokiö er hjá félaginu aðal- sveitakeppni, er 10 sveitir tóku þátt í samtals 40 spilarar. Þetta var stærsta mót vetrarins. Sigur- vegari varð sveit Sigfúsar Þórðarsonar sem hlaut 162 stig. Auk hans spiluöu i sveitinni: Kristmann Guðmundsson, Gunn- laugur Sveinsson, Kristján Jóns- son og Jónas Magnússon. Röð efstu sveita varð: 1. SigfúsÞórðarson ....162 stig 2. örn Vigfússon...........132 stig 3. Gunnar Þórðarson..115 stig 4. Sigurður Sighvatsson .. 105 stig 5. Leif österby...........101 stig 6. GesturHaraldsson .... 83stig Staða efetu para i barometer-tvi- menningskeppni eftir 2 umferðir: Kristján Jónsson — Kristján Már Gunnarsson 76st. örn Vigfússon— VilhjálmurPálsson 71 stig Þórður Sigurðsson— Gunnar Þórðarson 69stig Frá Tónlistarskólanum í Reykjavík Inntökupróf i Tónmenntakennaradeild skólans verður mánudaginn 17. mai n.k. Umsóknarfrestur er til 12. mai. Umsóknareyðublöð eru afhent á skrifstofu skólans og þar eru einnig gefnar nánari upplýsingar um prófkröfur og nám i deild- ÍHHÍ- Skólastjóri Sumarnámskeið ’82 Kennslugreinar klassiskur gitar og blokk- flauta. 011 kennsla á hljóðfærin fer fram i einka- timurr; en hóptimum i tónfræði og tón- heyrn. Þessi námskeið eru ætluð byrjend- um og þeim sem lengra eru komnir. Inn- ritun fer fram dagana 1. til 5. mai i sima 18895- Orn Viðar Gleðilegt sumar! Frá Bridgefélagi Reykjavikur Siðastliðinn miðvikudag var fyrirhugað að halda áfram ein- menningskeppni félagsins, en þar sem ekki mættu nógu margir til leiks í tvo riðla , var brugðið á það ráð að spila tólf para tvimenning. Úrslit urðu þessi: Gylfi Baldursson — Sigurður B. Þorsteinsson 193 Aðalsteinn Jörgensen — Þorlákur Jónsson 192 Böðvar Magnússon — RúnarMagnússon 1*1 Guðmundur Hermannsson — Þorgeir Ey jól fsson 181 Siðasta spilakvöld hjá félaginu á þessustarfsári verður n.k.mið- vikudag. Þá er fyrirhugaö að 16 efstu menn úr fyrsta kvöldi ein- menningskeppninnar spili um tit- ilinn einmenningsmeistari BR 1982. Aðrir spilarar, sem mæta spila eins kvölds tvimenning. Spilamennska hefst i Domus Medica kl. 19.30. St. Jósefsspítali Landakoti H júkrunar - f ranikvæmdast j órastaða er laus til umsóknar frá og með 1. ágúst 1982 eða fyrr. Hlutavinna kemur til greina. Einnig er laus staða deildarstjóra á lyf- lækningadeild frá 1. ágúst 1982. Allar nánari upplýsingar veittar á ?krif- stofu hjúkrunarforstjóra millikl. 11—12 og 13—14 alla virka daga. Reykjavikl/5 1982 St. Jósefsspitali Landakoti Þjóöviljinn vill ráða afgreiðslustjóra til starfa frá 1. júni n.k. Óskað er eftir skriflegum umsóknum, sem sendist framkv.stjóra blaðsins sem allra fyrst. Upplýsingar um fyrri störf og menntun fylgi. mv/um Láttu beina lækka Ferðavalið aldrei fjölbreyttara! Rimini Portoroz Grikkland Toronto Hawaii Kalifornia - rútuferð Rínarlönd - rútuferð • 8-landa sýn - rútuferð • írland - rútuferð eða dvöl í Dublin • Moskva, Leningrad, • Flugogbíll-fráKaupmannahöfn Sochi við Svartahafíð • Winnipeg • Þrándheimur - rútuferð • Bangkok, Bali, Singapore • T romsö - rútuferð/tjaldferð • Orlof aldraðra • Sumarhúsí Sviss og Austurríki x SL-aðildarfélagsafsiáttur x SL-barnaafsláttur x SL-ferðavelta x ... og síðast en ekki síst sama verð fyrir alla landsmenn. Kynntu þér nýjungar Samvinnuferða-Landsýnar í afsláttar- og greiðslukjörum. Aukinn farþegafjöldi opnar okkur á hverju ári nýjar leiðir til lægri verða og hagstæðari greiðslukjara. _ . Glæsilegur s og kvikmyndasyning i axg Samvinnuferdir-Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.