Þjóðviljinn - 01.05.1982, Blaðsíða 19
Helgin 1,— 2. mai 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
„Fleiri verkamannabústaðir nauðsyn”
Rætt við
• •
Orn
Jóhannsson
múrara
á Húsavík
#/Það er alveg Ijóst að
þörfin fyrir byggingu
ibúða á félagslegum
grunni er mikil hér á Húsa-
vík/ rétt eins og annars
staðar á landinu"/ sagði
örn Jóhannsson múrari og
stjórnarmaður Verka-
mannabústaða á Húsavík/
er blaðamaður hitti hann á
aðalfundi Verkalýðsmála-
ráðs Alþýðubandalagsins.
„Við erum núna með 8 ibúðir i
byggingu sem veröa afhentar 1.
ágúst í sumar og 6 til viðbótar
verða byggðar á næstunni. Miðað
við þörfina sem fram kom þegar
umsóknir lágu fyrir virðist full
þörf á að byggja helmingi meira”
Hvað með atvinnuástandið á
Húsavik. Er það gott?
„I dag er það ágætt og nóg að
gera. Það var meö Húsavik eins
og flest sjávarpláss úti á landi að
atvinnuástandið var orðið afar
slæmt fyrir um áratug siðan. Þá
var gert stórátak i uppbyggingu
sjávarútvegsins undir stjórn þá-
verandi sjávarútvegsráðherra,
Lúðviks Jósepssonar, og togarar
byggðir i stórum stil. Raunar
fengum við Húsvikingar ekki
togara þá strax heldur kom Július
Havstein nokkrum árum siðar og
svo Kolbeinseyin nú nýverið. Hér
á Húsavik er vel rekið útgerðar-
fyrirtæki i félagslegri eign, Höfði
h/f og okkar sjávarútvegi er vel
borgið i umsjá þess. Hið öfluga
atvinnuástand hér hefur gert það
að verkum að fjölgun Húsvikinga
hefur undanfarin ár verið heldur
meiri en landsmeðaltal segir til
um”.
Hvað með aðrar atvinnu-
greinar?
„Það eru vissar nýjar atvinnu-
greinar i uppbyggingu og má þar
nefna dráttarbrautina, sem er al-
menningshlutafélag og svo er
verið að byggja upp húseininga-
verkstæöi i örum vexti. Það er
svolitið einkennilegt að einka-
framtakið á afar erfitt uppdráttar
hér hjá okkur á Húsavik. Það má
segja að öll meiri háttar fyrirtæki
á staðnum séu i félagslegri eigu
og það segir meira en margt
annað um möguleika einkafram-
taksins þegar félagslegu kraft-
arnir eru rétt stilltir saman”
Hefur Alþýðubandalagið sterka
stöðu á Húsavik?
„Ég held það sé engin goðgá að
fullyrða að svo sé. Við höfum 3
bæjarfulltrúa af 9 og erum stærsti
flokkurinn á Húsavik. Við
stefnum hiklaust á að fá 4 bæjar-
fulltrúa kjörna i vor og erum með
glæsilegan frambjóðanda i þvi
sæti, Hólmfriði Benediktsdóttur
húsmóður og tónlistarkennara
með meiru. Alþýðubandalags-
menn hér eru þvi tilbúnir i
slaginn og viö opnuðum kosninga-
skrifstofu i Snælandi núna á
Sumardaginn fyrsta”.
Samningar eru nú framundan.
Hvernig finnst þér staðan hjá
verkalýðssamtökunum vera,
Örn?
„Ég held að allir geti verð sam-
mála um að verulegrar leiðrétt-
ingar er þörf á kjörunum, ekki
sist þeirra sem smánarlegustu
launin hafa. Við i Bygginga-
mannafélaginu Arvakri höfum
aflað okkur verkfallsheimildar og
ég vænti þess að sem flest féiög
geri það á allra næstu dögum.
Það er liklega meiri þörf á þvi nú
en nokkru sinni fyrr að sauma að
atvinnurekendavaldinu og knýja
fram mannsæmandi laun til
handa þeim þúsundum lands-
manna sem við bágust kjör búa”,
sagði örn Jóhannsson múrari á
Húsavik að lokum.
— v
m
F yrir 10 árum
í fréttum frá Amsterdam i gær
segir að dr. Euwe, forseti alþjóða
skáksambandsins hafi lýst þvi yf-
ir að sambandið muni reyna að
styðja þá hugmynd að Island
haldi allt einvigið milli Fischers
og Spasskis.-----Þjóðviljanum
barst i gær tilkynning frá skák-
sambandi Sovétrikjanna þar sem
rakin eru kunn atriði, en þar segir
á einum stað: „Takist FIDE að
vernda skipuleggjendur fyrir
hömlulausum kröfum áskoranda
getur einvigiö enn farið fram.”
(3. mai).
Um helgina féll héraðshöfuð-
borgin Quang Tri i hendur viet-
namska þjóðfrelsishersins eftir
harða bardaga. Sækir hann nú
fram til keisaraborgarinnar Hue
og virðist vera kominn að mikil-
vægri varnarstöð. En jafnframt
ræður hann hluta af þjóðveginum
alllangt fyrir sunnan Hue svo að
Saigon-herinn á erfitt með að-
drætti þangað. Allur norðurhluti
Binh Dinh-héraðsins er á valdi
þjóðfrelsishersins og nálgast
hann nú Kontum. Loftárásir
Bandarikjamanna á Suður-Viet-
nam eru æðisgengnar, og er
Norður-Vietnam hótaö miklum
hefndum úr lofti.
(3.mai).
William Rogers, utanrikisráð-
herra Bandarikjanna, fékk óblið-
ar móttökur hjá stúdentum er
hann i gær kom i skoöunarferð inn
á svæði háskólans. Um 300 stúd-
entar tóku á móti ráðherranum
og fylgdarliði hans og sýndu hon-
um hvern hug islenskir náms-
menn bera til þeirrar rikisstjórn-
ar, sem heyir ægilegasta tor-
timingarstrið sem háð hefur ver-
ið. Utanrikisráöherrann varð frá
aðhverfaánþessaðfá inngöngu i
Árnagarð en stúdentarnir lögðu
áherslu á að þangað tækist honum
ekki að komast.
(3. mai).
Svona til að vekja forvitni og
hneykslun ætlum við að hafa hér
nakið módel og nemendur að
vinna við að teikna það — og
raunar að vinna ýmislegt annað i
stað þess að halda venjulega vor-
sýningu sagði Kjartan Guðjóns-
son listmálari, kennari við Mynd-
lista- og handiðaskólann við
blaðamann Þjóðviljans i gær.
(3. mai).
Konur blásara úr Lúðrasveit
Reykjavikur gangast fyrir kaffi-
sölu á sunnudaginn kemur, þann
7. mai, i Blóma- og vikingasal
Hótels Loftleiða til styrktar
mönnum sinum sem i tilefni 50
ára afmælis lúðrasveitarinnar
ætla sér að leggja land undir fót
og halda til Islendingabyggða i
Kanada. Konurnar héldu þvi blá-
kalt fram á blaðamannafundi á
dögunum að þetta yrði glæsileg-
asta kaffi sem nokkur hefði enn
augum litið...
(4. mai).
„Einkaframtakið flýr af hólmiállúsavik” segir örn Jóhannsson múrari.
Tokum þátt í
sameiglnlegu
ÁtÁki Á
ÁRIALDRAÐRA
Til að bæta úr einni brýnustu þörf í málum aldraðra er stefnt að því, að þessi
nýja hjúkrunardeild við Hrafnistu í Hafnarfirði, sem rúma mun 80—90
manns, verði tekin í notkun í lok þessa árs — árs aldraðra.
Veitum öldruóum veróskuldaðan stuóning-
Verum meö í happdrætti DAS
Mlðier möguleiki
yrsojA ^